Leita í fréttum mbl.is

Gagn og gaman um evru í DDRÚV

DDRíkisútvarpið sýndi fimmtán mínútum of seint í gærkvöldi nokkurs konar litla gula hænukverið úr Gagnlaust gaman fyrir forsætisráðherra Íslands. Þátturinn var eins yfirborðskenndur og við var að búast frá dagskrárgati DDRÚV um ESB. Samtök Evrópusambandssinna á Íslandi kölluðu þáttinn jafnvel fyrir "heimildarmynd".

Þátturinn gat þess ekki hvað evran er. En hún er reglugerðarbyggð mynt. Hún byggir á reglum sem Þýskaland samdi sérstaklega fyrir sig. Mikið var rætt um þessar reglur sem hvergi gilda um neina mynt heimsins nema þessu einu. Það er vegna þess að myntin byggir á "regluverki" sem koma á í veg fyrir að hún sé notuð sem neitt annað en hún er; pólitískt verkfæri. Þessi Marðarspelkusáttmáli Evrópusambandsins var vafinn utan um myntina til að reyna að forða ríkjum frá því að koma sér í þær aðstæður sem krefjast peningaprentunar.
 
Myntin þolir einfaldlega ekki að hún sé notuð sem mynt því á bak við hana vantar ennþá ríkið sem ber myntina raunverulega uppi. Þó svo að myntin sé eins konar einkamynt og aukaseðlabanki fyrir móralskan jöfnuð Þýskalands við umheiminn — sem aðeins má sýna hagnað á kostnað annarra — þá vantar myntina hinn sameiginlega skattgreiðanda. Þess vegna verður í hvelli að stofna ríkið sem á að bera uppi evrumyntina áður en hún rústar því sem hún var stofnuð til að sameina og slökkva á; þjóðríkjum Evrópu.

Og svo gleymdist að minnast á að nú er Þýskaland búið að handjárna 18 lönd í Evrópu við sig í læstu gengisfyrirkomulagi sem er mörgum sinnum verra en gamli gullfóturinn. Þetta er sogrör Þýskalands niður í öll ríki myntbandalagsins og með tímanum öll þau ríki sem hafa gengið í ESB; nema Stóra Bretland og Danmörk. Og í stjórnarskrá Evrópusovétsambandsins — sem öll ríkin hafa gengist undir — stendur svart á hvítu að mynt þess ER evra. Það tók 27 ríki sambandsins 7 ár, ég endurtek, heil sjö ár! að staðfesta þessa stjórnarskrá, þó svo að næstum enginn borgari í sambandinu hafi fengið að láta í ljós álit sitt á þessari stjórnarskrá sem þeir eiga að lifa og deyja undir.  

Stjórnarskrá Evrópusambandsins fyrirskipar ákveðið "samfélags- og efnahagslegt lífsmódel" eða líferni í öllum ríkjum sambandsins fyrir alla þegna sovétsambands ESB, alveg eins og stjórnarskrá gömlu Sovétríkjanna gerði; en hún fyrirskipaði að kommúnismi væri hið eina leyfilega og löglega samfélags- og efnahaglega lífsform fyrir alla borgara og fyrirtæki innan landamæra Sovétríkjanna. Út frá stjórnarskránni þeirri ættu allir að skoða æðstu dómstóla gömlu Sovétríkjanna og því næst allan æðsta dómstól Evrópusambandsins, lög hans, dóma og túlkanir; þ.e.a.s. Evrópudómstóllinn (ECJ) e. European Court of Justice.

ECJ-dómstóll Evrópusambandsins styður aðeins þau "réttindi" borgara og fyrirtækja innan sambandsins sem stuðla, hvetja og vinna að ákveðnum málstað sem njörvaður er niður í undirstöðu allra sáttmála Evrópusambandsins; "Une certaine idée de l'Europe" eða "hinni sérstöku hugmynd um Evrópu(sambandið)". Þessi hugmyndagloría um Evrópu ER dómstólinn sjálfur, lög hans og túlkanir. Hún er Dottin niður til Jarðar sem framandi geimvera og illfygli mikið. "Réttindi" boragranna eru af ECJ-dómstólnum aðeins leyfð ef þau stuðla að "meiri sameiningu" (integration). 

Og það þýðir í praxís að dómstóllinn mun alltaf dæma þessari "samruna hugmynd um Evrópu" í hag og vaða yfir öll stjórnarskrárbundin réttindi þegnana í öllum aðildarríkjum. Réttindi borgarana á lagasvæði dómstólsins — og sem hann skammtar — eru bara til í raunveruleikanum ef þau gagnast, stuðla að og styðja við þessa "hugmynd um sameinaða Evrópu". Ef þau stangast hins vegar á við "hugmyndina um sameinaða Evrópu" þá eru réttindi borgarana ekki til (non existing) í augum dómstólsins.

Lengra nær hinn heimspekilegi grundvöllur og lagarammi dómstólsins ekki. Þetta er í eðli sínu einræðisleg uppskrift (e. totalitarian concept) að nýju helvíti á okkar Jörð. Þetta er kjarninn í ESB. Og þetta er nýtt sovét, eins og við mátti búast af meginlandi Evrópu. 

Við eigum að segja okkur úr EES og lifa undir þeim lögum sem aðeins við sjálf setjum fyrir okkur sjálf og bara fyrir okkur sjálf. Magna Carta frá 1215 verðum við ávalt að muna. Fátt verður mikilvægara í þeirri afar slæmu framtíð sem herja mun á okkur frá hinum nýju Evrópusovétríkjum ESB.
 
Fyrri færsla
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Eins og jafnan þá er mál þitt  skírt og rökrétt og ég er því sammála.  Við eigum að segja okkur frá öllum samningum við Evrópusambandið sem leggja á okkur aðlögunarkvaðir og umgangast með tortryggni öll yfirgangsríki.

En ég missti af þessu guluhænukveri til gagns eða ógagns, hvar finnst það?    

   

Hrólfur Þ Hraundal, 28.6.2012 kl. 07:33

2 identicon

http://www.ruv.is/sarpurinn/evruhrunid-mikla/27062012/the-great-euro-crash

GB (IP-tala skráð) 28.6.2012 kl. 08:19

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Slóvenía pr. 6 árum eftir evruinnlimun 

Slóvenia er líklega næst á dagskrá DDRÚV til að biðja um björgunarhjálp frá evru Þýskalands. Landið tók upp evru þann 1. janúar 2007 til þess að það yrði auðveldara fyrir embættis- og stjórnmálamenn landins að ferðast til Brussel - og síðan að skríða á fjórum fótum á fullum opinberum launum um Evrópu eftir hjálp til að bjarga sér frá evrunni sem þeir börðu almenning til að taka upp handa sér. Nú er allt í húrrandi steik eins og við mátti búast af stærstu fjármálabólu veraldar: þ.e. mynt-sogrörs-bandalagi Þýskalands og Frakklands við restina af Evrópu. 

"Slovenia may ask for an international bailout if lawmakers fail to adopt legislation next month that would limit public spending, Prime Minister Janez Jansa said in an interview with a local radio station.

“July will be the moment of truth since parliament will vote on the golden fiscal rule and on changes to the way referendums are organized,” Jansa was quoted as saying in an interview with Koper-based Radio Ognjisce. “If we continue to get more and more debt, we will see a Greek scenario here and this generation will have to pay dearly for the stupidity of those that have delayed decisions.”

Bloomberg; Slovenia May Ask For Bailout In July, Prime Minister Jansa Says

Gunnar Rögnvaldsson, 28.6.2012 kl. 15:48

4 Smámynd: Júlíus Björnsson

Bak tryggja árs vöruviðskipta jöfnuð lánadrottna nýlenduveldi með gulli á gjalddögum, var vinsælt hér um árið. Nú er nýlendu gull Portugala og Spáverja ekki þeim til staðar lengur, en á móti losna þeir við allskonar vöruflokka í 1. til 2 þrepi vsk í gengnum langtíma viðskipta samninga undir eftirliti Commission Brussel. Commission sem stendur sig betur en Commission Moscow að tryggja Eystrasalts ríkjum ljós og hlýju yfir vetrarmánuðina.


Hugmyndir leikmann um gullfót eru allar að sama marki brenndar, illa í grundaðar.

Ríki sem fá lánað dollar til geta stundað vöru viðskipti við USA, geta ennþá keypt gull á USA mörkuðum og flest allt annað. Til að losna við 50% til 60% raunvirðsrýnun dollars sem fylgi geymslu næstu 30 ár.

Til að tryggja sig gagnvart gjaldeyri og hlutabréfa hömstrurum sem eiga slíkt sem hreinar eignir í portofolío [econical account: hrein Debit reikingingur fyrir utan credit opinber gjöld sem geta fylgt: samkeppni leyndar mál]  og þurfa því ekki að gefa upp í Balance sheet: Creditlaust, er nú komin rafskráning þannig að hægt er að miða út geymslu ríki.  EU fjárfestingarbanki utan Meðlima Ríkja er í 50% eigu Þjóðverja og Frakka. Meira segja CIA getur ekki gefið um hreina eign hans enda er þetta þrautvarasjóður í fyrst flokki, staðsettur ennþá í Luxemburg.  

Í Lissbon var samþykkt að AGS 36 % undir hreinu eignarhaldi Commission mæti leysa Ráðstjórn af hendi innan Meðlimaríkja. Verðandi Meðlima ríkji geta notað dollara framlag frá honum sem greiðslu í gajldeyrisvarsjóð EU yfir Seðlabanka EU þjóðarbanka Seðlabankerfis

Kerfið selur baktryggingar, evrur og innheimtir meðlima skatta og sendi upplýsingar um innt fjámál Meðlima ríkja til Commission í Brussel.

HagfræðiSeðlabankar Meðlimaríkja geta því ekki lotið einkvæddri stjórnsýslu Meðlima Ríkja.  

Hlutafélög er ekki einkafyrirtæki en lögpersónur sem bundnar eru af reglustýringu hins opinbera, greiða því skatta fyrir rekstraleyfinu.

Íslenka hluthafa væðingi eftir 1918, var hlutfallslega óeðlilega mikil og mikið af áhættu lausum langtíma rekstri var færður undir óbeina ríkisforsjá vegna skattafríðindi hlutafélaga geirans, sem skilaði sér til lykilaðila hlutahafa  sem losnuð þá líka við ábyrgðina sem er bundin við eigendur einkafyrirtækja. 

CIA segir Íslenskt lagkerfi vera undir dönsku áhrifum. Enda á það eftir 1918 engan sinn líka.   Illa skilgreint og illa ígrundað að öllu leyti í samburði t.d. við stjórnaskrá og regluverk höfunda EU sem taka mið af sínum eigin. Rökfegurð í formi hugtaka skilgreina og bálkgreiningar Stjóernskrár EU á sér engan samburði ef lesin á þýsku eða Frönsku. Þetta er kostur, þótt lögbundinn markmið hennar um að veraða sýnileg almenningi, henti ekki öllum ríkjum heims.

Orð er til alls fyrst, Róm var ekki byggð á einum degi. Hagstjórnamótel Þeirra  er það langlífasta sem þekkist og grunn allra síðari tíma. Svo sem verkaskipting í grunni undirríkja.

Þeir sem eru ekki risky seeking, kaupa ekki hlutabréf nema þá mikið úrval sem endurspeglar CPI og vöxt PPP sem er vöxturinn sem CPI nálgar á mánað tímabilum.  Þeir kaupa verðbréf með bakveð í ráðstöfunatekjum millstétta stórborga og í heimilum þeirra.  Fyrir 1970 voru heilu heimsálfurnar óstöndugar og því óveðhæfar , engin millstétt. Nú þökk USA og UK aðalega haf sprottið upp mikið af veðhæfum neytenda mörkuðum: Capital í þriðja heiminum.  Þjóðverjar og Frakkar eru ekki að ríða feitum hesti.

Júlíus Björnsson, 29.6.2012 kl. 11:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband