Leita í fréttum mbl.is

Seðlabanki Bandaríkjanna 100 ára. Verðtryggður pappír Friedmans 30 ára

“There are also unknown unknowns”. 

John Brynjolfsson stjórnandi Armored Wolf skrifar ágætis grein í tilefni 100 ára afmælis seðlabanka þjóðríkis Bandaríkjamanna síðar á þessu ári. Brynjólfsson vann lengi hjá PIMCO, sem er heimsins stærsti fjárfestir og umsjónarmaður fjárfestinga í skuldabréfum. Hefur Brynjólfsson einnig skrifað bækur um verðtryggðar fjárskuldbindingar - og þann markað. Gaman er að sjá Vesturfara ganga svo vel

Brynjólfsson: Happy 100th Birthday to the U.S. Federal Reserve 

Tekið skal fram að seðlabanki Bandaríkjanna starfar í umboði og í þágu bandarísku þjóðarinnar. Enginn á seðlabanka Bandaríkjanna því hann á sig algerlga sjálfur fyrir fólkið, enga aðra og ekkert annað. 

Pappír Miltons Friedman um verðtryggð húsnæðislán hefur nú staðið af sér 30 ára svifryk undir innivinnu margra fjármálamarkaða í jafn langan tíma. Hann verður því þrítugur á þessu ári; sá verðtryggði pappír

“PLAM’s and PLAD’s” by Milton Friedman

Sagt er nú að Honeckerklíkuhagstjórn ECB-seðlabanka Evrópusambandsins sé þegar farin að bera svo mikla efnahagslega ávexti eftir 15 ára nýðstjórn, að Grikkland hefur nú verið plokkað niður til Austur-Berlínar sem fullþroskað þriðjaheimslík eftir þrjátíu og eins ára tilveru landsins í aðildargúlagi Evrópusambandsins að sovétríki ESB. Þessi kyndling tekur ekki lengri tíma í svo frjóum jarðvegi.

Hinn alþjóðlegi fjármálamarkaður er því önnum kafinn við að endurstilla hin peningalegu skiptiborð sín samkvæmt símaskrá þeirri er í gildi var áður en doktor Henry Kissinger fékk þá gölnu flugu í höfuð sitt, að eilífir afdalir meginlands Evrópu byðu nokkru sinni upp á eitthvað annað en hið eilífa Evrópusímasamband hamars við nagla.

Grundvöllur ECB-seðlabanka Evrópu(sovét)sambandsins — Maastrichtsáttmálinn sjálfur, aka Marðarspellkusáttmálinn — liggur nú sem gúanóafurð ruslatunnufélaga Lissabonsáttmálans yfir hömruðu naglameginlandi Evrópu. Og nær elítuþekkingarþefurinn brátt breiddar- og stærðargáfum nýs sovétríkis yfir Evrópu.

Fyrri færsla

Landsfundur: Maastricht-reglur eru ekki neitt sem neinn ætti að taka sér til fyrirmyndar 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband