Leita í fréttum mbl.is

Bretland hefur skellt á Evrópusambandið

Ávarp Theresu May, föstudaginn 21. september 2018

****

Breski forsætisráðherrann átti erfitt með að leyna reiði sinni eftir prússneska fundinn með Evrópu-diktat-sambandinu í Salzburg í síðustu viku. Andúðin og hrokinn sem hún mætti af hálfu ESB og sérstaklega Donalds Tusk -sem steig eins og fíll til jarðar á svo kölluðum (sam)félagsmiðlum- var hreint ótrúlegur. Siðaðar þjóðir haga sér ekki svona. Aðeins ókjörnir veruleikafirrtir embættismenn í vösum annarra gera það. Og það er það sem Evrópusambandið snýst nú um

Theresa May forsætisráðherra er hér að segja að Bretland sé hætt samningaviðræðum. Þar með hefur hún líklega sameinað flokk sinn á ný að baki sér. Nú fer Bretland á fullt með að undirbúa útgöngu úr Evrópusambandinu sem þýðir tolla á til dæmis eina milljón innflutta þýska bíla á ári. Enginn alþjóðleg fjármálastofnun í Bretlandi með fullu viti vill flytja sig úr fullvalda og öruggasta stjórnarskrárbundna lýðræðislega stjórnarfari veraldar, yfir til sértrúarsafnaðar á borð við Frankfurtborg Þýskalands, eða Parísarbyltingar Frakklands, þar sem enginn er samkeppnishæfur nema í miðbæjum annarrar hvorrar þeirra borga. Áttatíu prósent allra viðskiptadómsmála sem koma fyrir breska dómstóla, innihalda málsaðila á erlendri grund. Í fjörutíu prósentum þeirra eru allir málsaðilar af erlendri grund. Bresk lög eru ómetanleg útflutningsverðmæti

Viðskipti Bretlands við fyrrum nýlendu þess sem fékk nafnið Bandaríki Norður-Ameríku, hófust árið 1784 með átta böllum af bandarískri baðmull á ári. Fimmtán árum síðar voru þeir orðnir 40 þúsund og árið 1900 voru þeir orðnir sjö milljón stykki á ári. Bretland getur selt ýmislegt bandarískt gott til breska samveldisins, sem Bandaríkin geta ekki. Singapúr, Hong Kong og Tokyo gætu einnig þurft að skerpa á bankalingum sínum þegar City of London Bretlands er komið í gírinn, með alla bresku þjóðina sér að baki, loksins lausa úr viðskiptahlekkjum ESB. Norðvestrið og norðaustur Lundúnir eru klár og að þessu sinni í sameiginlegu átaki með City, um allan heim. Evrópusambandsaðildin reyndist Bretlandi ávallt sem fleygur á milli alls baklands Bretlands og City of London. Hagsmunir Liverpool, Manchester, Aberdeen, Glasgow, Grimsby og Hull annars vegar og hins vegar City of London, fara loksins aftur saman, eins og á tímum heimsveldisins. Og Bretland er enn stærsti erlendi fjárfestir Bandaríkjanna

Nýtt skattaumhverfi fyrir alþjóðleg fyrirtæki gæti þess vegna verið í smíðum hjá frú May, sem flutt gæti fjöll frá meginlandinu yfir í virkilega alþjóðlegt viðskiptaheimsveldi Bretlands í smíðum, og sem sett verður í gang þegar útgöngunni er lokið. Viðskipta- og fjármálaleg prússnesk diktöt eins og ESB hefur lagt stund á frá því að Þýskaland sameinaðist, getur Evrópusambandið sparað handa sjálfu sér, því það mun þurfa á öllu hinu svarta rúgbrauði Þýskalands að halda á hið sísúrnandi umhverfi þeirra landa sem eftir sitja í sambandinu. Þau munu vita hvert á að leita þegar þau ætla út. Og valkosturinn við aðild að ESB er þar með kominn fyrir Danmörku, þegar Bretland er komið út, eins og Kristian Thulesen Dahl, formaður danska Þjóðarflokksins sagði á flokksfundi 8. ágúst 2018. Það eina sem við þurfum er valkostur, sagði hann. Þá leggjum við útgöngu til

Fyrri færsla

Þýska ríkisstjórnin lifði helgina af [u]


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Góð grein og hver veit nema May þroskist og sýni óvænta hörku. Verði það sem ég vona mun ESB falla á eigiin heimsku.

Gunnar vantaði einhvað í greinina. neðsta málsögn. Þá leggjum við til?.

Valdimar Samúelsson, 25.9.2018 kl. 09:01

2 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Var að hlusta á ræðu May og hún virðist meina það sem hún segir.   

Valdimar Samúelsson, 25.9.2018 kl. 09:30

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Það er hreint fáránlegt að Bretum, sem eru að yfirgefa ESB, sé meinað að eiga í samningaviðræðum við aðrar þjóðir af því þeir eru enn undir ESB komnir. ESB vill ekkert semja við Breta, þeir vilja halda þeim í herkví, beygja þá og niðurlægja. Þetta er sama ESB og margir Íslendingar vilja beygja sig undir.

En hvers vegna? hvað veldur því að ráðherrar, þingmenn, embættismenn og ýmsir forustumenn hinna ýmsu samtaka vilja í ESB. Svarið er einfalt.

Menn og konur sem boðið hefur verið til Brussel og víðar innan ESB hafa verið kynnt glæsileiki sambandsins. Í þeim ferðum hefur þessu fólki, oftar en ekki, verið svo lítið beri á, verið rétt umslag. Í þessum umslögum hafa verið búnt af evru-seðlum, mis þykk búnt með misháum verðgildum hvers seðils.

Sem sagt ESB hefur verið bert af því að múta fólki. Þetta hefur farið mjög leynt því þetta varðar við lög og siðferði og enginn vill verða ber af því að brjóta þau lög því þau eru litin mjög alvarlegum augum. Munum að Davíð Oddsson afþakkaði mútur og kom með þau áform í ljósið á sínum tíma.

Mútan gerir það að verkum að sannfæring fólks brenglast og þeir sem taka við mútum verða blindir á réttlætið, sjá hlutina ekki í réttu ljósi heldur einvörðungu í ljósi ESB. Nú skilur maður afstöðu, aðgerðir og eða aðgerðarleysi ýmissa ráðamanna.

Það þarf að fletta ofan af þessum siðferðisbresti á æðstu stöðum í þjóðfélaginu og gera ærlega hreinsun meðal æðstu manna, ráðamanna og embættismanna. Það þarf að taka Trump á þessum málum og ræsa fram mýrarnar innan stjórnkerfis okkar.

Heillvænlegast væri að fólk kæmi fram og segði frá þeim mútum sem það hefur ýmist þegið eða hafnað og opinberi þannig hið sanna eðli ESB.

Minnumst þess að til er sá sem allt sér, allt veit og allt heyrir, jafnvel hugsanir okkar. Sá Guð sem allt hefur skapað veit allt og Hann opinberar það þeim sem Hann vill. Hann mun afhjúpa spillinguna, Hann hefur sínar aðferðir til þess og þá er ekki gott að hafa óhreint mjöl í fórum sínum.

Ég er viss um að til eru þeir sem líður illa yfir því að hafa tekið við umslögum úr hendi ESB embættismanna og eiga erfitt með svefn þess vegna. Það besta sem þetta fólk gerir er að koma fram í dagsljósið með leyndarmál sín með játningu og viðurkenna mistök sín, það yrði þeim sjálfum til heilla.

Tómas Ibsen Halldórsson, 25.9.2018 kl. 11:44

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Gunnar ef ég má. Tómas þú hittir naglann á höfuðið. EU borgar þessar mútur en það er kallað lobbyismi. Þeir borga embættismönnum frá hvaða landi sem er fyrir að fara með þeirra mál. Hvað skildi Össur og Jóhanna hafa fengið mikið sem dæmi. Auðvita margir aðrir.:

European Union lobbying

From Wikipedia, the free encyclopedia

 

 

Jump to navigationJump to search

Lobbying in the European Union, also referred to officially as European interest representation, is the activity of representatives of diverse interest groups or lobbies who attempt to influence the executive and legislative authorities of the European Union through public relations or public affairs work. The Treaty of Lisbon introduced a new dimension of lobbying at the European level that is different from most national lobbying. At the national level, lobbying is more a matter of personal and informal relations between the officials of national authorities, but lobbying at the European Union level is increasingly a part of the political decision-making process and thus part of the legislative process. "European interest representation" is part of a new participatory democracy within the European Union.

Valdimar Samúelsson, 25.9.2018 kl. 12:08

5 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Valdimar, þetta er mun ljótara enn nokkurn grunar. Það þarf að taka á þessu.

Tómas Ibsen Halldórsson, 25.9.2018 kl. 12:11

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Valdimar.

Já oft borgar sig að hlusta á það sem menn hafa sjálfir að segja, þ.e. uppsprettuna, en ekki stóla á það sem fjölmiðlar segja um það sem aðrir menn segja.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 25.9.2018 kl. 13:00

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Tómas.

Gott að sjá að þú manst eftir Guði, því ef enginn heldur merki okkar Guðs á lofti þá tekur guð annarra  hans stað. Og það viljum við ekki. Og við viljum ekki að hann sé talaður niður, heldur upp. Það borgar sig ávallt. Upp en ekki niður. Það er galdurinn.

Já af nógu er að taka þegar að spillingu kemur í Evrópusambandinu. Þannig umboðslausar stofnanir rúmast lítið betur innan veggja stjórnarskrárbundins stjórnarfars lýðræðisríkja, en sjálf sovétríkin gerðu það. Stutt er að minnast mútutilrauna ESB-klerkaveldisins á íslensk sveitafélög. Mitt sveitavélag hengdi það tilboð upp á snúru, skaut það dautt með haglabyssu og renndi því svo sem brunninni ösku upp um skorsteininn. ESB kemur alltaf sem tundurspillir inn í líf þjóð-ríkja. Þarna átti að reyna það.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 25.9.2018 kl. 13:03

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Menn og konur sem boðið hefur verið til Brussel og víðar innan ESB hafa verið kynnt glæsileiki sambandsins. Í þeim ferðum hefur þessu fólki, oftar en ekki, verið svo lítið beri á, verið rétt umslag. Í þessum umslögum hafa verið búnt af evru-seðlum, mis þykk búnt með misháum verðgildum hvers seðils.

Tibsen, hvrnig á maður að trúa þessu? Hvað sannar þetta?

Ef rétt er þá hafa ísilenskir stjórnmálamenn í heimsóknum látið múta sér. Hvað segir Össur aðspurður?

Halldór Jónsson, 25.9.2018 kl. 18:05

9 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þetta er staðreynd, Halldór. Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, benti á og rakti þessar greiðslur o.fl. í stuttri, en mjög markverðri Fréttablaðsgrein fyrir nokkrum árum.

Jón Valur Jensson, 25.9.2018 kl. 20:41

10 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Já munið þið hvað hann Steingrímur brosti breitt þá hann var þar eitt sinn í skoðunar ferð.

Hrólfur Þ Hraundal, 25.9.2018 kl. 21:19

11 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Halldór, fylgstu með Bjarna Benediktssyni formanni flokks þíns og eins Guðlaugi Þór utanríkis, sjáðu og hlustaðu á hvað þeir hafa fram að færa, hvernig þeir hafa snúið eins og vindhanar eftir því hvernig vindar hafa blásið frá Brussel.

Tómas Ibsen Halldórsson, 25.9.2018 kl. 23:28

12 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Guðlaugur mátti nú ekki við þessu svo lítið kveður að honum fyrir,en ég hlustaði á viðtal við frænda minn Jón Gunnarsson,sem segir að ekki komi til greina að samþykkja "pakkann" sé minnsti vafi á Stjórnarskrarbroti.En mér finnst það ekki nóg,þeir róa öllum árum til að túlka efni stjórnarskárinnar þannig að þeir geti haldið árfam framsalinu....

Helga Kristjánsdóttir, 26.9.2018 kl. 02:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband