Leita í fréttum mbl.is

"Raiders" komnir í verkalýðshreyfinguna? Evrópa hefur klofnað

ÍSLAND  Á LEIÐ Í RAUTT

Það er ekki hægt að verjast þeirri hugsun að það sama sé að gerast með verkalýðshreyfinguna og gerðist með bankana á sínum tíma, er þeir voru boraðir út að innan með borvélum sem smygluðu sér þar inn, en sem reyndust vera pakkar fullir af þerripappír. Að verið sé að gera tilraun til að bora hreyfinguna út innanfrá, með aðstoð einhvers konar "e. raiders" eða reiðmönnum sem komast vilja yfir bæði peninga og völd og koma þar fyrir krosshagsmuna-tengslum. Við höfum fengið að vita að sjóðir verkalýðshreyfinganna eru ákaflega digrir. Endar verkalýðshreyfingin í vösum slæmra afla? Þegar hlustað er á talsmenn hennar, getur manni varla dottið annað í hug en bankaránið mikla á Íslandi

MEGINLAND EVRÓPU HEFUR KLOFNAÐ

Klofningur meginlands Evrópu, vegna innvortis strategísks gljúfurs, heldur áfram. Þar hafa málin þróast þannig að heimsálfan skiptist nú í tvo hluta sem frekar óðfluga fjarlægjast hvor annan. Fyrsti og mikilvægasti hlutinn fyrir Ísland er sá sem flygir Bandaríkjunum að máli (sjá hér). Flokkun landanna í þessum hluta er ekki enn fullkomnuð, en hún er í gangi. Síðari hlutinn, sem í framtíðinni mun verða andstæðingur Íslands, er sá hluti álfunnar sem fylgir Þýskalandi að málum, sem nú reynir sér til varnar að toga Rússland sem áhrifavaldsfélaga sinn inn í evrópska kerfið til þess að viðhalda stuðpúðasvæði hins svo kallaða "innri markaðs ESB" á sporbraut um sig. En án valda yfir hinum svo kallaða "innri markaði ESB" er Þýskaland búið að vera sem ríki, og þýskir vita það - og Bretland er farið

Frakkland er nú í miðju vaði að velja sér annað hvort örugga framtíð í fæðingarbandalagi þess við Bandaríkin, eða óörugga framtíð í ýtrast varasömu bandalagi með þeim sem fylgja Þýskalandi að málum. Mín skoðun er sú að Frakkland muni velja Bandaríkin og geti lítið annað gert fyrir sig en einmitt það. Vaxandi klofningur er nú að myndast á milli Þýskalands og Frakklands, því að Frakkland er ekki eins háð Bandaríkjunum og Þýskaland, því að land eins og Þýskaland sem flytur út næstum helming landsframleiðslu sinnar, er ávallt í vösum kúnna sinna og því afar viðkvæmt og hættulegt ríki. Hagkerfi þess er orðið hættulega vanskapað með aðstoð ESB. Það er Frakkland hins vegar ekki. Umræður um hvernig eigi að bregðast við áformum um bandaríska tolla á evrópska bíla sýna það. Þar vill Frakkland lítið sem ekkert aðhafast á meðan Þýskaland heldur um viðskiptahagnað sinn gagnvart Bandaríkjunum eins og að um ránsfeng sé að ræða; sem hann reyndar er. Samhliða þessu ferli eru Bandaríkin að byggja upp nýjan bandamanna-strúktúr í Evrópu. Síðan verður NATO gert að skrifstofu í fallegu einbýlishúsi við Genfarvatn, eins og Þjóðabandalag frá 1919

Eini gallinn við þetta fyrir Frakkland er þó sá, gangi þetta eftir, að þar með hefur Þýskaland tryggt sér bakvörð í austri, sem þýðir öflugra Þýskaland í vestri. Sú hugsun er þó sennilega blindgata fyrir þýska, því bæði Obama og Trump er komnir með fleyginn þar á milli og sem kallast getur Intermarium í smíðum úr þessu. Þar með myndi einnar-vígstöðva-pressan í vestri gagnvart Frakklandi hjaðna og Þýskaland með Rússland sem bandamann sett í skák og kannski mát. Þess vegna er NS2 svona mikilvægt mál fyrir þýska, en slæmt mál fyrir Evrópu1

Mikilvægt er að horfa ekki á meginland Evrópu sem bunka úr sáttmálapappírum. Sá bunki af sögulega endalausum pappírum og sáttmálum yfir hið pólitíska landslag Evrópu, er einungis þurr pappír, þar sem til dæmis Brussel er aðeins hinn tálsýnilegi hluti felumyndarinnar yfir álfuna í dag. Það sem hins vegar alltaf gildir og skiptir öllu máli um Evrópu, eru geópólitískir tindar, fjallgarðar, flóar og fljót, trú og þjóðir, eyjar og innhöf álfunnar. Þær landfræðilegu staðreyndir koma alltaf eins og rakvélablöð upp úr yfirborðinu og skera hvaða sáttmástofnun álfunnar sem er í tætlur. Þeir tindar fara ekkert, og þeir eru jafn hvassir í dag og ávallt áður í sögu álfunnar. Línurnar eru að skerpast

Og eins og Mike Pompeo sagði óbeint: "pappír er pappír, en það eru lönd og þjóðir ekki. Bandaríkin eru að fara yfir pappírana til að sannreyna þá, og að búa til nýja þar sem þess er þörf, og brenna þá sem virka ekki lengur"

Fyrri færsla

Hlýnun kommúnismans


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband