Leita í fréttum mbl.is

Lærdómur kjósenda af Steingrími J. Sigfússyni

 

„Annars er lærdómurinn einfaldur og hægt að setja hann fram á mannamáli. Menn geta ekki eytt meira en þeir afla, óháð mynt. Ef þú gerir það kemur það í bakið á þér og skiptir ekki máli hvort það er í dollar, evru eða krónum,“ sagði Steingrímur.

 

Þetta er maðurinn og kosningasvikarinn Steingrímur J. Sigfússon sem hér talar. Hann sótti örvæntingafullur umboð sitt til kjósenda íslenska lýðveldisins í Alþingiskosningum vorið 2009, eftir áratuga höfnun kjósenda. Umboðið sem hann fór fram á að fá hjá kjósendum landsins var að vera alger ESB andstaða við allt það sem hann er og hefur verið að gera og er að pína aðra til að gera sem umboðslausir fulltrúar kjósenda sem veittu honum heldur ekki neitt slíkt umboð. Umboðið sem hann aflaði sér sveik hann út úr kjósendum. Það er öllum ljóst.

Hann eyddi ekki bara öllu því sem hann aflaði sér, heldur eyddi hann einnig því sem hann aflaði sér ekki. Pólitískur plattsmiður sem tekur atkvæði og selur þau til að snúa þeim upp í andhverfu sína. Þessi maður og flokkur hans hefðu annars ekki komist til valda. Hefðu ekki fengið svona mörg atkvæði nema með þeim loforðum sem gefin voru til þess aðeins að svíkja þau.

Þessi maður situr nú eins og elítær klessa ofan á kjósendum á miklum fullum launum við að svíkja allt og meira en það sem hann hafði aldrei fengið umboð til. Það eru svona menn sem rústa lýðræði, eyðileggja lönd og sundra þjóðum. Þetta er Evrópumaðurinn hinn margfaldi. Kosningasvikarinn og líklega huglausastur maður íslenskra stjórnmála nokkru sinni; Hinn gamli fulltrúi Sovétríkja og hinn nýji fulltrúi Evróputortímingarsambandsins. Tvífarinn Steingímur J. Sigfússon sem nú predikar brussleska þvælu í þingsal við Austurvöll. Styrktarfélagi vangefins Evrópusambands.

Hvaðan kemur þessi stjórnlausa pólitíska græðgi? Hversu ömurlegra getur þetta orðið, ég spyr. Mig langar að gráta.

Fyrri færsla

Hér hvílir 14. stærsta hagkerfi heimsins fallið úr evrulosti 


mbl.is Stöndum frammi fyrir breyttu ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Heyr Heyr!!!!

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.6.2012 kl. 21:03

2 Smámynd: Ómar Gíslason

... elítær klessa... Góður. Rétt hjá þér Steini J er kosningasvikari.

Besta er að Englandsbanki er kominn með 325 milljarða punda prógram þegar evran fellur.

Ómar Gíslason, 13.6.2012 kl. 09:13

3 identicon

Hér á landi búa Evrópusinnar og Íslendingar.

Og Íslendingar eru ekki heimskir, siðblindir né raunveruleikaskertir. Gáfur þjóðar okkar eru heimsfrægar!

Ég trúi því að hér á landi búi ca. 90% Íslendingar og 10% Evrópusinnar

Alltaf sammála Ásthildi.  Heyr Heyr!!!! 

anna (IP-tala skráð) 18.6.2012 kl. 23:01

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir það Anna.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.6.2012 kl. 09:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband