Leita í fréttum mbl.is

Ég er ekki Evrópusinni, og ég er ekki Evrópusambandssinni

Evrópa er ekki til sem áþreifanleg staðreynd. Það eru hins vegar til fimmtíu ríki í Evrópu þar sem töluð eru fleiri en hundrað tungumál. Þegar Hitler réði stærstum hluta Evrópu vildi enginn nema þumbi vera Evrópusinnaður

Þegar var og hét vildu Rúmenar og Búlgarar helst vera Júgóslavar. Þeir horfðu í leyni á júgóslavneska sjónvarpið. Þar var allt svo gott. En svo kom martröð og örtröð. Þá vildu þeir vera Grikkir eða Ungverjar. En svo kom martröð og örtröð á ný. Þá vildu þeir verða eitthvað annað. Bæði eru löndin nú í Evrópusambandinu og að minnsta kosti annað landið líka í meðferð hjá AGS. 
 
Núna líta Grikkir norður til Íslands og Noregs. Fleiri lönd munu gera það og vilja vera Íslendingar eða Íslandssinnaðir. Svona er þetta þegar menn nenna ekki að vera þeir sjálfir eins og Þorsteinn sem gékk frá Pálssyni og Jóhanna sem fékk inni hjá skipamálningu ríkisins. Menn eiga að ganga í sjálfum sér. Það er best - og hollast.    

Hvaða sinni er ég?

Ég er eiginmaður
Ég er faðir
Ég er Íslendingur
Ég er Norðurlandabúi

That's it. 

Ég er ekki Evrópusinni því þá væri ég um leið fullkomin spagettíflækja án jarðsambands við neitt. Ég gæti miklu frekar verið Bandaríkjasinni, eða Bretlandssinni, eða Ísraelsinni eða Ástralíusinni. Bara ekki Evrópusinni eða Evrópusambandssinni. Aldrei. Það er einfaldlega ekki nema smá brot af eftirfarandi löndum Evrópu sem ég gæti verið sinnaður í. Hvaða maður með fullu viti getur verið sinnaður öllum þessum löndum samtímis - í fullri einlægni. Eða hvað þá öllum 27 löndum Evrópusambandsins í einu? Hættið þessari hræsni.  

Albania - nei (Jóhanna, Össur og Steingrímur)
Andorra - nei
Armenia - nei
Austria - nei
Azerbaijan - nei
Belarus - nei
Belgium - nei
Bosnia and Herzegovina - nei
Bulgaria - nei
Croatia - nei
Cyprus - nei
Czech Republic - nei
Denmark - tja
Estonia - nei
Evrópusambandið, er orðið fullvalda: nýtt ríki í smíðum - NEI 
Finland - nei
France - nei
Georgia - nei
Germany - nei
Greece - nei
Hungary - nei
Iceland - ég er Íslendingur
Ireland - nei
Israel - tja
Italy - nei
Kazakhstan - nei
Kosovo - nei
Latvia - nei
Liechtenstein - nei
Lithuania - nei
Luxembourg - nei - blöff land
Macedonia - nei
Malta - nei (77 sardínur)
Moldova - nei
Monaco - nei
Montenegro - nei
Netherlands - nei
Norway - tja
Poland - nei
Portugal - nei
Romania - nei
Russia - nei
San Marino - nei
Serbia - nei
Slovakia - nei
Slovenia - nei
Spain - nei
Sweden - ó nei, nei, nei
Switzerland - tja
Turkey - nei
Ukraine - nei
United Kingdom - nei
Vatican City - nei
 
Svo eru það Færeyjar og Grænland en þau eru ekki sjálfstæð. En ég er mjög sinnaður í Færeyjum og Færeyingum og sérstaklega vildi ég óska þess að þeir létu nú verða af því að lýsa loksins yfir sjálfstæði landsins.  
 
Mæli með lestri; How I was wrong about the euro
 
 
Fyrri færsla
 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Blesaður Gunnar.

Þú gleymdir kannski fyrsta atriðinu í upptalningunni, að þú sért maður.

Sem úskýrir það sem á eftir kemur í þröngri merkingu og í víðri merkingu kraft þinn að berjast gegn forheimskunni.

En múrinn er að falla, ég las á bloggi Einars Björns núna áðan tilvísun i frétt FT um hið nýja aðgerðarplan ESB til að leysa gríska vandann.

Þegar Hitler gamli gerði stórsókn með kubbum á Austurvígstöðvunum í ársbyrjun 1945, þá var jarðsamband hans meira en valdaelítu Brussel er í dag gagnvart vanda þeirra þjóða sem evran hefur rústað.

Samt er talið að jarðsamband hans hafi ekki mælst með þekktum mælitækjum raunvísindanna.

Jafnvel vitfirring útskýrir ekki það sem er að gerast í Brussel.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 30.5.2011 kl. 09:06

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Bara menn geta orðið eiginmenn Ómar. Sorry.

Annars sæll og þakka þér innlitið

Eins sakir standa er ég að breytast í auðvald, er mér sagt. Það stendur til að ég eignist auðlindir Íslands.

Já evran er illa stödd, but not so fast Ómar, not so fast. En kannski er ég búinn að gleyma þessu: 

"it always takes longer than you think, then happens faster than you can imagine"
Rudiger Dornbusch

Ég skrifaði víst sjálfur um þetta þann 22. apríl 2009: Hér; Evra: Frankenstein fjármála

Svona er að vera maður. Menn gleyma.  

Gunnar Rögnvaldsson, 30.5.2011 kl. 09:33

3 identicon

Þú gleymir alveg að telja eitt upp...að þú ert Evrópubúi..he he...eða er það of sárt..??

Helgi Rúnar Jónsson (IP-tala skráð) 30.5.2011 kl. 13:37

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ísland tilheyrir ekki Evrópu í landfræðilegum skilningi. Við erum hvorki í Evrópu né í Ameríku (jarðskorpunni). Við höfum okkar eigin fleka sem er mitt á milli hinna fyrrnefndu.  

Pólitískt landslag er þó alltaf heimagert, og sérstaklega nú um daga. En fyrir ekki svo löngu var víst vel hægt að deila um það hvort við Íslendingar tilheyrðum frekar Bandaríkjum Norður Ameríku í pólitískum skilningi en ekki einhverri tilvonandi mixtúru af níundu rúgbrauðssymfóníu markvissra brjálæðinga í löndum Evrópu.

Engum dettur í hug að við tilheyrum Venesúela, sem þó er í Ameríku. Nema kannski þeim sem líða undan vitfirrtri ríkissjórn Íslands. Hennar fórnarlömbum verður vafalaust hugsað til Venesúela inn á milli högganna.

Svo þannig liggur landið okkar: Ég er ekki Evrópubúi. Ég hef mitt á þurru. Á jarðskorpunni.    

Gunnar Rögnvaldsson, 30.5.2011 kl. 14:02

5 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Sæll, ég ætla að nefna eitt í tengslum við loforð JÓKU um Evru eftir 5. ár, þ.e. 3. árum eftir aðild:

  • Þetta þíðir að ríkið skv. því þarf að lækka skuldir úr rúml. 100% í innan við 70% á 2. árum.
  • Einhvern veginn tók enginn eftir þessu, en hvernig á að fara að þessu?
  • Selja:
  1. Landsvirkjun.
  2. Íslandspóst.
  3. Skrifstofubyggingar í eigu ráðuneita, og endurleigja?
  4. Selja nánast allt sem ríkið á að eignum.
  • En þ.e. ekki hlaupið að því að minnka skuldir með svo miklum hraða.

Það kaldhæðnislega er að í sömu ræðu, var hún að fordæma fyrra svokallað einkavinavæðingarferli - og allt heimska liðið klappaði, og enginn klárlega skildir að ef hún ætlar að gera alvöru úr loforði sínu; þá þarf hún að framkv. einkavæðingu og sölu ríkiseigna á skala sem einungis þeir róttækustu meða ungra SÚS-ara dreymir um.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 30.5.2011 kl. 23:58

6 identicon

Sæll

Skildi ég þig rétt að

Karlkyns maður nefnist karl, en kvenkyns maður kona?

Annars hef ég búið lengi erlendis og hitt sýnishorn af flestum þessum þjóðum og enn hefur ekki nokkur þjóð lent á tja, ó listanum (Svíþjóð) þá síður á nei lista.

Nágranni minn var Albani frá Makedóníu hæglætismaður og ljúfmenni þar til dag einn að reyndi að keyra næsta nágranna niður (sem var ekki Albani frá Makedóníu) af því að hann hafði litið konu hans einhverjum skrítnu augnaráði.

Hann seldi svo bílinn minn fyrir mig eftir að ég flutti heim og sendi mér andverð hans í pósti. Ég var búinn að afsala mér bílnum í hans eigu áður en ég fór.

Hljómar eins Albanar séu ágætis fólk og skrítið eins og við

Kv. Sveinn

Sveinn Ólafsson (IP-tala skráð) 31.5.2011 kl. 00:32

7 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Gunnar.

Geta menn ekki orðið eiginmenn í Saudi Arabíu, er ekki fjölkvæni leyfilegt þar????

Annars minnir mig að þú hafir sannfært mig um fall evrunnar í pistli í feb. 2009, rökin og gögnin voru þá svo vísandi inn í framtíðina, að allt síðan hefur aðeins verið staðfesting þess sem þú sagðir þá.

Man þetta því ég kvaddi þig með þeim orðum að núna hefði ég ekki lengur áhyggjur af ICEsave því ljóst væri að við myndum ekki ganga í ESB, evran félli áður.  

En enginn sá fyrir þann hrylling sem bruggaður er í Brussel þeim þjóðum sem evran eyðilagði. Og rökleysurnar eru algjörar eins og Einar bendir á hér að ofan.

Segir allt sem segja þarf um íslenska umræðuhefð, að ennþá sé látið eins og evran sé valkostur, steindauður gjaldmiðillinn.  Við erum alltaf svona 5 til 15 árum á eftir raunveruleikanum.

Og spekingar komast upp með að fullyrða að Ekki þýðir að eitthvað sé, samanber hina meintu ríkisábyrgð á innlánum Landsbankans.

Og þú telur mig bjartsýnan á hið meinta fall evrunnar þegar raunveruleikinn er sá að við erum að tala um dauðan gjaldmiðil.  Það á aðeins eftir að gefa út dánartilkynninguna.

Líkt og með ríkisstjórnina, hún dó haustið 2009 þegar Jóhanna rak Ögmund, hefur engu komið í verk síðan.  Nema þá einhverjum óþurftarverkum.  En andlát hennar hefur ekki verið staðfest.  Samt öllum kunnugt.

Eina spurningin er, og ekki treysti ég mér að svara henni, og hún er hvort ESB lifir af fall evrunnar.

En við þeirri spurningu er til svar, og henni mun verða svarað á næstu mánuðum.  Núverandi grundvöllur sambandsins er hruninn, spurningin er hvort það þjappi sér saman líkt og Bandaríki Norður Ameríku gerðu á sínum tíma, og þá vegna ytri ógnar, eða það leysist upp.

En evran, hún er dauð.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 31.5.2011 kl. 20:20

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ævinlega þínar heimsóknir Ómar og elju. Og sem ykkur öllum hér fyrir innlit og athugasemdir.

ESB er óþarfi. Allir komast vel af án þess. EFTA stendur ESB ríkjum opið.

En já, líklegt er að ESB muni annaðhvort drepast alveg eða gengið yrði aftur til EEC (pre Maasticht) eða þá að eitthvað nýtt lítur dagsins ljós, en sem ég tel þó ólíklegt. Evrópa er orðin þreytt á að láta "hanna" sig upp á nýtt á 50 ára fresti.

En eins og þú segir Ómar; Á hvorn veginn ESB fellur, frá austri til vesturs eða frá vestri til austurs, er ekki enn alveg til að segja.

Ég held þó að ESB hafi orðið múrnum að bráð. Hann féll frá austri og yfir vestrið. Jöfnuðurinn og óskin um hann varð frelsishjörtum fólksins - sem slóu hve ákafast tímana fyrir fall múrsins - yfirsterkari.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 31.5.2011 kl. 23:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband