Leita í fréttum mbl.is

Góð ríkisstjórn kjörinna stjórnmálamanna er mikilvægari en allt annað

Þýski seðlabankinn Reichsbank, varð sjálfstæð og pólitískt ósnertanleg fag-stofnun árið 1922. Hann varð ríki í ríkinu eins og ECB-seðlabanki Evrópusambandsins er orðinn nú. Síðan sprengdi óháður Reichsbank landið í tætlur með óðaverðbólgu

Svo gerðist það að engin ríkisstjórn var til staðar í landinu fræga —þ.e. í Þýskalandi sem á síðustu 212 árum hefur 8 sinnum orðið ríkisgjaldþrota— og þá hrannaðist verðbólgan aftur upp, alveg án ríkisstjórnar, ruddi sér af stað og hélt áfram að ryðja sér braut þar til í skjóli Bandamanna 1948, að ný mynt sá dagsins ljós. Hún hét þýska markið

Bandamenn gáfu svo Þýskalandi nýjan seðlabanka og seðlabankakerfi gegn því loforði að Þýskaland yrði aldrei aftur með sterka né miðstýrða ríkisstjórn í landinu á ný. Aðeins undir þeim forsendum væri landinu treystandi til að starfrækja sjálfstæðan seðlabanka á ný 

Þetta brást svo auðvitað eftir aðeins nokkra áratugi. Þýski seðlabankinn, Bundesbank, varð á ný að ríki í ríkinu og jafnvel sjálft Þýskaland þenur sig nú á ný yfir alla Evrópu eins og físibelgur yfir gamalli glóð. Stofnunin Bundesbank hóf forhert valdarán undir útrásaráætlun Maastrichtsáttmála Evrópusambandsins. Hann fór í útflutning og útráp og varð nytsamur fáráðlingum. Næstum algerlega án nokkurs lýðræðislegs umboðs frá fólkinu. Reyndar algerlega án þess.

Þetta Export-Evrópusamband ECB-seðlabankans af Bundesbank, er nú að leggja Evrópu í rúst á ný. Allt sem Evrópusambandið snertir á verður að horror því sjálft Evrópusambandið er slæm stofnun sem fæddist rotin. Eina vörnin gegn horror þess er að snerta aldrei á því

Ísland má því aldrei snerta á Evrópusambandinu. Það sjá allir, eftir til dæmis umræður síðustu daga um styrkjaskólpveitu sambandsins, sem er eitruð. En er IPA þó aðeins eiturgufan upp úr því banvæna efni sem í þeirri tunnu er og sem blandað er til höfuðs þjóðríkinu

Góð ríkisstjórn kjörinna stjórnmálamanna og góðar stofnanir eru lífsspursmál fyrir frelsi og hamingju Íslendinga. Hamingja Íslendinga og góðar stofnanir koma frá Vestri. Eitrið kemur hins vegar alltaf frá austri. Og hin skaðlega DDRÚV-stofnun kemur einmitt frá því austri

Góð ríkisstjórn kjörinna stjórnmálamanna og góðar stofnanir; eru heillindin. Ekki hin fagidiotlegu ferlegheit

Umsókn Íslands inn í Evrópusambandið á umsvifalaust að draga til baka. Afmá verður þann stofnanalega- horror- og afskræmingu af lýðveldinu og rífa verður aðlögunarferlið og undirróðursverk þess af Lýðveldinu með lagabandormi

Ný umsókn má aldrei aftur koma á dagskrá Alþingis

Fyrri færsla

Skýrsla um hroðalega misnotkun BBC á valdi sínu kemur út í næsta mánuði


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband