Leita í fréttum mbl.is

Orkupakka friðþægingarstefna ríkisstjórnar

Einu varnalegu hagsmunirnir sem Ísland hefur, og getur haft, eru fullveldi og sjálfstæði lands okkar og þjóðar. Undir engum kringumstæðum má draga þessa einu varanlegu hagsmuni Íslands inn á hið pólitíska kauphallargólf glóbalismans, til þess að braska með þá þar. Þess vegna má ekki samþykkja orkupakka ESB, því við börðumst svo hart og lengi til þess að mega vera frjáls frá þeim. Við urðum þjóðfrjáls til þess að mega vera frjáls frá þannig pökkum

Og þar sem við erum svo einstaklega heppin að eiga bandamann sem gerir fullveldi og sjálfstæði okkar verjanlegt, þ.e. Bandaríkin í vestri, þá má enginn samningur hvaða nafni sem hann nefnist -annar en varnarsamningurinn við þau- koma hingað inn og læðast bakdyramegnin að fullveldi og sjálfstæði þjóðarinnar, og stefna hér öllu í varanlegt uppnám. Uppnáms sem leiðir svo til brottnáms fullveldis og sjálfstæðis þjóðar okkar og lands. Akkerisfesti okkar er Nýi heimurinn á Vesturhveli jarðar. Þangað fórum við, settumst að og eigum okkar land

Allir þeir miðhægriflokkar sem nú eru að veslast upp í Evrópu og víðar, eru því marki brenndir að þeir breyttust í flokka líberalista. Franski repúblikanaflokkurinn er dauður vegna líberalisma, breski íhaldsflokkurinn gæti verið að deyja vegna líberalisma, og hið þýska bandalag CDU/CSU er að deyja vegna líberalisma líka. Yoram Hazony, einn fremsti pólitíski heimspekingur Vesturlanda í dag, bendir á þetta hér. Bertel Haarder í Danmörku segir það sama:

"Jeg er ked af, hvis det at være liberal kun bliver forbundet med at tænke på penge og profitmaksimering for aktionærer. For så har vi ikke nogen stor fremtid." Og hann heldur áfram: "Jeg er folkeligt liberal. Jeg er ikke liberalist. Derfor synes jeg også, det har været ærgerligt, når man fra visse sider har glemt samfundsmoralen og glemt, at markedsøkonomien kun er interessant, hvis den skaber glæde og velfærd."

Setulið líberalismans í Valhöll; Þarna hafið þið það!

Þarna hafið þið það frá til dæmis Bertel Haarder í Danmörku. Frjáls viðskipti þýða ekki það að mönnum sé frjálst að eyðileggja lönd og svo heiminn allan. Síðari heimsstyrjöldin var háð til þess að við myndum fá að vera frjáls frá þannig frelsi. Að við séum frjáls frá ágirnd annarra á annarra þjóða löndum og innviðum þeirra. Burt með orkupakkahyski ESB af íslenskri grund. Burt með það!

Andrew Roberts sagnfræðingur var með skemmtilegan og fróðlegan fyrirlestur um Winston Churchill í Hillsdale Collage í Bandaríkjunum í mars í vor. Fyrirlesturinn var um það mikilvæga erindi sem Winston Churchill á við stjórnmálamenn núna - og einkum í dag. Þar segir hann í hjáleið að Churchill (Íhaldsflokkurinn) hafi tapað kosningunum þann 5. júlí 1945, svona hrikalega eins og þeir gerðu, vegna þess að breskur almenningur hafi fyrst og fremst verið að refsa Íhaldsflokknum fyrir friðþægingarstefnu hans fram til 1940. Að það atriði hafi verið helsta orsök þess að Churchill fékk sparkið sumarið 1945, eftir að hafa bjargað hinum vestræna heimi frá glötun. Annar þáttur í tapinu var svo auðvitað sú glýja sem of margir höfðu þá fengið í saklaus augu sín frá sósíalismanum í austri. Það vissi maður vel, en þetta með hitt atriðið, friðþægingarstefnuna, hefur hins vegar ekki farið mjög hátt, og alls ekki hæst

Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að stunda allt þetta og meira til í samfellt 10 ár, viðstöðulaust. Og hann er líka kominn með glýju glóbal-sósíalisma og glóbal-skattpíninga, sem glampað hafa of skært í flestum gluggum Valhallar í meira en 10 ár. Á flokkurinn sér þá viðreisnar von? Það gæti verið orðið of seint. Steinn líberalismans um háls hans gæti hæglega verið orðinn of þungur og sporin of djúp. Of þungur já. Sumir vita kannski enn -þrátt fyrir þokuna á þokubökkum stjórnmála í dag- að líberalismi er vinstrisinnuð stjórnmálakenning og það er allur "Internationalism" líka, eins og SVP-flokkurinn í Sviss -stærsti flokkur þess lands- segir að Sviss verði að forðast hvað sem það kostar. Þið þekkið öll nalla-sönginn og hinn kreppta hefna hans. Hann er um glóbalismann, rauðan, grænan og bláan

Ýtrustu varúðar verður að krefjast af íslenskum stjórnmálamönnum þessi árin. Þýsk stjórnmál eru að leysast upp og bóndinn og sagnfræðingurinn Victor Davis Hanson spyr hvort að Þýskaland sé að breytast í Þýskaland einu sinni enn. Á föstudaginn eftir lokun markaða lækkaði Fitch lánshæfnismat fjármálaflaggskips Þýskalands, Deutsche Bank, niður í aðeins tvö þrep frá ruslflokki og segir að ástand hans sé opið í báða enda, en hins vegar sé óvíst um hvorn endann bankinn fer. En á þýskum bæ hafa menn lagt fæð á Bandaríkin allar götur frá 1871. Mikla fæð. Frönskum stjórnmálum hefur þegar verið kollvarpað og þar logar of margt samtímis, vegna fastfrosinnar efnahagslegrar tilveru Frakklands undir ísjökli Evrópusambandsins

Ítalía er að fuðra upp og er meinuð nánast öll sjálfsbjörg, svo lengi sem hún er í ESB og evru. Bretland stendur í harðri sjálfstæðisbaráttu sem enginn veit enn hvernig mun enda. Það eina sem stendur öruggt, eru Bandaríki Norður-Ameríku, þrátt fyrir allt og þokubakkana mörgu. Báðar deildir þings þeirra virka vel. Forsetaembættið virkar vel og framkvæmir vel. Og dómstólar virka eins og til er ætlast. Stjórnarskráin virkar líka eins og til var ætlast. Enda hógvært íhaldssamt plagg, sem staðist hefur þúsundir árása líberalista

Evrópa gæti hins vegar vel verið að breytast í nýja helvítisholu. Og ef það gerist, þá er fjandinn laus, einu sinni enn. Allt í þeim málaflokki hefst alltaf sem erjur. Og nóg er af þeim í Evrópusambandinu. Það er brennandi hús eins og Jón Baldvin Hannibalsson hefur bent á. Sambandið átti að skaffa hagsæld og frið. Hvorugt hefur því tekist. Þvert á móti

Miðflokkurinn einn stendur fast á Alþingi Íslendinga. Þess vegna er skotið á hann - og af þeim sem ólmir vilja braska með fullveldi og sjálfstæði Íslands

Gunnar er þjóðaríhaldsmaður 

Fyrri færsla

Bara-fyrirvara-forysta Sjálfstæðisflokksins


Bloggfærslur 10. júní 2019

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband