Leita í fréttum mbl.is

Fjárnám á evrusvæðinu

Fæðingar- og erfðagallar myntbandalags Evrópusambandsins. The Economist desember 1996

Aðvörun 14. desember 1996

Björn Bjarnason skrifar í dag um að uppnám sé á evrusvæðinu vegna nýrrar rannsóknar á því hvað sameiginleg mynt hafi þýtt fyrir þau lönd sem hve lengst hafa verið með evru sem sameiginlega mynt- og peningapólitískt verkfæri. Evran er nefnilega ekki bara sameiginleg mynt eða myntbandalag, hún er peningapólitískt verkfæri umfram allt annað; og fjárnámsverkfæri í tilfelli ESB, samkvæmt þessum rannsóknarniðurstöðum. Á ensku heitir myntbandalagið Economic and Monetary Union og er skammstafað EMU. Það er þriðji og síðasti fasinn í ERM (e. European Exchange Rate Mechanism). Þriðji evrupakkinn, ef svo má að orði komast, er því allt annað en annar-evrupakkinn, ERM II. Ekkert þeirra landa sem eru með í rannsókninni gekk í EEC, eða Evrópubandalagið-EB á sínum tíma, með það fyrir augum að það bandalag myndi verða að Evrópusambandi sem krefðist upptöku evru, eða þriðja evrupakkans. Þannig gengur allt fyrir sig í þessu sambandi, sem forsætisráðherra Danmerkur sagði að væri dauð hugmynd árið 1986. Danir þyrftu því ekki að óttast að EB yrði nokkurn tíma að ESB eða neinu sem líktist union

Yfirskriftin sem Björn velur er hófsama útgáfan af því sem gerst hefur, því að um fjárnám hefur verið að ræða. Fjárnám (rán) þar sem til dæmis Frakklandi hefur blætt það mikið út, samkvæmt rannsókninni, að blóðmissir þess svarar til 3,5 sinnum þeirrar blóðgjafar sem Austur-Þýskalandi var veitt til að forða því frá úrkynjunaraldauða kommúnismans, eftir hrun Berlínarmúrsins frá austri til vesturs. Um er að ræða næstum eina og hálfa landsframleiðslu Frakklands í blóðgjöf. Fyrir Ítalíu er staðan enn verri samkvæmt rannsókninni. Blóðtap Ítalíu svarar til þess að hún hafi verið þvinguð til að endurreisa Austur-Þýskaland rúmlega fjórum sinnum og tapað við það rúmlega tvöfaldri landsframleiðslu sinni

Athugið að fyrir Austur-Þýskaland hefur billjón evru stuðningur frá Vestur-Þýskalandi litla sem enga þýðingu haft. Austur-Þýskaland er ennþá krónískt aðeins um 60-75% af landsframleiðslunni á mann í vestri, og enn er peningum pumpað frá vestri til austurs. Sama vonlausa dæmi gildir einnig um yfirfærslubandalag (þ. transfer-union) Norður-Ítalíu með Suður-Ítalíu í meira en 100 ár. Suður-hlutinn er samt sem áður ennþá eftir 100 ára yfirfærslur frá norðri á skallanum, með 30 prósent krónískt atvinnuleysi, félagslegar hörmungar og efnahagslegt sjálfsofnæmi. Suður-Ítalía tilheyrir því enn Norður-Afríku, nema á pappírnum

Ástæðan fyrir því að niðurstöður þessarar rannsóknar eru birtar núna, en ekki fyrr, því þetta mál hefur varla mátt ræða síðustu 30 árin, allt frá drukknunardögum Evrópu í forvera evrunnar sem heitir ERM, er þessi; Þar sem kosningar til hins fullsovéska ESB-gúmmístimpils-þings í Strassborg eru framundan, þá á þetta rannsóknar-plagg að þjóna sem "debatt-innlegg" í umræðuna um; 1) að af því að sjálft Evrópusambandið og evran virka alveg þveröfugt við það sem sagt var, þá á að nota þetta til að "umbæta" (e. reform => vertu eins og ég) Evrópusambandið, eins og þegar Sovétmenn sóttu sér í neyð nýjan Perestroika-árgang af sósíalisma niður í vínkjallara Marxismans. Sóttu sér einungis nýja flösku undir sama gamla eitraða sullið: þ.e. Perestroika og Glasnost; sem hefði náttúrlega aldrei virkað hið minnsta, nema fyrir rússnesku valdastéttina eina. Það sama er að gerast í ESB með evru og hinn "innri markað ESB", sem er mýta

Og svo er þessi rannsókn einnig birt núna vegna þess að 2) Trump hefur séð í gegnum Þýskalands-trixið sem verandi gengisfalsari (uppfyllir öll fjögur skilyrði bandaríska þingsins fyrir því að fá á sig stimpilinn "gengisfalsari" eða e. currency manipulator), þar sem hið innra ójafnvægi innan ESB og evru og svo út á við líka, er svo hroðalega svæsið að Þýskaland er með 9 prósent current account hagnað - á kostnað annarra landa. Og þar sem Þýskaland felur sig (e. stealth) með því að segja að það sjálft geti ekki gert neina viðskiptasamninga við önnur lönd (að það sé Brussel sem geri það fyrir Þýskaland) þá er það eina sem Bandaríkin geta gert, er að setja landamæratolla á Þýskaland og þeir eru á leiðinni. Þessari skýrslu er ætlað að vera sungið upp í Trump til að reyna að sannfæra Bandaríkin um að eitthvað sé verið að reyna að gera í málinu. Sem verður auðvitað aldrei gert, því það er ekki hægt, - nema með því að gera ESB að Íslandi með eina þjóð í einu þjóðríki, með eina mynt sem vinnur fyrir eina þjóð, en ekki gegn henni sökum þess að hún væri mynt annarrar þjóðar. Mörg ólík ríki með 1500 ára sjálfstæða sögu, trú, örlög og tungumál hvert fyrir sig, spyrt saman sem pár á pappír, geta aldrei orðið Ísland

Því fyrr sem þetta stórslys fyrir Evrópu endar, því betra: þ.e. áður en að sjálf tilvist Evrópusambandsins startar nýrri styrjöld í Evrópu - sem hún er að gera: Þar verður ESB-mönnum líklega stillt upp við vegg og þeir teknir af lífi fyrir að hafa fætt af sér stærstu og verstu efnahagslegu örkumlunar dómsdagsvél mannkynssögunnar á friðartímum. Tímum sem eytt var í að örkumla lönd með tilvist ESB og evru, í stað þess að læra af sögunni og haga sér í samræmi við lærdóminn af Síðari heimsstyrjöldinni, sem vannst fyrir tilstuðlan bandalags sjálfstæðra og fullvalda ríkja. Það eina sem krafist var af löndum Evrópu eftir þann hildarleik, var að þau höguðu sér eins og venjuleg og ábyrg ríki, en ekki ein samsteypt þvæla í einni ESB-klessu sem hrækir í dag á höndina sem bjargaði þeim, tvisvar!

****

Þökk sé Birni Bjarnasyni, þá set ég hér beina krækju á rannsókn CEP: 20 Years of the Euro: Winners and Losers (einnig viðhengd sem PDF-skrá við þessa færslu, sjá neðst)

****

En: Þar sem rannsóknin byggist á mælingum á landsframleiðslu og sem síðan er deilt niður á heimilin eða mannfjölda í landinu, þá verða menn að hafa eftirfarandi í huga

1. Í hagkerfinu eru það fyrirtækin sem framleiða landsframleiðsluna.

2. Í hagkerfinu eru það heimilin sem neyta þessarar landsframleiðslu sem fyrirtækin skapa.

3. Þess sem heimilin geta ekki neytt, er flutt út til annarra landa, þar sem það er hægt, eða sparað upp eða fjárfest.

Þýska hagkerfið er vegna láglaunastefnu með evru (innvortis gengisfelling) orðið svo vanskapað að það þarf að flytja út næstum helming landsframleiðslunnar. Hennar er ekki neytt heima, því heimahagkerfið er ónýtt og var eyðilagt með evru. Þannig að veruleikinn er miklu miklu verri en það sem rannsóknin segir um tap/hagnað á hvert heimili eða hvern íbúa þegar að Þýskalandi kemur

Fullveldi, peningastefna og vaxtavopn þeirra evrulanda sem heita ekki Þýskaland né Frakkland

EMU-evruupptakari

Hagnaður Þýskalands hefur því aðeins á lítinn og óbeinan hátt komið heimilunum til góða og hann kemur helst fram þannig, að með lágum launum er atvinnustigi haldið uppi á falskan hátt. Hagnaður Þýskalands liggur í útflutningsfyrirtækjum landsins. Sparnaður þýskra heimili hefur aldrei verið meiri en annastaðar á vesturlöndum. Ráðdeild þýskra heimila er einungis lífsseig mýta. Það sem hins vegar hefur einkennt Þýskaland er að með því að koma í veg fyrir neyslu þýskra heimila, hefur sparnaðarhlutfall þeirra sem hlutfall af launum verið þvingað upp. En þar sem hlutdeild þeirra í neyslu landsframleiðslunnar er svo lítill, þá verða menn að horfa á þjóðarsparnaðinn í heild, því þegar fyrirtæki spara upp þá er það gert í formi hagnaðar. Hið opinbera sparar líka upp. Svo hvað sparnað varðar, eru þýsk heimili alls ekki neitt ráðdeildarsamari en í öðrum löndum, heldur er staða þeirra eins og staða heimila er í Kína, þar sem sparnaðarhlutfall heimila er það hæsta í heimi (sjá hér), en aðeins vegna þess að því hlutfalli er þvingað upp með því að heimilin fá ekki það frá ríkinu sem þau ættu að fá. Eða þá með því að gera eins og gert var í Sovétríkjunum; þar sem það var einfaldlega ekkert hægt að kaupa fyrir peningana, vegna þess að ekkert framboð var af neinu. Þar fékkst ekkert. Þessum þvingaða sparnaði rænir svo hið opinbera yfirleitt frá heimilunum með duldum sköttum og lágum launum og þetta er fært yfir til fyrirtækjanna sem niðurgreiðslur eða stuðningur við að halda ósamkeppnishæfum atvinnugeira á lífi. Menn verða því að horfa á þjóðarsparnaðinn í heild, en ekki bara sparnað hjá heimilum. Og í tilfelli Þýskalands, þá er sparnaðurinn í formi hagnaðar hjá útflutningsfyrirtækjunum. Þess vegna er Þýskaland með evru og til einskis annars; til að ríða Evrópu í afturendann um aldur og ævi; til að geta notað þýska alþýðu sem ódýra þræla til þess að halda úrkynjuðum fyrirtækjum þýska aðalsins gangandi og á lífi.

Svona virkar láglaunastefna Þýskalands með aðstoð evru

Forleikur: Þýska Hartz-láglaunastefnan í Þýskalandi virkaði svo vel að sá sparnaður sem gat orðið til í þýska hagkerfinu, varð allur til hjá útflutningsfyrirtækjum landsins. Og þegar sparnaður verður til hjá fyrirtækjum, en ekki heimilum, þá heitir hann hagnaður

Hlutur Þjóðverja í neyslu landsframleiðslunnar, sem fyrirtækin framleiða, varð svo lítill að flytja þarf helming landsframleiðslunnar út

Við þetta hvarf einnig útlánamarkaðurinn fyrir þá peninga sem þýskum fyrirtækjum gæddist vegna láglaunastefnunnar. Þýsk heimili gátu ekki tekið við sparnaði (hagnaði) fyrirtækjanna í formi útlána í gegnum bankakerfið, til neyslu. Og ekki nóg með það, þýsk heimili hættu að vera lánshæf, vegna lágra launa

Þessu fé sem þannig hafði verið "rænt" frá þýskum heimilum (með blessun verkalýðshreyfinga esb-sossa) með því að gera hlutdeild þeirra í neyslu landsframleiðslunnar svona lítinn og þannig koma í veg fyrir að hagnaður gæti orðið til hjá heimilunum, já honum var svo skipað út og þrýstidælt inn á evrulöndin í suðri, undir útlánastöðlum sem bannaðir vori heima í Þýskalandi

Í suðri voru raunstýrivextir evrunnar neikvæðir og þýsku fé dælt þar inn á nafnvöxtum sem þau gátu ekki fengið heima í Þýskalandi. En vextirnir voru samt falskir og staðbundið-neikvæðir og útlánin brunnu niður. Þeir hefðu átt að vera hærri og þar með hindrað suðræn heimili í að brenna hagkerfi sín niður og þar með komið í veg fyrir svona ósvinnu. En þar sem ECB-seðlabanki evru er miðaður við þarfir Þýskalands aðeins, þá voru vextir hans í suðri ásamt þýska þrælaríkinu í norðri, eldsspýtan sem kveikti í evrusvæðinu. Þetta er sennilega eitt stærsta útflæði á illa fengnu fé undir beltisstað í sögu mannkyns. Í sumum löndum Suður-Evrópu nam þýska innflæðið 30 prósentum af landsframleiðslu

Þannig var því sem með réttu átti að vera sparnaður í eigu þýskra heimila, dælt inn á evrulöndin í suðri svo að þau hefðu fé til að kaupa útflutninginn af þýskum fyrirtækjum, sem gengu fyrir þrælum á lágum launum í norðri

Og þegar að evrulöndin í suðri sprungu vegna þessara undirboða alls í þýskt stjórnuðu ESB og svo vegna fjármálakreppunnar sem Þýskaland átti stóran þátt í að skapa, þá var það ákveðið í hallarsölum ESB, sem eru í vösum Þýskalands, að það væru löndin í suðri sem myndu verða gerð upp, í stað þess að láta þýsku bankana, sem lánuðu peningana út, rúlla. Það kom bara diktat um það frá Berlín og París

Messustjórinn yfir þessu öllu voru tveir kanslarar Þýskalans úr sömu stór-samsteypunni, Schröder og Merkel, sem er eilífðar samsæri þýska elíta gegn þjóðinni, sem á ekkert, en er hlýðnir þrælar

Og þar sem löndin í suðri eru í föstu og handjárnuðu gengisfyrirkomulagi við Þýskaland með evru, þá voru þau varnarlaus með öllu. Það eina sem land eins og Þýskaland skilur er fyrirvaralaus gengisfelling beint í andlit þess

Fyrri færsla

Nýja Trump-sólin að skína alls staðar


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Bloggfærslur 3. mars 2019

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband