Leita í fréttum mbl.is

Theresa May og Sjálfstæðisflokkurinn

SVITABOLSSVÆÐI BENEDIKTS LÝÐSKRUMARA - OG FINNSK LEIÐI JÓHÖNNU SAMFYLKINGAR

Hún er ansi lagin hún Theresa. Að minnsta kosti enn sem komið er. Ef hún væri það ekki, þá myndu Íhaldsmenn rífa hvorn annan á hol og sundra flokknum í ótal bita. Í Sjálfstæðisflokknum ganga málin hins vegar fyrir sig á annan hátt. Þar þurfa menn ekki að sprengja neitt, því þeir ganga bara í annan flokk. Miðflokkurinn er að fyllast af Sjálfstæðismönnum sem fyrirlíta glóbalisma og vilja ekki vera með í því að rústa íslenskum landbúnaði. Þeir trúa heldur ekki blint á EES, sem er að reynast Íslandi á sama hátt og hinn innri markaður ESB er að reynast öllum þeim löndum sem heita ekki Þýskaland: hann er gildra á borð við stuðpúðasvæði Rússlands og Þýskalands. Í gamla daga hét rússneska stuðpúðasvæðið Sovétríkin en í dag heitir þýska stuðpúðasvæðið "hinn innri markaður ESB"

Finland GDP per capita PPP

Mynd Trading Economics: landsframleiðslan á mann í Finnlandi (PPP). Tólf ára samdráttur, eyðni og stöðnun í þýskri evru

****

Finnland er fast í þessu, og er að láta þar lífið í hægfara efnahagslegum dauða. Þar deyja fleiri Finnar en fæðast. Landið er þátttakandi í eina sovétríki sögunnar með sameiginlega mynt, evrusvæðinu, og þjóðartekjur á mann eru mun lægri þar en þær voru árið 2008. Atvinnuleysi varð krónískt og varanlega hátt frá og með inngöngu landsins í ESB árið 1994 og ekkert gengur með útflutning Finnlands inn á stuðpúðasvæði Þýskalands, því þar er svartholið Þýskaland sjálft einvalda konungur yfir versta efnahagslega svæði veraldar; evrusvæðinu

Finland Unemployment Rate

Mynd Trading Economics: Atvinnuleysi í Finnlandi (prósentur). Stóra kryppan frá og með 1991 er hrun Sovétríkjanna og fast-gengissnákur EEC/EMS, ERM, og restin þar á eftir er ESB og evran. Árið 2009 féll landsframleiðsla Finnlands svo mikið að leita þurfti aftur til 1918 til að finna sambærilegt hrun, þökk sé handjárnun Finnlands í evrum. Nokia dó einnig í evrum á meðan álverið í Straumsvík malar enn gull í íslenskum krónum. Efnahagslegt mikilvægi álversins fyrir Ísland hefur alltaf verið meira en mikilvægi Nokia var í Finnlandi

****

Samanlagt hagkerfi evrusvæðisins árið 2017, var ennþá minna en það var árið 2009, segir í grein Walter Russell Mead á WSJ. Hugsið ykkur pyntingarnar á fólkinu sem býr þarna og hversu bágborinn neytendamarkaður svæðisins er. Á sama tíma óx bandaríska hagkerfið um 34 prósent. Það þarf ekki að leggja menn í lömunarstóla EES-samningsins til að skilja svona tölur. Þetta er versta efnahagssvæði heimsins. Hvorki meira né minna

Eurozone Business investments

Og nú eru fjárfestingar fyrirtækja á evrusvæðinu við það að hrynja á ný, segir Longview í Macro Trade nr. 97 þann 14. febrúar. Ekki batnar staða Finnlands við það. Það kemur að því að lengra niður götuna er ekki hægt að sparka dósinni sem heitir evrusvæðið og esb

Fyrri færsla

"Raiders" komnir í verkalýðshreyfinguna? Evrópa hefur klofnað


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Gunnar.

Þið þurfið samt að taka stríðið á heimavelli;

"Miðflokkurinn er að fyllast af Sjálfstæðismönnum sem fyrirlíta glóbalisma og vilja ekki vera með í því að rústa íslenskum landbúnaði. Þeir trúa heldur ekki blint á EES, sem er að reynast Íslandi á sama hátt og hinn innri markaður ESB er að reynast öllum þeim löndum sem heita ekki Þýskaland: hann er gildra á borð við stuðpúðasvæði Rússlands og Þýskalands. Í gamla daga hét rússneska stuðpúðasvæðið Sovétríkin en í dag heitir þýska stuðpúðasvæðið "hinn innri markaður ESB"".

Brýnasta hagsmunamál þjóðarinnar í dag er að losna úr þessu gildrusvæði skriffinnsku og stöðnunar.

Þá skotgröf þarf að grafa í Sjálfstæðisflokknum.

Það er lítið vit fólgið í að binda sig fastan við sökkvandi skip.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 27.2.2019 kl. 08:40

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka Ómar.

Kvöldsagan Andromeda eftir Fred Hoyle hefst kl. 22:15. Tryggvi Gíslason les.

=========

Því næst, hefst Velvakandi klukkan 22:35, þar sem Winston er afhjúpaður sem, popúlisti, lýðskrumari og stríðsmangari af danska dagblaðinu Politiken, viku fyrir innrás Þjóðverja.

=========

Klukkan 23:00 hefst daglegt mál. Þar leiðir Guðlaugur Þór Mike Pompeo utanríkisráðherra Bandaríkjanna um Hörpu, til að kynna fyrir honum af hverju Ísland ákvað í miðju fjármálahruni að byggja hið efnahagslega svarthol Hörpuna, í stað þess að eyða peningunum í landvarnir og Landhelgisgæsluna. Þar var Pompeo einnig gerð grein fyrir því hve mikið afl þurfti til að sprengja svo stóra holu í jörðina, að hún gæti hýst rekstrartap Hörpu næstu áratugina.

=========

Dagskrárlok hefjast kl. 23:35 og standa yfir þar til Utanríkisráðuneyti Guðlaugs Þórs hefur útskýrt fyrir þjóðinni af hverju kínverska "millistéttin" varð svo sterkur neytandi að hún þurfti á einræðisherranum Xi að halda, til að halda kaupmætti sínum í skefjum.

=========

Nýr dagur hefst kl 7:00 með veðurfregnum og tónleikum. Því næst er japanska hrunið árið 1989, sem barst fjölmiðlum á vesturlöndum til eyrna árið 1993, rifjað upp.

=========

Klukkan 7:30 verða sagðar fréttir.  Því næst biður miðstjórnin í Kreml morgunbænina sem er sú að Póllandi er skipað að senda fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar til Moskvu, til samþykkis. 

=========

Klukkan 8:00 er lesinn úrdráttur úr forystugreinum dagblaðanna; fjórir kommar og einn ekki.  Því næst hefst framhaldssagan Esb- og evruhrun. Benedikt fyrsti les í lófa Samfylkingar

=========

Greiðið vinsamlegast ofnotagjaldið, eða...

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 27.2.2019 kl. 10:15

3 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Sæll Gunnar, afskaplega hressandi að lesa pistla þína, þótt efnið sé það sama og hjá Neró forðum sem orti ljóð á meðan borgin brann. Datt í hug vegna allra grafa sem þú birtir að bæta á með framtíðarsýn sænskra sveitarfélaga. Bein lína niður nema að ríkissjóður dæli inn ómældu fé (sem ekki er til) til að bjarga gjaldþroti. Kæmist kannski með í 7.30 fréttirnar. Eigðu góðan dag

Gústaf Adolf Skúlason, 27.2.2019 kl. 11:40

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér kærlega Gústaf Adolf, og sömuleiðis fyrir skrif þín.

Eitthvað varð myndin þín þó að sænsku tré í meðferð tölvutækninnar, en það var auður pappír kallaður í Danmörku, þegar ekkert kom á hann.

Eins og þú veist þá snýst fjórða iðnbyltíng flotta fólksins um einmitt þetta: Sænsk tré (betri prentaratengingar eftir 70 ára vélamál full af veseni).

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 27.2.2019 kl. 14:30

5 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Góð grein Gunnar og upplýsingar er sammála Gústaf í þeim málum. Ég held að við verðum að taka upp lénsskipulag og eða bara gamla góða kerfið okkar frá landnámsöld. Þá gátu þingmenn ákveðið með hvaða Goða þeir stóðu með en ef þú meinar að sjálfstæðismönnum sé ekki treystandi vegna yfirtöku ESB á okkar innanríkismálum þá verða menn að fara að gera einhvað sem virkar. Sem dæmi verðum við að virkja afl allmennngs með þjóðarkostningar og eða nýra okkur koma af stað málefna kostningar eins og Bretin hefir.   

Valdimar Samúelsson, 27.2.2019 kl. 16:52

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka Valdimar.

Traust er fínt, en strangt eftirlit og aðhald með xD er betra og lífsnauðsynlegt fyrir flokkinn úr þessu, ef hann á ekki að drepast eins og tindabikkja föst á hrúðurkarli.

Já hvar eru goðorðin? Sýndu mér lögin sem lögðu þau niður! Hvar eru þau Valdimar?

Best væri að hafa þetta eins og í Bandaríkjunum:

1) Forseti og ríkisstjórn hans sem kosinn er með mannfjöldaatkvæðum og kjörmönnum sem eru fulltrúar flatarmáls goðorða, og sem enginn veit hver er fyrr en eftir að öll atkvæði hafa verið greidd. 

2) Neðri deild þings. Venjulegir þingmenn sem hafa ekki náð þeim aldri að geta vitað neitt sérstakt.

3) Senate (goðorðin) eða öldungadeild og hvert goðorð hefur að minnsta kosti tvo og hámark tvo goða. Lágmarksaldur 50 ár.

4) Héraðsdómsólar.

5) Hæstiréttur.

Svo er kosið til forseta á fjögurra ára fresti og til þings á miðju forsetakjörtímabili, og til goðorða samkvæmt setu og aldrei þannig að þau komi öll upp til kjörs til að koma í veg fyrir kosninga-múgæsingu á landsvísu.

Þetta tryggir það að ríkisstjórn forsetans og þingið geta aldrei gert neitt, nema kannski í neyð, og að það sem verður gert í landinu gerir fólkið sem vinnur í fyrirtækjum landsins. Það er það eina sem virkar og er vel stjórnað.

Og þetta tryggir að þingmenn, forseti og goðar hafa mestan áhuga á því hvað menn eins og þú og ég hugsa úti í goðorðunum (kjósendur) en ekki fréttasnápar og eitthvað sem kallast almenningsálit (skrílslátaæti).

Þetta tryggir líka það að land getur aldrei orðið stjórnlaust rekald sósíalisma né neinna annarra pervertra flugfiska á þurru landi, og þetta tryggir að við munum alltaf búa í réttarríki en ekki í skrílsríki sem er bein afleiða Reykjavíkurlýðræðis.

Kveðja 

Gunnar Rögnvaldsson, 27.2.2019 kl. 17:31

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ef að þetta væri svona þá hefði Harpan aldrei fengist byggð, því annað hvort hefði eitthvað fyrirtæki í landinu þegar byggt hana til að græða á henni, eða ætti eftir að byggja hana til að græða á henni. Þá væru bæði lögreglan, landhelgisgæslan og landvarnir í ekki í því slæma ástandi sem þau eru núna.

Það er óheilbrigt að hafa of mikinn áhuga á stjórnmálum sem mjög ungur maður og enginn ætti að fara í stjórnmál nema að hafa gert eitthvað annað fyrst, eða sem nauðvörn, vegna getuleysis annarra. Sem síðasta úrræði í lífi sínu.

Það þarf með öllum tiltækum ráðum að koma í veg fyrir að ástíður múgsins fái of mikil völd. Þess vegna þarf að torvelda ríkisstjórnun eins og kostur er og að láta fyrirtækin um sem mest í landinu og til að græða á því. Ef þeim er ekki stjórnað vel þá fara þau á hausinn og ný koma í staðinn, á meðan það er varla hægt að losna við stjórnmálamenn sem eru eilífðar stjórar á skalla.

Svo þarf að skipta opinberum starfsmönnum sem máli skipta út með hverri nýrri ríkisstjórn.

Öflugt atvinnulíf er það sem þjóðin lifir á. Hún lifir  hvorki á stjórnmálamönnum né opinberum starfsmönnum.

Gunnar Rögnvaldsson, 27.2.2019 kl. 18:46

8 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þakka Gunnar ég get ekki annað en að vera sammála þessu en þetta er alveg öfugt þegar fólk fær að byrja liggur við á toppnum án nokkra reynslu.

Ég held að Bretarnir hafi lámarks reynslu áður en þeir fá að bjóða sig fram og að menn byrji sem óreyndir fyrst líklega saman og hjá kananum sem er reyndar í öllu en þar ertu látinn sanna þig að þú sért verur til að gegna ákveðnu starfi. Þar eru það ekki bara prófgráðurnar sem duga.  

Valdimar Samúelsson, 27.2.2019 kl. 19:34

9 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Já biðst velvirðingar á sænska grafinu sem hvarf en það var eiginlega bara beint strik ...kannski 15% halli .... niður í hyldýpið svo hægt að sjá það í huganum. En kannski táknrænt, Svíþjóð er að hverfa í allah....allah.....alllahtjú...Lína komin í skothelt vesti með ninjagrímu. Kær kveðja frá Skandinavíu.  

Gústaf Adolf Skúlason, 27.2.2019 kl. 20:02

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Heh ha ha Gústaf ;) 

Hold da kjæft mand. Jamen det er sgu bare dejligt!

Olaf! Svenskerne kommer..

Gunnar Rögnvaldsson, 27.2.2019 kl. 20:50

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Valdimar.

Byrjað á öfugum enda. Þess vegna þurfum við bremsuklossaveldi öldungadeildar goðorðanna. Láta deildirnar berjast um á hæl og hnakka þar til þvælan er bremsuð úr þeim sem þykjast ráða öllu en ráða ekki.

Ég vona að þeir í breska þinginu berjist um á hæl og hnakka þar til blóðið sýður og að þingið þreyti sig eins og laxar á stöng, svo komist sé hjá því að þingið lúti villtum ástríðum fréttasnápa, hagsmunasamtaka og tryllts lýðs. Vona að hún standi þetta af sér og að Jón Bjarnason hafi rétt fyrir sér með frú May.

Gunnar Rögnvaldsson, 27.2.2019 kl. 22:13

12 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk strákar fyrir skemmtilega umræðu.

Bandaríska kerfið var einmitt hugsað til þess að enginn einn næði yfirráðum yfir öðrum.  Seinna meir, um og uppúr aldamótin 1900, rak slík hugsun þingið til að setja stórfyrirtækjum skorður, því þegar að ákveðinni stærð er náð (veit að við erum ekki sammála um þetta Gunnar) þá snýst dæmið ekki um að reka, heldur að drottna.

Hugsunin var sú að það var gefið að allir væru að gæta sinna hagsmuna, sem þyrftu ekkert að fara saman við hagsmuni annarra eða hagsmuni heildarinnar, og ef enginn einn kæmi sínu í gegn án þess að þurfa að semja við aðra, að þá væri niðurstaðan líklegri til að gagnast fleirum, og þá sérstaklega heildinni.

Því forsenda sjálfstæðis er sterk heild.

Og ósjálfstæði er alltaf bein ávísun á kúgun og arðrán annarra, eða það segir sagan.

Og sagan hefur ekkert skipt um skoðun þó ósjálfstæðisinnar vilji ganga sjálfviljugir erlendu ríkjabandalagi á hönd.

Þessi pistill og umræðan fer í möppuna, Gunnar.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 28.2.2019 kl. 08:20

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka einu sinni enn, Ómar. Og takk fyrir innlit.

Já, þessar skorður komu til dæmis í veg fyrir að íslenskir útrásarvíkingar gætu leikið evrópu-leikinn sinn í Bandaríkjunum. Lögin um hlutafélög, flutning hagnaðs milli félaga og stjórnarsetur komu í veg fyrir það. Og svo eru það náttúrlega einokunarlögin.

Það sem einkennir Bandaríkin hve áberandi mest, er það að þau voru stofnuð á þeim forsendum að ríkisstjórnir og "hið opinbera" væru hættuleg fyrirbæri. Mjög hættuleg. Ríkisstjórnin í Bandaríkjunum hefur því í stjórnarskránni nokkurs konar stöðu hins grunaða, eða sakbornings.

Einstaklingurinn, "We the People", er aftur á móti númer eitt. Og hann þarf að vernda fyrir "hinu opinbera". Það er það sem stjórnarskráin gengur að mörgu leyti út á. 

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 28.2.2019 kl. 16:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband