Leita í fréttum mbl.is

Sögulegur árangur á evrusvæðinu; fyrsta ríkisgjaldþrot í sögu iðnvæddra ríkja

Fæðingar- og erfðagallar myntbandalags Evrópusambandsins. The Economist desember 1996
Í fyrsta sinn í sögu þróaðra iðnvæddra ríkja OECD, hefur ein mynt í sjálfu sér og ein aðild að Evrópusambandinu samhliða einni evruupptöku, skilað af sér því einstaka framlagi til hagsögu nútímans, að skuldatryggingar verða nú greiddar út vegna ríkisgjaldþrots iðnþróaðs ríkis. Vel að merkja vegna ríkisgjaldþrots iðnþróaðs evruríkis.

Það er ekki tilviljun að eina ríkisgjaldþrotið í sögu OECD skuli verða í evruríki og að vandamálið í heild sé hið stærsta síns eðlis í mannkynssögunnni. Þessar mittisbombur myntbandalagsins eru að innbyggðu snjóbolta-eðlisfari sínu engin smásmíði. Evruríkissjóður grísku þjóðarinnar er hér með að hluta til og grunni dæmdur sem verandi gjaldþrota. Skilgreindu greiðslufalli e.Credit Event hefur þar með verið hleypt af og lýst yfir hjá ISDA. Evruríkissjóður gríska lýðveldisins gat ekki og getur ekki staðið við fjárskuldbindingar.
 
den første kreditevent, der udløser CDS-kontrakter på et industrialiseret land
 
Eru þetta endalokin? The Economist nóvember 2011
Fórnarlömbin eru þeir sem urðu fyrir og keyptu evru-áróðurinn og evru-ríkisskuldabréfin af Brusselbandi Evrópusambandsins. En í síðasta enda er það sjálf gríska þjóðin sem þarf að gjalda fyrir þetta misheppnaðasta fyrirbæri í peningasögu heimsins; evruna. Og sem afleiðing ríkir þar nú hrikalegt ástand. Að evran væri Frankenstein fjármála var ekki ofsagt hjá Charles Gave í apríl 2009.

Hvað gerist næst í evruríkinu? Portúgal? Spánn? Ítalía? Frakkland? Þýskaland?

Andlit þeirra seðlabankasýslumanna sem stóðu á auglýsingaskiltum evrunnar, þegar hún var stofnuð og henni hleypt af út í peningaumferð, minna mig óneitanlega nokkuð á þessa mynd hér, sem sýnir ykkur bankamálaráðherra Íslands áratugum saman. Sjón er oft sögu ríkari, nema kannski í þessu tilfelli
 
Fyrri færsla
 
 
Krækjur 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Fyrir 30 árum voru flest ríki EU gjaldþrota hvað varða þátttöku  ekki vsk. geira í Alþjóðviðkiptum. Enda lifðu stjórnsýslunnar á túrsitum úr efrir Millstétt eiriháttar ríkja.

Hvað mælist atvinnu leysi mikið þegar bara einn karlmaður er í launaði vinnu á hverju sjálfbæru heimil í S-EU fyrir 30 árum.
Túrista "iðnaður " er tiltölega nýtt hugtak.  Þjóðverjar eru nú ekki  tapa miklu á túrista iðnaði í S-EU að mínu mati. Fjórfrelsi til keppni leiðir til þess að þeir hæfustu hirða allan hagnað í lokin [það borgar sig ekki að vera skráður eignandi að sköttum og vöxtum].

Júlíus Björnsson, 20.3.2012 kl. 04:02

2 Smámynd: Hjördís Vilhjálmsdóttir

Er Grikkland ekki gott dæmi um þjóð sem er ekki með nógu góða hagstjórn og hélt að með því að taka upp Evruna færi allt á autopilot í hagkstjórninni, líkt og margir halda hér heima ? Kannski er þetta ekki Evru Brusselsdóttur um að kenna einni og sér ?

Hjördís Vilhjálmsdóttir, 20.3.2012 kl. 07:13

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hjördís, er ekki það sama í gangi hér á landi, Heilög Jóhanna og Co halda að hagstjórnarmistök síðustu áratuga lagist við það eitt að taka upp evruna, en gera sér ekki grein fyrir því að krónan lifir EKKI sjálfstæðu lífi og endurspeglar því hvernig hagstjórnin hefur verið á hverjum tíma.  Svona MIÐSTÝRÐUR gjaldmiðill, eins og evran er, hentar einfaldlega ekki mismunandi hagkerfum............

Jóhann Elíasson, 20.3.2012 kl. 09:45

4 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Stefnir í að Grikkir leggi niður evru-gjaldmiðilinn og taki upp vöruskipti eins og gert var á öldum áður? Þeir yrðu ekki verr settir en þeir eru í dag.

Tómas Ibsen Halldórsson, 20.3.2012 kl. 09:56

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur 

Gríska þjóðin hefur aldrei verið spurð að neinu er varðar Evrópusambandið né evru er að því lítur. Stjórnmálaelítan sá um þetta. Þetta er hennar óskabarn eingöngu, eins og í flestum löndum Evrópusambandsins.

Síðasta þjóðaratkvæðagreiðsla sem haldin var í Grikklandi var haldin árið 1974. Þá ákvað þjóðin að leggja niður konungsembættið. Í þjóðaratkvæðagreiðslunni þar á undan, 1973, var ákveðið að leggja konungsveldið niður og stofna lýðveldi. Í þjóðaratkvæðagreiðslunni þar á undan, 1968, samþykktu 92% kjósenda nýju stjórnarskrá herstjórnar Grikklands. Síðan 1974 hafa ekki verið haldnar neinar þjóðaratkvæðagreiðslur í Grikklandi. Ekki ein einasta um ESB eða evru. Ekki um svoleiðis "smámál". Því auðvitað átti bæði ESB-aðild og evra að vera smámál miðað við stofnun gríska lýðveldisins.

Fólkið í Evrópu hefur engan áhuga á þessum nýju Sovétríkjum ESB. Oftast er enginn raunverulegur meirihluti er fyrir neinu. Eins og sást vel í hinni svo kölluðu þjóðaratkvæðagreiðslu í Króatíu í janúnar síðastliðinn þar sem 28 prósent kosningabærra manna þjóðarinnar réðu örlögum landsins.

Kosningabúr Evrópusambandsins eru og hafa alltaf verið innréttuð sem pyntingaklefar gegn lýðræði og frelsi. Um tíma leit út fyrir að það kæmi nei út úr meirihluta þess minnihluta Króata sem töldu það ómaksins vert að mæta á kjörstað í svo kölluðu "þjóðaratkvæði" Króatíu um ESB-innlimun landsins á sunnudaginn. Aðeins 44 af hverjum 100 kjósendum greiddu atkvæði.

Þetta voru ekki góðar fréttir fyrir boðbera sovétlýðræðis Evrópusambandsins. Viðbrögð ríkisstjórnarinnar voru því þau að segja og gefa í skyn að kosið yrði þá bara aftur um sama hlutinn. Afleiðingin í praxís varð sú að tilgangslaust var fyrir Króata að mæta á kjörstað og greiða moskvuatkvæði um það sem hvort sem er aldrei var í boðinu. Því réðu 28 prósent þjóðarinnar örlögum landsins í þessum Moskvukosningum Evrópusambandsins.

Evrópusambandið og útbreiðsla þess fer fram eins og dópsala: Þú veifar pólitískum gjaldeyri, mafíuregluverkinu og feitum skáttfrjálsum embættum framan í stjórnmálamenn í löndum Evrópu og restin er sjálfgefin. 

Í Evrópu eru til ríki þar sem þrír af hverjum fjórum kjósendum eru að hluta til eða að fullu á framfærslu ríkisins. Í þannig þjófélögum er ekki hægt að tala um lýðræði, því enginn kýs undan sér kassann. Ástandið er ennþá verra í öllu er varðar Evrópusambandið. Það er eins og dópsala á æðra plani: Pan-European powerdrug & taxation cartel. 

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 20.3.2012 kl. 10:04

6 Smámynd: Eggert Sigurbergsson

Grikkjum er líka vorkunn enda held ég að það sé ekki mögulegt fyrir grísk stjórnvöld að fátækravæða landið til að rétt jafnvægi náist á milli Þjóðverja og ósamkeppnisfærs hagkerfis Grikkja undir Evru.

Evrópa er full af gettóum þar sem fólk er innilokað af fjallháum múrum tungumála og  menningar sem eru 95% af Evrópubúum óyfirstíganlegir. Aðeinseitt ríki mun standa uppi sem sigurvegari og drottnari yfir þessu gettóum og það er Þýskaland , þetta gerist undir fjórfrelsinu svokallaða og seðlabanki evrópu mun sjá til þess að Evran sé alltaf rétt stillt fyrir sigurvegarann.

Hin útópíski draumur evrukratans er að snúast upp í martröð 80% Evrópubúa, spurningin er bara hvað það verður sem mun koma af stað nýrri franskri byltingu sem mun afhöfða evrukratann fyrir fullt og allt.

Íslenskir evrukratar geta ekki beðið eftir að Ísland bætist í hóp gettóa Evrópu þar sem peningar eru eina tungumálið.

Eggert Sigurbergsson, 20.3.2012 kl. 10:39

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þeir hagfræðimenntuðu menn með hálm í heilastað sem segja að sjálf evran sé ekki orsök vandamálanna í Grikklandi ættu að hafa eftirfarandi í huga:

1) Enginn alþjóðlegur fjárfestir með fullu viti leyfir ríki eins og Grikklandi að byggja upp svo stórar skammtímaskuldir undir gjaldmiðili sem ekki er alþjóðlegur og sem þjóðin getur ekki greitt allar skuldir sínar í. Þeir vissu alltaf að Grikkland var Grikkland og sú staðreynd var byggð inn í vaxta- og lánskjörin. Þetta var no_bail_out => no_moral hazard_debt regime. Ekki var gert ráð fyrir björgun og lán voru veitt sammvæmt því. 

2) En svo kom evran. Alþjóðlegum fjárfestum var sagt að aðild að þeim klúbbi myndi sjálfkrafa fylgja "kostir" alþjóðlegrar myntar. Að þarna væri á ferðinni full_bail_out = full_moral hazard_debt regime á borð við Bandaríkin, Bretland og Japan þar sem ríki skulda allar sínar skuldir í eigin gjaldmiðli. Þetta reyndist hins vegar ekki vera rétt þegar á reyndi því evran reyndist verða enginmannslands mynt. Og nú á Grikkland á enga mynt.

3) En vitið þið hvað? Evran gerði Grikkland ósamkeppnihæft á fimm mínútum því raunstýrivextir voru þar alltaf neikvæðir undir peningastjórn ECB-seðlabanka Evrópusambandsins. Peningar voru verðlagðir rangt og landið sprakk í loft upp. Inn streymdi lánsfé frá Þýskalandi sem fellt hefur innra gengi sitt í myntbandalaginu stanslaust í 12 ár. Út til Þýskalands frá Grikklandi streymdu pantanir til Mercedes og Braun, Blaupunkt og hins dæmigerða ritvélaiðnaðar Þýskalands. Restin er sjálfgefin. Viðskiptajöfnuður Grikklands sprakk í tætlur og þeir peningar sem nú vantar á kistubotninum hjá ríkisjóði Grikklands liggja að miklum hluta til heima á kistubotninum í hinum geigvænlega jákvæða viðskiptajöfnuði Þýskalands gagnvart öðrum evrulöndum, sem handjárnuð eru nú föst við það í algerlega læstu gengisfyrirkomulagi evrunnar.

4) Svo þegar kemur að því að það þarf að borga og sjá til þess að hið innra misvægi myntbandalagsins sprengi það ekki í loft upp, þá er bara komið út úr klúbbhúsi evrufáráðlinga og alþjóðlegum fjárfestum sagt að þetta sem átti að vera full_bail_out = full_moral hazard_debt regime sé það í raun ekki, heldur sé nú verið að skipta yfir í skuldafyrirkomulag sem heitir Þýskaland_vill_ekki_borga_neitt_til_baka og sem kynnt er fyrir umheiminum sem heilög gaggandi Jóðlhanna af no_bail_out = no_moral hazard_debt regime.

Vandamálið er hins vegar það að það er ekki hægt að skipta um debt_regime í miðju vaði án default_outcome.

Þess vegna mun evrusvæðið springa í loft upp. Að öðrum kosti veriða það þjóðríkin sem verða sprengd í loft upp.

Hér á landi eru ekki margir sem hafa nennt að vinna þá nauðsynlegu heimavinnu sem myntmálin krefjast.

Okkar sjálfstæða mynt, íslenska krónan, er sökkull fullveldis og sjálfstæðis þjóðarinnar. Þetta verðið þið að muna. Sá sem stýrir myntinni heldur um peningapunginn í meira en einum, tvennum og þrennum skilningi.  

Hver hefði trúað því fyrir aðeins 20 árum síðan að Þýskaland væri orðið dóminerandi á ný í Evrópu árið 2012. Líklega enginn nema Margaret Thatcher!! Og hún hafði rétt fyrir sér.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 20.3.2012 kl. 10:49

8 Smámynd: Júlíus Björnsson

Gera [þegnanna Ísland] Meðlimaríki stórskuldugan við hæfan meirihluta grunnmiðstýringar EU, tryggir að betra er veita þeim forrræði og aðhald.

Höfundar EU gera ráð fyrir í stjórnskipunarskrá EU frá upphafi að EU sé ein heildi í kvótaskiptum grunni  [vöruflokkar í þrepi 1 og 2 vsk] en EU vegbréfið bætist við þjóðarvegbréfið en komi ekki í staðin fyrir það. Landmæri má gera almenningi sýnileg í samvinnu við Brussell. Keppni Meðlima ríkja er á 2 og 3 þrepi söluskatts vöruflokka [verðstýrt af kommisssion: minn 80% magnsins] og sérhvert Ríki er sjálfstæður keppnismarkaður með aðgang að svokölluð fjórfelsi. Það er langtíma hagvöxtur er alfarið tekin upp innan efnahagslögssögu sérhvers Meðlima Ríkis [varasamt er að einkvæða ekki vsk. stofnanir því þær mynda skammtíma byggingar hagvöxt en langtíma skerðingu á eigin þjóðartekjum]. Vegið meðaltal hagvaxtar, þjóðartekna allra Meðlima Ríkja er  meðal havöxtu , þjóðartekjur EU heildarinnar.  Öll ríki mega hafa skoðanir og trúbrögð að eigin vali og spekulera um að EU verði eins og USA. Hinsvegar er tungmálalandamærum hampað  og engar líkur á höfunda ríki EU mun nokkurn tíma taka að sér að bera ábyrgð á græðgi þegna annarra Meðlima ríkja. Þjóðverjar eru leiðandi dæmi um fyrirmyndar Meðlima Ríki og samburður við Þýsklandi segir allt um hæfi þeirra óhæfu. Þýskar áherslur í innri málum og ytri eru þær sem gangu upp í EU efnahags grunnsamstarfi og stjórnmálasamstarfi og yfir sjórnsýslusamstarfi.   EU gerir sér grein fyrir að kröfur ekki Vesturlanda ríkja um aukna hlutdeild í efnilegri raunvirðis neyslu eru réttmætar  en leggur áherslu á að til færslur eftir 2000 verð mjög hægfara, það tekur tíma að venja sauði á huglægt raunvirði.

Þjóðverjar síðustu 5 ár hafa skorið niður fjölda sinna þegna um 1,0% á ári, sem merkir að raunþjóðartekur geta minnkaðu um 1,0% á ári án þess að tekjur á íbúa skerðist. 

Hvernig bregst Ísland við heimsjöfnun efnislegra raunverðmæta næstu öld. Fyrir 30 áru vöru tekjur á íbúa á Íslandi hlistæðar Noregi og Sviss nú eftir regluverki og skráningu ekki vsk. fyrirtækja ríkis á einkaframtak eru tekjur í samburði komnar niður í meðatal EU, og það líka mælt HCPI  sem metur raunvirði á drasli 30 % hærra fyrir þessi 8,0% en PPP [CPI] mælir uppboðsraunvirðið  á hverju ári yfir allan heiminn. Fyrir 30 árum þá vara gæðsstaðalinn hér USA og þá var tilbreyting að versla í EU og allt 30 ódýrara. HCPI hækkar meðalgengi evru. Evra strykist á því að innlima ríki sem borga vel fyrir lægstu verðflokka inna sömu vörutegunda.  Portugal á sínum tíma flutt inn nánast allt í 5 verðflokki.  Auðvitað lítur þetta allt eins út í görnunum  og er það rétt hjá Commission. Það er verðlagning á drasli miðað við 92% heimsins. Þýskland og Frakkland flytja grimmt inn á efri millstéttar markaði heimsins 3 þrep vsk. og stórgræða á styrkingu evru. Dollar koma meðal annars frá skuldugu Íslandi  og tryggja kaup á lykil frumefnum frá Kína.

Júlíus Björnsson, 20.3.2012 kl. 12:58

9 Smámynd: Hjördís Vilhjálmsdóttir

Jóhann 9:45. Allir sem telja að allt verði í gúddí með því einu að skipta um gjaldmiðil, ættu að hugsa uppá nýtt með Grikkland sem víti til varnaðar. Það er aðeeeeinnns meira mál að skipta um gjaldmiðil heldur en að skilja við maka sinn sem er á endalausu eyðsluflippi og dettur í það reglulega þó hann sé ,,edrú" inná milli. Eins og segja má um fjármál þjóðarinnar núna á tímum niðurskurðar.

Hjördís Vilhjálmsdóttir, 20.3.2012 kl. 13:48

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hjördís, ég var að vona að þú skildir innleggið hjá mér því ég var að tala um þetta á þann hátt að það leysir ENGAN vanda að skipta um gjaldmiðil heldur þvert á móti og það verður að hafa það að kostnaðurinn við það yrði á bilinu 200 - 500 - milljarðar og sá peningur er ekki gripinn upp af götunni.................

Jóhann Elíasson, 20.3.2012 kl. 15:18

11 Smámynd: Hjördís Vilhjálmsdóttir

Já einmitt Jóhann, við erum að tala um það sama. Nýr gjaldmiðill og óbreytt hagstjórn leysir ekki neitt.

Hjördís Vilhjálmsdóttir, 20.3.2012 kl. 17:09

12 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Því miður er allt satt sem þú og aðrir benda hér á Gunnar.

Það er eðlilegt að almenningur hafi áhyggjur, því þeir sem tilheyra þessu fjórfrelsis-valdaráni og skipulagðri glæpastarfsemi Evrópu-seðlabankans, eiga í vændum atvinnuleysi, fátækt og hungursneyð. "Harlem" ESB með tilheyrandi, er planið, sem almenningur endar á, með sama áframhaldi EES-ESB.

Brussel-stjórnin verður að fá valdagræðgis-skammtinn sinn, hvað sem það kostar miklar hörmungar. Græðgin drepur.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 20.3.2012 kl. 20:22

13 Smámynd: Júlíus Björnsson

Hvað kostar ein farsími mörg gr, af fiski prótíni?

Það er búið að semja um að jafna efnislega raunvirðisneyslu allra CPI neytendanna jarðar , millistéttin 80% þegnanna, 10 úrkast og 10 efri millistétt. Kemur menntun þessara 80 % ekkert við frekar hvað einstaklingar borga í skatta. Ísland  skilur ekki hugmyndafræðina utan Íslands.    EU miðstýrting er skilgreind í stjórnskipunarskrá, byggja á menningararfleið fullveldishafanna sem sem undir rituðu fyrstu samninga til veita afkvæminu hluta af fullveldi sínu.

Menningar arfleiðinn er 1000 ára ríki Rómverja. Það hefur aldrei verið leyndarmál hvað EU stendur fyrir.  Einnig í yfirstéttar grammar skólum erlendis hafa allir söguna eða Menningararfleiðina á hreinu.  EU menning er bókhaldsleg , laga og hernaðar fyrst og fremmst.

Júlíus Björnsson, 21.3.2012 kl. 00:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband