Leita í fréttum mbl.is

Prófessor við háskólamiðstöðina í Suður-Danmörku; hárrétt gert hjá forseta Íslands

Prófessor við háskólamiðstöðina í Suður-Danmörku sagði í fréttatíma dönsku sjónvarpsstöðvarinnar TV2 kl. 19:00 að forseti Íslands hefði gert hárrétt í að samþykkja ekki lagasmíði ríkisstjórnarinnar á Alþingi Íslands í Icesave málinu. Hann sagði að það væri ekki hægt að dæma heila þjóð til að borga innistæður ríkra innistæðueigenda í bönkum úti í heimi. Ég náði því miður ekki nafninu á prófessornum.

Í fréttatíma danska ríkissjónvarps sagði hins vegar hinn velkunni Carsten Valgreen það sem hann er vanur að segja, þið vitið, "alþjóðasamfélagið Plc", IMF osfv. Hann gat þó ekki svarað spurningu fréttmannsins um hvað hann myndi sjálfur gera ef hann væri Íslendingur. Hann vék sér undan að svara þeirri spurningu, enda hefði heiðarlegt svar sennilega þýtt umsvifalausa kauplækkun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ég segi hávaxta reikninganna utan Íslands svar einkageirans á  Íslandi við því að fjárfestar sem notuðu einkageirann á Íslandi sem millifjárfesti fyrir fjárfestingar í ríkjum EU aðallega, lokuðu lánalínum.

Sömu  lánalínur og höfðu blásið upp Íslanska geirann þegar það hentaði þeim best.

Júlíus Björnsson, 5.1.2010 kl. 19:31

2 Smámynd: Theódór Norðkvist

Júlíus þú mátt skýra betur út hvað þú átt við, skil þig ekki alveg. En til hamingju með þennan áfangasigur, við getum glaðst yfir honum sem fyrsta skrefi í að reisa landið við.

Hinsvegar er okurvaxtastefnan ein stærsta ástæða fyrir böli þjóðarinnar. Rétt að ítreka það.

Hún skapaði krónubréfahengjuna. Hún skapaði Icesave-reikningana. Hún skapaði greiðsluþrot tugþúsunda heimila. Og hún skapaði verðbólgu þó hún hafi verið notuð sem afsökun til að berjast gegn henni.

Theódór Norðkvist, 5.1.2010 kl. 22:25

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Theodór: Og gleymum því ekki að hávaxtastefnan er draugurinn sem AGS sendi á hendur þessari þjóð til að draga lokur frá hurðum fyrir erlenda fjáfesta þegar þjóðin verður komin í þrot og missir sjálfstæði sitt. Þá sendingu eigum við í ofanálag að þakka okkar draumalandi innan við hið gullna hlið ESB.

"Að faðma sinn vin, drekka fjandmannsins blóð/ hún fylgir þeim lögum hin svarta þjóð./Og síst er hún verri en hið hvítbrjósta kyn/ sem kyssir sinn fjandmann- en drepur sinn vin," segir skáldið frá Fagraskógi í kvæði sínu um Afríku-Kobba.

En kannski eigum við ekki aðra vini í dag en Færeyinga þegar á reynir. Betur að við munum eftir því þegar rembingur okkar hefst á ný.

Árni Gunnarsson, 5.1.2010 kl. 23:36

4 Smámynd: Júlíus Björnsson

Gengi á krónu mun hafa verið ákveðið á uppboðum í Seðlabanka ennþá Íslands aðrir í EU tilheyra flestir Seðlabankakerfi EU og er evrópski Seðlabankinn yfir þeim.

Aðal bjóðendur í krónur voru einkabankarnir 3 [annað kallað fákeppni]. Þeir voru að kaupa krónur fyrir EU einkabanka, sem vafalaust hafa ráðfært sig við sína Seðlabanka. Þetta olli hækkun á krónu og hærri vaxta kröfu Seðlabanka. Seðlabankinn hér var farinn að fjármagna ríkissjóð og þá var hægt að lækka skatta t.d. 

Þessir EU einkabankar eru nú meðal stærstu hluthafa nýju bankanna. Þeir hafa nú ekki tapað að ráði til langframa, í ljósi auðlinda Íslands.

Daginn eftir voru svo keyptar evrur og pund til að afhenda einkavinum Íslensku einkabankanna til fjárfestinga í ríkjum EU.

Einungis 10% viðskipta íslenska fjármálageirans voru innanlands. Samkvæmt skýrslu Seðlabanka 2007.

Deuchbank er ekki banki sem tekur áhættu til langframa.

Ef stóru EU bankarnir hefðu ekki tekið þátt í að láta Ísland njóta forréttinda nágrannasamnings sem gefur innlimun sem ávinning eftir þroskaferilinn, hér EES samningin, með lánafyrirgreiðslum þá hefði króna aldrei styrkst að mínu mati. 

Endurreisn alþjóða lánamillifærslna mun vera það sem þessi Ríkistjórn segist vera að ljúka við.

Það kemur fram á heimasíðum IMF um svipað leyti og hann er látinn ganga í að stilla gengið miðað við helstu lánadrottna, að einmitt þessi endurreisn hlutfallslegasta stærst fjármálgeira í heimi, kosti almenning hér langvarandi skerðingu lífskjara: ráðstöfunartekna.

Ég hlustaði nú Bankastjóra Landsbanks útskýra að þeir væru að redda pundum og evrum í kjölfar lokunar lánalína með stofnun Icesave og það gengi ótrúlega vel.

Þar sem Glitnir sérhæfði sig í USA ,og USA og EU komust að samkomulagi um að draga úr skatta paradísum, Lehmanns sumarið.

Þá tel ég að þegar USA hafi ekki vilja lána Íslandi um næst áramót en öllum hinum  Norðurlöndunum þá hafi skýringarnar legið í vafasömum viðskiptum Glitnisbanka. Þá komu Icesave fram um vorið.

Fámenni þjóðarinnar var ekkert leyndarmál og hindraði ekki t.d. Deutchbank frá Krónukaupum.

Svo mun um 1996 eða 7 einn ráðherra hér hafi talið Ísland ganga inn um 2011.

Miðað við undtekningalaus inngangs reglu ganga ríkin inn eftir mikið lánasukk [á aðildarferlinum] og í kjölfarið lánaþrengingar sem fær kjósendur til að samþykkja aðild. Árið 2007 passar vel inn, óháð Lehmann. 

Þetta vita alþjóðfjárfestar allan tíma. Renna á lyktina.

Nágranna samningur, uppbyggingar og samþættingarlána fyrirgreiðslur, fjármálageirinn gengur fram af sér í endurlánum og síðan þrengingar og innlimun.

Þetta hlýtur að vera góð aðferð til að innlima ríki sem búa við hærri meðalþjóðartekjur en meðaltalið í EU.

EU hefur aldrei leynt útþenslu áformum sínum [standa í lagasamningnum] þótt engin hafi spáð í aðferðafræðina.

EU stendur fyrir sýndar lýðræði kostnaður sem mun hverfa nú þegar útþenslu áfanga er lokið og Lissabon finialisering tekur við útrýming undaþága veitum í aðildarsamningum t.d.

Hinsvegar er það Commission velvalinna manngerða sem lætur framkvæma vilja  hæfs meirihluta EU hverju sinni á ársgrundvelli. Undir henni eru tól og tæki, Seðlabanki og kerfið Seðlabanka, Fjárfestingarbanki, og fjölmargar stofnanir fagmenntaðra framúrskarandi aðila til til að semja reglur og lög til þess að fulltrúar Meðlim-ríkjanna geti tjá sig og samþykkt þau.

Það telur mér engin trú um að Þjóðverjar og Frakkar láti meirihluta almennings ráðskast með yfirstjórn EU.

Virðingarstiginn í Evrópu er í fullu gildi hjá yfirfólki EU.  Lýðræði er ágætt svo fremi lýður ráði ekki í reyndinni. 

Margir háttsettir EU aðilar hafa ekki farið leynt með skoðun sína á greind eylendinga eins og á Íslandi.

Það t.d. eðlilegt að við látum meiriháttar stórborgar aðila segja okkur hvað er okkur fyrir bestu. Þeir tala sjálfir um að sum ríki séu þroskaðri en önnur, svo sem 1. flokks evru ríki.

Ef við sleppum alþjóða lána millifærslum, þá þurfum við ekkert að einangrast, heldur sleppa kostnaðinum. Lifa af beinhörðum útflutningstekjum og innanlandsframleiðslu. Öll ríki heimsins geta borgað í krónu á því verði sem við setjum upp.

Júlíus Björnsson, 6.1.2010 kl. 00:40

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Gott hjá danska prófessornum, Gunnar, og þakka þér fyrir að vekja athygli á þessu, ekki sjá EB-sinnuðu fjölmiðlarnir Rúv og Fréttastofa Bylgjunnar og Stöðvar 2 um það! Hér hefur hins vegar dunið á hlustum manna látlaus hræðsluáróður síðan í hádeginu, laptar upp fréttir jafnvel úr óvönduðum fréttapistlum erlendis, manna sem augljóslega þekkja ekki til, og reynt að skelfa landsmenn jafnvel með stríðsfyrirsögnum* til að sjá að sér!

Evrópubandalagsgengið vill sem fyrri daginn ekkert stopp á sína keyrslu inn í stórríkið, þar sem VIÐ ÍSLENDINGAR réðum engu, en ÞEIR fengju kannski góða dúsu í Brussel.

Carsten Valgreen, já, ætli hann sé ekki sá, sem einmitt var verið að sýna hér viðtal við, talandi um "það sem hann er vanur að segja, þið vitið, "alþjóðasamfélagið Plc", IMF osfv." segir þú um þetta í danska ríkissjónvarpinu, og þetta var einmitt viðkomandi að hjala um hér og menn eiga auðvitað að fyllast andagt og virðingu og missa hjartað ofan í buxurnar.

Spuni er þetta, við vitum það báðir. Íslendingar geta vel staðið í fæturna, ef þeir það vilja. Það var einmitt verið að tala um það í einni stöðinni í dag, hvort við hefðum einhver vopn, áður var það t.d. NATO-aðildin og herstöðin bandaríska, sem stjórnvöld leyfðu sér að nýta sér til þrýstings á Breta í þorskastríðunum, en nú (það var víst prófessorinn Gunnar Helgi Kristinnson sem um þetta ræddi) hefðum við engin slik vopn eða leitun að þeim. En eitt vopn höfum við, sem getur gert okkur furðu-óháð flestum lántökum, og það er blessuð krónan okkar sem þetta spunalið, landssvika-leiðangursmenn og nytsamir sakleysingjar þeirra hafa bölvað hvað mest!

Verandi all-óháð lántökum (við þurfum þær ekki til að halda ríkisútgjöldum háum, það á að SKERA og miklu meira en gert er! – við þurfum þær heldur ekki "til nýsköpunar", eins og alltaf er verið að fullyrða, til þess nægja útflutningstekjur og af ferðamennskunni – sem er allt vaxandi) getum við, sýnist mér, látið okkur nægja fáein lán og minni en að var stefnt. Jafnvel Steingrímur var farinn að tala um að við þyrftum jafnvel ekki á að halda nema kannski innan við helmingnum af lofuðu norrænu lánunum!

Nenni þessu ekki lengur, vinur, er sjálfur í miðjum klíðum að blogga, en þú átt skilið að fá aðsóknina, vil eg minna menn á, og vísað get ég líka á þig.

Með kærri kveðju, það var gaman að hitta þig og hann Harald Hansson þetta eina sinn á Heimssýnarfundinum í sumar, og ég þakka þér alla þína fræðslubaráttu og óbilandi samstöðu með þjóðarhagsmunum okkar.

Gleðilegt ár!

* Eins og Rásar2-fréttamaður sagði í dag: "Ein fyrirsögnin var: Ísland og Bretland í stríði"!

Jón Valur Jensson, 6.1.2010 kl. 03:09

6 Smámynd: Júlíus Björnsson

Í ljósi einhæfra útflutningshráefna eigum við að handstýra krónunni, þeir kaupa af útflutning af okkur kaupa krónur á okkar gengi hverju sinni.

Gengis hagnað vegna annarra krónukaupa á að festa í gulli.

Fullvinnsla hráefna og þúsundir söluaðila skapa núverandi pappírsölum nóga af störfum.  60 milljóna ofurhátekju markaður er út um allan heim: 8% markaðsvæði m.t.t allra tekjuhópa er of lítið til að hámarka innri kostnað. 

Þá losnum við við Breskt lánshæfis mat sem einkennist af þjóðrembu. 

Það er hægt að verða ríkur á því að selja niðursuðuvörur á netinu.

Selja ómaðkaða skreið í glanspappír.

Þetta er bara spurning um fjölda hæfra viðskiptaaðila á alþjóðamælikvarða. Frosinn eldislax kosta 25 dollar kílóið á Ceylon í dag.

Júlíus Björnsson, 6.1.2010 kl. 04:04

7 identicon

Athyglisvert comment í The Times hér, reyndar upprunnið í Huffington Post.

Karl Snow wrote:
A small piece of text taken from Huffingtonpost 5th jan by Mr Sheldon Filger. Might be more relevant to Brits than we might or wish to think of.

“What is now occurring in Iceland is a foretaste of what may become more common throughout the developed world. Taxpayers have been told by policymakers that they must bear the financial costs of failed decisions made by private business, no matter how steep the price, or accept even more horrendous economic consequences. For the first time, an aroused public in at least one country has rejected the dictates being imposed by the political establishment.

No wonder that the Dutch and British governments reacted so swiftly with a condemnation of Iceland's citizens for having the audacity to think they have the right to exercise their democratic rights in deciding for themselves what is in the best economic interests of their nation.

As the global economic crisis continues, leading to more private business failures and demands by policymakers that taxpayers fund ever-larger bailouts, look for other aroused citizenry following in the footsteps of Iceland's.”

Anna Grétarsdóttir (IP-tala skráð) 6.1.2010 kl. 10:15

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur öllum kærlega fyrir innleggin og þér Jón Valur fyrir kveðjuna og einnig fyrir þína óþrjótandi baráttu.

Anna, þetta er að renna upp fyrir sumum. Það fjölgar þeim sem skrifa um komandi röð greiðslufalla ríkissjóða í Evrópu. Meira og meira birtist um þetta efni. Kærar þakkir fyrir ábendinguna.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 6.1.2010 kl. 12:37

9 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Sæll Gunnar.

Ég hef verið tryggur lesandi Þjóðmála lengi, ég vona að ég sé ekki að fara mannavillt, en ef ég hitti á réttan mann, vil ég nota tækifærið og þakka þér kærlega fyrir góðar greinar sem, birst hafa eftir þig í Þjóðmálum. Þær hafa verið mjög fræðandi og upplýsandi, fyrir mg.

Einnig er áhugavert að lesa þennan pistil þinn, fjölmiðlar myndu seint leita að jákvæðum umfjöllunum um Ísland.

Jón Ríkharðsson, 6.1.2010 kl. 13:29

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér kærlega Jón. Gaman að heyra.  

Þjóðmál er fínasta rit og útgáfa þess hið besta mál. 

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 6.1.2010 kl. 17:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband