Leita í fréttum mbl.is

Neyðarástand ESB-elíta vegna dísilgate ESB-elíta

STROMPSLAGSMÁLIN Í ESB

Gúmmíþing Evrópusambandsins sem mjög fáir hafa kosið til eins né neins, samþykkti að lýsa yfir "neyðarástandi" vegna ástandsins sem það bjó til með því að hálfpartinn þvinga alla til að kaupa sér dísilbifreiðar frá 1992 til 2010. Notaðar voru DDRÚV aðferðir í ríkisfjölmiðlum landanna. Dísilbifreiðar, sagði Evrópusambandið, og málaliðar þess í hverju landi fyrir sig, áttu að vera svo góðar fyrir umhverfið - og "vísindamenn" tóku náttúrlega undir sönginn - enda margir hluthafar í þessu öllu, eins og þeir eru í dag. Síðan aðstoðaði ESB bílaframleiðendur álfunnar við að koma dísilvörum sínum út, með því að smíða slá úr gúmmíi sem gæfi eftir, fyrst að svo gott sem enginn framleiðandi gat uppfyllt kröfur sambandsins hvað útblástur varðar. Og ekki nóg með það, þá sérhönnuðu þýskir bílaframleiðendur lygavél sem blekkti löggjafann í Evrópu, Bandaríkjunum og víðar. Upp komst um lygavélina frá ESB í Bandaríkjunum, því upp komst um svindl þýskra bílaframleiðenda, plús um svindl Deutsche Bank í húsnæðislánum, plús um svindl þýskra yfirvalda sem falið höfðu lífeyrisssjóði starfsmanna Þýska póstsins í skattaskjólum ESB á Írlandi, og sem notaðir voru til að bjarga gjaldþrota bönkum, sem lágu rambeltandi í þroti þvers á landamærum láglanda, en sem sagðar voru í fréttum skotheldar fjármálastofnanir

Næstum alls staðar þar sem upp komst um svindl, svik og pretti í heiminum, voru þýsk fyrirtæki innsti koppur í þeim búrum, stundum með aðstoð þýskra yfirvalda og náttúrlega ESB

Evrópskir bílaframleiðendur ætluðu þarna að breyta bílamarkaðnum í Evrópu sér í hag, því aðeins Þjóðverjar og Frakkar eru haldnir díslisfetisma. Bandaríkjamenn hafa alltaf haldið sig við bensínbíla og ekki viljað sjá dísil. Það átti einfaldlega að loka sem flesta erlenda keppinauta úti frá evrópska bílamarkaðnum og reyna að útbeiða dísilþvæluna í Bandaríkjunum; með aðstoð ESB. Þannig myndu ESB-framleiðendur ná forskoti beggja megin Atlantshafs. Nú er hins vegar þessi rýtingur kominn í bakið á íbúum Evrópu og hið þýska dísilgate er að sprengja stjórnmálin þar í loft upp. Þýskir bílaframleiðendur riða, og kannski til falls. Audi sagðist því í vikunni ætla segja upp 10 þúsund starfsmönnum á næstunni. Restin af þýska bílaiðnaðnum mun líklega gripa til svipaðra ráða

En nú hefur elítan sem dældi dísilmekki yfir borgir Evrópu og sem enginn kaus, lýst yfir neyðarástandi vegna dísilsins sem hún dýrkaði svo heitt. Þetta fólk kaus samt svo gott sem bara lítill minnihluti í flestum löndum álfunnar. Stundum bara 13 til 22 prósent kjósenda. Kosningaþátttakan í kosningunum til þessa gúmmíþings elíta varð þó 50,66 prósent í vor, vegna þess að borgararnir höfðu fengið mjög svo aukinn áhuga á að rústa sambandinu í þeim kosningum innanfrá. Kosningaþátttakan þar á undan var nefnilega bara 42,6 prósent, 2014

En sem sagt: 65 prósent greiddu sjálfsköpuðu neyðarástandinu atkvæði sitt í gær, þannig að fulltrúar 33 prósent íbúanna eru þarna að verki. Ekkert af þessari þvælu er "bindandi" heldur aðeins blindandi. En ef hún væri bindandi þá lokast náttúrlega á alla flóttamenn inn í Evrópusambandið, því hver ætlar að flýja þangað sem neyðin ríkir svona sárt - plús að um Evrópu-stóreinræðisherradæmi væri þá að ræða

Sameinuðu þjóðunum yrði þá ofboðslegur vandi á höndum, því varla ætti að senda flýjandi fólk utan úr heimi inn í neyðina sem ríkir nú í enn ríkara mæli en áður í því sem sumir kalla enn Evrópusambandið. Það hlakkar líklega enn í AfD-mönnum í dag, eins og í gær

En hvað með loftslagsflóttamennina frá Evrópu. Hvert skyldi eiga að senda þá? Til Kína eða Rússlands? Ekki er hægt að senda þá til vonda fólksins í Bandaríkjunum. Það myndi bara hlægja og Donald Trump hæst, og hann rétta því "big and beautiful clean coal" í staðinn fyrir brúnkolin í Þýskalandi, sem verða að duga landinu næstu 100 árin, ef komast á hjá þýsku þjóðargjaldþroti. En þá eru þau búin

Þjóðverjar hljóta að finna vísindalega lausn á þessu, ekki satt? Þeir gætu jafnvel kallað Katrínu svartkomma á vettvang sem allsherjar ráðgjafa, – um þið vitið hvað

En hvað skyldi eiga að kalla raunverulegt neyðarástand þegar það loksins kemur; frelsun manna eða hvað?

Fyrri færsla

Tillögur til breytinga á Mbl.is | Engin bylting hér


Bloggfærslur 29. nóvember 2019

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband