Leita í fréttum mbl.is

Vinstrimenn fagna hryðjuverkum sé þeim beint gegn Gyðingum

Hryðjuverkasamtökin Hamas keppa nú við svo kölluð Yfirvöld Palestínu (YP) um völdin yfir fólkinu á Gaza-svæðinu. Hamas eyðilagði og kveikti í Kerem Shalom landamærainnganginum inn á Gazasvæðið sem hryðjuverkasamtökin, samkvæmt samkomulagi í fyrra, settu í hendurnar á YP svo að YP gætu innheimt tolla og skatta þar, sér til tekjuöflunar

En með því að kveikja í innganginum og leggja eld að færibandakerfinu sem flytur þrjú þúsund tonn af hráefnum inn á Gazasvæðið á degi hverjum, þá tekst Hamas að flytja flutningana yfir á Rafah-innganginn sem Hamas hrifsaði út höndum YP - og þar með að flytja alla tekjuöflun yfir í sína vasa

Þannig tekst Hamas að kveikja í fólkinu og umpakka reiði þess til útflutnings yfir á Ísrael. Reiðin vegna krónískra innbyrðis deilna er að verða eina útflutningsvaran sem sem sköpuð er á Gaza-svæðinu. Og ekki hefur klerkaveldi Írans legið á sínu liði núna, heldur hefur það sent óeinkennisklætt vopnað lið sitt út á meðal öskrandi borgaranna sem Hamaz hefur kveikt í. En ísraelskir hermenn þekkja oftast þetta lið af langri og slæmri reynslu, þrátt fyrir dulbúning þess meðal fólksins, sem ber jafnvel börn fyrir sig sem skjöld

Og með því kveikja í og eyðileggja gas- og raforkuflutninga til Gaza-svæðisins hefur Hamas tekist að tendra þá elda sem íslenskir vinstrimenn með Austur-Þýskar kommahúfur á gömlum lager, elska svo heitt. Þar hefur lítið breyst. Áfram skal flest vont af þeim lager notað. Óvinir frelsis, friðar og velmegunar eru þeirra vinir, eins og svo allt of oft áður í hörmulegri sögu hins íslenska vinstris, sem brann illilega inni á öllum málstöðvum sínum síðast. Austur-Þýska kommahúfan á höfðum þess í dag er sú sama og þegar Sovétríkin hýstu og fjármögnuðu allar verstu hryðjuverkandi einingar jarðar. Og ofan í þá heilastöppu vinstrisins er klerkaveldi Írans nú komið sem nýjasti frelsarinn, því Íran fjármagnar og skaffar hryðjuverka-klappliði vinstrisins vopnin og meðulin til að kveikja í heimshlutanum. Nýjasti draumur Írans er nýtt Norður-Gazasvæði í túnfæti Ísraels í Sýrlandi og Líbanon

Svei þessum gömlu kommahúfum. Við þekkjum ykkur öll, langa langa leið að, því þið eruð enn með sömu gömlu húfuna og síðast, þrátt fyrir græna litinn, sem farinn er að láta á sjá. Blóðrauði ykkar er því að opinberast öllum á ný sem eitt samfellt ófriðarbál

Íran hallar sér aftur og hlær. Klerkaveldinu er smám saman að takast að kveikja í heimshlutanum og koma í veg fyrir framrás velmegunar, bærilegrar friðsældar og vexti lýðræðissprota. Íran spinnur nú vef sinn eins hratt og efnahagur þess leyfir. Landið er 1,8 milljón ferkílómetrar að stærð, og þar með stærra en Frakkland, Þýskaland, Niðurlönd, Spánn og Portúgal samanlagt -þ.e. öll Vestur-Evrópa- og er Íran fjölmennasta ríki heimshlutans með sína 80 milljón íbúa, að Egyptalandi undanskildu. Íran hefur efst á stefnuskrá sinni að koma á fót nýju imperíal Persaveldi í heimshlutanum og í sama efsta sæti þess á listanum er útrýming Ísraelsríkis

Og fyrsti þátturinn í þerri aðgerð er að reyna með öllum tiltækum ráðum að koma sér í þá aðstöðu að geta háð úthalds-stríð gagnvart Ísrael, og þannig smám saman, að veikja landið það mikið, að hægt sé að þurrka Gyðinga út í landi sínu í nýrri Helför undir verndarvæng hins alþjóðlega rauða vinstris, sem þykist vera grænt

Íran er þar með orðið nýjasti vinur vinstrimanna Íslands. En í dag fengum við það þó óvart beint úr munni vinstrisins að aðalvandamálið er þrátt fyrir allt Donald J. Trump, því hann er jú eins og Winston, ein stórkostleg vandræði og massíf þverspýta, sem neitar að friðþægjast

Það var einmitt friðþæging og banvæn samvinna við afar ill öfl sem kveikti elda Síðari heimsstyrjaldarinnar. Og þar, eins og núna, var einnig búið að ritskoða "móðganir" (staðreyndir) gagnvart Þýskalandi burt úr kennslubókum skólabarna í nágrannaríkum þess. Hið sama er að gerast í dag, en hins vegar á mörgum stöðum heimsins samtímis. Búin var líka til goðsögnin um "óréttlátan" Versalasamning, en sem í reynd var einungis Andrés Önd teiknimynd miðað við þá "samninga" sem Þýskaland ætlaði draga yfir höfuð nágranna sína hefði landið komið sem sigurvegari út úr þeirri Fyrri

Eftir hina Síðari sló Winston því fram að kannski væri best að gelda Þjóðverja, til að koma í veg fyrir þá Þriðju. En það var ekki og er hvergi gert, og eru málin því að þróast eins og sést svo vel í dag

En Trump mun sennilega redda þessu, því hann virðist vera ein massíf þverspýta og gersamlega ómögulegur í alla staði, eins og Winston var. Hann er sennilega maðurinn sem heimurinn þarf á að halda. Þess vegna logar vinstrið. Það er að bræða úr sér og kafna, vegna Trumps. Það nær ekki andanum lengur

Fyrri færsla

Íslendingar fagna tapi.. Evrópa skelfur...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þú ert alveg magnaður, Gunnar, þakka þér fyrir!

Já, hér er ýmislegt upplýsandi þrátt fyrir skáldlega flugið sem þú tekur svo!

Jón Valur Jensson, 16.5.2018 kl. 00:30

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Jón Valur.

Það er ekkert skáldlegt við neitt hér. Flest fífl nútímans hefðu ekki kosið Winston af ótta við "það sem hann kynni að koma af stað". Allt sem þarna stendur er rétt. Ekkert er skáldað, því miður.

Góðar kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 16.5.2018 kl. 00:45

3 Smámynd: Borgþór Jónsson

"Klerkaveldinu er smám saman að takast að kveikja í heimshlutanum og koma í veg fyrir framrás velmegunar, bærilegrar friðsældar og vexti lýðræðissprota"

Þetta er vægast sagt undarleg setning. Mér finnst endilega að þessi heimshluri hafi verið í ljósumm logum áratugum saman,og það er ekki fyrir tilstilli Iran. Þar eru aðrir aðilar sem koma að máli svo sem Bandaríkin,Israeel ,Saudi Arabia og fleiri. Iran hefur ekki haft sig mikið í frammi fyrr en nú. Og það eru einmitt vanhgsaðar og misheppnaðar ofbeldisaðgerðir Banndaríkjamanna á svæðinu sem hafa opnað fyrir aukin áhrif Írana í heimshlutanum.

Þar trónar ólöglegt árásarstíð gegn Írökum á toppnum og nú síðast þegar öfga Sunni muslimar,sem undir handleiðslu Bandaríkjanna og Saudi Arabiu reyndu að steipa stjórn Sýrlands.

Iran er eitt af þessum skítalöndum sem enginn vill eiga heima í ,en fram að þessu hafa þeir unað sér við að kvelja eigið fólk. Það var ekkert sem benti til að það stöfuðu einhver veruleg vandæði af þeim.

Nú hefur þetta breyst,Iranir eru nú oðnir óvinveittir,allavega Bandaríkjamönnum og Israel.

Vandamálið er margþætt.

Eftir fall Sovétríkjanna fæðist sú hugmynd í Bandaríkjunum að þeir hefðu unnið sér inn rétt til að stjórna öllum heiminum.Til að réttlæta þetta drógu þeir fram gamla bábylju sem þeir kalla exeptionalisma. Þetta er nútíma rasismi sem hefur mismunandi merkingu eftir stjórnmálaskoðunum.

Fyrir Bandaríska íhaldsmenn merkir þetta að þeir hafa einhverskonar umboð frá Guði til að drottna yfir öllum,en vinstrimen telja þennan rétt til kominn vegna gríðarlegra móralskara yfirburða Bandaríkjamanna. Þetta gekk eftir í um tuttugu ár,en þá fór að byrtast fólk sem hafði efasemdir um að þessi túlkun sé rétt. Þetta hefur svo leitt af sér ótrúlegar hörmungar fyrir milljónir manna og óteljandi dauðsföll. Bandaríkjamenn eru alls ekki tilbúnir til að gefa upp á bátinn þennan rasisma ,frekar en Þjóðverjar á sínum tíma. Ekkert þessu líkt hefur sést síðan á timum Nasista í Þýskalandi,enda eru rætur meinsins hinar sömu.

Hvernig þetta hefur áhrif í Miðausturlöndum þekkjum við ágætlega. Milljónir manna hafa látið lífið í hamslausum tilraunum Bandaríkjanna til að viðhalda þessu heimskulegu hugarórum sínum. Við þetta bætist svo að það er ekkert skilrúm á milli Bandaríska og Ísraelska stjórnkerfisins. Ísraelsmmenn geta því óhindrað notað öll tól sem Bandaríska stjórnkerfið og herinn hafa upp á að bjóða til að vinna að hagsmunum sínum. Þeir senda einfaldlega pöntun.

.

Frá því um seinna stríð hafa Evrópubúar lifað í þeirri blekkingu að Bandaríkjamenn hafi einhverjar sérstakar taugar til Evrópubúa. Að þeir nóti einhverkonar velvildar á þeim bæ.

Ekkert er fjær sanni. Bandaríkjamenn hafa eingöngu eigin hagsmuni í huga og ef Evrópubúar hlíða ekki í einu og öllu er þeim refsað harðlega eins og öllum öðrum. Þar er enginn munir,og þetta innifelur að sjálfsögðu stríðsaðgerðir ef þörf er á. Þetta virðist nú aðeins vera að síast inn hjá Evrópskum stjórnmálamönnum,en vegna 70 ára vanrækslu við að gæta Evrópskra hagsmuna er vandamálið orðið nær óyfirstíganlegt. Nú er svo komið að samband Bandaríkjanna og Evrópu er í eðli sínu hið sama og var á milli Sovétríkjanna og Austur Evrópskuu leppríkjanna. 

Rjóðir og vandræðalegir eru nú Evrópskir stjórnmálamenn að stíga sín fyrstu spor í þessum efnum,vitandi að hverju feilspori verður mætt með grímulausu ofbeldi. Efnahagslegu eða herenaðarlegu 

Við þekkjum ágætlega orðið hvaða hörmungar það hefur í för með sér þegar herveldi byggir hugmyndafræði sína á rasisma. Nú er þetta að gerast aftur ,og afleiðinarnar verða ekki fallegar.

Borgþór Jónsson, 16.5.2018 kl. 10:49

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Frábær grein Gunnar og hvert orð satt. Við höfum ekkert annað að treysta á en Musterisriddara nútímans með Trump í Fararbroddi. Talandi um musterisriddaranna þá er þeim haldin niðri sem öfgaöfl nema í Bandaríkjunum. Hér á ég ekki viðstúkuna Musterisriddarar heldur baráttumenn eins og í Bretlandi en það berjast/tala þeir Íslam.   

Valdimar Samúelsson, 16.5.2018 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband