Leita í fréttum mbl.is

Berlínarmúrverk Evrópusambandsins að hrynja á Brussel. Örk Jóhönnu sækir steina handa Íslandi. Össur handlangar og Steingrímur fjármagnar

Michael Pettis segir -
  • Grikkland verður þvingað í ríkisgjaldþrot.
  • Fantasía hjá Ollieuropekkodullendoff frá Rehn að Grikkland geti vaxið út úr evrudýflissunni. 
  • Svipað bíður Spánar, Portúgals, Írlands, Ítalíu, Belgíu og stærsta hluta Austur- Evrópu.
  • Þetta er upphafið á borgarastyrjöld Evrópu, háð með fjármálavopnum.
Þetta eru nokkur af sex atriðum á lista gærdagsins hjá Michael Pettis: Part 1. Will Europe face defaults?
 
NIÐURSTAÐAN
 
This has been said before, but in a way this crisis is the European equivalence of the American Civil War.  Once the dust finally settles Europe will either be a unified country with fiscal sovereignty firmly established in Berlin or Brussels, or it will be fragmented with little chance of reunion. 

Myndskeið; Evrópulýðræðið heimsótt í steypustöð Vinstri grænna og Samfylkingarinnar; múrbrjóta lýðræðis og velfarnaðar Íslands. 
 
 
Tengt
 
Poul Krugman - munurinn á Íslandi og Írlandi er krónan sem er sjálfstæður gjaldmiðill Íslendinga - Eating the Irish 
 
Fyrri færsla
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Nigel Farage er hrópandinn í eyðimörkinni. Magnaður náungi alveg. Hann er búinn að vara við helför EU alla tíð og spádómar hans rætast nú hver af öðrum.  Á hann hefur ætíð verið púað á þinginu, svo það líkist á tíðum einhverskonar bulluklúbbi blindfullra fótboltafanatíkusa frekar en ráðsettu þingi.

Það er því merkilegt að sjá að púið er að hverfa og að tekið er undir orð hans nú með lófataki hér og þar. Öldin var sannarlega önnur hér fyrir skömmu. Nú sjást útauguð og föl andlit fulltrúa trúboðsins og dofin þögn ríkir, rétt eins og það sé að renna upp fyrir þeim að himnaríki sé blekkingin ein. Sem það hefur jú verð alla tíð.  Það vissi Farage og það eru fleiri að átta sig á. 

Jón Steinar Ragnarsson, 26.11.2010 kl. 10:55

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk fyrir þetta Jón Steinar

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 26.11.2010 kl. 15:35

3 Smámynd: Guðmundur Jónsson

 Alveg magnaður svipurinn á köllunum undir þessari ræðu hans Farage. þeir eru greinilega farnir að átta sig á að þeir eru í holu sem þeir komast sennilega aldrei uppúr.

ég setti þetta myndbrot líka að bloggið hjá mér 

Guðmundur Jónsson, 26.11.2010 kl. 17:44

4 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Krafa á 10 ára bréf Portúgals fór víst upp í rúml. 7% fyrir helgi.

Ég held hreinlega að Portúgal verði neytt til að þiggja björgunarpakka fyrir næstu helgi, ef ekki jafnvel innan marka næstu viku.

En, menn eru allt í einu logandi hræddir að Portúgal taki Spán niður með sér í fallinu.

Síðan, hækkaði skuldatryggingaálag Þýskalands - orðið nokkru hærra en Svíþjóðar. Vegna ábyrgðanna náttúrulega, sem nú verða skuldir.

Ef þessu heldur áfram - þá gerir þýskur almenningur uppreisn gegn þróuninni.

Þetta er farið að líta út eins og óstöðvandi hrunferli - ef þeir ætla að gera e-h þarf það að vera mjög víðtæk aðgerð, og mjög snögg.

Sjá: Fjármálakrýsan hélt áfram á fullu spani þessa viku á Evrusvæðinu!

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 27.11.2010 kl. 00:29

5 Smámynd: Egill Helgi Lárusson

Nigel Farage er hreint frábær! Er ekki hægt að kaupa þetta á dvd?

www.umbot.org

Egill Helgi Lárusson, 27.11.2010 kl. 03:19

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir innlitið 

Athyglisverð frétt frá Bretlandi í gær. Daily Express skiptir um skoðun eða flaggar nýrri afstöðu blaðsins og segist hér með hefja "krossferð" gegn ESB-aðild Bretlands undir yfirskriftinni "losið okkur út úr Evrópusambandinu" - GET US OUT OF EUROPE

Losið okkur út úr Evrópusambandinu

Gunnar Rögnvaldsson, 27.11.2010 kl. 08:46

7 identicon

Annað myndskeið með Nigel http://www.youtube.com/watch?v=rPtqE-AABWA&feature=related mínúta 1:50 þar sem hann gerir því í skóna að þegar forystu Belga í EU líkur þá verði kannski enn ekki kominn ný ríkisstjórn. Þetta sagði hann í júlí og við vitum núna að hann spáði rétt, Belgar hafa enn ekki komið sér saman um nýja ríkisstjórn eftir síðustu kosningar!

Björn (IP-tala skráð) 27.11.2010 kl. 21:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband