Leita í fréttum mbl.is

Skattavírinn

Þegar ég var polli á Siglufirði þá fórum við félagar út í gat því okkur var sagt að það væri verið að gera það með demantsborum. Vonsviknir sáum hins vegar bara járnarusl. En heim komum við samt með sprengjuvír, sem sagt er að sé sams konar bjölluvír og sá sem lagður hefur verið af ríkisstjórninni alla leið til Brussel. Þetta er samt sprengjuvír. 

Þið sjáið þetta fyrir ykkur. Hringt er um bjölluvírinn til Íslands og allsherjaráðherrann tekur upp tólið: Geld, ja? Nei nei, ekki geld! 

Lögin frá 1932 um tekjutökur ríkissjóðs Bandaríkjanna urðu ekki að demöntum í höndum ríkisstjórnar Hoovers. Þegar taprekstur ríkissjóðs jókst hroðalega vegna þess að svo margir urðu atvinnulausir, þá var svar ríkisstjórnarinnar þetta; hún flutti hæstu tekjuskatta frá 25 prósentum og upp í 63 prósent tekjuskatta. Fasteignaskattur var tvöfaldaður og skattur á hagnað fyrirtækja var hækkaður um 15 prósent. Þið þekkið ferlið hér heima undir núverandi 180 gráðu Hooverríkisstjórnar Íslands.

Það flotta við þennan demantsbor ríkisstjórnar Hoovers var það að hann virkaði eins og sprengjuvír á allt hagkerfið. Allt varð miklu verra. Það eina sem reynt var til að sporna við Stóru kreppunni var ávalt niðurskurður. Lítið sem ekkert annað var reynt af neinni alvöru, fyrr en allt var komið til heljar. Sama hver forsetinn var. Þessi sami sprengjuvír hefur nú verið lagður á milli evrulanda Evrópusambandsins. Hann er sjálft Evrópusamband evrunnar.
 
Hafið þið lesið nýju skýrsluna um Sjávarútveg Íslendinga? Ekki það nein. Ekki séð fullfermdan bátinn í auga þínu enn?

Skyldir þú ekki vita það, þá er sjávarútvegur Íslendinga UNDIRSTÖÐUATVINNUVEGUR þjóðarinnar, ásamt landbúnaði. Sjávarútvegur er fjórðungur íslenska hagkerfisins og stærsti hluti útflutningverðmæta okkar. Tölvan sem þú notar við að lesta þetta var einu sinni fiskur um borð í bát. Furðu má sæta að sjávarútvegurinn skuli ekki enn liggja sem mergur í hryggsúlum háskólasamfélagsins. Úr sjávarútvegi landsins hefur restin af íslenska hagkerfinu verið byggð upp með. Litlar þjóðir þola ekki að missa UNDIRSTÖÐUATVINNUVEGI.
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband