Leita í fréttum mbl.is

Vilji þjóðarinnar NÚNA er nei við orkupakka3. Hlustið!

"Ekki lagður gegn vilja þjóðar­inn­ar" (bla bla bla)

Hlustið bara núna strax á þjóðina í stað þess að troða þessu fyrirvaralausa þvaðri upp í hana. Þið eruð á móti þjóðinni núna, eins og síðast. Þið virðist engin eyru hafa

Formaður Sjálfstæðisflokksins sagði (á Alþingi!) fyrir aðeins ári síðan að raforkumál Íslands væru ekki innri-markaðsmál ESB. Er þessi svokallaði formaður sem aldrei sést, kannski bara gufaður upp eins og hver annar fyrirvari fyrirvaralaust. Svona eins og Björn Bjarnason er gufaður upp líka, því hann sagði hér, að ekki mætti samþykkja orkupakka eitt og tvö

Þjóðin segir nei núna. Hlustið því núna!

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins sagði nei síðast þegar hann kom saman. Nei nei nei!

Allir segja nei nema þið þarna í hinu heyrnarlausa þríeyki ríkisstjórnar, sem hefur þann lægsta samnefnara að ENGINN flokka hennar samþykkti, áður en tungan var skorin úr þeim, orkupakka3

Enginn þingmana Sjálfstæðisflokksins vildi samþykkja þetta drasl frá ESB. En núna líkast þeir bara samansaumuðu orkupakki!

Enginn þessara þriggja flokka háði kosningar með þriðja fasa Orkubandalags Evrópusambandsins á prógrammi sínu. Enginn!

Það er greinilegt að segja þarf upp ESS-samningnum fyrst að þið getið ekki hundskast til að umgangast hann og þjóðina af meiri virðingu en með svona lýðskrumi af verstu sort. Já af verstu sort

Hví öll þessi óheillindi? Takið ykkur vinsamlegast saman, svo ekki þurfi að mata ykkur með barnateskeið

Fyrri færsla

Sovésk teknókrata-heimspeki ESB


mbl.is Valdið hjá Alþingi óháð fyrirvörunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk Gunnar.

Þú hefur farið fram úr mínum björtustu vonum í brýningum þínum. 

Þetta er allt svo dagsatt hjá þér en mig langar að hnykkja á þessu;

"Enginn þessara þriggja flokka háði kosningar með þriðja fasa Orkubandalags Evrópusambandsins á prógrammi sínu. Enginn!".

Veistu að ég held að jafnvel harðsvíruðustu einræðisríki þyrðu ekki að haga sér svona, að uppúr þurru þá er erlendu valdi framselt yfirráð yfir orkuauðlindum, sem eru ein meginstoð velferðar og velmegunar.

Þetta grundvallarmál var ekki einu sinni rætt í kosningunum, allra síst gat kjósendur þessa þriggja flokka grunað að þeir yrðu harðsvíraði en ESB flokkarnir þrír, Píratar, Viðreisn og Samfylkingin.

Það hljóta allir að sjá hvað þetta er galið.

Snargalið.

Svo ég segi bara eins og þú.

Hlustið.

Kveðja að austan.

 

 

 

Ómar Geirsson, 1.6.2019 kl. 00:37

2 identicon

Drengir, ágætu Gunnar og Ómar,

mikið sem það er ánægjulegt að geta hér þakkað ykkur báðum fyrir einstaka elju, einurð og baráttuanda gegn þessum EES/ESB orkupakka skratta.

Við erum yfir í fyrri hálfleik, en sigur vinnst ekki nema jafnvel, eða enn betur verði spilað í síðari hálfleik.  Baráttan fyrir sjálfstæði og fullveldi lítillar eyþjóðar er eilíf, henni lýkur aldrei.  En við sigrum, því þjóðin er sama sinnis og við.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 1.6.2019 kl. 01:04

3 identicon

Sigmundur Davíð berst ekki fyrir neinu nema sínu eigin mannorði, sem er í tötrum. Nú hefur hann fundið fullveldisslaginn upp á nýtt og ESB andstæðingar hoppa vagninn með tilheyrandi propaganda. Sigmundur dressaður upp í nýju föt keisaranns vegna þess að tækifærið opinberaði sig fyrir gömlum heiðvirðum Sjálfstæðismönnum.

Ef að tillaga um lagningu sæstrengs verður einhvertíma lögð fyrir Alþingi, og það í raunveruleikanum, öfugt við allar rangfærslurnar sem hafa flogið, þá er líklegt að þjóðinn segi einhvað. En þangað til raunveruleg hætta er til staðar þá verður ekki betur séð en að ESB andstæðingar séu tilbúnir að halda Íslenska ríkinu í gíslingu til að fá frekju sinni framgengt.

Þessir miðflokksmenn eru gungur og aular. Ég er tilbúinn að skora þá alla á hólm í boxi á Austurvelli any time, ég skal meira segja taka tvo í einu.

Það sem er byggt á lygi verður aldrei neitt annað. Svo má spyrja, eru þetta hinir réttsýnu sjálfstæðismenn sem standa á bakvið þetta propaganda? Stétt með stétt gaurarnir?

Og nei Gunnar, þú hefur ekki innsýn inn í vilja þjóðarinnar frekar en Ögmundur líðskrumari í gegnum tíðinna. Þetta verður að teljast low blow frá þér. Hrein líðskrum!

Ég mæli með að þið hættið að væli eins og lítil leikskólabörn, mannið ykkur upp og gangið í populistaflokk vindhananna. Þaðan getið þið allir riðið hvítum hesti inn í sólarlagið með Sigmund Kóng í fararbroddi.

Sigþór Hrafnsson (IP-tala skráð) 1.6.2019 kl. 01:46

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur.

Sigþór pírati. Alþingi getur ekki frekar en neitt annað þing ESB/EES-landa stöðvað það sem er í orkupökkum Evrópusambandsins, hafi það samþykkt þá og innleitt þá í lög. Ekki frekar en að Írska þingið getur ekki stöðvað greiðslukerfi evrunnar þó svo að allir peningar þess séu að flýja til annarra landa, eins og gerðist 2009.

Það eina sem getur stöðvað bæði einkavæðingu raforkuferfis okkar, ofan í vasa óligarka og hundalýðs, og orkuflæði úr því yfir landamæri, er það að samþykkja ekki orkupakka3. Orkubandalag ESB er orkubandalag ESB.

Ef það skyldi hafa farið fram hjá þér þá er Evrópusambandið sjálfstætt yfirríki (e. supra national) yfir þeim ríkjum sem samþykkt hafa pakka þess. Þá er lögsaga málsins þeirra.

Yfirgnæfandi meiri hluti þjóðarinnar hefur sagt nei við þessu í skoðanakönnunum. Allir ríkisstjórnarflokkarnir voru á móti þessu þegar þeir voru kjörnir og voru það enn rétt fyrir pakkadag. Sérstaklega formaður Sjálfstæðisflokksins.

Hvað ert þú þá að þvaðra um? Sparaðu þér sóru orðin. Þú hefur ekki efni á þeim.

Talandi um mannorð þá finnst mér að þú ættir að nefna það hugtak við Vinstri græna, stærstu kosningasvikara Íslandssögunnar og svo við formann Sjálfsæðisflokksins fyrir að framkomu hans í Icesave-málinu og næstum þingflokkinn allan, en samt ekki alveg allan.

Það er ekkert að mannorði Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Bara ekki neitt. Það eina sem hann þarf að gera er að vera betri en valkosturinn, og það fer hann létt með.

Enginn á Íslandi hefur nokkru sinni beiðið um fullkomna stjórnmálamenn, því þeir koma allir úr þjóðinni, og hún er ekki fullkomin, eins og sést ágætlega á þér.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 1.6.2019 kl. 03:52

5 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Gott Gunnar Látum þá heyra það. Hér er eitt Utube þar sem Írarnir eru að vara við á sömu forsemdum og við hér   https://youtu.be/ntJHSIMN2_s

Valdimar Samúelsson, 1.6.2019 kl. 05:37

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þú slærð ekki slöku við Gunnar frekar en endranær og ekki veit ég hvar við Íslendingar værum staddir ef við hefðum ekki menn eins og þig, Bjarna Jónsson, Jón Val Jensson, Gústaf Adólf Skúlason og fleiri, sem berjast fyrir rétti þjóðarinnar.  En svo "slæðist inn" einn og einn föðurlandssvikari eins og Sigþór Hrafnsson, sem eins og alltaf verður með "skemmd epli í tunnunni, þau skemma út frá sér ef menn eru ekki nógu og snöggir að henda þeim.  Miðflokksmenn hafa staðið sig eins og hetjur síðustu daga og eitt er víst að hvernig sem allt fer þá standa þeir uppi sem sigurvegarar.  Það er alveg ljóst hvar mitt atkvæði lendir í næstu kosningum til Alþingis.  Eins og ég sé málið í dag ÞÁ ER HELSTI FYRIRVARI UTANRÍKISRÁÐHERRA SKÍTFALLINN MEÐ ORKUPAKKA FJÖGUR.  Þarna finnst mér að séu komin góð rök fyrir þingmenn allra flokka til að endurskoða afstöðu sína til orkupakka þrjú.  EN Í ORKUPAKKA FJÖGUR (sem nú þegar virðist vera kominn til kynningar í Noregi) AÐ ÞAÐ SÉ MEÐ ÖLLU ÓHEIMILT AÐ HAMLA SAMEININGU ORKUMARKAÐARINS Í EVRÓPU.  Verður það kannski kannski helstu rökin fyrir því AÐ ORKUPAKKI FJÖGUR VERÐI SAMÞYKKTUR, VEGNA ÞESS AÐ ORKUPAKKAR EITT TVÖ OG ÞRJÚ HAFI VERIÐ SAMÞYKKTIR OG TIL AÐ SETJA EKKI EES SAMNINGINN Í UPPNÁM????

Jóhann Elíasson, 1.6.2019 kl. 08:06

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur.

Takk kærlega fyrir krækjuna Valdimar.

Og já Jóhann; það er hart að þura að benda á þessa stóru eplatunnu. Einu sinni átti að senda okkur í henni til Kremlar, en nú er það Brussel. Og í öndverðu var það Noregur. Það kostaði þjóðina 682 ár í fjölþjóðlegu helvíti, og því næstum lífið.

Utanríkisráðherra Íslands verður að SMSa kollega sínum í Noregi og segja nýfæddri henni að það verði ekkert af þessu sem pakkað var inn í heyrúllurnar á fundi þeirra um málið. Að hann hafi ekki lengur áhuga á að leggja sjálfan sig og flokk sinn niður, og í síðasta enda landið okkar líka.

Að þurfa að standa í þessu stappi við þessi ömurlegu öfl er fyrir neðan allar hellur. Blekið er varla þornað á sjálfstæðisyfirlýsingu íslenska lýðveldisins, en það er strax byrjað að reyna að þurrka það út.

Hvað á svona hegðun að þýða!

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 1.6.2019 kl. 11:08

8 identicon

Já Píratar eru looserar, það er komið í ljós, en Sigmundur Davíð er Quislingur, hann talaðu upp krónuna á meðan hann og fjölskylda hanns tók stöðu gegn henni. Það eru bara vindhanar, looserar og Quislingar sem hegða sér með slíkum hætti úr Forsætisráðherrastól!

Sigþór Hrafnsson (IP-tala skráð) 1.6.2019 kl. 14:41

9 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þetta var snilldar-pistill frá þér, Gunnar, mjög öflugur.

Og vel spilast úr rökum ykkar hér í umræðunni, en vesall píratinn stendur uppi berstrípaður.

Þeir eru ýmsir, fótgönguliðar fjandans í þessu máli. Í Vikulokum (og hádegis-fréttum) Rúv var slegið upp orðum Willums Þórs Þórssonar, sem er vara­for­maður þing­flokks Framsóknarflokksins, formaður fjárlaganefndar og 4. vara­forseti Alþingis, en þar leyfði hann sér að fullyrða (segir fréttamaður um orð hans), "að greidd verði atkvæði um þriðja orkupakkann á þessu þingi. Ísland verði að virða alþjóðlegar skuldbindingar sínar ..." (!!!), og svo agiteraði hann fyrir því, að gripið yrði til 71. greinar þingskaparlaga til að stöðva orkupakkaumræðuna og koma málinu í atkvæðagreiðslu!

Ekki gat hann þess, að fylgi hans við orkupakkann er í beinu trássi við ályktun flokksþings hans eigin flokks í nóvember 2018! Ekkert umboð hefur hann frá kjósendum eða flokksþingi sínu til að þjóna undir orkupakkastefnu ESB!

Og fráleitt er af honum að fullyrða, að með því að hafna orkupakkanum eða fá undanþágu frá honum væri Ísland að óvirða "alþjóðlegar skuldbindingar sínar" -- við höfum fullt leyfi til þessa samkvæmt 102. gr. EES-samningsins og engin þörf á því að þýlyndur þingheimur gefist fyrir fram upp gagnvart því skylduhlutverki sínu.

Jón Valur Jensson, 1.6.2019 kl. 14:55

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Jón Valur.

Já og þess utan er samningur milli Íslands og Evrópusambandsins ekki "alþjóðlegt" fyrirbæri fyrir mínus fimm aura. Hér er ekkert "alþjóðlegt" á ferð. Þvert á móti.

Stutt er síðan að þingið í Vallóníu setti fimm ára samningagerð ESB-yfirríkisins við Kanada í algjört uppnám og neitaði að samþykkja það verk. Varla er þessi aftursóknar framsóknarmaður annað en alþjóðleg gastegund miðað við það. Við erum í fullum rétti. Fullum rétti!

Við værum ekki með þennan ESS-samning við yfirríkið ESB ef einmitt þessi leið til undanþága væri ekki í honum.

Ríkisstjórnin þorir ekki að verja Ísland. Hún þorir ekki að standa á réttindum þjóðarinnar. Hún þorir ekki að sækja mál þjóðarinnar. Hún þorir ekki að nota ESS-samninginn eins og til var ætlast, og sem annars hefði aldrei fengist samþykktur. Hún er hins vegar að sannfæra íslensku þjóðina um að EES-samningnum verði að segja upp.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 1.6.2019 kl. 16:01

11 Smámynd: Jón Valur Jensson

Frábær þessi lokaklausa þín -- skýrari verður ekki hugsun okkar um þessi mál. -B.kv.

Jón Valur Jensson, 1.6.2019 kl. 16:07

12 Smámynd: Óskar Kristinsson

Gunnar og allir VINIR ÍSLANDS! Bestu þakkir fyrir alla ykkar vinnu við að reina að koma vitinu fyrir skríbentana þarna á alþingi.

Það bara verður að komast að því hvað hangir á spítunni,þetta er ekki einleikið,eitthvað mjög sérstakt rekur allt þetta fólk áfram út í þetta FORARFEN???

KV af Suðurlandi

Óskar Kristinsson, 1.6.2019 kl. 16:37

13 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Gunnar flottar athugasemdir og  tek undir með þeim Jón Vali og Óskari.  

Valdimar Samúelsson, 1.6.2019 kl. 22:46

14 Smámynd: Jón Valur Jensson

Björn Bjarnason skrifaði um málið í dag og virðist hafa komið þar upp um samsæri stjórnvalda gegn þjóðinni, en honum þykir það bara hið sjálfsagðasta mál, eins og hitt að þræla málinu gegnum þingið eins hratt og þeim er frekast unnt. Hann ritar:

"Unnt er að setja þriðja orkupakkann á dagskrá þingsins hvenær sem er. Íslensk stjórnvöld hafa skuldbundið sig til að innleiða hann og mikill meirihluti er fyrir málinu á þingi." (Auðkennt hér, jvj)

Já, þessi ríkisstjórn hefur þá eftir allt saman "skuldbundið sig til að innleiða orkupakkann" --  þá er nú skiljanlegt að flokkarnir hafa keyrt á það frá byrjun og aldrei hugsað sér að þurfa að byggja málið á rökum, hvað þá að nokkur málamiðlun kæmi til greina eins og að fara fyrst með málið fyrir samstarfsnefnd EFTA-ríkjanna.

Hann ritar og: "Ætíð þegar ágreiningur af þessu tagi verður á alþingi leitast forystumenn við að ná samkomulagi sem leysir hnútinn." En það er alveg ljóst af máli hans, að í hans huga er þetta bara spurning um hvenær vörnum fullveldissinnanna lýkur, ekki hitt, að undanþágu megi leita frá þessari ESB-reglugerð eða tilskipun.

Svo kýs hann að kenna Sigmundi Davíð um allt saman, en það er alveg ljóst, að vitmennirnir Þorsteinn Sæmundsson, Karl Gauti Hjaltason, Ólafur Ísleifsson, Jón Þór Þorvaldsson, Birgir Þórarinsson o.fl. meðal þingmanna Miðflokksins hafa sjálfir þróað vel sínar rökstuddu varnir og rök, en eru ekki handbendi eins eða neins

Jón Valur Jensson, 1.6.2019 kl. 22:46

15 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Við erum ekki skuldbundin til að innleiða það sem EES-samningurinn veitir okkur rétt og skyldur gagnvart Lýðveldinu til að sækja um undanþágur frá. Menn sem þora ekki að taka í hurðarhún af ótta við að dyr opnist, þ.e. að hann virki, gef ég lítið fyrir. Þeirra rök eru annarleg og af óheillindaættum.

Leyfum þeim endilega að kenna Miðflokksmönnum um allt og grafa sig dýpra í hin holu ræsi röksemdafærslna sinna. Þær rassvasafærslur kaupir enginn, enda allt saman núllfærslur og burtflognar hænur í loftsósu um bla bla bla neytendavernd og meiri geggjunartólg. 

Jæja. Þetta hefur verið sólríkur dagur frá morgni til kvölds og endaði ég hann í kvöldsólinni á að fá mér ískalt og svalandi hreint skyr með fullt af rjóma út á, með slettu af bláberjasultu frá því í fyrra út á.  Hvílíkur munaður!

Þakkir til þín Jón Valur - og sný mér því næst að harðfisknum í eftirrétt. 

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 1.6.2019 kl. 23:07

16 Smámynd: Ómar Geirsson

Og eftir harðfiskinn Gunnar skaltu lesa þessi orð aftur.

"Ríkisstjórnin þorir ekki að verja Ísland. Hún þorir ekki að standa á réttindum þjóðarinnar. Hún þorir ekki að sækja mál þjóðarinnar. Hún þorir ekki að nota ESS-samninginn eins og til var ætlast, og sem annars hefði aldrei fengist samþykktur. Hún er hins vegar að sannfæra íslensku þjóðina um að EES-samningnum verði að segja upp.".

Tek undir með Jón Val.

Snilld.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 2.6.2019 kl. 00:15

17 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Ómar.

Já þetta er svona.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 2.6.2019 kl. 13:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband