Leita í fréttum mbl.is

Hugsanavillan um "sambandsríkiđ"

 
Borgin Przemysl
Mynd: Ground-zero; Herskipanir á 6 tungumálum til manna Austurrísk-ungverska hersins - hann leystist upp og hver mađur fór heim til síns fána
 
Tilurđ og áframhaldandi tilvist Evrópusambandsins er ađ eyđileggja Evrópu. Og ţađ er mikiđ rétt hjá Niall Ferguson (Evrópuvaktin) ađ Evrópa er ađ breytast í útstrokađ blađ - víxil sem löngu er útrunninn og útbrunninn. Og sjálft Evrópusambandiđ er ţađ strokleđur sem er ađ ţurrka Danmörku út af landakortinu og leggja hana niđur, eins og Kathrine Lilleřr doktorsnemi og sóknarprestur Slagslunde- og Ganlřse-kirkna segir á bloggsíđu sinni á Berlingske Tidende, undir grafskriftinni; Danmörk lögđ niđur; Danmark nedlagt

Ýmsir halda ţví fram ađ ađeins sé hćgt ađ bjarga Evrópu međ ţví ađ fangaklefakerfi ţjóđanna í Evrópusambandinu verđi breytt í einar og sameiginlegar fangabúđir, áđur en ţjóđfangarnir í klóm Evrópusambandsins rotna upp inni í klefum sínum og deyja. Ađ Evrópusambandiđ verđi ađ sambandsríki, eins og Njáll Ferguson heldur fram
 
Germany 1866-1945 - The Institutional Structure of the Empire - G. A. Craig síđa 38-39
Mynd; hér hefjast ţrálátlega misskilin utanríkismálaviđhorf embćttisismanna í bandarískri stjórnsýslu til Evrópu - ţau byggja enn á grundvallar misskilningi   

Ţetta er sprenghlćgileg hugsun; ţ.e. ađ Evrópusambandiđ og lönd ţess geti gengiđ saman í eitt, í einu sambandsríki (e. federal state). Ţví ţađ er einmitt hiđ núverandi hörmulega ástand í Evrópu sem er bein afleiđing sjálfrar tilvistar Evrópusambandsins og sem samrýmist alls ekki áframhaldandi tilvist ţjóđríkjanna. En ţađ sem er enn verra; ţađ er engin síđasta útgönguleiđ til, ţví sjálf tilvist Evrópusambandsins og ţess ástands í Evrópu sem ţađ hefur kallađ fram —og skapađ— samrýmist enn og miklu síđur tilvist neins sambandsríkis í Evrópu
 
dagur daganna
Mynd; Evrópu bjargađ; Bandaríki Norđur-Ameríku er ein ósundranleg ţjóđ undir Guđi
 
Evrópusambandiđ getur einungis breyst í nýtt sovétríki eđa keisaraveldi. Sáttmálarnir, lagaramminn, dómstóllinn og stjórnarskárin fyrir hin nýju sovétríki eđa keisaraveldi Evrópusambandsins eru ţegar kominn á sinn stađ. Og ţćr stofnanir spila; hörmulega illa. Ţetta var allt saman sett svona upp af fullkomlega međvituđum ásetningi; og samkvćmt áćtlun
 
Njáll Ferguson nćr ekki langt, verđur ađ segjast; Demos? Ehtos? Telos?
 
En frú Margaret Thatcher vissi ţetta. Ţví hún hafđi hinn djúpa skilning á málefnum Evrópu og sem Njáll Ferguson hefur greinilega ekki

Fyrri fćrsla
 

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Grunnlög EU , tryggja í sjálfum sér: plurisma [ekki hippa skilgreinu hugtaksins] heldur framfćrslu skyldu ţjóđar[skatta] eininga, viđurkenningu á ţví ađ ţeirra tungur eru ekki lögtćkar.

Vanmáliđ er ađ lögtćkan orđforđa nenna ekki allir ađ lesa og fáir hafa greind og ţjálfun til ţess.   EU er stofnun byggđ á lögum ekki lýđrćđilegum skođunum sem eru skilyrt frjálsar í grunnlögum EU.

Ţýska akademina 2013: 


accession[ac·ces·sion || ćk'seʃn]
n. Zugang; Amtsantritt

Ísland var virt á 2 ömt í Danska efnahagsbandalaginu. Ísland í dag er mikiđ fátćkara í nútíma tćkni heimi í  samanburđi. 

Júlíus Björnsson, 19.7.2013 kl. 04:31

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband