Leita í fréttum mbl.is

Kínverskur áblástur í stað varaþurrks

Donald Trump að snæðingi 500 px

Setið að snæðingi

Þeir sem héldu að Kína væri veldi á öllum sviðum vöknuðu upp við vondan draum í síðustu viku. Xi Jinping forseti kom fram og lýsti því yfir að Kína myndi vera orðið mesta herveldi veraldar eftir 35 ár. Þetta er áfall fyrir þá sem sagt hafa óteljandi fíflum Vesturlanda að Kína væri orðið það nú þegar. Ekkert nema 35 ára framlenging á endalausum núllum kom úr munni formanns og blaðran sprakk. Hátt í hálf öld er sögð til kraftaverkja hersins. Kva!

Áður en yfirstandandi aðalráðstefna kínverska kommúnistaflokksins gat hafist, þurfti fyrst að hreinsa út eina milljón manns úr alræðissölum flokksins um allt land, sem er ekki eitt land, heldur mörg lönd. Xi er búinn að stunda úthreinsanir síðustu 5 árin á fullu til að geta komið fram núna og sagt: sú stefna sem gilt hefur frá því að síðasti formaður var og hét, já hún er ónýr og flest það sem hún kom í verk er ónýtt líka. Við þurfum að breyta um stefnu áður en það er of seint, og mikið liggur við núna

Þar á undan var það Deng Xiaoping sem kom og sagði að allt það sem Maó hafði gert væri ónýtt og allsherjarhættan væri handan við hornið á ný - það sama og Xi Jinping segir núna

Á undan Deng Xiaoping var það stefna formanns Maó, sem lagt hafði landið því sem næst í rúst. Þetta er alltaf sama sagan. Allt sem flokkurinn gerði Kína síðast er ónýtt og ef þið samþykkið ekki nýhertan einræðisherra, nú í jakkafötum, þá mun allt landið hrynja til grunna

Og núna eru skuldirnar svo miklar að það verður aðeins hægt að koma í veg fyrir allsherjarhrun með því að banna það algerlega. Já banna það. Nú eru það gæði en ekki magn sem eiga að ríða landinu heim til sömu heitu heljar og flokkurinn frá stofnun alltaf hefur staðið fyrir og lofað

Sem sagt. Kína var ekki herveldi eins og ég hef hundrað sinnum sagt. Það er skuldaveldi og einungis heimsveldi í að staðsetja fjárfestingafé rangt. Það brennir fé og er heimsmeistari í eyðileggingu auðs

Þetta er sprenghlægilegt. Títuprjónstunga formannsins stingst út á ný og boðar nýjan púða nála. Hvar á ég að stinga mér niður núna til að halda völdum. Nýtt Kína bíður handan við helvítis hornið, einu sinni enn

Það er nú gott að eiga alltaf endalausar birgðir af nýjum þurrkum til vara. Sovéttið átti til dæmis alltaf nóg magn hungursneiða, morknu veldi þess til vara. Í ESB er að rætast úr þessum málum fyrir Brussel. Falli evran, fellur öll Evrópa. Hana má alltaf hafa sem endalausa ógn, óveldi þess til vara

Velkomin heim, hér varð hrun, krónan féll en við stöndum enn. Geri aðrir betur!

Fyrri færslur

"Getum ekki liðið þennan eignaójöfnuð“ (varúð: eignarnám framundan)

Hugmyndir um eignarnám á evrusvæðinu lagðar fram

Einn dagur í heimsstyrjöld Samfylkingarflokka 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú þarftu nú að hreinsa úr þér bullið, hvaða "mörg" lönd ertu að tala um?

Tíbet? Aldrei verið land, alltaf verið "hérað". Sjálfstætt, vegna þess hvað það er afskekkt.

Innri Mongólia? Aldrei verið land, alltaf verið "hérað". Móngólir úr þessu héraði voru hluti yfirstéttar Kína.

Hong Kong? Var bara í leigu til Bretlands, vegna þess að Kínverjar ákvaðu að semja í stað þess að vera með stríð.

Held þú ættir að "skoða" söguna þína hérna, örlítið áður en þú veltur úr þér bullina, alveg óþvegið.

Bretland, þegar þeir tóku Hong Kong ... voru lítið annað en eiturlyfjasalar, sem voru með ... Western India Company, sem þú ættir að þekkja vel, nema þú hafir ekki einu sinni horft á "Pirates of the Carribean", eða skilið "undirróðurinn", sem bendir á "hverjir" séu hinir raunverulega "Sjóræningjar". Það er ekki eins og verið sé að vara með það í felur ...

Miljónir manna dóu fyrir tilstylli Breta, Bandaríkjamann, Hollendinga og Spánverja ... spurðu hvaða Kínverja sem er, og þeir geta dælt út úr sér rullu um hin "fim" lönd, sem hafa eyðilagt Kína.

Hitt, væri miklu betra af þér ... að nota Kína sem dæmi um, hvernig "feminismi" getur eyðilagt heilu stróveldin. Því það var "Queeen Dowager", sem var vandamálið og "olli" hruni Kínverska keisaradæmisins.  Og saga Kína, hefur fullt af "konum" sem hafa verið við völd, og öll gætir þú tekið sem dæmi um þetta.

Hitt er ekki rétt með farið, þó að til séu 52 "xiao ming zu" í Kína ... Þú gætir alveg eins sagt, að Ísland væri "mörg" lönd, því það eru fleiri en eitt þjóðarbrot sem lifa á Íslandi.  ca. 10% að mér skilst ... SEM ER STÆRRA HLUTFALL EN Í KÍNA, ÞAR SEM UM 92% LANDSMANNA ERU HAN KÍNVERJAR.

Eins og ég hef oft sagt, fræddu sjálfan þig fyrst.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 22.10.2017 kl. 10:34

2 Smámynd: Borgþór Jónsson

Þetta er svolítið asnalegt typpatog hjá þér Gunnar.

Kína er náttúrlega ekki stæðsta herveldi heims. Það eru væntanlega einhverjir sérvitringar sem halda því fram í hópi milljarðs manna sem býr á Vesturlöndum,en það skiftir í sjálfu sér engu máli.

Það sem skiftir máli í þessu samhengi er að það eeru nú þrjú herveldi á jörðinni sem enginn mun ráðast á.

Það eru Bandaríkin ,Kína og Rússland.

Afleiðingarnar af þessu eru að þessi þrjú ríki geta fylgt sinni eigin utanríkisstefnu ,gætt hagsmuna sinna án þess að óttast árás.

Þessvegna eru átök þessara ríkja að mestu háð á öðrum vettvangi ,meðal annars í gegnum "proxy" stríð og á efnahagssviðinu.

Bandaríkin eru að tapa því stríði hægt og bítandi.

Þau geta ekki unnið af því þau eru smá saman að missa vopnin sem þau hafa notað á undanförnum áratugum í slíkumm hernaði. 

Kannski er eitt gleggsta dæmið um hnignadi veldi Bandaríkjanna að Obama tókst ekki þrátti fyrir óteljanddi sendiferðir og eigin ferðir um Asíu ,að fá nema tvö ríki til að lögleiða TTP samninginn. Það var augljóst að Asíuríkin vildu ekki styggja Kína og töldu að samningurinn yrði of dýru verði keyftur í samskiftum við þá.Þarna urðu vatnaskil.

IMF er annað dæmi. Þó að Bandaríkin geti stöðvað öll mál þar ennþá,er það orðið sífellt erfiðara vegna aukinna áhrifa Kína.

Það er einfaldlega of erfitt pólitískt séð fyrir Bandaríkin að beita neitunarvaldi á þeim vettvangi. Það segir ekki að Bandaríkin hafi ekki mikil áhrif ,en það segir að þau fara dvínandi.

Að lokum er það SWIFT greiðslukerfið.Það hefur alltaf verið vopið sem hefur hangið yfir öllum þjóðumm sem ekki láta að vilja Bandaríkjanna. Þetta vopn er nú orðið bitlaust fyrir tilstilli Kína. Þetta er gríðarlegt áfall fyrir Bandaríska heimsveldið. Meira en flestir gera sér grein fyrir. Þetta hefur stórlega aukið frelsi meðalstórra ríkja til að gæta hagsmuna sinna.

Bandaríkin eru nú í örvæntingarfullri leit að bandamönnum. Nú hefur stefnan verið sett á Indland. Indverjar leika hinsvegar tveim skjöldum. Reyna að fá að besta út úr bæði Rússlandi og US. Þetta er hættulegur leikur ,engum líkar við slíkt framferði.

Kína er ekki heimsveldi ,og vonandi verður það aldrei.En Kína er ekki lengur ríki sem er hægt að horfa fram hjá.

Sama gegnir um Rússland. Það er ekki lengur hægt að hundsa þá.

Bandaríska heimsveldið er að líða undir lok. Vonandi gerist það með friðsamlegum hætti eins og hrun Sovétríkjanna.

Borgþór Jónsson, 22.10.2017 kl. 12:16

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Bjarni

Tja. Kommúnistaflokkurinn er síðasta Han-dynasty Kína. Það situr á um það bil helming alls landsmassa þess Kína sem í dag þykist vera það ríki sem þú ert að tala um.

En eins og þú kannski veist þá hafa Zhou-Qin-Han veldin gormað sig sundur og saman með reglulegu millibili, frá því að vera þúfa í miðju landinu og frá því að flæða út fyrir það svæði sem það mögulega getur drottnað yfir.

Tvö þúsund ára Zhou-Qin-Han villimennska er það sem einkennir þetta land sem þykist vera eitt land en er það ekki. Heimsveldisstefna byggð á mannfjölda er kjánalegur hlutur. Enginn fer langt með þúsund miljón fátæklinga hangandi um háls sér. Það endar alltaf með hengingu. Og það er það sem við sjáum í dag. Xi er að herða í snörunni.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 22.10.2017 kl. 12:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband