Leita í fréttum mbl.is

Ofur-firring Sjálfstæðisflokksins í O3-málinu

Upptaka Alþingis:

Firrtur? Snýst 15 gráður á mánuði, að meðaltali?

****

Ljóst er að Sjálfstæðisflokkurinn er í afar hættulegum félagsskap með forystu flokksins í ríkisstjórn

Haustið 2008 skrifaði Óli Björn Kárason greinina Flokkur í ólgusjó. Hún fjallaði um að Sjálfstæðisflokkurinn ætti við "innri og ytri vandamál" að etja

"Sjálfstæðisflokkurinn á við innri og ytri vanda að glíma. Takist flokknum ekki að leysa vandann er líklegt að hann verði ekki lengur stærsta og áhrifamesta stjórnmálaafl landsins. Staða flokksins hefur aldrei, á síðari tímum, verið viðkvæmari og erfiðari. [...] Ef sjálfstæðismönnum (?) auðnast ekki að leysa þau vandamál sem blasa við getur flokkurinn átt á hættu að verða dæmdur í pólitíska útlegð með svipuðum hætti og breski Íhaldsflokkurinn. Vandi Sjálfstæðisflokksins er hins vegar í nokkru meiri en breskra íhaldsmanna, þar sem forystumenn hans hafa alið við brjóst sér pólitíska nöðru í mynd Samfylkingarinnar." (spurningarmerki GR)

Þetta er ekki úr bókinni Þeirra eigin orð, eftir Óla Björn Kárason 2009. Nei þetta er úr grein Óla Björns Kárasonar í Þjóðmálum árið áður. Og upptakan af Bjarna Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins á Alþingi Íslendinga, hér fyrir ofan, er frá því í mars í fyrra. Hér er kannski komið efni í nýja bók, Þeirra eigin orð II, framhald af fyrri orðum eins og til dæmis þessum:

"raforkumál Íslands eru ekki innri-markaðsmál ESB"

- Bjarni Benediktsson á Alþingi Íslendinga, 22. mars 2018

Í dag er hins vegar árið 2019. Ellefu ár eru liðin. Og Óli Björn er orðinn "innri vandi" og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem elur nú við brjóst sér pólitískt perverta nöðru í mynd Vinstri grænna. Í gær sagði formaður Vinstri grænna - og forsætisráðherra - á Alþingi Íslendinga, að hún í Kremlar- og Pekingstíl sovétlýðvelda, vildi leyfa konum að ráða því sjálfar hvenær á meðgöngu þær eyddu fóstrum beggja foreldra fram að fæðingu. Sá flokkur hefur að minnsta kosti aðskilið sig algjörlega frá Kirkju, það má hann eiga. En þó ekki enn frá ríkinu sjálfu, því allur flokkurinn lifir á því og mergsýgur. Og það var einmitt það sem flokkar á meginlandi Evrópu gerðu á fyrrihluta 20. aldar. Þeir aðskildu sig og ríki sitt frá Kirkju. Því fór sem fór og 70 milljón manns létu lífið, plús hundrað milljónir manna í viðbót, í fyrrum dásemdarríkjum vinstri heiðni á borð við þá sem forsætisráðherra Íslands boðar í ríkisstjórn, saman með hinum innri vanda Sjálfstæðisflokksins

Já. Ég vissi þetta með "innri og ytri vanda Sjálfstæðisflokksins". En ég vissi hins vegar ekki að hann fælist í því að flokkurinn væri enn á lífi

Og ekki nóg með það. Formaður Sjálfstæðisflokksins snýst eins og skopparakringla um þau grundvallarmál sem skipta íslensku þjóðina ofboðslega miklu máli - og Óli Björn og allur þingflokkurinn snúast með. ESB-orkupakka þrjú ætlar allur sá þingflokkur hins innri vanda Sjálfstæðisflokksins, og með offorsi, að troða niður um kok þjóðarinnar. Já, íslenskrar þjóðar sem á allt raforkukerfi landsins eins og það leggur sig, byggði það upp líka og oft með berum höndum

Nú þegar Björn Bjarnason á Andrómedu skrifar um firru, þá segi ég, að ljóst er orðið að firran í þing- og forystuliði Sjálfstæðisflokksins er orðin fullvaxin pólitísk risanaðra, sem hefur kyrkingartak um háls, hendur og fætur bæði forystu og klappliðs þriðja orkupakkaflokks xD. Nema að þarna séu hálstök óligarka á ferðinni, sem þó væri enn verra, en samt skiljanlegra fyrir órofið fólk úr frumuklasa hins ytri vanda Sjálfstæðisflokksins, sem kallast kjósendur

Hver er með slíkt yfirþyrmandi firringarvald yfir flokksforystu Sjálfstæðisflokksins? Og hvor firrt flokksforysta flokkanna tveggja skyldi örendast fyrr í baráttu þeirra gegn þjóðum sínum: Sjálfstæðisflokkurinn eða Breski Íhaldsflokkurinn? Sá danski er nefnilega sannarlega dauður nú þegar, því ég horfði á hann deyja. Ég er meira að segja með sjálft dánarvottorðið í mínum fórum

Óli Björn Kárason - nú hinn innri - endaði síðan pólitíska greiningu sína á Sjálfstæðisflokknum á þessum orðum, árið 2008 (e.Kr):

"Sjálfstæðisflokkurinn stendur á krossgötum og glímir við innri og ytri vanda. Hvernig forystumönnum og liðsmönnum flokksins tekst að leysa vandann getur haft gríðarleg áhrif á þróun íslenskra stjórnmála og þjóðfélagsins alls. Hagsmunirnir sem eru í húfi eru miklir og þar skipta hagsmunir Sjálfstæðisflokksins minnstu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur á síðustu áratugum verið kjölfesta í íslenskum stjórnmálum og ef sú kjölfesta brestur getur þjóðfélagið allt skaðast."

Naðra var það lagsmaður. Naðra

- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

Finnland: Mikil mistök að taka upp evru


Bloggfærslur 14. maí 2019

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband