Leita í fréttum mbl.is

"Millistétt" Guðlaugs Þórs í Kína reyndist gangstétt

Ekki nóg með það að raðbilun formanns Sjálfstæðisflokksins og gangstéttar-gengis hans í Valhöll hafi dælt Bjarna Ben formanni flokksins í AIIB-bankaformennskufaðm Kínverska kommúnistaflokksins, þá er einnig ljóst að hin margumtalaða kínverska millistétt Guðlaugs Þórs utanríkisráðherra, reyndist aðeins vera sandburður á borð við þann sem lifir lífi sínu undir gangstétt; sem til dæmis bandaríska millistéttin gengur aðeins á í neyð, eða þegar átta strokka tryllitæki hennar er of stórt til að skjótast inn á eina ríkisrekna kontórinn sem til er þar vestra fyrir alla: þ.e. kontórinn fyrir númeraplötur ökutækis

Ekki nóg með það að bankakerfi Kínverska kommúnistaflokksins sé að hrynja og sé búið að vera hrynjandi síðan að það var opnað, þá hefur millistétt Guðlaugs Þórs sett enn eitt heimsmetið í fátækt. Síðustu tvo áratugina hefur hlutur kínversku þjóðarinnar í tekjum lands síns verið sá minnsti í gjörvallri sögu mannkyns á síðari tímum. Hvorki meira né minna. Það land sem kemst næst þessu misfóstri kommúnistaflokksins, er Þýskaland frá og með aldarbyrjun, eða frá og með Hartz vinnumarkaðs "umbótum" þýska sósíaldemókrataflokksins, hvers formaður nú sængar hjá Vladímír Pútín, einræðisherra hins rússneska sambandsríkis, sem enginn fær að yfirgefa eins og sást svo glöggt á tvennum stríðum um Tjéténíu, sem er Tíbet Kremlar

Kína er því að springa í loft upp, og næst þar á eftir er það Þýskaland. Gerræðislegur fjármagnsflótti af ólöglegu fé er nú frá Kína. Gerræðislegur! Bankakerfið hristist og skelfur eins og bleikur Royalbúðingur, og Hong Kong er komið í hakkavélina, þar sem kosningar er verið að banna

Aðeins þrír til fjórir pappírar halda heiminum saman núna og Bandaríkin bera þá alla uppi. Njáll minnist hér pappírsins frá 1839 og tveggja hinna:

1. NATO-sáttmálinn frá 4. apríl 1949
2. Taívan-samskipta sáttmálinn við Bandaríkin frá 10. apríl 1979
3. Varnarsamningur Japans og Bandaríkjanna
4. Vopnahléssamningur á Kóreuskaga

Forseti Tyrklands var í heimsókn hjá Donald Trump í Washington. En bandaríski forsetinn hefur lagt mikið á sig og hætt miklu til að reyna að halda NATO-saman með því að þola bandamann á borð við Tyrkland. Þar ættu menn ekki að láta glepjast, því öll ríkisyfirhöfuð Tyrklands hafa verið af einræðisherraætt frá og með 1919. Erdogan er bara annað nafn á herstjórnarlegu einræði Kemalista, eins og Pútín er annað nafn á Brjésnjéff, og Merkel annað nafn á Brüning. Tyrkland verður aldrei vestrænt. Aldrei. Og það verður Rússland heldur ekki, og því síður Kína. Endursameinað Þýskaland verður það ekki neitt sérlega mikið og hefur heldur aldrei verið það. Vestur-Þýskaland var innan-sviga fyrirbæri í sögunni. Þýskir hafa alltaf litið á sig sem sérfyrirbæri í Evrópu og æðri þeim sem lentu í Rómarveldi. Þetta verða menn að horfast í augu við og loka Ríkisútvarpinu í DDRÚV

Og svo er það Intermarium-heimshlutinn austur í Evrópu og inn í Asíu, sem aðeins fáir hér heima og enginn í Brussel veita athygli né sýna skilning á, nema Bandaríkin. Lokið því í guðanna bænum Ríkisútvarpinu, því þá fá menn bæði augu og eyru, alveg gratís

Við skulum því minnast hverjir það voru sem gerðu sjálfstæði Íslands mögulegt og verja fullveldi okkar. Minnast, en ekki gleyma. Guðlaugur Þór, þetta þarft þú að muna og minnast, og hætta ding-dong bulli á gangstétt. Miðflokkurinn er með þetta á hreinu... ég segi ekki meira... í bili...

Fyrri færsla

Af hverju tala menn um "uppljóstrara"?


Bloggfærslur 15. nóvember 2019

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband