Leita í fréttum mbl.is

Þokubakkastjórnmál ECB-skýjaseðlabanka Evrópusambandsins

Í vikunni lækkaði tæknigeira-greinandi UBS-bankans, Steve Milunovich, mat stórbankans á tæknafyrirtækjunum IBM og Accenture. IBM eru sem kunnugt Alþjóðlegar Skrifstofuvélar og Accenture er tölvuráðgefandi fyrirtæki á sviði upplýsingatækna-tækni og sá tölvunarráðgefandi hluti er lifði af sjálfsslátrun endurskoðunarfyrirtækisins Arthur Andersen á sjálfu sér er það dó

En í sömu aðgerð hækkaði hins vegar Milunovich mat sitt á tölvutæknifyrirtækinu Apple, sem stofnað var í amerískum bílskúr árið 1976, vegna þess —sagði hann— að fyrirtækið Apple væri heiðskírt fyrirtæki á sviði tölvutækni —"the uncloud company"— og því "réttu megin við skýin". Heiðskírt tæknifyrirtækið Apple, sagði Milunovich, væri þannig að éta í sig markaði ofangreindra tveggja "tækna-fyrirtækja" - sem nú fossrignir niður á þrálátum og langvinnum líklegum fyrirtækjanna

Þessa sömu leið mun tvístruðu Android rigna niður í sömu fötu og klessukeyrðum sundruðum götustráka hugbúnaði símafyrirtækja hefur rignt nú, úr meðal annars fjöldagröfum Novell

Hér í leiðinni er einnig hægt að geta þess, að í maganum á Accenture liggur nú Nokia-stýrikerfið Symbian í slipp, þar til því verður sturtað þaðan niður út í sjó

Steve, þetta tókst! Apple er byrjað að taka kerlingarknúna rigninguna úr IBM niður í þakrennurnar á meðan hitt fyrirtækið (Microsoft) rennur mjúkt niður í klósettið, því það er meðal annars komið með Nokia í magann, eftir að hafa beðið svo lengi á sama stað eftir Lognhorn

Það var karl-kerlingin Lou Gerstner sem skipaði IBM að hætta hundrað prósent in-house þróun fyrirtækisins á undrabarninu OS/400-stýrikerfinu. Það þótti honum nefnilega svo "áhættusamt". Hægt er að umskrifa þá heimsku yfir í að það væri "of áhættusamt" fyrir IBM að vera hundrað prósent tæknifyrirtæki og gera ekkert annað en að vera sjálfu sér samkvæmt; þ.e.a.s að vera eingöngu ekta tæknifyrirtæki. Rignir því fyrirtækinu niður í þakrennur annarra sem úthýstum Fiorina-compökkuðum kerlingardropum

Setning vikunnar

Og svo er það setning vikunnar sem leið. Lars Christensen hjá Danske Bank hlýtur að eiga heiðurinn af henni, er hann sagði; að "peningaþurrðar-ástandið á evrusvæðinu væri japanskt ástand og að ECB-seðlabankalingur Evrópusambandsins væri að gera öll þau sömu mistök sem seðlabanki Japans hóf og framkvæmdi án afláts" (en þó með aflátsbréfasölu bankans til innlendra gamalmenna), frá því að hagkerfi Japans hóf hið sjálfskapaða þúsund ára útþurrkunarferli sitt á árið 1989. Undir einmitt klaustur-stjórn japanska seðlabankans og 55 ára samfelldri ríkisstjórnarsetu sama fólks yfir landinu

Lars Christensen: “But low rates mean nothing. What the ECB has done is to prop up banks and countries through credit policy. That is not monetary policy,” he said 

Já. Skýjastjórnmál eru ekkert grín. Sjáið bara Jóhönnu, Össur, Steingrím, Ögmund, Árna þó og kó: þeim rignir nú bókstaflega niður sem skrifstofupökkum yfir borgríkis þjóðina

Fyrri færsla

Byggðastefna höfuðborgarsvæðisins gangsett


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband