Leita í fréttum mbl.is

Íslendingar fleyta tólg til minningar um fallna forfeður sína

George Friedman: "Hroðalegir töfrar kjarnorkuvopna"

Móðuharðindin fyrir 234 árum, drápu um það bil þriðjung þálifandi Íslendinga. Lakagígar brugðust ekki við ákalli alþjóðasamfélagsins við Engramannagötu númer 17, um að hætta gosi. Þjóðin var tilbúin til samningaviðræðna en samt gusu gígarnir hana svo gott sem í kaf. Núlifandi þjóð Íslendinga safnast því saman við Gráttjörnina til að minnast harðindanna, með því að fleyta flotkertum svo þeir komist í himnaríki og fréttir sem gott fólk. Aflátskertatólgin er seld í öllum kertaverslunum Grátkórs tískunnar. Þerripappír með vellyktandi væmni fá allir í kaupbæti

Þegar loksins var opnað fyrir aðgang að japönsku skjalasöfnunum, kom í ljós það sem Bandaríkjamenn hafa alltaf vitað: japanska keisaraveldið ætlaði alls ekki að gefast upp en hafði hins vegar áform uppi um að leita friðarsamninga undir þeim formerkjum að stríðsveldi japanska keisarans fengi að halda hernámi og stríðsrekstri sínum áfram í Kína, þar sem þúsundir borgara voru drepnir hvern dag. Talið er að japanska keisaraveldið hafði myrt um 30 milljón manns í herferð sinni um Asíu. Fimmtíu þúsund Bandaríkjamenn féllu í bardögum við landgöngu á bara eina eyju japanska keisaraveldisins. Það var eyjan Okinawa

"Friðarsamningarnir" sem kenndir eru við Versali, voru ákaflega slæm minning í fersku minni þeirra tíma manna. Sýnið vinsamlegast fólkinu í mannkynssögunni smá samúð og skilning með því að reyna bara eitt andartak að setja ykkur í fótspor þeirra sem í þeim stóðu. Þið standið öll á þeirra herðum

Þegar japanska keisaraveldið réðst á Bandaríkin með árásinni á Perluhöfn, stóðu þeir í miðjum samningaumleitunum við Bandaríkin. Enginn í Bandaríkjunum treysti japanska keisaraveldinu í ágúst 1945. Kjarnorkusprengjurnar tvær björguðu þrátt fyrir allt illt, hundruð þúsundum mannslífa. Rétt skal vera rétt - og tólg skal heita tólg

Fyrri færsla

Yfirlýsing Donalds Trump um "eld og brennistein", "regn" Trumans og Guam


mbl.is Kertafleyting á Tjörninni í 33. sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Hvað myndi hann Stefán Pálsson hernaðar-andsstæðingur vilja gera gagnvart N-kóreu?

Leyfa forseta N-kóreu að senda sýnar eldflaugar á BANDAMENN eða að taka upp máltækið "Með illu skal illt út reka"?

Jón Þórhallsson, 10.8.2017 kl. 12:01

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Jón.

Ekki veit ég það. En hitt veit ég að það er mun árangursríkara að vera veðurandstæðingur en "hernaðarandstæðingur". 

Stríð og styrjaldir eru ein algengustu fyrirbæri mannlegrar tilveru og þau munu alltaf verða. Það eina sem gildir er að búa sig einmitt undir stríð með vörnum.

Það getur vel verið að flestir hafi ekki áhuga á stríði, það skiptir ekki máli, því stríðin hafa áhuga á þér,- á Trotsky að hafa sagt.

Sennilega megum við þakka fyrir að styrjaldir og stríð séu ekki reglan fyrir daglegt líf, frekar en friður. Reconquista-stríðið stóð ekki yfir nema í 744 ár.

Að geta háð styrjöld lengur en allir aðrir í sama stríði, er það sem gildir.

Kveðjur 

Gunnar Rögnvaldsson, 10.8.2017 kl. 13:18

3 identicon

Bull er þetta, drengur ... að þú hafir ekki vit á að skoða hlutina nánar.

Þessi skríll, sem þér finnst svo góður í þessu samhengi ... baðar sig í Baden-Baden, sama bæli og Hitler ... og leggur miljónir að veða í spilamensku, ásamt framtíð barna þinna.

Að 50 miljónir manna, létu lífið til að losa sig við ánauð þessa óþverra er skiljanlegt, og ekkert til að gráta. Heldur til að setja þá á pallsteina og heiðra þá fyrir hreisti sína.

Hitt, er svo með öllu verra ... og það er þegar þessir herrar eiturlyfja, mellna og hórmangara ... eru aftur búnir að ná tökum á löndunum, í nafni Ópíum sölu kónganna, og sjóræningja Bandaríkjanna og Bretlands.

Það er hin stóra skömm nútímans.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 11.8.2017 kl. 10:40

4 identicon

Sæll Gunnar

Það er dagljóst að hver sér þetta með sínu nefi en það er engu að síður ljóst að stríð eru okkur hugleikinn í gegnum söguna. Ég man eftir gamalli bók sem ég rakst á. Nafn hennar var ca. "Story of humans" eða álíka gildishlaðinn titill. Indexinn var um 5 síður og þar var upptalning á öllum þekktustu stríðum mannkynsögunnar. Bókin fjallaði eingöngu um stríð.

Orðin stríð og friður er svo merkingahlaðin að þau eru orðin afstæð á köflum. En án stríðs er ekki til friður og án friðar er ekki til stríð. Þessu hugtök "ballansera" hvort annað á þann veg að þau gefa hvort öðru gildi sitt. Án stríðs og friðar þá hefði bara verið "blah."

Sigþór Hrafnsson (IP-tala skráð) 11.8.2017 kl. 19:08

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Bjarne.

Já Sigþór, það er mikið til í þessu sem þú segir. Takk fyrir.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 11.8.2017 kl. 23:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband