Leita í fréttum mbl.is

Donald J. Trump segir "Deep State" stríð á hendur

Myndskeið: Donald J. Trump undirritar stríðsyfirlýsingu

Í Bandaríkjunum hefur undanfarið skapast mikil umræða um það sem þeir vestanhafs kalla "Deep State" eða hin djúpt ráðandi öfl. Og er þá átt við ókjörin öfl sem í reynd og leynd séu hin ráðandi öfl í landinu. Þetta gerist einmitt núna í kjölfar þeirrar andspyrnu og skemmdarverka sem unnið er daglega að gegn þjóðkjörnum forseta Bandaríkjanna, sem neitar að haga sér eins og sá maður sem embættismenn og diplómatar elska, þ.e. sem "statesman" á borð við Jacques Chirac sem gerði ekkert sem sett gat neitt úr algerri kyrrstöðu, sem svoleiðis fólk á opinberum launum elskar heitt

Umræðan um þetta mál vestanhafs geisar núna, og manna á milli er daglega giskað á hver séu þessi leyndu og ókjörnu ráðandi öfl. Hvaða stofnanir og hvaða menn hverra stofnana og hagsmunasamtaka ráða í reynd landinu

Þessi umræða er á villigötum, því þetta "deep state" er ekki leynd öfl. Þau eru einfaldlega hinir opinberu starfsmenn ríkisins og bara þeir og engir aðrir. Þeir eru hið ráðandi afl sem átt er við og þau eru alls ekki leynd. En hegðun þeirra, lekar, skemmdarverk, moldvörp, vörusvik og prettir eru þó falin augum þess almennings sem ætlast til að þessir opinberu starfsmenn hlýði forsetanum sem einmitt hinn sami almenningur kaus. Forsetinn er yfirmaður hinna opinberu starfsmanna og þeir eru þarna til að framkvæmda stefnu hans og bara hans, en ekki sína eigin

Í stuttu máli þá er þetta ráðandi afl sjálft stjórnkerfið og stjórnsýslan í einum pakka. Hún hefur öðlast sitt eigið líf og neitar að láta ólögmætu valdafíknina af sér renna og hún neitar gegna starfi sínu sem þjónar forsetans. En til þess var þetta batterí stofnað. Efst á lista Steve Bannons sem er einn helsti strateg forsetans, er því að rífa hið "aðmínistratíva ríki" Bandaríkjanna í tætlur. Að kála "deep state"

Áður fyrr voru allir opinberir starfsmenn reknir í hvert skipti sem nýr forseti Bandaríkjanna settist í embættið. Hann kom með sína eigin starfsmenn og þeir sáu um að þjóna forsetanum og stefnu hans, en ekki sjálfum sér. En svo kom maður með hugmynd frá Evrópu og hún gekk út á að skilja á milli þeirra sem unnu það sem hann kallaði "ópólitískt opinbert starf" og hins vegar þeirra sem unnu að þeim pólitísku málefnum sem forsetinn var kjörinn til að framkvæma

Þetta voru greinilega slæm mistök, eins og sést vel vestanhafs og enn betur hér heima, en sér í lagi á truntunni stóru; sjálfum sovétríkjum Evrópusambandsins

Fyrri færsla

Betra að endurskoða heilbúskap Viðreisnar en "peningastefnuna"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Theódór Norðkvist

Það þarf að hreinsa út þessa embættismannastétt sem enginn kaus, en setur öllum reglur, nema sjálfum sér. Áskrifendur að launum úr ríkissjóð, sem engum verðmætum skila.

Man eftir einum sem ég var að vinna með í rækjunni hér áður fyrr. Hann var að hneykslast á öllum þessum viðskiptafræðingum sem væri verið að útskrifa. Sagði að meirihlutinn af þeim gerði ekkert annað en að labba upp og niður Laugaveginn með skjalatösku.

Ætli það sé ekki álíka mikið gagn af þessum djúpríkisstarfsmönnum. Er það ekki ágætis orð?

Theódór Norðkvist, 16.3.2017 kl. 17:46

2 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Gunnar tek undir með Theodór.

Þetta er kannski alveg rétt en ég held að yfirmenn ríkisstofnanna séu peð sem eru notaðir á einhvern hátt. Það mætti t.d. þurrka út CIA en þeir eru handstýrðir af svokölluðum Deep state en það eru bankarnir, Frímúrarar og þessir stóru fjöldskyldur s.s.  Bildenberg og Rotchilds og auðvita Soros en hann er outlet fyrir peninga hinna. Þeir eru loksins farnir að rannsaka Soros.

Því var það ekki gert fyrr. Hann er verndaður.    

Valdimar Samúelsson, 16.3.2017 kl. 21:34

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Það þarf að reka úr ráðuneytunum við stjórnarskikpti vóðar en í USA. Vinstri menn eru óhæfir í ráðuneytum þegar hægri stjórn tekur við völdum og öfugt.

Halldór Jónsson, 16.3.2017 kl. 21:47

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur Theódór og Valdimar.

Opinberir starfsmenn vita að atvinnuöryggi þeirra er mikið og hátt. Það eitt er nægilegt til að búa til óeðlilega og ógnandi snöru um háls þess lýðræðis sem til dæmis kýs til valda menn sem ógnar veldi þeirra.

Og svo eru það hinar svo kölluðu "sjálfstæðu opinberu stofnanir". Hér heima þarf ekki annað en að líta til DDRÚV sem er orðið að eins konar ríki í ríkinu.

Stjórnarskráin mælir svo fyrir að við fáum að kjósa fulltrúa okkar til að framkvæma stefnu okkar. Það er furðulegt að hægt sé meira og minna að gelda þetta lýðræði með því að það geti átt á hættu að heill her af fólki sem er ekki sammála þessum fulltrúum þjóðarinnar geti lamað eða gelt lögmætt afl þeirra með því að bregða fótum fyrir þá í starfi.

Á sama tíma gerir þetta kerfi sig sjálft svo fólkið og ómissandi, með dyggri aðstoð löggjafarvaldsins, með það að helsta markmiði sínu að gera sig ómissandi. En við vitum öll að við þurfum á sérfræðingum að halda, svo hér er komin haltu-slepptu-mér staða sem að mörgu leyti er að verða óleysanleg og sem vinnur gegn því sem til var ætlast af þessu batteríi.

Annað dæmi er heilbrigðiskerfið. Það væri alveg sama þó svo að allri þjóðarframleiðslunni væri sturtað ofaní hið opinbera heilbrigðiskerfi, það myndi ekki hindra þá sem lifa á því að vola og væla til þess eins að tryggja sig fyrirfram gegn niðurskurði. Þetta kerfi mun aldrei verða þess megnugt að skila því af sér sem það á að skila. Þetta sovéska kerfi þarf að leggja niður í sinni núverandi mynd og nýtt þarf að koma í stað þess.

En lekavinavinir "Deep State" hjá stofnunum eins og DDRÚV (sem er í útrýmingarhættu), Washington Post og New York Times, vita hvernig á að bregðast við fyrir hönd þeirra sem ógnað er af þeim sem hafa fengið það fjögurra ára hlutverk í senn frá kjósendum að pota í hinar atvinnuöruggu geldingarstöðvar opinberra starfsmanna. Þeir þurfa bara að halda út í fjögur ár í senn, gegn lýðræðinu.

Að lokum: það er náttúrlega öllum í einkageiranum heimlit, innan ramma laganna, að vinna gegn ríkisstjórninni, þar á meðal til dæmis George Soros, því þeir sem í þeim geira eru hafa ekki það lögbundna og launaða hlutverk á höndum að þjóna ríkisstjórninni.

En ljóst og leynt bandalag svoleiðis afla og hins opinbera geira, sem á að þjóna ríkisstjórninni, er eða að minnsta kosti ætti að vera bannað. 

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 16.3.2017 kl. 22:49

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Sammála Halldór

Og þess utan er skuggalegt að hugsa til þeirra stöðu sem lýðræðið er hafnað í þegar þrír af hverjum fjórum kjósendum í löndum eins og til dæmis Danmörku, eru komnir í þá aðstöðu að hafa depónerað hinni efnahaglegu tilveru sinni að hluta til eða öllu leyti beint ofan í ríkiskassann. Þannig verður dópsala stjórnmálamann til í kosningum. "Komið á kassann okkar kæru kjósendur og þið munuð aldrei kjósa hann undan ykkur aftur. Við lofum því meiru opinberu dópi til ykkar í hverjum nýjum kosningum." Þetta er dópsala stjórnmálamanna.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 16.3.2017 kl. 23:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband