Leita í fréttum mbl.is

"Einangrunin" loksins rofin á orkupakkafundi [u]

***

ÓHEILLINDI

Hið rétta nafn er einkavæðingarpakkar ESB (d. liberalisering/privatisering). Orkupakkar er rangnefni. Enginn í Brussel ætlar að framleiða neina orku. Þetta eru einkavæðingarpakkar, aðeins: Sjá athugasemdir. Hugtakið orkupakki er hvergi notað í Danmörku yfir þetta mál

****

LOKSINS

Jæja. Sjá viðtengda frétt Morgunblaðsins neðst. Loksins kom að því að "einangrunin" var rifin af alþjóðakaplinum, sem samkvæmt ritstjóra Fréttablaðsins umlykur sem einangrunarhyggja okkur þá Sjálfstæðismenn sem segjum nei við orkupakka3. Og sjá: öll meint einangrun okkar var því skyndilega rofin. Hún bara hætti, þökk sé einum fundi í gær. Mundar ritstjórinn penna sinn sérstaklega á þá Sjálfstæðismenn á borð við Styrmir Gunnarsson, sem voru stofnaðilar að NATO, sem gengur út á að einangra okkur frá óvinum. Já þarna kom Lord Voldemort-orðið fyrir aftur: EINANGRUN!

Með NATO var einangrun lögð umhverfis (nei nei, ekki þannig umhverfis) okkur, og sem einangrar okkur frá óvininum. Rússlandi var þannig haldið úti úr Evrópu, en Bandaríkjamönnum inni og Þjóðverjum á jörðu niðri. Þetta er sjálfur stofntilgangur NATO. Hann er ekki flóknari en þetta

En er þetta þá ekki hin skelfilega og prinsippfasta einangrunarstefna sem ritstjórinn lýðskrumast umhverfður út í í skrifum sínum? Jú jú. Þetta er hún. En það var að sjálfsögðu allt allt öðruvísi mál með Alþjóða kommúnismann. Hann var nefnilega svo góður að hann einangraði allar þjóðir jaðrar frá ríkidæmi þeirra. Einangraði alla frá auði til fátæktar og var því ekki manndrápsorð, heldur gæluorð góða fólksins

KALT STRÍÐ

Hér heima hefur einangrun húsa einnig verið framkvæmd, gagnvart kulda. Kuldinn er læstur úti og því ekki hleypt inn. Þannig er okkar eilífa kalda stríð hér í landi. Okkar eigið kalda stríð sem við alveg ein og sjálf höfum háð og farið með sigur af hólmi í. Það gengur út á að halda í okkur lífinu. Annars staðar gengur einangrunin út á að halda hitanum úti, svo að fólk deyi ekki úr hita inni í híbýlum sínum

Varla vill ritstjóri Fréttablaðursins rífa alla þessa einangrun af eins og gerðist á opnum fundi Sjálfstæðisflokksins í gær. Þar héldu orkupakkamenn að þeir væru í skjóli og einangraðir frá alþjóðlegum skríl, sem hæglega gæti verið alþjóðlegir hryðjuverkamenn, undir vernd fábjána á launum frá skattgreiðendum, án þess að stjórnvöld sem engu stjórna viti neitt sérstakt af eða á um það. Íslenskum skattgreiðendum er gert að halda þessu gerpitrýniliði uppi svo að stjórnmálamenn okkar þurfi nú ekki að selja aflátsbréfin sín. En það eru þau bréf sem ganga kaupum og sölum á hinu alþjóðlega pólitíska kauphallargólfi, þar sem formaður Sjálfstæðisflokksins er kominn í viss vandræði vegna spilafíknar

FUNDURINN MIKLI

En á þennan svo kallaða "orkupakkafund" komu Þórdís Kolbrún iðnaðarráðherra og Guðlaugur Þór utanríkisráðherra, íklædd sjálfsmorðssprengjubeltum alþjóðlegrar hryðjuverkahreyfingar glóbalista og ætluðu að sýna fundargestum hvernig sprengja mætti einangrunina utan af raforkukerfi Íslands, þannig að útleiðsla gæti hafist. Orkupakkar 1+2 gengu nefnilega útá innanríkismál, en ekki milliríkjamál eins og orkupakki-3 gerir. En það er vegna orkupakka 1+2 að raforkuverð hefur ekki enn lækkað í kjölfar stærstu fjárfestinga Íslandssögunnar, eins og það átti að gera, því stærstu útgjöld Landsvirkjunar eru vaxtagreiðslur, vegna fjárfestinga í raforku okkur til handa, og sem er bein afleiða stórrekstrar og risavaxinna fjárfestinga í orkufrekri vinnslu hráefna, til verðmæts útflutnings frá Íslandi. Milljón tonn á ári, takk! Orkuverð átti að lækka í kjölfar þessara framkvæmda, en gerði það auðvitað ekki, heldur hækkaði það vegna orkupakka 1+2. Það kostar nefnilega að búa til bákn sem eyðileggur í stað þess að gera gagn og varðveita einfaldleikann og möguleika til hagræðingar í okkar þágu, en ekki í þágu annarra. Það er það sem orkupakkar 1+2 gengu útá: þeir eru í þágu annarra. Ekki okkar. Við höfum ekkert með þá að gera. Þeir eru Brusselskór til að pissa í

FALL-HLÍF

Einhverra hluta vegna hefur formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, haldið sig í mikilli fjarlægð frá þessum tveimur burðardýrum orkupakka-3. Hann veit nefnilega hvað er í þessum orkupökkum Evrópusambandsins, og sagði meira að segja óvart? frá því á sjálfu Alþingi okkar Íslendinga, sem er æðsta stofnun íslenska lýðveldisins. Sjáið hann segja það hér. Sumir segja að sú stofnun, Alþingi, sé jafnvel æðri alþjóðlegum skríl og DDRÚV, sem er burðardýr Richards Attenborough, alveg eins og páfar höfðu líka sín burðardýr á öldum áður, og voru bornir um hinn þá þekkta heim í hásætum sínum, hvert sem þeim til hugar kom að veifa annarri hendinni. Þannig er veldi lofthitasinna orðið. Það er orðið nýtt páfaveldi. Og allir hneigja sig þegar nýPáfinn lætur svo lítið að lenda flugvélum sínum til að tala til lýðsins ofan af fjallinu. Al Gore var bara amatör. Hann var ekkert miðað við BBC

Efast ég þó um að Alþingi sé æðst miðað við þyngdina á sjálfsmorðssprengjubeltum Þórdísar og Guðlaugs. Þau belti virðast öllum málum æðri og breyttust því auðvitað í heilt svitabelti þarna á fundinum. En þegar xD-flokkurinn okkar springur í loft upp þeirra og formannsins vegna, þá ætlar formaðurinn þó að hafa sína fallhlíf á þurrum stað, einangraða frá áhrifamætti pakkans

HANN HEFST

En sjá. Já sjá: Á hinn opna og óeinangraða fund komu líka afurðir hinnar "alþjóðlegu samvinnu" um mannlegt óeðli. Þarna voru sem sé komnir landflótta Íslendingar sem misst höfðu aleiguna í síðasta hruni til að biðja um orðið. Hmm, var það ekki. Nei það var víst ekki þannig, því þeir haga sér ekki svona í þeim löndum sem þeir flúðu til

Nei, það voru sannarlega ekki þeir, því hér var nefnilega kominn sjálfur Glóböllur Alþjóðason, hvorki meira né minna, og friðlýstur alþýðlegur "fjárfestir" og sem var gjaldkeri Samfylkingarinnar í ESB, sem sagaði af sér og er nú hugarburðarsérfræðingur. Hann sér væntanlega stór tækifæri í því þegar að Landsvirkjun og allt raforkukerfi Íslands verður bútað niður í bita og "selt" vegna meira og minna þvingaðrar einkavæðingar frá hallarsölum Brussels, á burðarstóli. Já allt selt þeim sem kalla sig erlenda fjárfesta, sem er sérstök yfirtegund af Glóbelli Alþjóðasyni, þar sem orðið "erlendur" er notað til að undirstrika alvarleika og gæði málsins. Þið þekkið jú bankapakka-1. Erlendur erlendur

"SIT DOWN" SYNDA-RÓM

Á fundinn var sem sagt kominn bæði innlendur og erlendur fjárbrestur. Fundurinn varð því vegna tveggja til þriggja alþjóðlegra skrílsmanna að sjálfsögðu að fara fram á ensku, vegna þess að fundarstjórinn hrökk á sjálfskiptingunni í enska postulínið, sem alþjóðahlandkoppurinn á stofuborðinu er gerður úr. "Sit down, sit down, sit down" slagorðið var því hrópað fundinn út og inn. Er þetta ekki yndislegt? Við erum loksins komin með. Húrra! Litla Ísland okkar er loksins orðið aðili að elítusamfélagi öreiganna. Hinn alþjóðlegi postulínshlandkoppur sem Matthías ritstjóri hataði svo heitt, er kominn upp á sófaborðið og meira að segja í hásætið, því hann er nebbnilega frá útlöndum. Gefum þeim virkjanir þjóðarinnar! Gefum þeim orkuna okkar! Gefum þeim undirstöður Íslands! Gerumst leiguliðar í okkar eigin landi! Það er langsamlega best. Burt með auðvald okkar yfir eigin málum. Burt með auðvald okkar yfir því sem er okkar, en ekki þeirra. Og svo eru það allar hitaveiturnar maður, sem breytt verður í kuldaveitur

SAMA OG SÍÐAST

Hvað betra getur verið til í þessum heimi en að húka sem óeinangraður leiguliði í óeinangruðum kumbalda í köldu landi sem forfeður okkar byggðu upp, en ekki niður. Upp með braggana og niður með einangrunina. Brjótum alla múrana sem múrarar okkar byggðu. Já okkar múrarar. Opnum landamærin. Hleypum Glóbelli inn og burt með þjóðfélagið. Í askana með allt vit. Kæru landsmenn: vinnið vinsamlegast við akkúrat ekki neitt fyrir rafmagnsreikningnum. Sprengið beltin!

Og sjá: Upphlaup á fundi Sjálfstæðisflokksins (sit-down)

Til þeirra Sjálfstæðismanna sem voru á fundinum með Guðlaugi Þór og Þórdísi Kolbrúnu í Valhöll, sem og annars staðar, segi ég eftirfarandi: Þetta eru nákvæmlega eins fundir og Benedikt Jóhannesson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir héldu. Þar sem landsalan á Íslandi var messuð yfir saklausum Sjálfstæðismönnum. Það er ekkert að marka það sem þau tvö sögðu, að minnsta kosti ekki fyrir okkur Sjálfstæðismenn, né neina aðra. Trúið ekki orðum þeirra

GRUNNUR ALLS [uppfært]

Strategísk og hugmyndafræðileg stjórnmálafærslu-forysta Sjálfstæðisflokksins, sé hún til, og sem sést alls ekki að sé til, verður að gera sér grein fyrir því að í 20 stærstu ríkjum Evrópusambandsins hefur stjórnmálaflokkum á þingi fjölgað úr 160 árið 2008, og upp í 173 flokka árið 2012. Og þaðan upp í 186 flokka árið 2017, og fjölgar enn, mjög hratt. Þrúgur reiðinnar vaxa þar svona hratt. Pólitísk áhætta í Evrópu er orðin svo mikil að þar vill helst enginn þurfa að vera, sem kemst af án þess að vera þar. Og við kæmumst vel af án ESS-samnings sé út í það farið, vegna þess að við erum fullvalda og sjálfstætt ríki

Það eru þessi 20 ríki sem ég tel þarna hins vegar ekki. Þau eru ófullvalda og ósjálfstæð svört framtíð fyrir einum of margt fyrir okkar smekk, og Bandaríkjanna líka, sem óttast að þurfa að verja það sem er að verða algjörlega óverjanleg og stjórnlaus stappa ósjálfstæðra ríkja, þar sem reiðin dafnar og stigmagnast. EES-samningurinn átti aldrei að verða þessi gildra sem þið eruð að kynna og reyna að troða ofan í okkur. Hann er orðinn of dýr aðgöngumiði að mjög svo versnandi mörkuðum og farinn að líkjast gildru. Slíkt kæruleysi getum við ekki leyft okkur. Við verðum að halda möguleikum okkar opnum, en ekki lokuðum inni í skáp í Brussel. Út með orkupakka3. Við höfum ekkert með hann að gera. Nákvæmlega ekkert, og það vitið þið vel

BINDISKYLDA HUGANS

En það sem þið hins vegar virðist ekki vita er það að þið í Valhöll eruð að orðin það sem á ensku heitir vested interests. Og þær eru alltaf plágur fyrir allar framfarir. Þær hrópa sit down á frjálsa menn. Evrópusambandið er ekki að hugsa um Ísland, en það eru þið sem eruð með Evrópu á heilanum. Evrópa getur um ekkert hugsað annað en sjálfa sig, því hún er svo illa stödd og í svo mikilli hættu. Þar bíða lönd í næstum heilt ár eftir því að ríkisstjórn í stærsta landi sambandsins bara fæðist. Þetta stjórnleysi mun bara versna og versna og það mun koma að uppgjöri. Og Bretland er bless, fyrir þá, en ekki okkur

AÐVÖRUN

Þið verðið að vita að geopólitískar staðreyndir heimsálfunnar Evrópu og þar með Evrópusambandsins líka, eru bæði í andstöðu og mótsögn við tilvist frjálsra lýðræðisríkja í þeirri álfu. Þetta hefur aðeins marist og rétt svo hafst með aðstoð Bandaríkjanna fram til þessa. Evrópa, en ekki Ísland, stendur á krossgötum. Það erum ekki við, heldur þeir. Við erum allt annað en meginland Evrópu. Allt annað, eins og Matthías sagði líka. Og staðreyndir eru þrjóskar

- Gunnar er Þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

O3: Það er þetta sem Bjarni Ben þarf að gera; taka stjórnina!


mbl.is Upphlaup á fundi Sjálfstæðisflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. apríl 2019

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband