Leita í fréttum mbl.is

Hættulegt ár að byrja, frá og með nú

Grace_Hopper_and_UNIVAC

Á þessum degi árið 1906 fæddist Grace Hopper sjóliðsforingi (Rear Admiral). Það var hún sem fann upp COBOL forritunarmálið, sem notað er enn þann dag í dag, sérstaklega í stórum miðlægum "mainframe" kerfum. Þarna sést hún á mynd við UNIVAC útstöð 1960. Grace lést í janúar 1992. Fleira fólk en stærðfræðingar gátu þar með notað tölvur

****

Nú er minna en ár í forsetakosningar í Bandaríkjunum. Þau lönd sem hve mestan hag hafa af því að Donald J. Trump nái ekki endurkjöri eru að minnsta kosti þrjú, plús bandamenn þeirra, sem eru hin ólíklegustu ríki jarðar. Þær efnahagslegu aðgerðir sem Trump hefur skrúfað saman og notað í stað hervalds til að þvinga þessi þrjú ríki til að huga að göngulagi sínu á brauðfótum –sem allir eru ofurháðir bandaríska brauðinu sem Trump og enginn annar bakar– eru farnar að bíta svo að þessi ríki eru komin á barm örvæntingar. Um er að ræða Kína, Íran og Norður-Kóreu. Hvað þau ríki gera næst er því að verða óútreiknanlegt. En svo mikið er þó vitað að allt sem þau gera, munu þau gera til að taka bandaríska forsetann með sér í fallinu. Þannig virkar örvænting

Vöruinnflutningur Bandaríkjanna frá Kína hefur dregist saman um nær fjórðung á síðustu 12 mánuðum (23 prósent) og heildarvöruviðskiptin (útflutningur plús innflutningur) hafa dregist saman um fimmtung, sem er meira en viðskiptin drógust saman þegar sérfræðingar Vesturlanda komu þeim næstum á hausinn árið 2008

Sjálfstæðisflokkurinn undir tapforystu Bjarna Benediktssonar hefur auðvitað lagt sitt af nytsamra kjánamörkum, til að gera lífið leitt fyrir þessum eina bandamanni Íslands, með því til dæmis að sitja í AIIB bankaráði Kínverska kommúnistaflokksins. Sá flokkur virðist þar með algerlega hafa yfirgefið sitt gamla hlutverk sem kjölfestan í lífvænlegum utanríkismálum fyrir landið okkar Ísland. Á Andríki –sem er samviska hægrimanna í Sjálfstæðisflokknum– fær því skylduskrifuð afmælisgrein um Sjálfstæðisflokkinn ekkert like á meðan greinar Andríkis um umhverfisfirru og loftslagsaxarsköft ríkisstjórnarinnar fá um og yfir þúsund likes hjá kjósendum. Þetta segir sína sögu um hvert Sjálfstæðisflokkurinn er kominn. Hann er að mestu kominn í ruslið hjá hægrimönnum og yfir í blóðrautt sólarlag

Kína mun því reyna að nota þennan ellefu mánaða glugga til að reyna að koma Trump frá völdum með einhverskonar aðgerðum sem verða viðskiptalegs eðlis, jafnvel hernaðarlegs, en líklega blanda beggja. Trump hefur neytt Kína til að taka afleiðingum gjörða þess undanfarin 30 ár. Hann er eini maðurinn sem hugrekki hefur haft til þess. Allt bandaríska þingið bakkar hins vegar forsetann upp í þessu máli. Og þó svo að "viðskiptasamningar" náist landanna á milli, þá mun deilustríð landanna ekki hætta. Allir slíkir samningar verða aðeins táknræns eðlis og deilan halda áfram næstu áratugi. Stjórnvöld í Kína eiga nú úr mjög vandsamri stöðu að ráða. Þau geta ekki vitað hvað Trump mun gera og þau geta ekki vitað hvað hann mun ekki gera. Trump hefur séð fyrir því að enginn fjandsamur Bandaríkjunum geti vitað hvar þau lönd hafa forsetann. Hvernig Trump mun bregðast við veit því enginn, og það eitt fælir menn frá því að taka Bandaríkin sem gefin. Slíkur er fælnimáttur þannig stefnu. Hvað mun Trump gera ef við gerum þetta eða hitt, reyna menn að reikna sig fram til í Peking, því um andlit þeirrar borgar gagnvart landinu öllu er hér að ræða. Kínverski kommúnistaflokkurinn þolir ekki að missa andlitið gagnvart þjóðinni, án stórkostlegra afleiðinga fyrir hann og þar með landið í heild

Sama staðan er uppi þegar að Íran kemur. Þar er ríki klerkaveldisins við það að falla saman undan þvingunum Trumps. Meira að segja olía er skömmtuð í olíuríkinu sjálfu. Verðbólga er himinhá, atvinnuleysi massíft og mótmæli borgaranna gegn kjarnorkuvopnastefnu klerkaveldisins magnast dag hvern. Klerkarnir í Teheran hafa reynt að fá Trump til að afhjúpa viðbúnað og viðbrögð sín við árásum á til dæmis skip og eignir á þurru landi bandamanna, en ekki haft erindi sem erfiði, því Trump er ekki sjálfskiptur krati. Írönsk stjórnvöld vita því ekki hversu langt þeim er óhætt að ganga í að koma endurkjöri Trump fyrir kattarnef. Næsta skerf þeirra gæti því orðið mun hættulegra og þar með áhættusamara fyrir þá sjálfa. Trump gæti lagt stóra hluta hers þeirra í rúst ef klerkaveldið myndi til dæmis gera beina árás á bandarískt herskip. Ef slíkt gerðist, hefði Trump tryggt sér ótakmarkaðan stuðning þjóðar sinnar til að leggja til dæmis heila herstöð klerkanna í rúst eða jafnvel jafna mörg hernaðarmannviki við jörðu. Bandaríska þjóðin sér þarna og þar með nú þegar, hversu galin stefna Baracks Obama vinstrimanns var í Íranmálinu. Allt það mál er honum að kenna. Skilti með Obama að kenna mun því blikka viðstöðulaust fram að kosningum. Og skyldi kerlaveldið hætta sér of langt, þá mun skiltið blikka næstu mörg kjörtímabilin. Demókrötum að kenna, demókrötum að kenna, demókrötum að kenna... eins og Víetnam var þeim að kenna líka

Norður-Kórea virðist rétt í þessu hafa pakkað inn jólagjöf til Bandaríkjanna og sennilega aflýst afvopnunarsamkomulagi því sem Trump gerði við einræðisherraveldið. Næstu skerf þess ríkis eru því að þjarma að bandaríska forsetanum til að reyna að tryggja brottför hans úr Hvíta húsinu og endurkomu bláeygðs demókrata. Það halda þeir í Pyongyang að minnsta kosti. En þarna er Trump búinn að tryggja sér stuðning þjóðarinnar með því að hafa gert allt það sem í hans valdi stóð –jafnvel meira en það, kvarta andstæðingar hans yfir– og hefur því þjóðina með sér þegar Pyongyang stígur í spínatið til að reyna spilla um fyrir bandaríska forsetanum. Þarna hafa efnahagsþvinganir Trumps virkað vel, því þær eru hinar hörðustu nokkru sinni. Rándýr kjarnorkuvopnastefna valdaklíku landsins er að éta þjóðina svo út á gaddinn að hungursneyð er á næsta leyti. Í slíkum aðstæðum hefur Pyongyang vanist því að geta þá kallað fram eins konar "samúð" frá hinum bláeygða heimi og þvingað ótrúlegustu lönd og fyrirmenni að samningaboði, með kröfum um að hörðustu þvingununum verði aflétt. Vonandi gengur Trump ekki í þá gildru með því að slaka á þumalskúrfunum, því bæði Íran og Kína og kumpánar þeirra eru að horfa á

Þarna, frá þessum þremur ríkjum er því ekki von á neinu góðu næstu 11 mánuðina. Hversu langt munu þau ganga - og hversu vel mun óvissustefna Trump virka? Það er stóra spurningin. Hversu langt er Trump viljugur að leyfa þessum þremur ríkjum að ganga á til dæmis rétt nágranna sinna. Hversu mikið mun hann líða áður en hann grípur til aðgerða. Hversu gott taumhald hefur hann á Japan, Suður-Kóreu og Taívan og á bandamönnum sínum í Fjórbandalaginu. Hvort að Rússland reyni einnig að spila hér inn til að fá vilja síum framgegnt í endurreisn sovétríkjanna, er ekki gott að segja. En hitt er þó vitað að ekkert getur Trump átt undir Evrópu komið í þeim efnum. Þess vegna hefur hann grafið sig niður með bandaríska herinn í Intermarium og reynir ákaft að halda Tyrklandi áfram sem þeim trygga en erfiða bandamanni sem ávallt stóð varðstöðuna á tyrkneska múrnum gegn sovét

Hvað ástand bandaríska heraflans varðar þá hefur hann sennilega aldrei áður á friðartímum verið eins öflugur og hann er núna. Með því að draga sig út úr ónauðsynlegum aðgerðum og hætta ofnotkun og veita til hans stórauknu fé, hefur Trump byggt upp hernaðarafl sem á sér fáa líka. Allar flugvélar eru flughæfar á ný og annar búnaður hersins er í toppstandi og mannskapurinn er ekki að niðurlotum kominn lengur og mistökum hefur því fækkað. Enginn veit hins vegar lengur, hvar og hvernig bandaríski herinn verður notaður næst. En ef og þegar að því kemur, er allt eins líklegt að honum verði beitt mjög svo öðruvísi en undanfarna áratugi. Eyrnapinnaaðgerðir bandaríska hersins heyra kannski sögunni til. Um afar stórt, velsmurt og banvænt prik er frá og með nú að ræða. Það veit Kína, það veit Íran og það veit Norður-Kórea. Hversu vel þessi staðreynd fælir þau frá óvitaskap, mun koma í ljós á næstu 11 mánuðum

Fyrri færsla

Hæstvirtir rasistar, fasistar og aðrir hvítir menn


Bloggfærslur 9. desember 2019

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband