Leita í fréttum mbl.is

Fyrsta valdaránstilraunin í sögu Bandaríkjanna mistókst. Orkupakki3. May enn við fulla (ó)stjórn. Stuttar fréttir [u]

Því meir sem Vesturlönd geggjast, því betri verður Erla Þorsteins

****

BANDARÍKIN

Það voru ekki menn með sólgleraugu og axlaskúfa, og það voru ekki oligarkar í einkaþotum né "vér rauðir Marxistar" sem reyndu að ógilda kosningar og fjarlægja réttkjörna ríkisstjórn Bandaríkjaforseta frá völdum. Nei það voru embættismenn ríkisins, með fjölmiðla í vösunum, ásamt haturshreyfingu vinstrimanna, sem reyndu að framkvæma fyrsta valdaránið í sögu landsins. Ræna átti völdum til handa Hillary Clinton sem þetta fólk og fjölmiðlar þeirra sögðu að Donald J. Trump hefði rænt kosningasigri frá. Hún ein hefði einkarétt kosningasigri, svona svipað og ESB. Á þessa leið sagði bóndinn Victor Davis Hanson í Kaliforníu fram þulu sína um valdaránið, reyndar fyrirfram, og um einkaleyfi vinstrisins á að hata annað fólk, sem birtist einnig sem loftslagsofsóknir gegn kapítalisma, ásamt metoo, bæði knúið áfram af hatri

ÍSLAND

Á Íslandi ganga hlutirnir hins vegar þannig fyrir sig að smá biti af fullveldi landsins kemur til útborgunar í launaumslag þingmanna, og það er síðan notað til innkaupa þeirra erlendis. Sé bitinn, "pakkinn", nógu stór sem færður er yfir á erlendar hendur þá fá þeir punkta erlendis, sem jafnvel nægja til að að kaupa sér embætti, sem er mun tryggari staða en að þurfa að láta kjósa sig á flótta, svífandi um í fallhlíf burt frá fólkinu, þar sem nauðlending meðal hins almenna borgara er það versta sem hægt er að lenda í, vegna þess að þingmenn og flokksformenn gætu jafnvel lent meðal þeirra sem borða rangt, kjósa rangt, búa rangt, eru of lítið eða of mikið menntaðir, hugsa ekki rétt og tala vitlaust, og þola jafnvel ekki gungur og druslur nálægt sér. Það er þannig sem ræna á Íslandi frá þjóðinni; í bitum

Og þegar búið er að sundra þjóðinni nógu mikið, þá er eftirleikurinn mun auðveldari. Því með því að sundra íslensku þjóðinni, þá snýst hún ekki gegn embættismanna-þingmönnum sjálfum, nei nei, heldur snýst þjóðin þá gegn klofinni sjálfri sér, og opnar þar með leið fyrir "björgunarpakka" utanfrá í formi ESB. Einu sinni var það Noregur sem átti að halda friðinn meðal þjóðarinnar, sem þá hafði verið klofin. En núna er það ESB, sem kallað verður á vettvang, vegna þess að stjórnmálamenn klufu þjóðina. Þeir eru að reyna að eyðileggja það sem hún stóð sameinuð um eins og járnkall; sjálfstæðið og fullveldið

Klofningur meðal barna, skapaður af foreldrum þeirra, fær börn ekki til að snúast gegn foreldrum sínum. Nei nei. Þau snúast gegn hvort öðru. Miskunnarlaust. Rífa hvort annað á hol

Stöðva verður orkupakka3 - áður en hann nær að verða pakk

Uppfært: kl 19:45

FRÚ MAY ENN VIÐ FULLA STJÓRN Á STJÓRNLEYSINU

"No, the UK parliament has not taken control"
- W.M.: EuroIntelligence

Hlægilegt er að lesa allar "fréttirnar" um að "breska þingið hafi tekið vald af Theresu May". Enginn tekur valdið af forsætisráðherra Bretlands. Það eina sem þingmenn geta gert er að skipa forsætisráðherranum að gera eitthvað, en þeir hafa enga möguleika á að þvinga hann til þess, eins og bent er á hér. Og eins og þeir ættu að vita sem enn halda að umsókn Íslands inn í Evrópusambandið sé í gildi, þá er það þannig að Evrópusambandið má aðeins semja við forsætisráðherra, kanslara eða pólitískan forseta landa. Það er; pólitískt yfirhöfuð landa (e. heads of states). Það getur ekki samið við þingmenn, né þing þeirra. Og þar sem Theresa May er forsætisráðherra Bretlands þá eru furðufréttir dagsins um að vald hafi verið tekið frá henni, aðeins ein sönnunin í viðbót fyrir því hversu lélegir og rotnir "helstu fréttamiðlar" Vesturlanda eru orðnir, og því óvinir fólksins, eins og Donald J. Trump segir hér

Og þar sem það var Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra Íslands og ríkisstjórn hans sem dró umsókn lands okkar inn í Evrópusambandið til baka, og hætti henni og umsóknarferlinu öllu, þá var það einmitt eina rétta leiðin. Þingmenn hefðu auðvitað getað mómælt, en slíkt var bara froða, því að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar var meirihluti þingsins og ríkisstjórn Íslands. Og þó svo að SDG hefði látið skúringakonu eða bara hjúkku um að senda telefaxið, skyldi norðanmaðurinn Gunnar Bragi, eins og ég, hafa verið upptekinn við annað, til dæmis úti að reykja eins og ég, eða á bar, eða á Ellý, eins og ég; þá er faxið frá honum og ríkisstjórn hans, og hljómar svona: Dear Ha Ha Ha

Sendi ég þeim báðum minn stærsta fingurkoss, og skúringakonunni og hjúkkunni líka

- Gunnar, húsmóðir í Skorradal. Íhaldsmaður
- og fyrrverandi skúringakona
sem gerði leikskóla barna minna
hreinan í fjögur ár á kvöldin

****

STUTTAR FRÉTTIR (ekki DDRÚV)

A. Japan tilkynnir að það elfi hervarnir sínar gegn Kína til muna. 1) Það reisir nýjar herstöðvar á Ryukyu og Miyakojima eyjum. 2) Báðar verða með eldflugavarnir til lofts og láðs. 3) Japan ákvað einnig að auka drægni ASM-3 eldflauga sinna úr 125 mílum í 250 mílur. 4) Og að samhæfa nýju tiltökin með annarri loftvarnargetu landsins. 5) Ríkisstjórnin ætlar hefja endurskoðun á reglum til að stöðva leka á bandarískri tækni frá Japan til Kína (millistéttar Guðlaugs Þórs)

B. Dómstóll í Suður-Kóreu hefur lagt hald á eignir Mitsubishi Heavy Industries í S-Kóreu. Þær eiga að fara í að borga stríðskaðabætur vegna hersetu Japana á S-Kóreu í Síðari heimsstyrjöldinni

C. Japan er sennilega rauntölu-ríkara land en Kína (nettó-virði). Og það er ekki með 1000 milljón fátæklinga hangandi um háls ríkisstjórnarinnar. Japan er jafnara og heilsteyptara land en Kína. Það hefur forðast "fjölbreytileika". Það er því ekki að leysast upp. Þjóðin stendur saman. Það getur því söðlað um á sjálfu sér á örstuttum tíma, án þjóðfélagslegra vandræða og átaka, gerist þess þörf. Japan er lýðræðisríki á 6852 eyjum. Það er sennilega með her sem hvað úr hverju stenst hefðbundna hernaðargetu Kína. Japan var bandamaður Bretlands -og aðstoðaði Frakkland- í Fyrri heimsstyrjöldinni. Það sendi flota sinn inn á Miðjarðarhaf, þeim til aðstoðar. Hér má lesa fróðlega grein um sigur Japans í þeirri styrjöld, á sögubloggsíðu Flotastofnunar Bandaríkjanna

Fyrri færsla

Kva? Ekkert. Bara alls ekkert!


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Bloggfærslur 26. mars 2019

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband