Leita í fréttum mbl.is

Hvað segja bresk lög um Brexit?

Jú, þau segja að það séu lög að Bretland yfirgefi fyrir fullt og allt Evrópusambandið þann 29. mars 2019. Lög eru lög

Og í þessu tilfelli sem öðrum, þá eru lög lög, þar til að ný lög eru sett. Og engin ný lög hafa verið sett sem segja með hvaða hætti Bretland fari úr Evrópusambandinu án þess að fara úr því, því það er einfaldlega ekki hægt að setja slík lög. Brexit er Brexit eins og stríð er stríð, en ekki friður

Það var ekkert vandamál að ákveða þetta, því að Bretar gáfu í þjóðaratkvæði fyrirmæli um að Bretland yfirgæfi Evrópusambandið. Og þau fyrirmæli urðu að lögum. Algerlega óháð útgöngufælni þeirra sem halda að formlegheit séu inntak en ekki úttak í stjórnmálum: þ.e. formlegheit eru útblásturtegund, en ekki drifkraftur

Sumir ökumenn eru ávallt illa undirbúnir fyrir ný lög og rása því í kæk yfir í vinstri kant. Glæpamenn gera þetta líka. Fréttasnápar sömuleiðis og hagsmunatankar alltaf. Alltaf vanbúnir og grenja, líki þeim ekki lögin

Við skulum, í þessu sambandi þjóðar við stjórnmálamenn, ekkert vera að minnast á þá sem voru and-vígir (þ.e. óvígir) er þjóðin talaði, eins og til dæmis Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og Co, hefur verið and-vígur íslensku þjóðinni í fullveldismálum og virðist enn, ef marka má grafarstemminguna sem ríkir hjá pukur-og áttavita-fingri formannsins út í loftið, og sem virðist hafa tileinkað sér pólitísk vísindi Barack Obama, um að leiða flokkinn áfram með því að vera fyrir aftan hann, e. "lead from behind". Eiginlega hef ég aldrei séð svona leiðtogssnauðan formann nema ef vera skyldi í Samfylkingunni. Samt er ég búinn að heppa á hann í 11 ár. En nei, forystukindin skal alltaf síðust fram

Eftir 10 ára mötun með teskeið, hefur flokks-forkista Sjálfstæðisflokksins þó í neyðartilfellum sest upp í útför flokksins og látið almenna flokksmenn og kjósendur um að mata sig á sumum staðreyndum, sem haldið hafa í henni lífinu og gert henni kleyft að hendast bersköllóttri frá einum kosningum til annarra. Með næstum allar fjaðrir foknar, eins og 1939, þegar flokksforystum tveggja stórríkja Evrópuskaga í vestri, tókst ekki að halda valdajafnvægi nema í sex vikur og sem kenndu svo Bandaríkjunum um getuleysi sitt með söguáburði um einangrunarband, á meðan að þau Bandaríkin voru önnum kafin í glímu við Japani, á fullu í Kína, Indónesíu og Filippseyjum. Engum nema Evrópukjánum datt í hug að hún væri enn nafli alheimsins. Sem betur fer kom ný Winston forysta að breska Íhaldsflokknum og tók líkkistu-matarforða friðþægingarstefnu flokksins bókastaflega í nefið og sigraði stórt. Já, friðþæging er skelfileg stefna sem lamað getur öflugustu herveldi heims og blásið þeim trú á teskeið í brjóst

Nú nú. Í gær var ljóst að hlægilegir fréttasnápar og hagsmunatankar um eyðileggingu Brexit, höfðu lítið annað gert en að "enduropna" sjálfa sig er þeir tókust upp af "af borðinu". Allt hjal um annað þjóðaratkvæði og "no deal" = "no Brexit" var einungis prentsvetra sem ódýr pappír þeirra þakklátur át

Nú er bara þetta í stöðunni: Nýtt lagamakkverk og svo útskúfun eins og í Icesave, eða: Bretland fylgir lögum eins og vera ber. Ekkert slæmt mun gerast við það að Bretland fylgir lögum landsins

Ég er afar ánægður með Miðflokkinn hér heima, um þessar mundir. Það er ég, vegna þess að þar finnst mér ég hafa fengið fulla peninga fyrir miðann á bardagann, hefði ég keypt hann. Það er ekkert við það að eiga heimsfrægan vesturlenskan miða í jarðarför, sem auglýst og blásin er upp sem kappleikur, korteri fyrir dauðadá. Kannski kýs ég Miðflokkinn næst, því þar virðist fara flokkur með leiðtoga. Ég kýs hann allavega ef bókari Sjálfstæðisflokksins leggur ekki fullveldi og sjálfstæði Íslands inn á mig í debet (efsta skúffan til hægri)

Það er ég sem kjósandi sem afhendi formanninum fyrirmæli eða ekki. Þeim á hann að taka og setja í stefnur og ef til vill í lög. Þetta kallast pólitískt umboð. En samt er ég bara minnsti minnihluti lýðveldisins: einn maður. Hugsa ég þó mitt - og ávallt einmitt það

Fyrri færsla

Farsímavefur Veðurstofunnar dauður


Bloggfærslur 30. janúar 2019

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband