Leita í fréttum mbl.is

Blind Evrópusambandshollusta, Samfylkingin og hið steindauða "alþjóðasamfélag Evrópu Plc"

Atvinnuleysi í löndum evrusvæðis frá 1991. Næstum 20 ára stanslaus eymd. getuleysi og volæði 

Mynd: Atvinnuleysi í löndum evrusvæðis frá 1991. Næstum 20 ára stanslaus eymd, getuleysi og volæði

Blind Evrópusambandshollusta og "evrópska alþjóðasamfélagið Plc"

Uffe Ellemann-Jensen, fyrrum utanríkisráðherra Danmerkur skrifar frekar barnalega og ferkantaða bloggfærslugrein um Icesave málið á Berlingske Tidende. Ég hef alltaf haldið frekar mikið upp á Uffe Ellemann nema að því leyti hve krónískt og gagnrýnislaust hann situr fastur á ESB önglinum. Þar engist hann núna hneykslaður á hugrekki Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands. Hollusta Uffe Ellemann við stóra Evrópusamrunann blindar og stýrir hugsun þessa ágæta manns. Þetta hefur örugglega verið hrikalega erfið ákvörðun fyrir forseta Íslands. En ákvörðun tók hann í samræmi við það sem á undan var gengið.

Evrópusambandið er steindautt

Það var einmitt Poul Schlüter forsætisráðherra Danmerkur og yfirmaður Uffe Ellemann-Jensen sem lýsti því yfir að Evrópusambandið væri steindautt í þjóðar-atkvæðagreiðslunni um EF-pakkann í febrúar 1986. Þá var Uffe Ellemann utanríkisráðherra. Þegar Danir sögðu nei við Maastricht sáttmálanum í þjóðaratkvæðagreiðslu þann 2. janúar 1992, varð allt vitlaust hér í því Evrópusambandi sem Poul Schlüter hafði lýst yfir að myndi aldrei verða til aðeins 7 árum áður. Þá sagði hið svo kallaða "Alþjóðasamfélag-Evrópu" að Danmörk hefði "sagt nei" við allri Evrópu og hefði engan rétt til að "stöðva" alla Evrópu. Þetta var náttúrlega bara notað sem þrýsti- og hræðslutæki til að hræða Dani aftur á sinn stað í ESB. Þá var það Uffe Ellemann sem tók mest undir þessi sjónarmið og barðist hvað harðast fyrir því að Danmörk myndi halda áfram að hanga á fingurgómunum inni í því ESB sem átti ekki að vera til, en sem samt var orðið til. Allt var sett á fullt til að finna málamiðlun svo Danmörku yrði ekki refsað fyrir að “stoppa Evrópu”, eins og það var kallað, og gæti haldið áfram að dingla á nöglunum inni í ESB sem þá var orðið að raunveruleika, þrátt fyrir loforð forsætisráðherrans 7 árum áður. 

Nú eru það Íslendingar sem eru orðnir “foot dragging” í Evrópu. Menn geta ímyndað sér hvernig staðan væri ef Ísland væri í ESB og ætlaði að segja "nei við Evrópu". En Danir voru kallaðir “the foot dragging Danes” í bæði ESB og NATO árum saman. Mest vegna þokukenndar afstöðu sinnar til stórra mála en sem þó átti að mestu rætur sínar að rekja til innbyrðis slagsmála hinna borgaralegu- og vinstri afla í dönskum stjórnmálum. Sósíaldemókratar gerðu allt til að eyðileggja fyrir ríkisstjórn Poul Schlüters. Þetta tímabil var dönskum sósíaldemókrötum til lítils sóma.

Afstaða Uffe Ellemann sannar að mínu mati hversu illa málið er kynnt og hversu illa ríkisstjórn Íslands hefur barist fyrir málstað Íslands. Það hefur hún ekki viljað gera af fullu afli vegna ESB-umsóknar Samfylkingarinnar. Ef svona gungustefna hefði alltaf verið viðhöfð í utanríkismálum Íslands þá hefðum við varla neina landhelgi að ráði í dag.

Samfylkingin: flokkur með aðeins eitt mál á dagskrá

Án sjálfstæðrar myntar verður framtíðin erfið

Að mínu mati er það ESB-þráhyggjustefna Samfylkingarinnar sem kemur í veg fyrir að íslenska þjóðin geti staðið saman á þessum örlagatímum. Þessi þráhyggja sprengdi síðustu ríkisstjórn í miðri bankakreppu og hefur sú aðgerð nú komið af stað stjórnmálakreppu sem eyðileggur Ísland innan frá. Þessi þráhyggja hefur líklega komið í veg fyrir þá þjóðstjórn sem hefði verið svo æskileg þegar bankarnir hrundu. Þráhyggja Samfylkingarinnar klýfur íslensku þjóðina í herðar niður, lamar varnir landsins, stuðlar að sundrungarstjórnmálum og skemmir fyrir Íslandi á örlagaríkan hátt um allar jarðir. Engin sátt, samlyndi og endurreisn mun komast á fyrr en umsókn Samfylkingarinnar inn í ESB hefur verið dregin til baka. Þá verður fyrst hægt að virkja varnar- og sóknaröfl Íslands til hins ýtrasta. Samstaða er bráðnauðsynleg. Samfylkingin er sennilega mesta sundrungarafl í íslenskum stjórnmálum frá upphafi.

Það er örugglega mjög erfitt fyrir Vinstri græna að vera saman í stjórn með þessum flokki sem kallar sig Samfylkingin en sem virkar sem fylking sundrungar. En þó ekki erfiðara en svo að einræðisherra VG hefur megnað að gera flokk sinn að einu virkasta gereyðingarvopni á Íslandi í höndum Samfylkingarinnar. Sundrungarstjórnmálin eru alls ráðandi. Aðeins sprengjugígar munu verða minnisvarðar Samfylkingarinnar.

Fyrri færsla

Það er fyrst og fremst stjórnmálaástandið á Íslandi sem olli lækkun Fitch á lánshæfnismati ríkissjóðs Íslands


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Varðandi spurninguna um atvinnuleysi, þ.s. hinar mismunandi kúrvur hreyfast ekki í takt, heldur laggar víst t.d. atvinnuleysiskúrvan að jafnaði á eftir hagvaxtarkúrvunni.

Sem dæmi, þegar ég heimfærði samanburðinn, er ég fann í skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ - upp á Íslands:

  • Hefst hagvöxtur hérlendis árið 2010.
  • Verðmæti hlutabréfa hérlendis nær lágmarki árið 2012.
  • Hámark atvinnuleysis verður um mitt ár, 2013.
  • Botninn á kreppunni á húsnæðisverði, verður síðla árs 2015.

Þá grunar mig, að atvinnuleysi geti farið bísna nærri 20%, áður en það fer að lækka.

En, ef okkur er drekkt 50 föðmum undir í skuldum, þannig að geta hagkerfisins til hagvaxtar verði alvarlega skert til margra ára; þá getum við lent í aðstæðum langvarandi fjöldaatvinnuleysis.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 10.1.2010 kl. 15:09

2 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Góður pistill.

Guðrún Sæmundsdóttir, 10.1.2010 kl. 15:14

3 Smámynd: Halla Rut

Sammála þér í því að það er hér þráhyggja SF í ESB sem er að valda okkur þvílíkum skaða í þessu máli öllu saman.

Halla Rut , 10.1.2010 kl. 18:58

4 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Flottur pistill. Ef ég man rétt þá var ég oft búinn að tala um að það væri bara eitt stefnumál hjá samfylkingunni og það væri að troða okkur inní ESB með góðu eða illu.

Og þetta hef ég sagt í langann tíma, löngu áður en samfylkingin komst í ríkisstjórn.

Kveðja

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 10.1.2010 kl. 20:48

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir innlitið.

Já Einar Björn. Það er er öruggt að atvinnuleysiskúrvan "laggar" á eftir hagvexti. Atvinnuleysi er jú afleiða samdráttar. Svo þegar samdráttur er búinn að pressa atvinnuleysið upp í háar hæðir ca. tveimur árum eftir að hagvöxtur hundi, þá tekur við önnur hrina enn hærra atvinnuleysis sem er afleiðing hagræðingar því fyrirtækin munu þurfa að hagræða svo mikið í ESB því framleiðni er þar svo hrikalega langt á eftir t.d. BNA. Þetta er alger nauðsyn ef fyrirtækin vilja ennþá geta sótt sér fjármagn á hlutabréfamörkuðum.

Svo já, ég held líka að það sé öruggt að við höfum einungis séð byrjunina á hrakförum atvinnumarkaðarins. Sem betur fer var byrjunarstaðan góð á Íslandi. En það var hún ekki í ESB eða á evrusvæði svo þar verður slæmt miklu verra.

Ég spái 15% atvinnuleysi á evrusvæði árið 2012 og það mun fara enn hærra. 35% atvinnuleysi á Spáni. 20% á Írlandi og 30% fyrir botni Eystrasalts. Restin verður líka hola ofaní jörðina. Íslendingar munu ekki geta flúið neitt nema kannski til Noregs.

Gunnar Rögnvaldsson, 10.1.2010 kl. 20:55

6 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Samfylkingin fær heiðurinn af því, að vera einn alversti stjórnmálaflokkur lýðveldissögunnar. Þeir voru búnir að lofa því, að allt færi á betri veg, ef við sendum umsókn í ESB, verst er að sumir trúðu því.

Ég hef alltaf verið eindreginn andstæðingur inngöngu í ESB, þótt eitthvað gott hafi komið í kjölfar EES, þá finnst mér stundum gallarnir vega þyngra, en kostirnir. Einnig hafa vel rökstuddar greinar eftir þig, sannfært mig enn meir um ókosti ESB.

Í besta falli, ef við færum í ESB, myndu atvinnulausir hafa það skárra, en þeim myndi fjölga, kannski fáum við einhverja styrki.

En fólk sem vill ganga í bandalag til þess eins að fá styrki, eiga það vart skilið að kallast "sannir Íslendingar".

Jón Ríkharðsson, 10.1.2010 kl. 22:33

8 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hvað finnst þér annars um þau rök Samfylkingarmanna að ekki verði hægt að losa um gjaldeyrisshöft og lækka vexti fyrr en við tökum á okkur 750 milljarða í beinhörðum gjaldeyri með vöxtum?  Eða þá rök Steingríms að hér verði ekki hægt að byrja uppbyggingarstarf nema að leggja allt í rúst fyrst?  Meikar jú einhvernvegin sens, er það ekki?

Jón Steinar Ragnarsson, 10.1.2010 kl. 22:49

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur

Hvað mér finnst Jón Steinar?

Mér finnst að hið gagnstæða sé alveg augljóst. Ekkert verður hægt að gera fyrr en Samfylkingin yfirgefur ríkisstjórn og fari aftur inn í þann álfhól sem hún á heima í.

Takk fyrir slóðina á frétt RÚV. Hér er öll frétt ríkisstjórnarútvarps.

 RÚSSV Ríkisstjórnarútvarpið

Gunnar Rögnvaldsson, 11.1.2010 kl. 09:42

10 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Reglugerðirnar eru víst:

19/94

http://eur-lex.europa.eu/LexUriServ/LexUriServ.do?uri=CELEX:31994L0019:EN:HTML

47/2002 

http://eur-lex.europa.eu/LexUriServ/LexUriServ.do?uri=OJ:L:2002:168:0043:0050:EN:PDF

12/2000

http://eur-lex.europa.eu/LexUriServ/LexUriServ.do?uri=OJ:L:2000:126:0001:0059:EN:PDF

Alain vann víst að 12/2000.

Á eftir að lesa 12/2000 - en, það má vera sannarlega að hún segi, þ.s. hann segir að hún segi, og þá er það risamál.

 Kv.

Einar Björn Bjarnason, 11.1.2010 kl. 11:57

11 Smámynd: Haraldur Hansson

Ólafur Ragnar gerði meira en að sýna hugrekki.

Það er alveg klárt að hann undirbjó sig mjög vel og vann málið skipulega og af mikilli fagmennsku. Nokkuð sem ríkisstjórnin mætti taka sér til fyrirmyndar.

Eftir að fundi forseta með fréttamönnum lauk liðu aðeins TVÆR MÍNÚTUR þar til fyrirtæki sem sér um almannatengsl var komið með rökstuðning forseta í hendur ... á ensku. Þetta var sent til fjölmiðla víða um lönd í einum grænum.

Næsta skref var að tala við fjölmiðla. Það dylst engum að forsetinn undirbjó sig af kostgæfni, þekkir málið í smáatriðum, þekkir sögu þess og skynjar alvöruna. Þess vegna koma hann svona vel út hjá BBC.

Og til samanburðar: Hefur einhver orðið var við fréttatilkynningu ríkisstjórnarinnar í heimspressunni? Nei, ekki ég heldur.

Ólafur Ragnar hefur unnið þjóðinni meira gagn í þessu máli á nokkrum dögum en ríkisstjórnin á heilu ári. Það er ekki "bara skoðun" heldur staðreynd.

Haraldur Hansson, 11.1.2010 kl. 13:18

12 Smámynd: Júlíus Björnsson

Varðandi atvinnuleysi í EU. Þegar frænka mín fór til Svíþjóðar 1957 þá skúraði hún 3 sinnum harðar en þær Sænsku sem fóru eftir samningum, en hún eftir uppeldi að síðasta skolvatnið eitt að vera hreint hún skúraði þrisvar og var ekki rekin af forstöðukonunni á Spítalanum eftir að verið klöguð af þeirri sænsku heldur hrósað og beðin afsökunar.

Þegar ég var í siglingum út um allan heim  frá 1974 til 1984. Þá tók ég eftir því að á flestum stöðum voru 4 að gera það sama og 1 á Íslandi.

Utantekning kannski á Íslenskum skrifstofum.

Víða á þeim árum var fólk komið á elliheimili 55 ára.

Hagfræði götunnar lýgur ekki eða blekkir.

Þegar sömu brúttó þjóðartekjur á haus og á Kýpur og helmingi lægri en í Danmörku og 12% lægri en í UK hafa fest í sessi 2014 þá þarf engin gjaldeyrishöft þau verða náttúruleg.

Hér áður fyrr þegar flestir byggðu húsin sín sjálfir og flestir vöru með 5 börn á launskrá til að lækka tekjuskatta sína. Mælist það opinberlega í lægri afköstum.

Upp úr 1985 fór hinsvegar Ísland hratt að líkast því versta sem EU hefur upp á bjóða. 

Júlíus Björnsson, 11.1.2010 kl. 16:25

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir innlegg og vefslóðir

Það sem ég undrast mest er að þeir sem kalla sig fréttastofu RÚV (ríkisútvarp Íslands) skuli ekki spyrja Steingrím J. Sigfússon að því hvar hann sé að framkvæma byltinguna sem hann talaði um í OKTÓBER 2008. Þetta er hlutverk fréttastofu RÚV. Að finna út úr þessu. Þetta er þeirra hlutverk

Hvar er bylting  herra Steingríms J. Sigfússonar. Er hún bara innvortis hjá honum sjálfum? Er þetta þá úthverfan á Steingrími sem við sjáum núna? Var hann þá bara svona eftir allt saman.

Gunnar Rögnvaldsson, 11.1.2010 kl. 19:20

14 Smámynd: Halldór Jónsson

Steingrímur fór í ferðalag til Norðulanda til að biðja ásjár. Kom með þau skilaboð heim að ekki yrðu gerðar neinar ráðastafanir til að hefta fyrirgreiðslur til Íslendinga fram að þjóðaratkvæði.

Hverskonar snillingur er þessi maður að geta haldið flokknum saman ennþá ? Þetta er tæra snilld ef borirn eru saman stefnumálin fyrir stjórnarsetu og síðan. Ég veit ekki Gunnar minn, hvort hann er á réttunni eða röngunni ? Hvað er upp og hvað er niður ?

Og svo hann Kiddi Sleggja. Lastu hann í Mogga ? Gott ef þú gætir útskýrt hann fyrir mér.

Halldór Jónsson, 11.1.2010 kl. 23:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband