Leita í fréttum mbl.is

Þýskaland í gíslingu Tyrklands

Mannfjöldi Þýskalands er hnignandi, hrörnandi og fallandi 82 milljón manns. Mannfjöldi Tyrklands er hins vegar vaxandi 80 milljón manns sem er að eflast. Þýskaland er orðið eins konar elliheimili sem er að líða undir lok, en Tyrkland er ungt og vaxandi veldi að ryðja sér til rúms í Evrópu og Austurlöndum -nær og -fjær

Tyrkland gefur út upplogna handökuskipun á þýska blaðamenn og þýska borgara. Þýskaland gerir ekkert. Það þorir ekki að segja neitt. Það verndar ekki borgara sína með því að gefa út ferðaaðvörun til þeirra

Tyrkland gaf hins vegar út ferðaaðvörun til Tyrkja sem huga á ferðalag til Þýskalands. Það segir Tyrkland að sé gert vegna "and-tyrkneskrar stemmingar" í Þýskalandi

Sparnaður þýskra heimila (krónísk mýta) hefur verið fallandi allt frá því að kanslari þess sem nú stjórnar rússneska ríkisfyrirtækinu Rosneft með Pútín (Kál- og bolabandalagið), breytti Þýskalandi í láglaunaland. Auður þýskra heimila var þar með fluttur til þýskra fyrirtækja sem fluttu hann úr landi til Suður-Evrópu, þar sem til voru heimili í neikvæðum evru-raunstýrivöxtum til að kaupa með þeim þýskt framleiddar vörur með kredit sem þýsk fyrirtæki útþrýsti-sköffuðu í svo gerræðislegum mæli (undir af ásetningi lélegum kredit-stöðlum), að hann nam 30 prósent af landsframleiðslu sumra ríkja í Suðri. Úr varð innflæði sem rústaði Suður-Evrópu undir stjórnleysi ECB-aukaseðlabanka Þýskalands

Krónísk undir-neysla einkennir því þýska hagkerfið allt, því hlutur þýskra heimila í landsframleiðslunni hefur minnkað svo mjög vegna þess að auður þeirra (sparnaður) fluttist frá þeim og yfir til fyrirtækja landsins, sem eru í eigu þýska aðalsins. Og sem stjórnar þinginu og landinu öllu, utanþings! Þýskaland er því orðið útflutningsháðasta hagkerfi veraldar og hagkerfi þess er í innri rúst

Heimilin reyna örvæntingarfull í láglaunahagkerfi Þýskalands að halda í sparnaðarhlutfall sitt með því að skera niður neyslu og þar með eyðslu og hlutur þeirra í landsframleiðslunni (neyslu hennar) fer sífellt minnkandi og hlutur fyrirtækjanna fer sífellt vaxandi. Lísa Undralands er mætt á staðinn og ljósið er byrjað að bogna. Brátt verður það svart

Þess vegna þorir Þýskaland ekkert að gera fyrir borgarna í utanríkismálum. Það þorir ekki að vernda þá, hvorki innanlands- né utan. Það þorir því ekki vegna þess að viðskiptahagnaður þess (aðalsins) er sá mesti og svæsnasti í heiminum. Erdogan gæti til dæmis tekið niður girðinguna ef Þýskaland liggur ekki kjurrt sem motta

Í Þýskalandi hefur aðlinum loksins tekist að aðskilja stjórnmálin alveg frá viðskiptum, - eins og ávallt hefur (þó óopinbert) verið efsti punkturinn á óskalista ítölsku Mafíunnar. Suður-Evrópa liggur því nú sem sviðin jörð. Og umfram allt má ekki komast upp um hvað varð um auð þýskra heimila

Lélegasti og úrræðalausasti stjórnmálamaður veraldar heitir Angela Merkel. Hún hefur sjálf engu fjárfest í framtíð Þýskalands

Öndunarfæri Þýskaland eru nú öll utanáliggjandi. Þau liggja fyrir utan Þýskaland. Sá sem tekur þau frá Þýskalandi, mun kæfa landið. Þýskaland þolir því ekki að missa eitt einasta land úr lungum sínum, sem öll liggja erlendis, vegna þess að hagkerfið þeirra heima fyrir er handónýtt og steindautt. Þetta mun enda hroðalega illa. Hroðalega illa. Svona er að viðhafa ESB-hagfræði. Hún er sértrú, - sérsamin af þýskum aðli fyrir þýskan aðal = þrælabúðir

Þýskaland er fallandi veldi - Tyrkland er hins vegar rísandi veldi

Fyrri færsla

Stærsta æfing sænska hersins í 20 ár hófst í dag. Edrúsaft sent til Stokkhólms


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þýskalandi er stjórnað af Bandaríkjamönnum, og Gyðingum ... Merkel, er eins og Hitler ... svikari í innsta hring.

Í stað þess að tala um þetta hrörnandi velid, ættir þú að velta því fyrir þér að á Íslandi eru nú flóttamenn sem eru "fjöldamorðingjar" og hafa framið Glæpi gegn mankyninu, í dulargervi ISIS. Þessir menn sluppu inn í landið, fyrir tilstylli Merkels ...

Þess vegna er "böðla" starfsemi ISIS hætt ... böðlarnir flúðu undan Rússum, og fengu "frítt vegabréf" af Angelu Merkel ... til að flýja í skjóli flóttamanna til Evrópu.

Við hliðina á börnunum þínum, í skólanum kenna börnum þínum, í öryggisbúningum til að gæta öryggis þíns, sem lögregluþjónar að gæta rétt þíns ... sem hermenn ... eru "böðlar" ISIS ...

Þetta er hið stóra, óhuggulega vandamál ... sem ekki er fjallað um í dagblöðum.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 12.9.2017 kl. 11:12

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir innlit og skrif Bjarne.

Kveðjur 

Gunnar Rögnvaldsson, 12.9.2017 kl. 23:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband