Leita í fréttum mbl.is

Miðflokkurinn stendur vaktina löngu [u]

Fáninn

Uppfært á þjóðhátíðardegi íslenska lýðveldisins 17. júní 2019. Til hamingju Íslendingar á hátíðardegi þjóðar okkar og lands

****

MIÐFLOKKURINN STENDUR VAKTINA

Það gerir Miðflokkurinn á meðan forysta Sjálfstæðisflokksins hefur borið xD-flokkinn út til að gera pláss fyrir allsherjarfelustað Bjarna Benediktssonar, sem sagði á Alþingi í fyrra að raforkumál Íslands væru ekki innri-markaðsmál ESB. Og berst nú Björn Bjarnason --sem sagði árið 2002 að ekki mætti samþykkja neina orkupakka-- gegn formanni Sjálfstæðisflokksins eins og hann var í fyrra, með því að annúllera ummæli formannsins frá því þá, með því að berjast eins og sannur ESB-skriffinnur fyrir orkupakka3, sem kom í kjölfar þess pakka sem hann árið 2002 sagði sjálfur að ekki mætti samþykkja. Já svona er ógeðsröðin á þessum myrkraverkum ESB-veldisins á Íslandi. Nema náttúrlega að "Rússar" séu hér að glundroða-verki, að hefna sín á xD-mönnum fyrir að hafa lent í þriðja orkupakka ESB við Eystrasalt. En hverjir hins vegar eru "Rússar" í þessu máli, má þó flestum vera ljóst, þegar fyrir- og eftirvarar þess eru skoðaðir:

Alþingi miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 05:19:57

"Þorsteinn Sæmundsson segir að sinnaskipti þingmanna xD minni á áður og eftirmyndir fyrir flösusjampó. Hvað Framsókn varðar þá er núverandi forysta án sannfæringar í stjórnmálum. Eins og þegar hundur eltir skottið á sér. Tveir pistlar formanns xB voru barapistlar"

Á sama tíma berst Benedikt utanþingsmaður Viðreisnar --og fyrrum ESB-messuhaldari í Valhöll-- um á svitabol fyrir evru sem hann álítur galdrapening. Og Blöndal sendir inn rúmstokksgrein um öll núllin sín. Og á þessum stórskammar tíma í vor hefur framhaldslífvörður Sovétríkjanna í Vinstri grænum (áður eldrauðum) stillt formanni sínum og forsætisráðherra út í sovétbúðarglugga sem siðferðislegum perverti, öllum til sýnis, sem sagðist helst vilja drepa ófædd börn fram að fæðingu. Í því máli naut hún aðstoðar utanríkisráðherrans Guðlaugs Þórs Þórðarsonar úr orkupakkasetuliði Sjálfstæðisflokksins í Valhöll. Já, enn einn stillti sér út sem gínu búðarglugga-vinstrisins

Þeir sem fylgst hafa með könnunum um fylgi flokkanna undanfarið, hafa tekið eftir því að Miðflokkurinn hefur nú náð aftur því sem hann fékk í síðustu kosningum, þar sem hann fékk fleiri atkvæði en Framsóknarflokkurinn, og þar sem Sjálfstæðisflokkurinn beið afhroð vegna formannsins og liðsins í kringum hann. Þar tapaði xD-flokkurinn í öllum kjördæmum og líka í kjördæmi formannsins:

Tap xD Norðvesturkjördæmi => mínus 5,0% (prósentustig)
Tap xD Norðausturkjördæmi => mínus 6,2%
Tap xD Suðurkjördæmi => mínus 6,3%
Tap xD Suðvesturkjördæmi => mínus 3,0%
Tap xD Reykjavíkurkjördæmi-suður => mínus 2,8%
Tap xD Reykjavíkurkjördæmi-norður => mínus 1,8%

Bjarni Benediktsson tapaði í öllum kjördæmum landsins

Sigmundur Davíð vann hins vegar þessar kosningar svona:

Sigur SDG: Norðvesturkjördæmi => plús 14,2%
Sigur SDG: Norðausturkjördæmi => plús 18,6%
Sigur SDG: Suðurkjördæmi => plús 14,3%
Sigur SDG: Suðvesturkjördæmi => plús 9,5%
Sigur SDG: Reykjavíkurkjördæmi-suður => plús 7,6%
Sigur SDG: Reykjavíkurkjördæmi-norður => plús 7,0%

Þegar haft er í huga að kannanir sýna betur skoðanir þeirra sem vilja gefa þær upp af því að þeir þykjast hafa "réttar skoðanir", en þeirra sem hafa "rangar skoðanir" og veigra sér því við að segja rétt-skoðana-aðlinum frá deplorable skoðunum sínum, þá er vert að staldra við og álykta sem svo, að fylgi Miðflokksins er sennilega um 15 prósent núna. Fólk með "réttar skoðanir" segir á nær öllum Vesturlöndum í dag, að millistéttin og lægri-millistéttin hafi "rangar skoðanir". En á næstum öllum Vesturlöndum er millistéttin mjög reið. Og reiði hennar fer vaxandi. Hér á Íslandi líka

VDH: Why Are the Western Middle Classes So Angry?

Fyrri færsla

Græningjar eru Burgeisar nútímans [u]


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æ fleiri sjálfstæðismenn átta sig nú á því að 

"Sjálfstæðisflokkurinn" undir forystu Bjarna er

alls ekki sjálfstæðisflokkur, heldur

Engeyska Samfylkingar Bandalagið.

Sjálfstæðir menn sem elska land sitt og þjóð segja sig nú unnvörpum úr ESB flokknum, skiljanlega.

Sjálfstæðir menn bíða þess nú eins að rassskella svo ESB flokkinn rækilega að fylgi hans hrynji.

Miðflokkur Sigmundar Davíðs er eini flokkurinn sem sjálfstæðir menn munu geta gengið til liðs við og kosið.  Vafalaust er það rétt ályktað hjá þér Gunnar að raunfylgi Miðflokksins sé nú í kringum 15% en mín kenning er sú að enn megi vænta þeirra sjálfstæðismanna sem ætla að rassskella ESB flokk Junior Bjarna.  Fylgið stefni því í vel yfir 22%.

En fylgi "Sjálfstæðisflokksins" hrynji þá í max. 14%.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 16.6.2019 kl. 12:21

2 identicon

Sigmundur Davíð leiddi fyrri flokk sinn til nær 25% fylgis í alþingiskosningunum 2013.

Framsóknarflokkurinn undir forystu Singa er nú í frjálsu falli, rétt eins og "Sjálfstæðisflokkurinn" undir forystu Engeyinga.  Sá flokkur hrynur bara og hrynur og nú bíður Bjarna og bimbósmástelpnanna hin algjöra rassskelling.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 16.6.2019 kl. 12:40

3 identicon

Og þegar svo er komið, að Engeyjar forystan telur Davíð Oddsson vera sinn versta óvin

þá er ljóst að leiðarlok hins 90 ára gamla flokks eru nærri.

Einungis glóbalískir ESB kratar fylkja með

Engeyska Samfylkingar Bandalagi Junior Bjarna, Björns Bjarnasonar, Halldórs Engeyings Blöndal og hrokafullu stelpuskjátanna og Gulla Brusselska.

Sjálfstæðismenn eru reiðir, þeir munu refsa forystunni sem hafnaði þeim.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 16.6.2019 kl. 13:34

4 Smámynd: Borgþór Jónsson

Nú er mér öllum lokið Gunnar Rögnvaldsson.

Ég er sammála öllu sem þú segir.

Borgþór Jónsson, 16.6.2019 kl. 14:13

5 identicon

Aðeins einu við að bæta:

Takk fyrir góðan og þarfan pistilinn Gunnar

og takk fyrir krækjuna á glöggskyggna grein Victor Davis Hanson.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 16.6.2019 kl. 15:12

6 Smámynd: Óskar Kristinsson

Blessaðir Gunnar og gestir! og takk fyrir Góðan pistil Gunnar!!!

Já hvað gengur að þessu aumingja fólki? Bullar allt sömu barnalegu þvæluna.

Og fullt af hroka, Ekki lagaðist það þegar Halldór blöndal byrtist í umræðunni,Mesti hrokagikkur sem eg hef kynnst.

Og Páll Magnússon heldur þú virkilega að að þú komist aftur inn á þing ef þú lætur ekki af þessari þjónkunn við ESB?

Við viljum fá að vita hversu marga silfurpeninga hver fær fyrir auðlindasöluna til ESB?

Óskar Kristinsson, 16.6.2019 kl. 16:11

7 Smámynd: Hrossabrestur

Foringjalausi flokkurinn sem á að heita sjáfstæðisflokkurinn en er eitthvað allt annað í raun er dauðanum merktur ef ekki kemur einhver foringi með bein í nefinu og kemur honum á rétta braut aftur, Bjarni Benediktson er svo liðónýtur formaður og það er ótrúlegt að hann finni það ekki sjálfur og geri eins og allir skynsamir menn þegar þeir finna að þeir ráða ekki við sín verkefni þá víkja þeir fyrir öðrum sem eru hæfari til hlutanna.

kv hrossabrestur

Hrossabrestur, 16.6.2019 kl. 22:10

8 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Orðsnilld og skilmerkileg framsetning þess, sem svo margir hugsa, en eiga erfitt með að festa á blað, virðist þér lítið mál, að koma frá þér, Gunnar. Hafðu þökk fyrir enn einn góðan pistilinn og snilldarvel að orðum kveðinn. 

 Já, þetta með að losna við börn í móðurkviði allt fram að síðustu hríðum, skilur fávitinn ég ekki. Hvernig  Þistilfjarðarkúvendingsfjarstýrða litla Forætisráðherfa Íslands komst upp með að láta þetta út úr sér, án þess allt færi á hliðina, er með öllu óskiljanlegt. Hvað næst? Lita eða krumpuspjöld á fæðingadeildunum? ´´Nei kúturinn minn, þú ert svo djöfull krumpinn og ljótur og hún mamma þín vill ekkert með þig hafa´´. Í hakkavélina með kvikyndið! Kata segir þetta allt í lagi og kúvendingnum er slétt sama. Eftirlaunatékkarnir, aksturs og búsetusporslurnar tikka, sundlaug í Bolungarvík, Helga í hurðinni og ´´hú givs a sjit´´ ´´(Jón Tryggvason)´´

 ´´Góða fólkið´´ er vont fólk, þá það gefur sér það að þau ein viti. Um þannig fólk eru til all nokkur góð íslenskt orð.: Sjálfhverfur, veruleikafirrtur eiginhagsmunaseggur, til dæmis, auk ótalmargra annara glimrandi góðra orða um uppskafninga sem flækjast í vef sjálfs síns ágætis og vissu um eigin óskeikulleika.

 Takk fyrir pistilinn.  

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 17.6.2019 kl. 02:04

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir innlit og skrif, Símon Pétur, Borgþór, Óskar, Hrossabrestur og Halldór Egill. 

Já þetta mál er ekki gaman.

Best að flagga í tilefni dagsins í dag, 17. júní 2019.

Til hamingju Íslendingar á hátíðardegi þjóðar okkar og lands.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 17.6.2019 kl. 03:04

10 identicon

Já, gleðilega þjóðhátíð.  Það er eins með sjálfstæðið og lýðveldið, það tekur aldir að ná því, en augnablik fyrir leppa erlends valds að rústa því.  Látum það ekki gerast á okkar vakt.  Í dag minnumst við 75 ára afmælis íslenska lýðveldisins og strengjum heitin, fullveldinu, sjálfstæðinu og lýðveldi þjóðar og lands til heilla.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 17.6.2019 kl. 12:15

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Heyr heyr Símon Pétur!

Hátíðarkveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 17.6.2019 kl. 15:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband