Leita í fréttum mbl.is

OP3: Dularforysta Sjálfstæðisflokksins

ZIL

Mynd: Zil. Moskvu-játningar þingmanna xD hafnar

****

ÞETTA ER AFAR MERKILEGT

Ekki nóg með það að gjá sé milli þings og þjóðar í ESB-einkavæðingar-orkupökkum 1+2+3 (þar sem ESB-orkueinkavæðingarpakkar eitt og tvö voru innanríkismál, en pakki þrjú einnig milliríkjamál) þá er líka fullkomin gjá milli forystu Sjálfstæðisflokks annars vegar og hins vegar flokksmana og kjósenda hans. Hvernig getur slíkt gerst. Gjá ofan í gjá. Aftur og aftur

Og hvernig stendur á því að þetta er í annað skiptið á minna en tíu árum að forysta flokksins neitar að standa á réttindum íslensku þjóðarinnar, og með henni. Enginn kaus forystu flokksins til að ganga berserksgang knúin VG-lofttegund, en ekki kjósendum flokksins. Það er af og frá

Utanríkisráðherrann Guðlaugur virðist vera orðinn grænt grasker með grýlukertum innan í og formaður flokksins er orðinn einangrunarsinni og felur sig inni í skáp fyrir kjósendum. Er þetta forysta flokksins í dag

Á heila þessarar svo kölluðu forystu hafa pólitísk auðkennismál einnig lagt sig þungt, eins og bráðnað kertavax úr grænum graskerum utanríkisráðherrans. Þau eru þessi:

1. Aldur (þeir sem eru á rögnum aldri: afskrifaðir)
2. Kyn (þeir sem eru ekki af réttu kyni: afskrifaðir)

og

3. Metoo
4. Humar
5. Og bráðnandi ísjaki með Bjarna Ben á

Þetta er dálitið merkilegt séð í ljósi þess að til dæmis í Bandaríkjunum eiga og reka þeir sem eru 55 ára og eldri 33 prósent af öllum smærri fyrirtæjum landsins. Þessi tala var 26 prósent fyrir aðeins sex árum síðan, vegna þess að sífellt hlutfallslega færra ungt fólk á og rekur eigið fyrirtæki. Og ekki nóg með það, þá eru 15 prósent af öllum nýstofnuðum fyrirtækjum stofnuð af fólki sem er eldra en 55 ára. Bandaríkin eru svo sannarlega ekki land forystu Sjálfstæðisflokksins, því þar myndi enginn kjósa flokkinn til eins né neins, með núverandi forystu hans innanborðs

Forysta Sjálfstæðisflokksins er greinilega að ganga í sjálfsbjörg Vinstri grænna og orðin þar metoo, með heilan humar í heimamund; þ.e. inn á Hvíldarheimili opinberra starfsmanna í efnahagslegu örorkubandalagi við Evrópusambandið

Styrmir 5 maí 2019

Mynd: Styrmir Gunnarsson í vöfflukaffi hjá Flokki fólksins í dag; um ESB-einkavæðingar-orkupakka3

En hér er til dæmis einn síungur maður sem myndi sæma sér vel sem nýr formaður Sjálfstæðisflokksins; sjálfur Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri í vöfflukaffi hjá Flokki fólksins í dag. Hér má sjá hann flytja erindi og svara spurningum venjulegs fólks:

Síðan hvenær varð það stefna Sjálfstæðisflokksins að þúsund orkufyrirtæki elti sama kílóvattið af rafmagni í orkulandhelgi Íslands? Ég spyr. Var það ekki þetta sem var röksemdin fyrir kvótakerfinu: að þúsund skip eltu ekki sama fiskinn í fiskveiðilandhelgi Íslands? Að allir ynnu ekki við að koma öllum á hausinn og sjálfum sér líka

Sverrir Kristjánsson - 1961 - Rit og blaðagreinar Jóns Sigurðssonar - setur allt sitt traust á alþýðuna - bls liii 53

Mynd: Úr bók Sverris Kristjánssonar 1961. Rit og blaðagreinar Jóns Sigurðssonar

Og þannig er það. Abraham Lincoln hafði það sennilega eftir Jóni Sigurðssyni að Guð hefði sérstak dálæti á venjulegu fólki. "Þess vegna bjó hann til svona mikið af því", sagði Lincoln. Þúkýdídes sagnfræðingur Forn-Grikkja sagði hið sama: e. "ordinary men usually manage public affairs better than their more gifted fellows"

Mikilvægt er að Íslendingar muni þetta

- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

Er Goldman Sachs í orkupökkunum hér eins og í Danmörku ?


mbl.is Veita ekki afslátt af loftslagsmálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 5. maí 2019

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband