Leita í fréttum mbl.is

Gorkúlan RÚV (áður Ríkisútvarpið) fallin saman

DDRÚV leggst á landsmenn

DDRÚV leggst á landsbyggðina sem er 99,8 prósent af Íslandi 

Þessi stofnun sem snýst um sjálfa sig í Reykjavík og nágrenni hefur tekið upp sína eigin byggðastefnu í lýðveldi Íslendinga. Stofnunin hefur því ekki lengur fjárhagslegt bolmagn til að sinna frumskyldum sínum. Og notendur þess eru svo fláðir að þeir hafa heldur ekki efni á að halda uppi bolmagni Ríkisútvarpsins undir sjálfu sér

Það vakti stórfurðu mína er ég eftir 25 ára fjarveru frá Íslandi, komst að því að ekki er lengur hægt að hlusta á Ríkisútvarpið Rás1 (Gufuna) á langbylgju. Hinar vesælu FM-útendingar DDRÚV ná víða alls ekki —eða illa— inn og út til íbúa á landsbyggðinni nema með sérstökum tilfæringum. Þess utan er FM svo gott sem óhæft fyrir talað mál

Útsendingar útvarps ná ekki til þeirra greiðenda sem halda stofnuninni uppi. Og ef kvartað er þá birtist kannski eftir þrjú ár mælingamaður DDRÚV frá Austur-Berlín Reykjavíkurborgar til að mæla þann sendistyrk sem enginn er, þannig að stofnunin geti síðan frá sömu borg dritað út bréfi til íbúa landsbyggðarinnar þar sem þeim er sagt að DDR-stofnun þessi um sjálfa sig hafi ekki fjárhagslegt bolmagn til að snúast í kringum um viðskiptavini sína

Af hverju í ósköpunum er ekki séð til þess í þessu stóra og víðfeðma stórfjallalandi okkar Íslendinga að RÁS1 náist allan sólarhringinn á langbylgju um allt land. Hvaða afglapar hafa skipt tíðni þessarar bylgju á milli Rásar 1 og 2. Af hvejru er allt í kringum þessa stofnun svona fábjánalegt?

Svo er það þetta svo kallaða sjónvarp DDRÚV sem sent er út til dreifingar inn til skítafyrirtækisins Vodafone, sem afhendir það frosið, stíflað eða hakkað með ónýtum afruglurum sem bera nafnið Digital Ísland og sem nær undantekningarlaust eru drasl sem öngvum stillingum halda. Og við skulum ekki minnast á framboð, eða réttara sagt afturboð, Vodafone af glötuðum stöðvum til landsbyggðar sem virðist vera eins konar utanríkislegur baggi á fyrirtækinu 

Siglufjörður - Náðu forystunni með eigin orku

Morgunblaðið; Siglufjörður - Náðu forystunni með eigin orku

Þegar ég sem polli sat með föður mínum góða —en nú sáluga— í Bensinum og síðar Scaníunni hans, er við fikruðum okkur með fullfermi upp og yfir Siglufjarðarskarð á marrandi gnístrandi gaddakeðjum í fyrsta gír í lága, þá náðum við þó alltaf því sem þá hét Ríkisútvarpið, sama hversu veðrið æddi um fjöllin. Og veðurfregnirnar komu sér oft ákaflega vel. Þetta segist og skrifast upp úr árunum frá 1963

Hvar er þetta Ríkisútvarp núna? Það er ekki til. Það er dáið. Það er orðið grenjustaður fyrir formann. Í dag kem ég á sveitabæi þar sem þeir sem byggðu upp þetta land þurfa að tengja og helst negla ferðaútvarpið niður í eldhúsvaskinn til að geta hlustað á útsendingar frá Austur-Berlín DDRÚV í Reykjavíkurborg. Sjálft fólkið sem byggði upp þetta land. Fólkið sem byggði stökkpallinn sem þú stendur á 

Það eina sem ríkið skaffaði okkur á leiðinni yfir Skarðið voru langbylgjusendingar Ríkisútvarpsins. Restina höfðum við skaffað okkur sjálf: atvinnutækin, vegina fyrir fjöllin, rafmangið og fjármangið sjálft. Siglufjörður var ekki grenjustaður

Hryllilegt er nú að sjá Stalínistískt rangsætt og sovésk almannavarnarbyrgi Reykvíkinga staðsett innan í fjallinu fagra á þessum fyrrum glæsta stað í dag. Þessa hrikalegu holu sem eitt fullkomlega rangstætt peningagat inn í risavaxið fjall fólksins. Engum til gagns og flestum til óþurftar. Nú er bara að bíða þess er bænum verði lokað og sjúkrahúsið lagt niður - vegna jarðarfararferða einnar höfuðborgar með túrhestagympi sín í gegnum gatið það og út í tómið

Það er svívirðilegt að sjá hvernig þið hafið því sem næst afskaffað Ísland með bólugreftri eins höfuðborgarsvæðis. Þetta verður að breytast! Þessi barsmíði á Lýðveldinu verður að hætta

Fyrri færsla

Hlé gert á barsmíðum


mbl.is Mastrið ekki upp á næstunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég á tvö ferðatæki sem ég hef notað um allt land, allt frá Hornströndum til hálendisins á Austurlandi og Vatnajökuls og næ á þeim langbylgjuútsendingum RUV alls staðar.

Miðað við praktisk not langt frá byggð er aðalatriðið að ná veðurfregnum, fréttum og dægurmálaumræðu.

Ég geri því ekki kröfu til þess að ná öllum ótímabundnumm þáttum Rásar 1 sem eru á sendir út á sama tíma og dagbundnari þættir og bestu tónlistarþættir Rásar 2 og andmæli þeirri fullyrðingu að langbylgjan sé gagnslaus.

Það má auðvitað deila um valið á efninu fyrir langbylgjuútsendinguna en fúkyrðaflaumurinn um hana er að mínu mati ósanngjarn og að hluta til rangur.

Ómar Ragnarsson, 3.1.2014 kl. 09:38

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Ómar

Ef þú lest rétt þá fjalla ég um FM-útendingar DDRÚV sem nást ekki, en sem fólk borgar fyrir. Og svo langbylgjusendingar þeirra á einni sameiginlegri tíðni sem skiptir eins og slökkvari á milli stöðva. Þannig að ef þú nærð ekki FM þá nærðu bara skiptimiðaútsendingum DDRÚV á milli heimsku og heljarútendinga þeirra á langbylgju.

Og þess fyrir utan þá ert þú bara einn einn Reykvíski túristinn og býrð ekki á landinu. Þú ekur bara um það eða flýgur yfir það.

Það er tilvalið að nota stóra loftnetið sem er ókeypis yfir öllu landinu til að senda út allt efni sem RÚV sendir út; samtímis á langbylgju og FM. Annað er sveitamennska í svona stóru og fjöllóttu landi.

Við skulum ekki minnast á sjónvarpið þeirra hér. Og heldur ekki á internetið frá stóru skítasímafélögunum í Reykjavík.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 3.1.2014 kl. 16:37

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Allt um dreifing RUV hér http://ruv.is/um-ruv/dreifikerfi  Sýnist að þetta sé í ágætu lagi. Og man nú að sjónvarpi verður á þessu eða næsta ári hætt á venjulegum loftnetum og færist yfir á örbylgju og netsjónvarp. Búið að bjóða uppsetningu á því út.

En við hverju búast menn þegar að þessi 18 þúsund kr. sem við borgum á ári er skorinn  niður í um 14 þúsund á hverju ári og ríkið notar mismunin í eitthvða annað.  í eitthvað annað.  

Magnús Helgi Björgvinsson, 3.1.2014 kl. 17:30

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Magnús

Pappír er yfirleitt mjög þakklátur. Það hafa Íslendinga þegar sannreynt til hins ýtrasta. Fyrst pappírinn er í lagi þá hlýtur raunveruleiki fólks að vera það líka, ekki satt?

=== Norð-Austurland === 

“Útsendingar RÚV liggja niðri á stórum svæðum og óvíst hvenær viðgerð lýkur” […] „Megináherslan er lögð á að koma útvarpinu inn aftur.“ 

================= 

Ég vona svo sannarlega að mastur DDRÚV hafi ekki fallið um sjálft sig vegna fréttaflutnings RRDÚV af eigin rassi; beint ofan á borgarana.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 3.1.2014 kl. 18:05

5 identicon

Þess má geta að erfitt er að útvarpa rás eitt á langbylgju allan sólarhringinn einfaldlega vegna þess að dagskrá hennar spannar ekki allan sólarhringinn.  Hins vegar næst ríkisútvarpið, ýmist rás eitt eða tvö, ævinlega, líka þegar FM sendarnir bregðast, á langbylgju 189 eða 207.  Allan hringinn og á miðunum líka.  Þar hafa menn allt sem þeir þurfa sem til öryggis má horfa; fréttir, veðurfréttir, tilkynningar frá yfirvöldum auk svo efnis til að efla andann.  En vitaskuld verða menn þá að hafa græjur við hæfi.

Þorvaldur S (IP-tala skráð) 3.1.2014 kl. 23:38

6 Smámynd: Júlíus Björnsson

Sníð stakk eftir notendfjölda eins BBC. t.d.  vera með hlutsfallega sömu skatta á öllum grunn skyldum. 

Júlíus Björnsson, 4.1.2014 kl. 00:53

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Seldi kratahyskið sem öllu ræður á Siglufirði ekki orkufyrirtækin til góðkunnra til að míga í skóinn á illa reknum bæjarsjóði?

Allavega er ekki vert að stæra sig af sjálfbærni í þeim málum lengur. Mjólkurkýrnar löngu saltaðar í tunnu og seldar.

Bara svona af tilefni þessarar úrklippu sem þú birtir þarna.

Það er akkúrat ekkert jákvætt að segja um rekstur þessa bæjarfelags, þar sem nepotismi og skammsýni ræður öllu. Tala nú ekki um gerræðislega sameiningu við það volaða pláss Ólánsfjörð, sem hefur og mun kosta bæjarfélagið restina af þeim tekjum sem til falla. Það er tragíkómískur farsi sem ekki er hægt að lýsa í stuttu máli.

Þrátt fyrir goðan ásetning margra mun þetta pláss aldrei rísa til fyrri virðingar svo eitrað af kratisma og spillingu sem það er. Því er nú andskotans ver og miður.

Jón Steinar Ragnarsson, 4.1.2014 kl. 05:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband