Leita í fréttum mbl.is

Margt gott gerst síðan að Trump var kjörinn

Á aðeins 24 mánuðum hefur það góða gerst að enginn þarf lengur að horfa á sjónvarp né hlusta á útvarp og þar af síður að lesa nein dagablöð, nema í undantekningar-tilfellum. Á 24 mánuðum hafa fjölmiðlarnir verið staðnir að því að vera jafnlélegir og bankarnir voru, og skólakerfið hefur sannað sig sem ofborgaður sorphaugur vinstrimennsku sem ekkert vit er í að eyða tíma né peningum í. Unga fólkið sem nú mannar fjölmiðlana kom úr þessum skólum og það veit og kann ekkert um neitt eins og sést einnig á hinum nýju fokk-stjórnmálahreyfingum innan sem utan fjölmiðlanna, þar sem þeir senda bæði inn og út

Á þessum 24 mánuðum fékkst staðfest hversu illa innrættir, lélegir, falskir og óheiðarlega-krónískt vinstri-pólitískt-pervertir helstu fjölmiðlar Vesturlanda eru

Í Bandaríkjunum var þessi grunur alltaf mjög svo djúpt til staðar í bakhöfðum þjóðarinnar frá því að vinstrisinnaðir fjölmiðlar þess lands drógu bandarísku þjóðina á tálar í því sem þá var kallað Watergate-hneykslið, og hröktu úr embætti réttkjörinn forseta landsins sem aldrei í sögunni hafði sigrað eins stórt í kosningum, og sem gerði það vegna dugnaðar og hugrekkis. Því hefur þjóðin ekki gleymt. Hún var dregin á tálar og fjölmiðlar landsins sviku hana

Það þurfti því ekki mikið til að bandaríska þjóðin sæi í gegnum svikavef fjölmiðla þegar að síðustu forsetakosningum kom, þar sem Trump var kjörinn þrátt fyrir að vera með næstum allt fjölmiðlahyskið, bankana, Wall Street, tæknirisana, Hollywood, heiðnikirkjuveldi háskólanna, gáfumennin og hugveiturnar á móti sér. Þjóðin mundi enn

Og eftir kjör Trumps hefur hið sanna svo verið neglt niður með sex tommu saum meðal bandarísku þjóðarinnar. Fjölmiðlar eru óheiðarleg fyrirbæri, nema í örfárum undantekningartilfellum, segir sú þjóð. Þeim er enda ekki treyst og þeim ætti heldur enginn að treysta

Þetta er regla sem almenningur hér á landi veit að gildir alveg sérstaklega um DDRÚV-ríkisfjölmiðil vinstrimanna, sem þjóðin er kúguð og pyntuð til að halda uppi

Þegar ég tala um illa innrætta, lélega, falska, óheiðarlega og krónískt vinstri-pólitískt-perverta fjölmiðla þá á ég við, svo ég nefni aðeins örfá tilfelli af þúsund, að þeir flagga til dæmis í hæstu stöng geðvilltri Madonnu sem sagðist ætla að sprengja Hvíta húsið í loft upp og skeinir sig á bandaríska fánanum. Og svo til dæmis svörtum rappara sem sker hvítan mann á háls í garði Hvíta hússins. Og svo blaðamönnum sem líkja fundi Trumps og Pútíns í Helsinki við árásina á Perluhöfn, þar sem 3000 manns misstu lífið. Og svo til dæmis ritstjórn New York Times sem segir á bloggi að vonandi hætti hvíti maðurinn að eignast börn svo hann deyi út

Mest allt hið steingelda og náttúrulausa Hollywood-lið allra landa sem skorið hefur af sér gagnslaus kynfærin og látið líma þau framan á klesst andlit sín sem plastfyllingar, er einn stærsti bakvörður hins geggjaða liðs svo margra fjölmiðla í dag

Þetta perverta lið líkir stanslaust réttkjörnum forseta þjóðarinnar við Adolf Hitler, sem lét myrða sex milljónir Gyðinga með ísköldu mati hinnar endanlegu lausnar. Stærstur hluti þessa fólks þolir ekki hugrekki þegar það sér það og hatast því við Ísrael fyrir að verja sig og borgara sína

Nýtt Gyðingahatur vex eins og gorkúluskógur meðal þessa vinstra pakks og það reynir ekki einu sinni að fela það, því það þykist jú vera svo heilagt og það treystir því að það komist upp með allt í sínu helsjúka fjölmiðlaveldi. Þetta voru aðeins örfá dæmi um hið helsjúka vinstra-perverta fjölmiðlalið Vesturlanda

Það var fínt að fá þetta staðfest því nú veit fólk hvað það á að varast; fjölmiðla og skattafjármagnaða menntun. Gerir þú það ekki, þá færðu hvergi góða og vel launaða vinnu þegar stundaglas apaveldisins hefur tæmt sig. Og það styttist í það

Fyrri færsla

Kola- og stálbandalag Bjarna og Katrínar


Bloggfærslur 7. febrúar 2019

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband