Leita í fréttum mbl.is

Þjóðmyndun komin í salernin [u] Brexit og landamæri

Þjóðmyndun Bill Clintons á Balkanskaga mistókst eins og þjóðmyndun Rússa með sovétríki mistókst. Þjóðmyndun ESB í Evrópu er einnig komin í 27 salernin, þar sem Bretland heldur um snúruna sem sturta mun því sem þjóðónýtt er niður

Þjóðmyndun í Írak mistókst líka. En þar heimtuðu vinstrimenn að verndarhönd Bandaríkjanna og bandamanna þeirra yfir Kúrdum yrði dregin til baka. Síðan kom Trump og barði hnefa í NATO-borðið og heimtaði að aðildarríkin stæðu við gerða samninga. Fyrir það fékk hann bágt frá vinstrimönnum og samfylkingakratanum Birni Bjarnasyni, sem sögðu að Trump væri að eyðileggja NATO

En nú setur Trump hins vegar NATO-bandamanninn Tyrkland ofar öllu sem er ekki-NATO og neitar að svíkja hann vegna þess að Tyrkland er með samning. Já það er með NATO-samning. Og hvað gerir villta vinstrið með Bjössa Bjarna krata í fararbroddi þá. Jú þeir berja á Trump fyrir að styðja við bakið á NATO

Samfylkingarstappan sem æpir furðuhróp þessa furðuhóps, heimtaði á sínum tíma að Bandaríkin og bandamenn þeirra hunskuðust heim og létu Kúrda í Írak hanga eina til þerris. Vissu þeir ekki að Bandaríkin og bandamenn þeirra höfðu fjarlægt Saddam Hussein sem gasaði Kúrda í hel? og sem ráðist hafði inn í flest nágrannaríkin sín nema eitt: Tyrkland. En af hverju réðst Saddam Hussein ekki inn í Tyrkland til að fjarlægja Kúrda. Jú vegna þess að Tyrkland er í NATO

NATO-landið Tyrkland mun því frá og með nú standa þann vörð gegn áhrifum Rússa sem sameinað geta Íran og Rússa gegn NATO og nánasta umhverfi klerkaveldanna í Moskvu og Teheran

Heimurinn er genginn í sjálfan sig á ný. Útópíutímabilinu eftir hrun Sovétríkjanna er lokið, því Zarinn þar er kominn gömlu föt Sovétkeisarans. Rússland verður aldrei neitt annað en harðstjórnarríki. Geopólitískt eðli þess er þannig. Hið sama gildir um Kína, svo lengi sem það reynir að vera sameinað ríki

Bandaríkin eru því nú að hefja Kalda stríðsglímu II, sem allir eftirrennarar Trumps munu fylgja. Forgangsröðunin verður þessi:

1. Kína: þar verður það harkan sex sem koma mun Kína aftur inn í þann kassa sem annað hvort þvingar það til þjóðfrelsis eða heldur því í skák og mát í passandi kassa. Bandamenn þar verða þeir sem vilja vera með, og þar má nú þegar nefna fjórbandalagið sem inniheldur Bandaríkin, Japan, Ástralíu og Indland. Þeir sem vilja ekki vera með –hvar sem á jörðu til þeirra næst– dæmast úr leik á flesta vegu, krumpast og visna að innan; yfirfærslur hætta að berast –tæknilegar líka– og varaþurrkur sest að

2. Rússland. Þar er björninn ekki unninn enn og vinnst aldrei. En honum verður haldið í skák og mát. Bandamenn þar eru Pólland, Rúmenía, Búlgaría og Tyrkland. Tvö þessara ríkja verða næstu stórveldi í Evrópu og Miðausturlöndum: Pólland og Tyrkland. Berlín verður hins vegar bambuskofi og er reyndar nú þegar orðin það. Krefst Þýskaland því afsláttar í yfirstandandi fjárlagagerð ESB. Það virðist hvorki hafa efni á ESB né NATO. Allir símar Þýskalands og kumpána þess verða hleraðir, enda um eins konar misheppnað ríki að ræða því ESB er svo misheppnað yfirríki

3. Á meðan mun hinn múslímski heimur verða látinn lönd og leið og þeir fjármagnaðir og seld vopnin á báðum hliðum sem barið geta þar á sem flestum og tvístrað honum sem mest

Um það bil 10 bandarísk kjarnorkuvopn eru nú á hverja þúsund bandaríska hermenn í Tyrklandi. Það er að minnsta kosti eitthvað sem menn geta sest í kringum og reykt pípu um

Áhrifin verða sem sagt tvö og jafnvel þrjú ný heimshlutaveldi. 1: Pólland og jafnvel komandi þjóðkjörið konungsdæmi þar, sem kannski mun ná víðar (les. Intermarium). Og 2: Tyrkland

Það þriðja er hins vegar staðsett á Norður Atlantshafi, sé haldið rétt á spöðunum. Ísland á þar næsta leik. Eða þá afleik, eins og vona- og ávísanahefti vinstrimanna ávallt er. Gúmmítékka vinstrisins með kratismann sem gjaldþrota ábeking þekkja flestir allt of vel. Nema náttúrlega þjóðfjandsamlegt setuliðið í Valhöll, sem fast og veruleikafirrt situr í bankaráði Kínverska kommúnistaflokksins; algerlega raðbilað og dómgreindarskert. Þar þarf heldur betur að moka út

Vinsamlegast athugið: Heimshlutaveldi (e. regional power) er ekki það sama og heimsveldi (e. global power). Á jörðinni er aðeins eitt heimsveldi; Bandaríki Norður-Ameríku

Uppfært kl 17:05 | Viðauki dagsins vegna Brexit og Bandaríkjanna

Meðan á öllu þessu stendur hefur Trump að miklu leyti leyst landamæravandamál Bandaríkjanna í suðri, og svo virðist sem einhverskonar samkomulag hafi náðst milli Bretlands og Evrópusambandsins um Útgöngu Breta af þrælaríkinu sem xD elskar meira en vöndinn

a. Bandaríkin taka því nú aftur upp efnahagslegan stuðning við Hondúras, Gvatemala og El Salvador, eftir að þau undirrituðu samkomulag við Hvíta húsið um málefni hælisleitenda. Mexíkó hefur þegar samþykkt að hefta flæðið sín megin landamæranna. Stuðningur við endurkjör Trumps og Repúblikana á þingi frá Texas, Nýju Mexíkó og Arizona eykst því enn frekar, og í Kaliforníu gæti sigur Trumps í málinu, ásamt bygging varnargarða, höggvið skarð í fylgi Demókrata þar, sem breytt hafa fossríkri Kaliforníu í þriðja heims ríki þar sem fólk deyr á götunum og rafmagnið er skammtað til íbúanna á meðan fyrirtækin flýja. Fækkar því líklega ört myndum falsfréttastöðva Demókrata af grenjandi börnum við landamærin í komandi kosningabaráttu um Hvíta húsið og þingið. Þeirra í stað koma sennilega fréttamyndir um hvern nýjan áfanga í byggingu varnargarða hvern mánuð, fram til kosninga

b. Enn einn nýi og eini ófáanlegi og óhugsandi annar samningur forsætisráðherra Bretlands við Evrópusambandið, sem í þessu ófáanlega og óhugsandi tilfelli er Boris bardagamaður Johnson, segir að samskipti Bretlands og Evrópusambandsins muni í framtíðinni byggist á því að Bretland verði ekki í Tollabandalagi Evrópusambandsins (Customs Union). Um einhvers konar millibils ástand verður að ræða þar til eftir kosningar. Mögulegum samskipti Bretlands og Evrópusambandsins í framtíðinni er aðeins getið sem óbindandi samkomulags sem bendir til viðskiptasamninga um hin ýmsu mál. Tilvísanir til þess að Bretland muni í framtíðinni íhuga aðlögun að ESB-reglugerðum í sambandi við áframhaldandi vöruviðskipti, hafa verið fjarlægðar. Sammælst er hins vegar um að samningsaðilarnir séu einhuga um að viðskipti milli þeirra muni ganga skrefinu lengra en samið er um hjá Alþjóða-viðskiptastofnuninni WTO. Allar tilvísanir til samhæfingar Bretlands við ESB á sviði félags-, skatta-, og samkeppnismála ásamt ríkisaðstoðar við atvinnulíf, hafa verið fjarlægðar, segir hér

Hugsið ykkur hversu algerlega Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert á sig í samskiptum við Evrópusambandið, og þar með afhent því hluta af fullveldi Íslands að ástæðulausu og fyrir ekki neitt, eingöngu vegna aumingjaskapar, aðeins sambærilegan við það þegar Danir mættu drukknir til samninga um landgrunnið sem olía Norðmanna lenti því undir, og Danir fengu nánast ekki neitt og eru því búnir með þá orkuauðlind sína núna. Norðmönnum hefði aldrei dottið í hug að semja svona af sér um Orkupakka3 eins og Ísland gerði fyrir tilstilli vesalingaveldis Sjálfstæðisflokksins. Slíkt hefði aldrei komi til greina. Enda hefur aldrei komið til greina að Noregur gangi í tífalt OPEC þar sem hálf-rússneskt orkusvarthol (Þýskaland) réði öllu. Orkupakki3 í Noregi er ekki það sama og Orkupakki3 á Íslandi. Hjá þeim er hann fís, en hjá okkur er hann olía Noregs

Fyrri færsla

Að velja á milli alls eða einskis


Bloggfærslur 17. október 2019

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband