Leita í fréttum mbl.is

Geta það orðið mannréttindi að Ísland sé ekki Ísland?

Hvað er Ísland?

Til að byrja með, er með vissu hægt að segja að um eyju er að ræða. Það er öruggt, því það er áþreifanleg staðreynd. En hvað landið heitir er hins vegar óáþreifanlegur hlutur, því aðeins er um hugmynd að ræða. Nafnið Ísland er aðeins til uppi í höfðinu á þeim sem samþykkja að eyjan heiti Ísland. Fyrir utan það að vera til í höfðum manna, er nafnið Ísland líka til á vissum pappírum í heiminum. En þá er hægt að brenna, og þá er eru þeir ekki lengur til

Er Ísland ríki? Já, en bara uppi í höfðinu á þeim sem vilja að það sé ríki, og svo í höfðum þeirra í heiminum sem samþykkt hafa að Ísland sé ríki. Ef fólkið í ríkinu missir til dæmis áhugann á að Ísland sé ríki, þá er það ekki ríki lengur. Það gæti til dæmis gerst ef Alþingi missir stuðning og virðingu þess fólks sem sú stofnun á allt sitt undir og öfugt. Ef það gerist, þá er byggingin sem hýsir þingið, einungis bygging og ekkert annað. Hún verður þá eins og hver önnur bygging og hefur enga sérstaka merkingu. Þegar Sovétríkin hættu skyndilega að vera til, þá gerðist það vegna þess að fólkið sem bjó í ríkinu hætti að styðja hugmyndina um að landmassinn sem það bjó á væri Sovétríki. Og það sama gildir um landamærin. Þau eru ekki til sem áþreifanlegur hlutur. Þau eru einungis til uppi í höfðinu á fólki. Ef annað fólk segir að landamæri Íslands séu ekki til, þá er ekki lengur með öryggi hægt að segja til um hvar þau liggja. Og ef fólkið sem býr innan þeirra segir það sama, þá eru landamærin ekki til. Þetta er ekki hægt að gera við fjall eða eyju. Sama hversu heitt þú óskar þess að fjallið Esjan sé ekki til, þá hefur sú hugsun enga þýðingu, því fjallið er það og þar sem það er, óháð þínum óskum. Meira að segja fjölmiðlar samþykkja slíkar staðreyndir næstum alltaf. Það sama gildir um þyngdarlögmálið. Fólk ræður engu um það. Það er

Summa: Ísland er einungis pólitísk hugmynd. Og ef hún fellur, þá breytist það í eyju með fjöllum en engri Esju, sem verður þá bara fjall við flóa. Það eina sem fær eyjuna til að vera Ísland og íslenskt ríki, er fólkið sem ákveður það, og svo þeir aðrir í heiminum sem samþykkja pólitísku hugmyndina um að Ísland sé Ísland og ríki. Og ef Íslendingar segjast vera Íslendingar og aðrir samþykkja það, já þá eru Íslendingar Íslendingar. Annars eru þeir bara tegund

Hvað er mannréttindi?

Mannréttindi eru líka pólitísk hugmynd. Þau eru stjórnmál. Ef einhver ákveður að setja pólitísk lög yfir, landmassa, fjall, tegund, fólk eða þjóðir, þá er það hægt. Og ef einhver samþykkir þá pólitík og lofar að virða þá hana, þá er um pólitískt samkomulag að ræða. Þó hafa eyjan og fjallið ekki samþykkt neitt

Þeir sem standa að slíkum pólitískum samkomulögum um mannréttindi og samþykkja þau, geta haft ýmsar ástæður. Sumar geta verið góðar, aðrar eru slæmar og vissulega eru til mjög illgjarnar ástæður fyrir þannig samkomulögum. Ef nógu mörgum er illa við suma, þá er hægt að brennimerkja þá sem þeim er illa við, með því að beita þá mannréttindapólitískum ofsóknum. Og það er gert. Að því grundvallarmikilvæga leyti eru mannréttindastjórnmál stórhættuleg stjórnmál, því það er ekki hægt að verjast þeim, sama hversu góð rök og sannanir komið er með gegn þeim. Og þar sem ekki er um fjall að ræða, þá eru engin lögmál til fyrir því hvað eru mannréttindi eða ekki. Sú ákvörðun er einungis pólitískt mat og hagsmunir, því allir lifandi hlutir hafa hagsmuni. Fjöll hafa hins vegar ekki hagsmuni og eyjur ekki heldur

Ef heimurinn kemst einhvern tíma að þeirri pólitísku niðurstöðu að Ísland sé ekki Ísland af því að hann hefur pólitískt ákveðið að það séu mannréttindi að Ísland sé ekki Ísland. Já, þá er ekkert Ísland til. Mannréttinda-til-dæmis-dómstóll framtíðar gæti komist að því að það séu mannréttindi að ekkert fólk hafi minna eða meira en X-fjölda af fermetrum landsvæðis til umráða á mann, og fyrirskipa að fólki sé dreift jafnt um jörðina undir mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna um lífsrými, samkvæmt því. Já, þá er Ísland ekki lengur Ísland, vegna þess að þeir sem þar með myndu búa þar, deila ekki þeirri pólitísku skoðun Íslendinga að Ísland sé Ísland, sem þar með væru orðnir yfirþyrmandi örsmár minnihluti þeirra sem þar eru búsettir fyrir

En þessa leið myndu Sameinuðu þjóðirnar ekki velja gegn þjóðunum eins og er, þó svo að hún verði ef til vill valin síðar, þegar hugarfars- og valdahlutföllin í stofnuninni hafa breyst nógu mikið Íslendingum í óhag. Hinir ókjörnu mannréttindastjórnmálmenn stofnunarinnar myndu hins vegar í dag velja hægfara pólitíska nauðgun á Íslandi. Taka pólitísku hugmyndina um Ísland og líf Íslendinga í landinu fyrir á þann hátt að um eins konar hægfara eyðni yrði að ræða. Sneiða smám saman úr þjóðinni þá orku sem hún notar í að vera sú þjóð sem stofnuninni er ekki þóknanleg lengur. Litlir hlutir yrðu teknir fyrir fyrst. Hlutir sem hægt er að fá almenning í öðrum löndum til að líta illum augum, eftir að fjölmiðlaherferð er fyrst látin um að sá fræjum fyrir pólitískar ofsóknir, með vísan í pólitískt-ákveðin mannréttindi, sem þá stundina er hægt að nota til að fá fólk sem víðast í heiminum upp á móti Íslendingum. Pólitískar hugmyndir um mannréttindi eru háðar pólitískum aðstæðum á hverjum tíma og svo þeim heimshluta sem fer með eignarréttinn á pólitískum hugmyndum um mannréttindi þá og þá stundina, og hvaða ofsóknir hægt er að keyra með vísan í lífsmáta, siði, trúmál, venjur, lífsheimspeki og illa þóknanleg raunvísindi og lækningar á hverjum tíma. Og smám saman myndi heimurinn breytast í nýtt helvíti á jörðum mjög margra. Og röðin mun koma að þér, fyrr eða síðar. Segja má að mannréttindastjórnmál séu nýtt pólitískt trúarofstæki og kúgunarsérfræði sem næstum ógerningur er að verjast og sem svipar til hins pólitíska trúarofstækis veraldarhyggjumanna sem eru að byggja sér hið nakta opinbera sovéska torg, sem aftökustaði fyrir alla þá sem eru ekki sömu skoðunar og þeir

Dæmi um mannréttindapólitískar ofsóknir

Ég gæti á morgun ákveðið að gerast Gyðingur. Það tekur ekki langan tíma. Ég þarf aðeins að fá kennslu og uppfræðslu í Gyðingdómi, samþykkja hann, verða samþykktur, og láta umskera mig. Þá er ég orðinn Gyðingur. Um leið og ég verð Gyðingur þá byrjar ókunnugt fólk að ofsækja og hata mig, vegna þess að ég er Gyðingur. Framsóknarflokkurinn, Píratar, Flokkur fólksins og Vinstri grænir, sem sett hafa fram lagafrumvarp gegn mér, líta mig skyndilega allt öðrum augum og byrja ef til vill að hata mig, fyrirlíta og ofsækja, án þess að segja það beint við mig. Þeir byrja kannski allt í einu að setja fram óbeinar kröfur um að ég sé á einhvern hátt stöðvaður við að murka lífið úr öllu og öllum og að sé að græða peninga og ógni heiminum með því að vera Gyðingur, sem eru 0,2 prósent mannkyns. Þeir deila ekki með sér hugmyndum Gyðinga um Gyðingdóm. Til að gera mér erfitt fyrir, þá nota þeir Sameinuðu þjóðirnar sem réttlætingu fyrir pólitískum ofsóknum og nota sérstaka deild innan þeirrar stofnunar sem í reynd heitir mannrétttinda-ofsóknardeild Sameinuðu þjóðanna. Ekki er um kynþáttaofsóknir að ræða, þar sem Gyðingar eru hvorki sérstakur kynflokkur né kynþáttur, heldur aðeins þjóð, þjóðartrú, siðir og hefðir, eða næstum því það sama og gerir Íslending að Íslendingi, en samt aðeins meira, nema að Íslendingar skyldu taka upp á því að lesa Íslendingasögurnar og Snorra á ný, sem þeir ættu að gera í stað standandi nektarsýninga á hinu opinbera nakta torgi. Gyðingar eru hins vegar ofsóttasta þjóð í heimi en Íslendingar ekki. Engin önnur þjóð hefur mátt sæta eins miklum ofsóknum og Gyðingar. Aldrei nokkru sinni. Gyðingdómur er pólitísk hugmynd. Mjög gömul pólitísk hugmynd og mikilvæg fyrir heiminn, því án pólitískra hugmynda Gyðinga væru Vesturlönd ekki til sem Vesturlönd, því þau eru aðeins pólitísk hugmynd sem byggir að grunni til á grundvallarpólitískum hugmyndum Gyðinga um gott líf manna

Áminning

Það eru einnig margir hér á Íslandi sem deila ekki með sér hugmynd marga Íslendinga um að vera Íslendingur. Íslendingar eru ekki kynflokkur. Að vera Íslendingur er nefnilega einungis pólitísk hugmynd. Það fólk sem deilir ekki þeirri hugmynd með Íslendingum, er því ekki Íslendingar, þó svo að það vilji njóta þeirra réttinda sem Íslendingar hafa sjálfir barist fyrir að fá að hafa sem Íslendingar. Það fólk segist kannski og kannski ekki hafa þessa sömu hugmynd, en það framkvæmir hana oft ekki, eða bara alls ekki og vinnur jafnvel gegn henni. Hvort að Framsóknarmenn deili enn þessari pólitísku hugmynd um Íslending með Íslendingum, geta þeir einir sannað. Píratar þurfa ekkert að gera, því þeir hafa þegar sannað sig sem pólitískur Kleppur. Flokkur fólksins sem grenjaði og öskraði sig inn á þing með fyrst og fremst heimtufrekju, er ekki hægt að fjalla um án þess að vorkenna því fólki fyrir að hafa álpast til að ganga í gildrur þeirrar hugmyndar, því hún er svo smá að hún sést varla, fer minnkandi og fellur, því hún var pólitískur þvættingur. Vinstri græna þarf víst ekki að kynna frekar sem sovéskt þrotaútibú fyrstu kynslóðar komma, sem urðu hvellgrænir af öfund út í hina nýju Sameinuðu þjóð komma eftir fall Sovétríkjanna

Niðurstaða: Sameinuðu þjóðirnar eru ekki sameinaðar þjóðir um neitt nema að tala saman, eða þannig átti það að vera. Og um pólitíska stofnun er aðeins að ræða, en sem smám saman er að reyna breyta sér í ríki yfir ríkjum jarðar. Þeir sem tilbiðja stofnunina eins og hún er orðin núna, eru yfirleitt verstu kjána-eintök allra landa og sem deila með sér pólitísku hugmyndinni um nýtt Sovétríki, en oft án þess að gera sér að fullu grein fyrir því, eins og þegar fyrstu Sovétríkin voru í smíðum með aðstoð nytsamra bjána. Um þetta snúast mannréttindastjórnmálin og ekkert annað. Þau snúast um að fá að drottna yfir heiminum án þess að þurfa að láta kjósa sig. Þeir sem fylgja þessari stofnun í blindni eru mest mannleg pólitísk fyrirbæri af aðeins einni tegund; þ.e. kommar í öllum útgáfum þeirrar slæmu pólitísku hugmyndar. Já, mikið rétt hjá þér; allar pólitískar hugmyndir eru ekki jafngóðar og hafa aldrei verið. Um það snúast stjórnmál. Þetta eru sömu nytsömu bjánarnir og studdu Sovétríkin sálugu og sakna þeirra mikið. Enda eru dagar stofnunarinnar eins og hún er orðin brátt taldir. Ólíklegt er að henni verði bjargað, því rotnun hennar er orðin svo áberandi slæm, að innan

Þeir sem ætla að samþykkja nýmóðins Nuremberglög á Gyðinga á Alþingi okkar Íslendinga, með vísan og í skjóli mannréttindastjórnmála, eru fyrir mitt leyti ekki Íslendingar. Ef lögin verða að veruleika, þá er einu stóru skrefi styttra í að hin pólitíska hugmynd um Ísland falli. Munið: það getur gerst. Og það byrjar með því að pólitíska hugmyndin um Alþingi Íslendinga fellur í hugum fólksins. Og þá fellur Alþingi. Það hefur gerst, vegna þess að hin nýja pólitíska hugmynd um sjálft Ísland stóð þá veikum fótum. Já mikið rétt, hugmyndir koma og þær fara. En eitt er víst. Hin pólitíska hugmynd um Framasóknarflokk er fallin, verði nýmóðins Nuremberg lagaþvaður flokksins að lögum. Hér er ekki hægt að fela sig á bak við umboðslaus mannréttindastjórnmál

Hvað mig sjálfan varðar: Ég er fyrst og fremst Íslendingur, eiginmaður og faðir. Ég verð aldrei Evrópubúi, því í mínum huga tilheyri ég Nýja heiminum. Og svo er ég Kristinn og svo er ég Gyðingur og svo er ég Sjálfstæðismaður. Fyrir mitt leyti mun ég aldrei fella hina pólitísku hugmynd um Ísland. Og ég mæli með að aðrir Íslendingar standi þá vakt líka. En fyrst verða kjörnir fulltrúar hinnar póltísku hugmyndar um Íslendinga á Alþingi Íslands, að taka sig saman og vísa veginn

Fyrri færsla

Mannréttinga-umskurður á þjóðum: Til þeirra sem eru áttavilltir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Borgþór Jónsson

Þessi grein byrjaði ágætlega hjá þér,en endaði svo út í móa af því þú fórst í fórnarlambagírinn.

Ég veit náttúrlega ekki hvað býr að baki þessu frumvarpi,kanski er það einhver vilji til að drepa alla Gyðinga,hver veit. En ég efast samt um það.

Hinsvegar held ég að í hugum flestra snúist þetta um að vera ekki að skera sundur ómálga krakka að ástæulausu.

Það er ekki nokkur ástæða til að leyfa þessa forneskju.

Þessi aðgerð hefur engar jákvæðar hliðar en margar neikvæðar ,í einstaka tilfelli banvænar.

Ég sé engar neikvæðar hliðar á að það sé bannað að skera sundur krakka.

Hinsvegar er ég þeirrar skoðunar að við eigum ekki að skifta okkur af hvað aðrar þjóðir gera.En þetta rugl á einga samleið með nútíma Íslensku samfélagi.

Borgþór Jónsson, 23.2.2018 kl. 11:23

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég er ánægður með greinina Gunnar og þessa heimspeliegu analysu á hvað það séað vera Íslendingur. Ég hef aldrei skilið kratabullið um að einhver fjölmenning á Íslandi eigi að ríkja og hvaða Arabaskríll sem er sé velkominn hingað á okkar kostnað. Bann við umskurði er ekkert skylt pólitík eða júðsku, það á bara að vera bannað að limlesta ómálga börn. Fullorðið fólk má láta tattúverast og mér er sama hvað þú gerir við þinn b....sem fullorðinn maður. En láttu börnin í friði.

Borgþór, ég tek undir það sem þú segir.

Halldór Jónsson, 23.2.2018 kl. 18:39

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Borgþór.

Þar sem þú ert einn helsti aðdáandi þeirra stjórnvalda sem milljónum saman hafa myrt fóstur kvenna komin á níunda mánuð með því að sprauta formaldehýði inn í höfuð þeirra í Kína, þá tek ég þetta frá þér sem því venjulega og gamalgróna Gyðingahatri sem það er. Þú bregst aldrei.

Ég vona líka að þeir nokkur hundruð lækna sem lifa meðal annars á fóstureyðingum á Íslandi og hafa látið vanþóknun sína í ljós, njóti lífsins  áfram á kostnað smáþjóðar Gyðinga. Röðin gæti brátt komið að þeim sjálfum. Og svo eru það bólusetningarnar á kornabörnum, þær verða teknar fyrir næst, og svo tannlækningar, sýnist mér.

Og ég les einnig það sama úr út skrifum þínum Halldór minn, þú ættir að vita betur en þetta. Þér eruð fífl í þessu máli, verandi ekki breiðari sál en þetta.

Ég bíð þess náttúrlega aldrei bætur að hafa þurft að þola afrakstur síðustu þrjú þúsund ára, ef litið er burt frá afrakstri 20. aldarinnar það sem Guðleysingjar fengu völdin og gengu vasklega frá 200 milljón manns í nafni veraldarhyggjunnar. Ef þetta Sameinuðu þjóða viðrini er ekki stöðvað í tæka tíð, þá verður sá leikur endurtekinn með bæði litlu og stóru margfölsunartöflum okkar tíma í musterum fáviskunnar.

Þegar heimurinn er orðinn hreinn að ykkar mati, þá er ekki víst að þið getið látið mig vita sökum hreinleikans.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 23.2.2018 kl. 19:02

4 Smámynd: Theódór Norðkvist

Mér finnst þeir sem leggja þetta frumvarp og þeir sem styðja þá, einmitt vera mestu Íslendingarnir. Þeir sýna í verki þann vilja að löggjöf á Íslandi sé ákveðin af Íslendingum, ekki miðaldatrúarbrögðum utan úr heimi. Raunar er of gott að kalla umskurn miðaldamyrkur, því þessi siður var numinn úr gildi fyrir tæpum 2000 árum síðan - af sjálfu almættinu.

Þeir sem umskera eru þannig að byggja á sáttmála sem er ekki einu sinni í gildi. Til að sáttmáli sé gildur, verða báðir aðilar hans að skrifa undir sáttmálann. Ef ég bý til kaupsamning og afsal, um að þú Gunnar seljir mér bílinn þinn á 5 krónur, ég þar með eigi bílinn og geti sótt hann í bílastæðið hjá þér, efast ég um að þú myndir samþykkja það, þar sem þú myndir aldrei skrifa undir þannig kaupsamning og afsal (geri ég ráð fyrir).

Fyrir utan, að Gyðingar eru hér Trójuhestur fyrir Íslam, sem vill leggja Ísland undir sig. Verði látið undan frekju Gyðinga í þessu máli, munu múslimar að sjálfsögðu fara fram á það sama á grundvelli jafnræðisreglunnar. Þess vegna er þetta frumvarp mikilvægara í sjálfstæðisbaráttu landsins en virðist við fyrstu sýn.

Theódór Norðkvist, 23.2.2018 kl. 19:59

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Theódór.

Já þessi hetjudáð þingmannanna er mikil og kostar þá lítið. Það kom þingkonu Framsóknarflokksins hins vegar á óvart að hnífurinn hennar skildi standa í kúnni. Hún er svo hámenntuð í nútímalegu þriðja veldi að hún hélt að hún væri ein í heiminum. En svo reyndist ekki vera, og var hún alls ekki viðbúin því.

Já, þetta eru þingmennirnir okkar Theódór. Það sést. Þingmenn Íslendinga. Hetjur miklar. Það hefur aldrei þurft kjark til að guggna og gefast upp á Gyðingum, svo ég viti. Nái frumvarpið fram að ganga þá hreinsast Ísland og þingmenn þessir komast í sögubækurnar svörtu.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 23.2.2018 kl. 20:23

6 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég er sammála þér að hræsnin er mikil, meðal þingmanna sem margir hverjir styðja miklu grófari glæp gegn mannkyni, fóstur(d)eyðingar. Sama má segja um marga stuðningsmenn, en ég er bæði á móti fóstureyðingum og umskurn.

Það er mér engin ánægja að styðja þetta, þvert á móti styð ég frumvarpið með tárum. Í ljósi Biblíunnar og mannkynssögunnar myndi ég vilja veita Gyðingum undanþágu frá banni við umskurn, en það er bara svo erfitt að verja það vegna jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.

Að lokum, ég tel það einmitt lýsa kjarki að standa gegn Gyðingum. Þeir hafa einn sterkasta og best þjálfaða her í heimi og ítök þeirra í alþjóðaviðskiptum og -fjármálum eru gríðarleg. Ég vil ekki ganga svo langt að segja að þeir eigi Bandaríkin, en sumir segja það. Sennilega þarf minni kjark til að standa gegn múslimum, sem eru yfirleitt fátækir, nema S-Arabía og önnur olíuríki (þó misskiptingin þar sé gríðarleg).

Enn eitt, að vera á móti því sem Gyðingar gera, ef það er rangt, er ekki það sama og vera á móti Gyðingum, hvað þá að hata þá.

Theódór Norðkvist, 23.2.2018 kl. 21:46

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Hvað með að banna fæðingar Theódór. Þær eru svo sársaukafullar fyrir bæði barn og móðir. Eru það ekki mannréttindi líka?

Já. Banna fæðingar og láta nútímann um að skera þau inn í heiminn í nafni Keisarans af S.þ. 

Hvar hefur þú hugsað þér að bönnin eigi að enda. Á sjálfum þér eða öðrum?

Gyðingahatur þitt hreint er, það sé ég í þinni þriðju málsgrein. Þetta er átakanlegt. Gersamlega átakanlegt.

En sennilega er viska þín þó samt á hærra stigi en þingmannanna sem leggja hér fram frumvarp sitt sem eitt allsherjar örverpt fúlegg. Það er greinilega þeirra frumvarp.

Gunnar Rögnvaldsson, 23.2.2018 kl. 22:00

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það yrði nú saga til næsta bæjar ef að þingmenn frumvarpsins lentu í þeirri stöðu að mórölsku vopnin myndu snúast þannig í höndum þeirra að kröfu um banni við fóstureyðingum yrði troðið inn í frumverpt fúleggið þeirra líka. Þá myndu þeir þurfa að nota pólitískt skotsilfur sitt á jafnvel þá sem þeir eru umboðsmenn fyrir, en ekki á einhverja abstrakt stærð utan íslenskrar lögsögu úti í heimi. Þá þyrftu þeir að manna sig upp í gegnsæ og sexý bardagaklæði sín og koma fram eins og þeir eru klæddir sem naktir apar í augsýn allra. Formenn flokka þeirra yrðu þá fljótir til við að berja móralinn úr þingmönnum sínum, og það með sleggjum.

Gunnar Rögnvaldsson, 23.2.2018 kl. 23:02

9 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Kjark Theodór að styðja annan tveggja stríðsaðila? Sindler vantaði ekki kjarkinn,hann átti gegnheila samúð og miskun; það keypti,ann enginn,hann lagði sig í hættu;Þvílík hamingja í hans hjarta. Ætli nokkur þjóð hafi kynnst óvini sínum betur en Gyðingar,þess vegna eru þeir alltaf á verði og bregðast skjótt við,það er sársaukafullt,en mátti koma í veg fyrir það.

Forsætisráðherra Ísrael,s Golda Meir sagði:"Við getum fyrirgefið þeim þótt þeir drepi syni okkar,en alls ekki að koma því til leiðar að við drepum þeirra."- Gunnar reyndar kannski ekki orðrétt,en þarna játar hún hve þessi átök taka henni sárt.Skyldu þeir nokkurn tíma sættast??

Helga Kristjánsdóttir, 24.2.2018 kl. 00:11

10 Smámynd: Borgþór Jónsson

Þetta er nú meira dramað.

Gunnar er enginn Schindler. Það er ekki verið að tala um Gyðingadráp heldur að hætta þessari forneskju að skera líkamshluta af krökkum.

Samkvæmt þessu ættum við að taka aftur upp galdrabrennur og sölu aflátssbréfa. Þvílíkt rugl.

Það má vera að þetta hafi verið óhjákvæmilegt fyrir 1500 árum til að þekkja Gyðingana frá öðrum,en núna eru allir með kennitölu ,svo það eru engin vandamál.

Borgþór Jónsson, 24.2.2018 kl. 12:02

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég held að þú getir verið alveg óhræddur um að Helga hafi verið að meina það sem þú gefur til kynna hér. 

En það er hins vegar staðreynd að það er verið að reyna að drepa Gyðinga út um alla Evrópu á hverjum degi núna, eingöngu vegna þess að þeir eru Gyðingar. Og það er algerlega óásættanleg staða. Og ófyrirgefanleg. Þetta var ekki svona þegar ég fluttist til Evrópu 1985. En þegar ég fór þaðan 2010 þá var þetta hins vegar orðið þannig. Og það var meðal annars þess vegna sem ég fór.

Hluti af forhúð drengja er ekki líkamshluti og hefur aldrei verið, ekki frekar en vörtur og húðflipar.

Aflástbréfasala nútímans fer fram á hverjum degi núna Borgþór. Hún er bara ekki stunduð af gömlu Kirkjunni lengur, heldur af hinni nýju kirkju veraldarhyggjumanna.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 24.2.2018 kl. 13:00

12 Smámynd: Borgþór Jónsson

Við erum samála um margt Gunnar.

Borgþór Jónsson, 24.2.2018 kl. 17:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband