Leita í fréttum mbl.is

ESB gert höfðinu styttra gagnvart Bandaríkjunum

Donald J Trump

Mynd: 45. forseti Bandaríkjanna, Donald J. Trump

****

BANDARÍKIN HÆTT AÐ VIÐURKENNA ESB ?

ESB er sennilega að fá stöðu sem eins konar "OPEC" kartel í Bandaríkjunum

Bandaríkin lækkuðu stjórnmálalega tengsla-stöðu Evrópusambandsins gagnvart Bandaríkjunum, úr sendiherrahæfu fyrirbæri niður í eitthvað á borð við til dæmis.. tja.. kannski OPEC

Sendiherra Evrópusambandsins í Bandaríkjunum uppgötvaði skyndilega að hann var settur aftast í röðina án þess að tilkynnt hefði verið um að ESB væri ekki lengur hæft sem eitthvað er haft gæti sendiráð eða sendiherra-verðuga stöðu gagnvart Bandaríkjunum. Sambandið virðist nú vera með stöðuna "alþjóðleg samtök" gagnvart Bandaríkjunum. Sendi-herrann fékk þó hið persónulega herra-skilti sitt á ný, en er höfðinu styttri

Þetta er, meðal annars, að sjálfsögðu gert til að Angela Merkel geti ekki lengur blöffað Þýskaland áfram í Bandaríkjunum í dulargervi Evrópusambands og þar með skaffað sér fjarvistarsönnun fyrir því að vera einmitt allt það sem Evrópusambandið snýst um

D O W N G R A D E

US downgrades EU diplomatic status in Washington - BBC

Mynd, BBC: Sett aftast í röðina?

Sérfræðingar og álfhólabyggðin í samfylkingagrjóti þeirra, hlógu hátt í ágúst síðastliðnum er Donald Trump þóttist ekki skilja Angelu Merkel er hún sagði honum að Þýskaland gerði ekki viðskiptasamninga við önnur ríki, því það væri, sagði hún, Evrópusambandið sem gerði viðskiptasamninga fyrir Þýskaland (sem spilar vasapóker með allt sambandið í vösum sínum). Trump spurði þrisvar til að fá blöff hennar staðfest. Þann 24. ágúst skrifaði ég því þetta:

Donald J. Trump er nú farinn að líta á Evrópusambandið sem tollrænt fjölþjóðafyrirkomulag (e. multilateral) sem af prinsippástæðum er ekki hægt að gera tvíhliða viðskiptasamninga við. Eðlislægur og þar með fastbyggður viðskiptaójöfnuður milli ESB-landanna sjálfra, innan ESB, og svo út á við, en þá sem ein heild, gagnvart umheiminum, kemur í veg fyrir það, því þar með er ljóst að viss lönd í sambandinu nota það til að dulbúa sig í heiminum á kostnað annarra. Þetta fékk hann margstaðfest er hann þráspurði Angelu Merkel um möguleikann á tvíhliða viðskipasamningum milli Bandaríkjanna og Þýskalands. Landamæratollar, gengisfölsunar- og virðisaukaskattamótvog er því sennilega það sem Trump mun grípa til gagnvart Þýskalandi, sem er í þann mund að senda út fréttatilkynningar um stærsta viðskiptahagnað nokkurs lands á kostnað annarra í sögu mannkyns

Jæja. Nú hlær allt í einu enginn í álfhólum sérfræðinganna lengur. Því það sem er í vændum fyrir Evrópusambandið og sérstaklega Þýskaland á nýju ári, er þetta:

1. Viðskiptaójafnvægið á milli Þýskalands og Bandaríkjanna skal burt, alvega sama með hverju Merkel reynir að afsaka sig. Annars verður það bannfært í tollum. Beint, en ekki í gegnum ESB. Dulargerfið hættir að virka. Frumforsenda fjölþjóðlegra viðskipta er að þau séu í jafnvægi. Og það eru þau ekki. Engan vegin, því að alþjóðavæðingin brást

2. Þýskir bílaframleiðendur eru að fá hjartastopp vegna komandi tolla inn í Bandaríkin og vegna þess dísil-gate sem ESB í vasa Þýskalands skaffaði þeim, en upp um komst

3. Þýskir bílaframleiðendur munu flytja sig til Bandaríkjanna, með hraðlest

4. NATO-skuldbindingar ESB landa verða sendar til innheimtu á þessu ári og það leyst upp ef Þýskaland ríður ekki fordæmisgefandi á vaðið og hóstar því upp sem því ber. Annars er það út

5. Þýskaland er ekki bara á leið inn í kreppu. Það er á leið inn í hjartastopp á aðalbrautarstöð Útópíu; spor númer eitt, með brottfarartíma: óendanlega aldrei

6. Frá og með nú hangir áframhaldandi tilvist Evrópusambandsins á þeim tvinna sem Þýskaland hefur gert sambandið við Bandaríkin að

Það sama fer kannski að gilda um ESB og Kúrda, því að fulltrúi Bandaríkjanna í Sýrlandi sagði í ræðu sinni í Atlantic Council mánudaginn 17. desember 2018, að "Bandaríkin hafi ekki og geti ekki haft varanlegt samstarf við ekki-ríkis einingar". ESB er ekki-ríki

Fullveldi og stjórnarskrá lýðveldis Íslands ber að skoða í þessu ljósi; sem óendanlega fágæt tilvistarleg verðmæti. Hvorugt má útvatna

Ég leyfi mér að benda á samantekt mína um það sem utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði í ræðu sinni í Brussel fyrir jól og upptökuna af henni: Utanríkisráðherra Trumps: Frelsishlutverk þjóðríkja sé endurreist

Fyrri færsla

Get ekki horft á meiri Ófærð. Nota Bergman í staðinn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki græt ég augun úr mér þótt ESB riði til falls. ESB er eins og krabbamein sem sáir meinvörpum í nærliggjandi líffærakerfi. En miklar framfarir hafa orðið í baráttunni við krabbamein. Vonum það besta.

Sigurður Bjarklind (IP-tala skráð) 10.1.2019 kl. 08:51

2 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Tek undir það sem Sigurður Bjarklind segir. Þeir mega finna sér stað utan stjörnu kerfis okkar og samt væri betra að leysa þá alveg upp.

Valdimar Samúelsson, 10.1.2019 kl. 11:38

3 identicon

Sæll Gunnar.

Orð í tíma töluð og þetta og þýðingu
þess verður tæpast betur orðað:

Fullveldi og stjórnarskrá lýðveldis Íslands ber að skoða í þessu ljósi; sem óendanlega fágæt tilvistarleg verðmæti. Hvorugt má útvatna.

Húsari. (IP-tala skráð) 10.1.2019 kl. 15:15

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir.

Þegar bandaríska innanríkisráðuneytið var spurt um þessar breytingar á diplómatískri stöðu Evrópusambandsins  í Bandaríkjunum (frá stöðu ríkis niður í stöðu ótilgreindra "samtaka") þá komu bara textaskilaboð um að:

..tikk tikk..

..START

VEGNA LOKUNAR RÍKISINS TEKUR RÁÐUNEYTIÐ SIG AÐEINS AF MÁLUM ER VARÐA LÍF, HEILSU OG EIGNIR BANDARÍKJAMANNA

..tikk tikk..

..FULL STOP

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 10.1.2019 kl. 16:05

5 Smámynd: Sigurður Antonsson

Það gustar um þig Gunnar þessa dagana. Held að Trump líði ekki vel við múrinn. Demókratarnir hafa lengi beðið eftir þessum vandræðum Trump með ríkisstarfsmennina. Þeir hafa samúðina þótt báknið hafi stækkað mikið hjá Könum.

Lítið atvinnuleysi og góður gangur í efnahagnum og lítið atvinnuleysi kallar á fleiri hendur. Tollar og hirting Trumps vegna ósjálfstæðinu í peningamálum Nató gæti verið ávísun á "ófærð" við Atlantsála. Þú boðar hjartastopp í ríki þýska marksins.

Miðað við nýárstölu Margrétar Danadrottningar gengur allt efnahagslífið í Danmörku vel. Uppgangstímar í Evrópu miðað við oft áður? 

Ávarpið og kveðjurnar frá drottningu voru með ágætum tilþrifum þess sem víða hefur ratað. Samanber Hávamál. Gæti hlusta á það aftur og aftur á DR. Ekki væri verra að finna það á þínum síðum. Beið eftir að hún sendi gömlum vinum á Íslandi kveðjur sínar. Auðvita hefur það ekki þótt viðeigandi eftir uppákomuna við Öxarárfoss í haust. Kann að meta það að hún kastaði kveðjur á gamla Slésvíkinga, eins og Grænlendinga og Færeyinga.

Sigurður Antonsson, 10.1.2019 kl. 21:54

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Sigurður.

Já það var afrek hjá Margréti drottningu að komst í gengum ávarp sitt á þess að reykur sæist, því að bræði hennar vegna misþyrminga danska fjármálaeftirlitsins í vösum Danske Bank á Danmörku, er svo hrikaleg að hún varð að nefna það mál - ofan í öll þau ávörp sem hún hefur haldið vegna misþyrmingar hins innlenda og erlenda ESB-aðals á Danmörku. Hún er kannski danski járnhnefinn í flauelshanskanum sem til þarf.

Atvinnuleysi í Danmörku hefur ekki farið niður fyrir 5-7 prósent fast krísuástand síðan að Poul Schluter  tók upp fastgengi 1982 og laug því að dönsku þjóðinni að Evrópusambandið er steindautt sem hugmynd árið 1986. Ekkert væri að óttast, Danir gæti kosið já, því aldrei yrði neitt Evrópusamband til.

Já, Demókratar hafa að sjálfsögðu samúðina í fjölmiðlum sínum, enginn les þá nema Demókratar, en þeir hafa hins vegar litla eða enga samúð hjá bandarískum kjósendum, sem aldrei hafa fyrirlitið fjölmiðlana í landi sínu eins mikið og nú.

Þú vilt kannski ríða á vaðið og taka útidyrahurðirnar úr húsi þínu, Sigurður?

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 10.1.2019 kl. 22:58

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 SKO;-Við eigum slatta af heilsteyptum gegnheilum manneskjum elskandi ættjörð sína ofurheitt; En okkur vantar skörung kjarkmikinn..... tíminn er naumur. 

Helga Kristjánsdóttir, 10.1.2019 kl. 23:44

8 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Er ekki esb með sendiherra á Íslandi? Esb er ekki ríki, heldur samtök, eins og þú bendir réttilega á, Gunnar. Samtök blýantsnagandi reglugerðarbjálfa og valdasjúklinga, sem nærast á því einu að leggja stein í götu samborgara sinna, dag og nótt, auk þess að innlima allt og kæfa, sem heitir sjálfstæði þjóða eða einstaklinga, til eigin ákvarðana. Læknisfræðin á gott orð yfir svona óværu og það er orðið æxli. Illkynja, ólæknandi æxli. Æxli ættu hvergi að eiga sendiherra og þar tek ég heilshugar undir með Trump.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 11.1.2019 kl. 01:10

9 Smámynd: Sigurður Antonsson

Flott línurit um verðbólgu og stýrivexti hjá þér. Danir eru harðir við sig þegar þeir hemja verðbólguskot. Verðbólga er ekki umtalsverð, hefðum getað lært talsvert af þeim. Hafa þeir nokkuð ráðið við Danske Bank? Þeir voru að gefa okkur ráð og umvandanir á sínum tíma.

Margrét drottning er aðdáunarverð. Glímir við reykingafíkn sem hún hefur þurft að berjast við. Víndrykkja og reykingar fara ekki vel saman hjá Dönum eða öðrum. Allskonar fíknir allstaðar, jafnvel Trump aðdáun sem þarf að vera í hófi. Allir eru mannlegir og nota útihurðina til að verjast stormi og ýmis konar rigningu. Góð samlíking.

Sigurður Antonsson, 11.1.2019 kl. 06:58

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur Helga og Halldór.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 11.1.2019 kl. 14:03

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Sigurður.

Þú ert að lesa línuritið vitlaust. Verðbólgan varð mjög lág (2 prósent) vegna fastgengis-alkuls í hagkerfinu en á sama tíma eru stýrivextir 10-13 prósent í landinu vegna verðbólguhræðslu í Þýskalandi vegna sameiningar þýsku landanna. Hvað heldur þú að yrði safgt við svoleiðis geðbilun hér á landi.

Danska hagakerfið var þarna eyðilagt til frambúðar vegna fastgengis-trúar. Það var bundið fast við staur í Þýskalandi og efnahagsstjórnin var aftengd veruleikanum í Danmörku. Enginn hafði efni á að taka lán né reka fyrirtæki og húsnæðiseigendur voru settir á nauðungaruppboð í kippum. Þarna urðu milljón öryrkjar til, og gekk hið pólitískt-gjaldþrota opinbera svo langt að kenna fólki að vera atvinnulausir aumingjar. Það varð að lífsstíl.

Vélín í hagkerfinu var gerð afllaus drusla sem ekkert álag þolir án þess að ofhitna og bræða úr sér. Síðan þetta varð, er danska hagkerfið krónískur öryrki.

Það er ekki verðbólguskot þegar verðbólga var há á öllum Vesturlöndum vegna burt-brennslu stríðsskulda, OPEC-fjárkúgunar og svo þeirrar stóru og stórkostlegu kynslóðar sem hafði náttúru til að eignast mörg börn. Nema náttúrlega í náttúrulausu Þýskalandi sem stillti mynt sinni upp á sjálfsmorðsaltari Þjóðverja og fór með harakiri-pylsubænir á hverjum degi og neyddi sig til að éta pasta vegna áróðurs Brussels til að koma Ítalíu inn í EMU.

Fólk í DDR-light-löndum eins og Danmörku drekkur alltaf meira vegna þess að það þarf hvern einasta dag ársins að horfast í augu við að líf þess getur ekki orðið betra en það er, svo það er eins gott, sjálfs síns vegna, að vera ánægður með það litla DDR-light sem það lifir í. Þess vegna skorar Danmörk hátt í vinsældakönnunum. Danir vita að ekkkert getur orðið betra en það er.

Danmörk er því miður bara bóla á rassi Þýskalands. Austur-Þýsk bóla. Þannig verður allt í túnfæti Þýskalands: það veður að DDR-light og pusluþýskum sjálfspyntingum.

Gunnar Rögnvaldsson, 11.1.2019 kl. 14:04

12 identicon

ESB mun mistakast fljótlega, með brottför á Bretlandi - með Brexit. Bretlandi er annar stærsti framlag til ESB - nettó. Án þessara peninga sem koma inn í ESB þá verða öll önnur lönd að borga miklu meira - og það verður vandamál þegar skattbyrði verður hærra en fólk getur ekki borgað - og ESB mun byrja að brjóta niður.

Haha -  bless bless EU

Merry (IP-tala skráð) 12.1.2019 kl. 22:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband