Leita í fréttum mbl.is

Skólastúlkan Mette Absurdsen og hin súra skólamjólk Trumps

SAMSTÖÐUFUNDIR Á VEGUM MIÐFLOKKSINS: SELFOSS Í GÆRKVÖLDI

Nú eru tæplega fimm þúsundir Íslendinga búnir að horfa á samstöðufund Orkunnar Okkar gegn orkupakka-3 á vegum Miðflokksins í Keflavík í fyrrakvöld, og um 2500 manns hafa nú þegar horft á fundinn á Selfossi í gærkvöldi. Troðfull hús voru á báðum þessum stöðum

Hér má horfa á fundinn á Selfossi og hér er Keflavík (opnast í nýjum glugga). Hattur ofan fyrir þessu fólki

METTE ABSURDSEN NÝLENDUHERRA

Allt í einu þykjast Danir skilja tvö prósent tungumáls Trumps og eru komnir í draumóraseríu númer 205 um Grænland -í Berlingske- og segjast hafa "sofið í tímunum"

"Varnargeta danska hersins á Grænlandi er nánast bara landhelgisgæslan (d. kystvagt). Við erum með nákvæmlega enga loftvarnargetu í landinu, núll þar, og við erum með engan landher á Grænlandi," bendir Peter Viggó lektor í akademíu danska hersins á:

"Forsvarets kapacitet i Grønland er nærmest kun en kystvagt. Der er ikke noget luftforsvar overhovedet. Det er ikke noget landmilitær," påpeger lektor Peter Viggo Jakobsen fra Forsvarsakademiet."| Berlingske í gær

Og svo kemur rúsínan í pylsuendanum: "Við vitum ekki hvað er að gerast á Grænlandi og við eigum ekki einu sinni til landakort af því," eins og Martin Lidegaard fyrrum utanríkisráðherra Dana (og þar með Grænlendinga líka) bendir á:

"Vi har i årevis kæmpet for flere penge til kortlægning af Grønland. Hvis vi kan gøre det med satellit og et civilt formål, vil det samtidig have et sikkerhedsmæssigt formål, uden at det ansporer Rusland til yderligere oprustning," siger Martin Lidegaard. | Berlingske í gær

JA HÉRNA

Þetta er farið að minna óþyrmilega á nýlendustöðu Íslands hér fyrr á tímum, og sem sótsvört og bölvuð ríkisstjórn Íslands hyggst á ný kalla yfir þjóð okkar og land með orkubandalagslöggjöf Evrópusambandsins. Dýr er fiskurinn okkar að verða fyrir þá sem þangað ætluðu að selja hann tollfrjálst, en sem sætir tollum þar enn. Hvar, hvar í ósköpunum kaupir forysta Sjálfstæðisflokksins og ríkisstjórnin kvalarlostaefnin sín. Hvar? Það væri fróðlegt að vita. Þau fást að minnsta kosti ekki í Hönnubúð. Eru þau nokkuð úr kjallaranum í Brussel þar sem Grikkland var krossfest?

Já, kannski er danska og gjörtapaða staðan á Grænlandi eins og í Belgíu, þar sem ég held (þ.e. ég er ekki viss) að 85 prósent af útgjöldum til varnarmála fari í lífeyrisgreiðslur. Restin af NATO-löndum meginlands Evrópu, fyrir utan þrjár undantekningar, er í flestum tilfellum kvöldverðir í Brussel, og er íslenski föndurklúbburinn á sérsviði Heklunála þá talinn með. Hið raunverulega NATO á meginlandi Evrópu í dag eru Bandaríkin og Pólland, þar sem Bandaríkin eru í viðbragðstöðu - og vel á minnst - bæði við austur og vestur landamæri þess, því Þjóðverjar hafa jú tilkynnt Pólverjum að þeir geti þolað Rússland upp að landamærum þeirra, en gleymdu að segja hvoru megin sú samþykkt gildir. Bandaríski herinn gætir því landamæra Póllands, Rúmeníu og Búlgaríu í austri en Trump gætir pólsku landamæranna á Twitter í vestri. Tíst nægir þar í bili, eins og sést

Merkel mús og Mette skolepige gætu bjargað þessu með því að smíða 12 stykki flugmóðurskip sem knúin væru vindmyllum með endalaust úthald þar sem vindurinn blæs hve hvassast úr afturenda ESB. Danir myndu ekki þora að reisa svo mikið sem einn snúrustaur á Grænlandi af ótta við Rússa á Eystrasalti

Talandi um sæstreng, þá er hvert nýlegt bandarískt flugmóðurskip með tvær Kárahnjúkavirkjanir um borð. Að vísu eru þau ekki skemmtiferðaskip á borð við Queen Mary 2, en þau framleiða hvert fyrir sig 17 sinnum meiri orku en til dæmis það fallega skip sem sótti Ísland heim í júlí. Eitt þannig flugmóðurskip er með 22-falda núverandi vatnsafls-raforkuframleiðslugetu Grænlands og 11-falda allsherjar raforkuframleiðslu Grænlands, sem að helmingi til er framleidd með bruna. Þetta nægir ekki til neins sem Bandaríkin þurfa á að halda til að verja Grænland. Þeir sem eru með sæstreng á heilanum hér á landi, ættu frekar að beina sjónum sínum norður en niður, til að svala snúru-fetisma sínum þar. Það er nefnilega ekki svo langt til Grænlands. Eða bara aðstoða þá við að byggja sitt eigið. Við eigum meira sameiginlegt með Grænlendingum, Bandaríkjunum, Kanada og Nýfundalendingum en úrkynjuðu kóngapakki ESB-veldisins á hausnum

GÚRKUSNEIÐIN CARL BILDT

Það var ansi merkilegt að lesa hér hjá Styrmi Gunnarssyni, sem berst kröftuglega gegn því að ríkisstjórn okkar selji fullveldi Íslands í orkumálum og öllum málum til Brussel, að ESB-Svíinn Carl Bildt sem var forsætisráðherra Svíþjóðar, sem á sínum tíma seldi sig til Hitlers, og sem Carl Bildt seldi síðan í hendur Brussels, skuli þykjast hafa eitthvað að segja um Grænland, Svalbarða og Ísland. Hvað er þessi maður að tala á okkar vegum. Hvað er þessi esb-gúrkusneið að ybba gogg um okkar land. Honum koma okkar málefni ekkert við

Þetta er hið merkilegasta mál fyrir þær sakir að það eru aðeins Bandaríkin sem tryggja að Grænland sé á höndum Dana. Annars væri það á höndum annarra. Og ef Bandaríkin slaka á þar, þá rennur Grænland með sinni grænlensku þjóð á hendur þið vitið hverra

Þegar svo forseti Bandaríkjanna imprar á því að þetta sé ekki nógu gott og talar mál sitt á þann hátt sem hann alltaf hefur gert sem byggingarmeistarinn frá Manhattan, er glímt hefur alla sína ævi við gerspillta embættismenn, verkalýðsfélög og hvatt steypugengi og iðnaðarmenn sína áfram, en sem er ekki nógu fínt mál fyrir Snobbhill-úrkynjaðan herra Carl Bildt ESB-Gúrkusneið von sænskri Klessu, að þá eru menn ekki einu sinni tilbúnir til að ræða málið og kalla það bara absúrd

Forsetinn talar það mál sem hann hefur alltaf talað og sem bandaríska þjóðin skilur, og sem í stuttu máli er það, að þetta er "A BAD DEAL", sem þýðir hættið að níðast á okkur, baktala okkur og notfæra ykkur velvild Bandaríkjanna sem bera hagkerfi, varnarmál og þjóðaröryggi ykkar uppi

Við erum á fullu á Grænlandi og þurfum að vaða í gegnum reglu- og lagafrumskóg fullkominna vesalinga í Kaupmannahöfn, sem ekkert geta og ekkert vita hvað þarna er að gerast, á meðan þið rífið fullveldið af þjóðum Evrópu og hendið þeim í gasvasa Rússa og yfirþýsks-ESB sem þið síðan heimtið að við verjum ykkur fyrir fyrir ekki neitt

Það eru 70 ár liðin frá því að við fórnuðum okkur fyrir ykkur og það í þrígang - og þið eruð aumingjar enn. Okkur langar ekkert til að þurfa að koma aftur til að bjarga vesalingunum ykkur úr úr því nýja helvíti sem þið eruð með í ESB-smíðum núna

Fyrri færsla

Svarandi til sex prósenta kjósenda Sjálfstæðisflokks eru búnir að horfa á fundinn í gærkvöldi


Bloggfærslur 23. ágúst 2019

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband