Leita í fréttum mbl.is

Róm sendir Brussel löngutöng

Ítalía

Flokkar andsnúnir pólitískum elítum ESB-aflanna komu sitjandi ríkisstjórn Ítalíu frá völdum um helgina. Allt er í steik á Ítalíu. Evran hefur rústað efnahagnum. Atvinnuleysi er enn langt fyrir ofan það sem evran særði fram 2008. Fjármála- og bankakerfið er í molum og 16 prósent útistandandi lána eru enn í öndunarvél, heimili og fyrirtæki geta ekki greitt af þeim. Engin börn fæðast. Kaupmáttur er lægri en fyrir 10 árum og borgin Róm er að verða gjaldþrota og Vatíkanið svitnar. Ríkið skuldar 130 prósent af þeirri tapsgefandi landsframleiðslu sem hægt er að kreista fram, eða 2,8 billjóna skuldaklafa í evrum sem landið ræður engu um. Atvinnuleysi meðal ungs fólks er yfir 30 prósentur. Landið er að rifna í tvennt. Norðrið vill ekki lengur "niðurgreiða" suðrið og Katalóníustemming bankar á dyr sem engar eru, því gargandi skríll og glæpasamtök á mannætustigi flæða frá hafinu yfir landið, samkvæmt 1930 Brussel-sáttmálareglum um endurtekið helvíti í Evrópu. Fóru því kosningarnar eins og þær fóru. Fólk hefur fengið nóg - og það nóg fer greinilega hratt vaxandi

Það styttist í Mexíkó, með sína níu drepna stjórnmálamenn í hverjum mánuði, samkvæmt nýlegri skýrslu Etellekt og sem því þorir ekki einu sinni að gefa upp heimilisfang sitt, en hvers áreiðanleiki hefur fengist staðfestur. Skýrslan kom út á meðan gargandi Hollywood skríll úr plasti, með 500 byssu-vopnaðan múr í kringum sig, gaf helmingi minna skít í Trump en á síðasta ári, en sem 20 prósent færri Bandaríkjamenn nenntu að fylgjast með í imbakassa bransans. Lægsta Oscars-áhorf nokkru sinni

Þýskaland

Þýskir sósíaldemókratar (SPD) samþykktu um helgina að fara í stjórn með flokki Angelu Merkel í bunker. Það gerðu þeir af ofsahræðslu við nýjar kosningar, þar sem flokkurinn myndi líklega þurrkast algerlega út úr pólitísku landslagi Þýskalands. Fylgi SPD mældist aðeins 15 prósent í síðustu viku, sem svarar til fylgis AfD, sem þar með mælist næst stærsti stjórnmálaflokkur Þýskalands. SPD hefur hrapað frá 20,5 prósent afhroði í kosningunum í september síðastliðinn, niður frá 41 prósentu fylgi á aðfararnótt evrunnar 1998 og fram til rjúkandi brunarústa hennar í dag. SPD óttast kjósendur meira en allt annað og valdi því að leita skjóls í neðanjarðarbyrgi Berlínar, þar sem endurskoðunarnefndin á því hvort að lýðræði sé nú heppilegt stjórnarfyrirkomulag, hefur aðalstöðvar sínar í dag. Kosningar eru að verða matröð fyrir þau pólitísku öfl sem komið hafa Evrópu í 1930-ástand dagsins í dag. Svo þær þarf að forðast þar til Skjaldborgar-bann við þeim óskapnaði tekur gildi á ný

Fyrri færsla

Klikkaði skaparinn, er spurt


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Popúlistar, nasistar og rasistar segir Eiríkur Bergmann í hlutlausu áliti sínu á Ruv.

Það er svo algert tabú að vera að nefna atvinnuleysistölur í einstaka löndum þegar meðaltal ESB lítur miklu betur út. Eiríkur er til fyrir,ymdar með þetta. Meðaltölin rúla. :)

Jón Steinar Ragnarsson, 7.3.2018 kl. 07:08

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Jón Steinar.

Eiríkur er byrjaður að hljóma er eins og síðasti sovétfræðingurinn fyrir hrun þess veldis.

Yfir 50 prósent atvinnuleysi meðal ungmenna á Suður-Ítalíu er náttúrlega framtíðin, ekki satt. Ný ESB-Perestroika er á leiðinni, bíðið eftir henni. Bíðið! Hún ein mun virka og loksins sýna ykkur samruna sem um munar (sambruna).

Popúlisti er einungis nafngift sem maður gefur pólitískum andstæðingi sínum. Og sem nafngift er hann að festast eins og þriggja áratuga Ísraelshatur DDRÚV og háskólasamfélagsins er að framleiða andúð og jafnvel hatur á Gyðingum á götum úti á Íslandi. Maður skammast sín og roðnar af skömm.

Reyndar var til stjórnmálaflokkur í Bandaríkjunum sem hét Flokkur fólksins (Peopels Party) og sem í daglegu tali var kallaður the Populist party. Hann rann svo saman við Demókrataflokkinn.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 7.3.2018 kl. 12:10

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ef miðað er við meðaltöl

um eymd og óráðsíu.

Þá er hvorki eimd né kvöl

kunnug á Ítalíu.

Jón Steinar Ragnarsson, 7.3.2018 kl. 19:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband