Leita í fréttum mbl.is

Fjölmiðlaveðurfar endist illa

Theresa May - gettu hvað

Nóbb

****

Sjá "fréttaþvælu" að neðan: , og svo ef að "fjöllin eru að hrynja" (nýjasta netþvælan) þá myndi yfirborð jarðar breytast og sjórinn fossa yfir landmassa jarðar og Kevin Costner einn verða eftir í "vatnslandi" sínu, sem floppaði svo glæsilega í kvikmyndahúsum sömu plánetu

Svo eru menn að setja út á að Biblíusögur séu kenndar í skólum á meðan öpum er fært pennavald í dag. "Til baka til Biblíunnar" get ég hins vegar mælt með. Hún er það sem gerði okkur að því sem menn keppast nú við að rústa; að Vesturlöndum: þ.e. þjóðir, landamæri, þjóðríki, aðgreining valds, þ.e. takmarkað ríkisvald í stað alræðis úrkynjaðra imperíal-heimsvelda á borð við Sovétríki, Evrópusamband, Egyptaland hið forna og Rómarveldi sem rústaði þjóðríkjum

ÖRBYLGJUR

Engin hitabylgja hefur verið í Evrópu, nema í sjónvarpinu. Það komu nokkrir heitir dagar, en engin hitabylgja. Fremur kalt er í Evrópu núna (þ.e. aðeins 12 til 27 gráður, og 35 í Sahara og 67 stiga frost á suðurskautinu), þ.e.a.s fólki finnst kalt eftir nokkra heita daga. Ég bjó þarna í 30 ár og þekki þá menn ágætlega þegar hitabylgjur geisa, því þá fellur fólk í þúsundum, aðallega fólk sem mjög veikt er fyrir, eins og fólk fellur úr kuldum þegar frostavetrar herja. Þá fá franskir stjórnmálamenn venjulega skellinn fyrir það hversu illa er komið fyrir fimmta franska lýðveldi líberalista á fimmtándu ónýtu stjórnarskrá þeirra. Þetta tekst auðvitað aldrei hjá þeim, því það er ólæknandi þversögn í sjálfu tilvistarplaggi líberalismans. Skattar og meiri skattar kalla á meiri og svæsnari byltingar

Síðustu frostavetrar hafa verið notaðir til að útskýra það viðvarandi vaxtarfall sem er í landsframleiðslu evrulanda. Og núna í sumar hafa stærstu prammarnir ekki getað siglt og flutt vörur um þau fáu siglanlegu fljót sem meginlandi Evrópu hefur, og nýtast því vel til að útskýra króníska evrusjúkdóma þeirra hagkerfa sem neyðast til að nota evru sem mynt. Þarna er allt esb-ónýtt, en veðrinu (loftslags"málum") er hins vegar kennt um

MÆLINGAR

Mælaborð fólks og "stofnana" þess (þ.e. heiðnikirkjuveldi háskólanna) yfir næstum hvað sem er, er nú orðið svo stórt að heimurinn, líkaminn, sálin og næstum hvað sem er, hlýtur að vera að farast hvern einasta dag. Maðurinn hefur nefnilega "fundið upp" eldinn á ný

En það er hins vegar eitt sem ég skil ekki. Þeir sem segjast ekki vilja eignast börn vegna umhverfismála og sjónvarpshlýnunar; Af hverju drepa þeir þá ekki sjálfa sig strax fyrst að þeir álíta að heimurinn sé að farast af mannavöldum og að lausnin sé að fólk hætti að vera til. Það skil ég ekki

Við erum því miður með fjölmiðlastórstétt menntaðra on-linebjána í rifnum gallabuxum sem hannar veruleika bæði stjórnarfars, stjórnmála og veðurfars. Næst fáum við því sennilega það sem menn fengu á hippatímabilinu; sjálfsmorðstrúarhópana

Bankatímabilið virkar nú ljósár af samskonar vitleysu í burtu

a) 2003: Allir biðji: bankar okkar frelsa heiminn

b) 2019: Allir biðji: frelsaðu heiminn með því að hætta að vera til. Gakktu í sýndargöfugmennskuflokkinn og fáðu englavængi (e. virtue signaling)

UNDRALÖND

Þar á undan var það dot com bólan sem átti að frelsa heiminn og gera alla ríka. Og Sovétríkin sem liðu undir lok áttu að fá bandaríska Harward-deild í Moskvu, en fengu bara Rússland. Sá "Rússagaldur" var svo flókinn að það tók menntamenn 24 ár að fatta hann; Rússland var bara Rússland. Verslun við Laugaveg á Íslandi átti að geta orðið stórveldi í Japan, þökk sé netinu, en varð það bara ekki. Það undraland, Japan, hrundi árið 1989 svo hrikalega sem undrahagkerfi af asískri útflutningstegund (frá því að segjast vera 16 prósent af heimshagkerfinu niður í 6 prósent í dag), að hrun þess komst jafnvel á forsíður vestrænna dagblaða þremur árum síðar. Kína gæti verið samskonar-hrunið nú þegar. Og ef svo er, þá kemst það ekki í fréttir hér fyrr en fimm árum síðar, vegna fréttrænna trúarbragða

Náttúrbólan sem hýsir ferðamannabóluna er að springa líka. Þá verður aftur gott að vera á togara eða keyra strætó

UPPGJÖR

Í vikunnu kynnti Amazon fjórðungsuppgjör sitt er segir að vöxturinn sem hefur verið og sem tilkominn var með því að sýna helst aldrei neinn hagnað, sé loks að þrotum kominn og hallandi niður verði brautin úr þessu

Það sem fer upp kemur niður. Loftslagsdellan líka. Gréta Thunberg miðill af Blavatskykyni ku nú vera komin í stellingar við Alpafjöll. Hún segist sjá frumeindir með berum augum. Þar mun hún stara Alpafjöllin niður. Hvað kemur næst, er ekki gott að segja. Loftsteinn gæti fallið í höfuð hennar. Hann er að minnsta kosti náskyldur fjölmiðlum okkar í dag; .. hmm já loftsteinn.. ekki svo slæm hugmynd úr þeim sama heila mannsins sem byggði sér bambuskofa til að verjast síðustu ísöld er entist í 200 þúsund ár

KALT STRÍÐ II

Á meðan loftslagsmiðlar koma ekta fjölmiðlum eins og Séð og Heyrt á hausinn, þá er það Hið síðara kalda stríð (Kalt stríð II (KSII)) sem upptekur huga minn mest, næst á eftir orkupakkaþvælu Sjálfstæðisflokksins sem var. Stríð eru nefnilega spennandi, bæði köld og heit. Þau eru hið eðlilega ástand mannsins. Allir ættu því að endurskoða fjárfestingar sínar með þeim augum að þær verði strategískt KSII-þéttar og arðvænlegar. Sem sagt: Kalt stríð milli Kína og Bandaríkjanna og svo þess non-U.S-alignment svarta-péturssvæðis sem menn vita ekki enn hvert er né hvernig verður. Þarna munu líklega verða til nýjar viðskiptablokkir veraldar

ÍSLAND

Þeir sem hafa ekki lesið einstaklega góða og kristal-skýra grein Arnars Þórs Jónssonar dómara í Morgunblaðinu í dag um orkupakkamál-3, ættu að gera það. Hana má finna hér; Fullveldið skiptir máli

Fyrri færsla

Hófu sig yfir lög og rétt, lugu og ljúga enn


mbl.is Óttast áhrif hitabylgju á Grænlandsjökul
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 27. júlí 2019

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband