Leita í fréttum mbl.is

Mannréttinga-umskurður á þjóðum: Til þeirra sem eru áttavilltir

Ekki vissi ég að þú værir úníversal krati, minn kæri vinur. Og síðan hvenær hafa úníversal-lög samin af úníversal-krötum haft æðra gildi en lög, siðir og gildi þjóðar og Guðs?

Síðan hvenær hefur úníversal hvað-sem-er, gert annað en að skapa ný Sovétríki. Þeir sem í marxismanum vildu ekki hlýða úníversal-lögum kommúnismans, já þeir voru kallaðir "de reaktionære", þ.e. þeir sem vildu ekki meðtaka úníversal-ríki kommúnismans undir þeirra úníversal marxisma. Það voru þeir sem hverfa vildu aftur til þess sem þeir voru skapaðir til að vera

****

Þegar Móses kom með lögin af fjallinu, voru fjórar konur í þjóðinni Ísrael sem sögðu að þau væru óréttlát fyrir sig. Þær neituðu að samþykkja. Móses fór þá aftur upp og fimm blaðsíðna rifrildi hans við Guð hófst í Gamla testamentinu. Því lauk með þeim góðu lögum sem við höfum síðan alltaf haft, því þau voru rétt, en ekki röng. Guð leiddi síðan þjóð sína inn í ríki hennar, og aðeins hennar ríki, en ekki annarra. Þjóð-ríkið

Heimsveldi tala aldrei við Guð. Þau þykjast ekki þurfa þess. Þau klífa því ekki fjallið og sjá aldrei neitt. Sönnunargögnin fyrir því í okkar heimshluta í dag eru þessi; 1) Evrópusambandið og 2) Sameinuðu þjóðirnar. Þau semja lög sem eru eins og hryðjuverkandi klessuverk á þjóðum veraldar en þó alveg hroðalega sérstaklega á smá-þjóðum - eins og til dæmis Íslendingum og Ísraelsmönnum

**

Þeir sem eru að reyna að setja úníversal lög um hvað maðurinn er, og hvað hann má og má ekki vera og gera, já það eru þeir sem ætla sér að drottna yfir allri veröld manna, með sínum úníversal-lögum og reglum. Þeir munu a sjálfsögðu skapa helvíti á jörð. Það er hundrað prósent öruggt, því þetta hefur margsinnis verið reynt áður

Enginn má hafa slíkt vald. Biblían bannar það. En það er einmitt hennar vegna sem við erum Vesturlönd en ekki Sovétríki, Kína eða það úníversal þrælaríki Egyptalands, sem Ísraelar gengu burt af og lögðu með Útgöngunni sjálfan hornsteininn að Vesturlöndum

Hvað er að þér? Hefur þú misst vitið. Ætlar þú að styðja uppskurð umboðslauss embættismannaveldis Sameinuðu þjóðanna á þjóðum jarðar. Ertu nokkuð kominn með kalt og litlaust blóð í æðar. Slím!

Enginn getur sagt Gyðingum að hypja sig með sína siði, því þeir áttu hvergi heima vegna gereyðingar úníversalisma guðlauss imperíal-Rómarríkis og imperíal Babýlóníu. Svo kom guðlaust Þriðja ríkið og það átti að sjálfsögðu að verða úníversal-ríki líka og það var algerlega imperíal-ríkishönnun frá a til ö, eins og guðlaus Sovétríkin voru, með sitt hámenntaða læknalið sem beinlínis handplokkaði sálirnar úr fólkinu með alviturleika marxismans. Allir með snefil af þekkingu vita hvað stór hluti læknaliðs Þriðja ríkisins stóð fyrir. Og ESB stefnir sömu leið sérfræðinganna og guðlausar Sameinuðu þjóðirnar gera, og sem geta ekki einu sinni læknað kvef. Platon sagði að ekki væri hægt að kalla lækni sem getur ekki læknað sjúkling sinn fyrir sérfræðing. Og nú er orðið til eitthvað viðrini sem kallað er "heilbrigðisyfirvöld" - sem hljómar eins og nýtt ríki hálf-nasista þar sem allir eru skyldugir að ganga í takt. Það yfirvald hefur þó ekki fasta stjórn á neinu, hvorki sjálfu sér, pilluglösum, rekstri sjúkrahúsa né neinu. Og það erum við sem borgum of há laun þess. Það erum því við sem erum yfirvaldið - og heilbrigðið er nú bara sí svona. Rétt svona la la. Halda mætti af fjolsaðri nafngiftinni að þið "heilbrigðis-yfir-valdið" ætlið að taka okkur föst fyrir að vera óheilbrigð. Eða er það kannski öfugt. Hver eru ykkar "völd"? Þetta eru engir sérfræðingar, enda klessti það lið hinum vestræna heimi árið 2008, eftir að hafa haft allt of mikil völd frá lokum Síðari heimsstyrjaldar. Sérfræðingarnir sem sögðust vera sérfræðingar reyndust bara ekki vera neinir sérfræðingar. Þeir klesstu heiminum þá svo hroðalega að hann ætlar bara aldrei að rétta úr sér á ný. Og kostnaðurinn er gerræðislegur. Stjarnfræðilegur

En sem betur fer hafa Gyðingar nú endurheimt þjóðarheimili sitt, lögheimilið, og það stútar Ísraelum því enginn lengur. Og þeir eiga umskorinn vin. Mikinn, stóran og voldugan umskorinn vin, sem er öflugasta þjóð-ríki allrar sögu allra manna allra tíma. Þau heita Bandaríki Norður-Ameríku og eru "the last best hope of earth" eins og Lincoln sagði 1862. Og þau vill hið vaxandi embættismannaveldi Sameinuðu þjóðanna helst feig. Það sést alltaf hverjir eru bestir í sínum bransa á því hverjum illfyglin vilja allra helst granda. Einu sinni var það hið forna Ísrael, í dag eru það Bandaríki Norður-Ameríku

Hvorki úníversal-kratar né alheimsríki þeirra í smíðum er fært um að stúta Gyðingum, því gamli Ísrael og Jerúsalem mun aldrei gefast upp á því að vera sú þjóð sem gaf okkur það sem heitir Vesturlönd í dag

Það er afar hughreystandi að Agnes biskup yfir Íslandi hefur ekki misst vitið eins og sumir, og að hún veit enn um hvað Vesturlönd snúast. Þau snúast um Biblíuna en ekki sáttmála guðlausra Sameinuðu þjóðanna gegn einmitt Guði. HÚN HEFUR MÓTMÆLT!

Vér mótmælum. Og vér mótmælum enn. Vér mótmælum úníversal ríki andskotans. Þess vegna erum það við Mótmælendurnir sem bjarga munu þjóðum jarðar í vanda, þegar á þarf að halda. Það gerðum við síðast sem frjálst bandalag fullvalda og sjálfstæðra ríkja þjóða. Það bandalag tók alræðisöflin í nefið og sömu leið mun ofríki Sameinuðu þjóðanna fara, passi það ekki sitt, sem verandi aðeins samkomu-staður fullvalda og sjálfstæðra þjóðríkja jarðar. Það er einmitt þessa vegna sem við höfum ÞJÓÐ-KIRKJUR Vesturlanda. Líf manna er gott og frjálst í dag vegna þeirra, því þær mótmæltu

Sumt er ekki gott í veröld okkar manna eins og flestir hafa tekið eftir. Þannig hefur það alltaf verið og verður alltaf. En sumt er gott, eða miklu betra en annað. Og sumt er hroðalega vont. Virkilega vont og illt. Eitt af því sem er að verða verra í heiminum, er sjálf stofnunin Sameinuðu þjóðirnar. Þeir sem hafa lesið fyrsta paragraf stofnsáttmála hennar, vita að stofnunin er fyrir löngu komin út af sporinu sem henni var markað. Þannig fer ávallt fyrir umboðslausum fyrirbærum. Þau fara alltaf að fikta við úníversalismann og hrifsa til sín völd sem þeim ber ekki að hafa. Þær öðlast sitt eigið líf sem gengur út á aðeins það, að viðhalda því lífi. Þau verða veldi

Om igen vinur minn. Om igen! Ég er ekki að biðja þig um að hlýða, því það orð var ekki til í hebresku og þar með ekki í Gamla testamentinu, heldur bið ég þig að hlusta. Orðið "hlýða" þurftu Gyðingar að lána úr arameísku þegar hebreska var endurlífguð sem lifandi tungumál þeirra eftir tvö þúsund ára dvala. Það orð, að hlusta, notaði því guð Gamla testamentisins sem gaf okkur landamærin, svo að þjóðir jarðar flæddu ekki út fyrir þau, til að gleypa heiminn í sig og verða að veldi Sameinuðu þjóðanna. Slíkt er alveg stranglega bannað. Við eigum að hlusta á það sem Gyðingar hafa að segja, því þeir hafa mikið að segja á meðan aðrir þegja of mikið og húka. Við erum þeim stórskuldug

Skaparinn gaf okkur því þjóðir sem -þegar þær geta- mynda þjóðríki með landamærum. Þeim má ekki stúta og þeim getur enginn stútað. Þjóðir munu verða til enda tímans, vegna þess að Guð skapaði þær sem þjóðir

Landamæri þjóða þurfa þvert á móti að rísa núna til að stöðva hin landamæralausu heimsveldi í smíðum. Landamærin eru hinir upprunalegu björgunarbátar þjóða, sem alltaf er gripið til, þegar fjandinn er laus. Og hann gengur greinilega laus núna. Það sést

Ég vil engin nýmóðins imperíal Nurenberg-lög í mínu landi. Stöðvið vinsamlegast vitleysuna því fjandinn sjálfur er hingað kominn í formi mannréttinga. Lokið vinsamlegast því verkstæði ömurleikans, helst strax í dag

Og allir ættu nú að sjá, svo ekki verður um villst, að þéttari bönd Ríkis og Þjóðkirkju okkar vantar. Þau bönd verða að þéttast og styrkjast, því ríkisstjórn okkar manna í okkar eigin landi er ávallt farsælast að ríkja samkvæmt biblíulegum hefðum og staðfastri trú á Guð hinna heilögu Ritninga Vesturlanda. Sjálfur sjálfsákvörðunar-réttur þjóða er frá þeim kominn; og mest frá gamla Ísrael. Biblía Vesturlanda er eini staðurinn í veröldinni sem inniheldur uppskriftina að þjóðríkinu. Restin af tímatalinu frá upphafi alda er fyrst og fremst úníversal-imperíal barbaríal misfóstur eða fáránlegt gutl með borgríki sem eru óverjanleg (e. indefensible); mannlega, þjóðfélagslega, pólitískt, hernaðarlega og stjórnarfarslega séð og hafa enga strategíska dýpt

Það síðasta sem afi minn sagði við mig áður en hann háaldraður dó, er þetta: "Gunnar minn, og mundu nú eftir að fara með bænirnar þínar". Ungur og fávís brosti ég innra með mér að honum, fiskimanninum af áttæringnum á Ísafjarðardjúpi. En það geri ég ekki lengur. Þetta er hún, bænin mín

Og ef ég kynni kommablótið hans Gústa Guðsmanns utanað enn, þá gæti ég farið með það fyrir ykkur líka. Hann gaf mér þó Orðið, Jesúmyndir og kommablótið sem sú úníversal-imperíal skepna sýndi sig síðar að eiga fullkomlega skilið. Og það vissi hann, þó svo að margir en sérstaklega hámenntaðir höfðu trúað blint á hana, eins og þeir trúa á Sameinuðu þjóða stofnunina og ESB núna. En hvað gefið þið börnunum í dag. Grjót?

Nokkuð merkilegt gerðist í gær. Hér er það:

=> Sameinuðu þjóðirnar og ESB tengd peningaþvætti fyrir Norður-Kóreu


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Örn Einar Hansen

Svona tilvitnanir í orð Jólasveinsins, hæfir ekki viti bornu fólki árið 2018.

4 konur mótmæltu og sögðu lögin "óréttlát", og Móses reifst við Guð ... og hafði rétt fyrir Guði.

Með öðrum orðum, hefur Guð rangt fyrir sér ... hægt var að leiðrétti, þau rangindi sem hann stóð fyrir.  Þessar 4 konur, voru ekki "representant" fyrir meir en 4 konur af 7 miljörðum manna.  Og að þessar 4 konur, skuli "ráða", hvar hinar 6 miljarðarnir, 999 miljónir, 999 þúsund, 996 manns skuli lifa og skíta ...

Er alsherrjar ranglæti.

Amen.

Örn Einar Hansen, 23.2.2018 kl. 07:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband