Leita í fréttum mbl.is

Kjarasamningar: Fælnimáttur virkaði á sósíal óligarka

NATO 70 ára: var stofnað til að 1) halda Rússlandi úti úr Evrópu, 2) Bandaríkjunum inni og 3) Þýskalandi niðri á jörðinni

Floti 8-hreyfla B52 frá Barksdale í Louisiana tók sér stöðu í Fairford í Bretlandi um daginn og æfðu, sem takkk fyrir síðast, kjarnorkuvopnaárás á Rússland, að sögn N.I.

****

ÍSLAND

Það eina sem vantaði til að fullkomna myndina voru bjórslettur á gólfið í Stjórnarráðinu, til af fá út myndina af Downingstræti 10 á valdatímum Verkamannaflokksins og Wilsons. Það eina sem bjargaði Íslandi í kjarasamningum við sósíal óligarkaveldi verkalýðshreyfinga, akademíkera og embættismanna, var fælnimáttur Skúla Mogensen, sem lenti einu stykki grænmáluðu kjarnorkuvopni inn á stofugólf sósíalistans Bjarna Benedikssonar og grænmyglusósíalistans Katrínar Jakobsdóttur. Ég tel Framsókn ekki með í þessu þríeyki social-sósíalista því hún er týnd, finnst hvergi og enginn virðist sakna hennar

Þetta vopn virkaði. Fælnimáttur (e. deterrence) er það eina sem gildir, og þess vegna æfðu Bandaríkin kjarnorkuvopnaárás á Rússland frá norðurheimskautsbaugi suður að Sahara í síðasta mánuði; sem takk fyrir síðast!

Hefði Skúli ekki lent vopni sínu inn á bjórgólf ríkisstjórnar og sósíal óligarkaveldis verkalýðshreyfinganna og akademíkera, þá vær Ísland í enn verri málum en það er í dag. Þetta skipti öllu máli og rotaði óligarkaveldið það mikið, að snertur af jarðsamandi sást langa leiðir að sem blár blossi, og ríkisstjórnin gat því látið sér nægja einn bleyjupakka á sjálfa sig þann daginn, og auðvitað á kostnað skattgreiðenda; sem eru launþegar; og sem allir vinna hjá fyrirtækjum; nema þeir sem vinna við útblásið ríkið og bæinn á bænum. Einu tekjur ríkis og bæja og einu tekjur allra í þjóðfélagi Íslendinga (sem er ekki "samfélag" heldur þjóðfélag) koma frá atvinnustarfsemi. Engar aðrar tekjur eru til. Engar!

Þessu vesalingaveldi tókst þó samt að útópíast þannig að Seðlabankanum var hært út í köku þeirra, verðbólgumælingum meira að segja líka og næst verður það líklega sjálf Veðurstofan sem "leiðrétta" á kuldamæla sína. Af hverju var sósíal óligarkaveldi verkalýðshreyfinga, og samtvinnuðum hauslausum akademíkerum, ekki bara afhentur lykillinn að Stjórnarráðinu sem þá yrði alvöru stjórnarrán. Hvað með að sinna hlutverki ykkar á Alþingi og semja ný lög um verkalýðshreyfingar, þrælahaldsaðild launþega að þeim og fjármál þeirra. Hvað með að losa launþega úr ánauð sósíal óligarkaveldi verkalýðshreyfinga og akademíkera. Hvernig væri það? Allir sjá að þetta sósíal óligarkaveldi og kúlakkaumsátur gengur ekki lengur. Og til að kóróna klikkunina þá kom einn sósíal óligarkinn af heilögu kvenkyni í viðbót og lýsti því yfir að einn maður ætti varla að geta komið svo mörgum mönnum í vinnu, frá vinnu eða borgað henni launin hennar. Hvernig í andskotanum gátu hálærðir Íslendingar á kostnað skattgreiðenda orðið svona forheimskir? Og það jafnvel lektor við "viðskiptadeild" Háskólans í Reykjavík, sem er að breytast í ruslahaug. Af hverju er þessi kona ekki rekin fyrir þvælu sína eins og hinn sem var rekinn fyrir sína þvælu. En það verður auðvitað ekki gert og ætti heldur ekki að geta gerst. En gerðist þó samt. Skólinn er enn einn Kremlarkastalinn í Austur-Berlín Reykjavíkur í viðbót, eins og DDRÚV. Heilastappa

NATO 70 ÁRA - OG ÍSLAND

Hin evrópska kvöldverðar- og lágvarðadeild NATO á Íslandi hélt að sjálfsögðu upp á 70 ára afmæli hernaðarbandalagsins í gær. Guðlaugur Þór utanríkis talaði um "gildi" NATO frá öðrum stað og vestar, en auðvitað ekki um getu þess. Sem sagt "gildi". Hvaða "gildi" hafði þá vopn Skúla í WOW, Guðlaugur minn kæri? Kannski sósíalistískt fís-gildi eins flest sem kemur frá alkalívirkninni í öllum áður föstum efnum Valhallar, þessi ár fjölbreytts-þvaðurs þar á 22 prósent-smábæ Bjarna (e. diversity). NATO hefur ekkert "gildi" ef vopnin og mannskapinn vantar. EKKERT! Viltu ekki bara vinsamlegast halda áfram að borða súpuna þína Guðlaugur, og reyndu nú að slefa ekki eins mikið og Bjarni, sem þarf orðið nýjan smekk á tveggja tíma fresti

Af hverju hafið þið dæmt okkur Íslendinga sem verandi svo mikla aula og vesalinga að við með okkar eigin orrustuþotum hins íslenska varnarliðs getum ekki stuggað óboðnum gestum burt úr loftrými Íslands, og handhafið þannig fullveldi okkar með fasta og strategískt hyldjúpa baktryggingu í Washington DC, í stað þess að því sem næst ESB-gjaldþrota Ítalir voru látnir um það, nú síðast fyrir nokkrum dögum. Hugsið ykkur hversu öflug lyftistöng það yrði fyrir þjóðfélag okkar Íslendinga að reka okkar eigin loftvarnarvaktstöð. Hugsið ykkur tæknikunnáttuna og spin-off áhrifin sem slíkt hefði fyrir okkur. Við myndum finna upp nýjungar eins og við gerðum í síldveiðum og gerum í sjávarútvegi í dag, og gefa heiminum nýjungar í varnarmálum og afleiðum þeirra. En einmitt þau hafa knúið tækniframfarir á Vesturlöndum öldum saman. Hvar eru tvö prósentin okkar í NATO, Guðlaugur Þór? Með þessu fyrirkomulagi myndi varnarsamningur okkar og Bandaríkjanna endurnýja sig sjálfur, hvort sem NATO væri enn á lífi eða ekki, sem er langt því frá öruggt. Við myndum leggja okkar að mörkum, og eitthvað annað en mest betl. Allir hugsandi menn vita að það er eingin afsökun til fyrir þessu lengur. Við erum fossrík þjóð, en værum það ekki án aðkomu og tækniyfirfærslugetu Bandaríkjanna, því án verndar þeirra væri hér engin stórvirkjun né risavaxnar erlendar fjárfestingar keyrandi á fullu og malandi gull hvern einasta dag ársins við atvinnu- og verðmætasköpun úr fallvötnum okkar, og sem þið vesalingar í Valhöll ætlið svo bara að depónera í orkupakka fangageymslur Brussels til einskis! Eruð þið virkilega svona miklir aular. Virkilega? Það er varla að þið látið okkur geta rekið Landhelgisgæsluna og Lögregluna í landinu okkar. Þið sóið verðmætum í fís. Og þið notið að allt of miklu leyti ólaunaða sjálfboðaliða við björgunarstörf. Hvað er að ykkur?

NATO var stofnað til að halda Rússlandi úti úr Evrópu, Þýskalandi niðri á jörðinni í Evrópu, og Bandaríkjunum inni í Evrópu. Í skjóli NATO reistu kvöldverðadeildir Evrópu sér eitt stykki Evrópusamband sem er að enda, eins og allt annað evrópskt. Án NATO hefði Evrópusambandið ekki getað orðið til, og er ESB þess vegna að enda. En NATO mun þó sennilega lifa áfram í sinni upprunalegu mynd, á einn eða annan hátt, því stofnun þess er óháð stjórnmálum hverju sinni, sérstaklega bananastjórnmálum Evrópusambandsins

Rússland undir Zar, undir aðalritara kommúnisma, undir Pútín og þess vegna undir rússneskt algóðum forsætisráðherra, er alltaf eins, og breytist ekkert. Þar breytist ekki. Takið vinsamlegast eftir; Rússland breytist ekki. Og Þýskaland verður áfram Þýskaland eins og sést. Við fyrsta nýja tækifærið sem því gafst er það nú þegar byrjað að berja á nágrönnum sínum og heimsálfunni allri. Það er komið í slagsmál við ríki Austur-Evrópu vegna glæpsamlegs framferðis Angelu Merekls kanslara í til dæmis innflytjendamálum. Þýskaland, með Evrópusambandið í rassvasanum, kúgar á ný ríkin í austri til hlýðni í dóms og réttarfarsmálum. Þýskaland er strax komið í efnahags- og fjárhagsleg slagsmál við ríki Suður-Evrópu og hefur sett sum þeirra í skuldafangelsi. Og það á einnig í slagsmálum við Bretland vegna brexit. Þýskaland er sem sagt komið í slagsmál við alla á ný og það tók ekki nema tæplega 30 ár. Það sama gildir um Rússland sem er byrjað að gúffa nágranna sína í sig, til þess að geta endurreist sovétríkið í einni eða annarri mynd

Bandaríkin eru að miklu leyti komin út úr Evrópu, en samt ekki alveg. Þau eru það eina sem kemur í veg fyrir stóráhlaup á álfuna úr austri og suðri og öllum áttum þar á milli, suðaustri líka. Þess vegna var Rússlandi sýndur bandaríski hnefinn sem "takk fyrir síðast" í síðasta mánuði, með því að æfa kjarnorkuvopnaárás B52 flota Bandaríkjanna á Rússland. En það hafði Rússland einmitt gert stuttu áður. Það æfði kjarnorkuvopnaárás á Evrópu. Það eina sem Rússland skilur er grjótharður hnefinn. Og þökk sé Þýskalandi, sem mjög svo líklega er komið á band Rússlands á ný, einu sinni enn, hafði slíkt í langan tíma ekki verið gert fyrr en nú, eftir að Donald J. Trump settist í stólinn og batt enda á Wilsonian bjórslettupólitík Barack Obama í öllum-málum

Hvað er NATO

Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur um NATO og svo kallaða "bandamenn" okkar austur í Evrópu

Fyrri færsla

Sjálfstæðissinnar funduðu með forseta Íslands. Strategika nr. 57 komin út


Bloggfærslur 5. apríl 2019

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband