Leita í fréttum mbl.is

Það góða við hermenn annarra þjóða

Borgin Przemysl

Mynd: Það var þarna sem her Austurrísk-ungverska heimsveldisins leystist upp. Skipanir dagsins voru á sjö tungumálum

****

KJARNA-KRAPMAR ÚTÓPÍU

Að bankamenn spili fjárhættuspil með peningum annarra, er þekkt stærð. Dulbúnir sem sérfræðingar tókst þeim að setja Vesturlönd á annan endann árið 2008. Sá annar endir þeirra varir enn, 11 árum síðar, einmitt í Evrópu. Þar skelfur allt enn og nötrar, þökk sé tilvist Evrópusambandsins. Annars væri Evrópa að jafna sig. En það er hún bara ekki

En þegar kynnt er fyrir allt að 25 ESB-löndum fyrirætlanir og jafnvel áætlun um að hið sama sé gert við hermenn allra þessara þjóða, þá erum við komin upp í æðri lög sérfræðinnar: sjálfan kjarna-krampa útópíunnar. Elítu-spastíkina sjálfa, þar sem meira að segja græna ljósið í heiðnikirkjuveldi háskólanna bognar og bendir á rétta gúlag-reiti í lúdóleiknum metoo

Enginn ógeðbilaður kjörinn fulltrúi neinnar þjóðar mun nokkru sinni setja hermenn né her þjóðar sinnar undir stjórn fulltrúa og hershöfðingja annarrar þjóðar, né heimilis- og umboðslausrar alþjóðlegrar stofnunar

Tausend kronen monetray union exit note - stimplaður

Mynd: Og það var svona sem myntbandalag Austurrísk-ungverska heimsveldisins var leyst upp; með stimplun. Hið sama var gert á svipuðum slóðum árið 1993 (PDF)

En gerist slíkt, þá má reikna með að hlaupið sem skýtur þriðju heimsstyrjöldinni loksins inn í miðja ESB-Evrópu, sé þá fullhlaðið, og bíði einungis eftir því að hermönnum einnar þjóðar sé fórnað á kostnað annarrar þjóðar, eins gert var á efnahagssviðinu, með myntinni evru, við Grikkland og lönd Suður-Evrópu, sem í 500 ár vernduðu norðrið gegn barbarisma ottóman- og íslamisma úr suðri. Að til dæmis franskir hermenn séu af vel vitandi þýskum stjórnmálamönnum og hershöfðingjum settir inn þar sem hættan er ákaflega banvænt mest og að franskir séu muldir þar niður, en þýskir ekki - eða öfugt. Venjulegt fólk verður að athuga að hér er um Evrópumenni að ræða, sem blikkuðu ekki þurru auga er þeir misstu hálfa milljón manns á tæplega tveimur vikum, fyrir aldamót. Öld er aðeins sekúnda í sögunni

Já, það góða við hermenn annarra ríkja er að þeim er hægt að fórna án þess að fórna sínum. Heilastappan í nafni "friðar" Evrópusambandsins getur varla stappast betur í mús en þetta. Slíkt getur varla verið mögulegt

Ekkert kemur í stað sjálfsákvörðunarréttar og sjálfsábyrgðar þjóða. Ekkert nema: villimennskan. Engin fjölþjóða-heimsveldi mannkynssögunnar hafa nokkru sinni haft snefil af lýðræði og takmarkað ríkivald þar innanborðs. Þau hafa ÖLL verið terror-ríki undir ótakmörkuðu valdi ríkisins. Þar inni ert einstaklingurinn þú, einungis abstraktsjón

Fyrri færsla

ESB gert höfðinu styttra gagnvart Bandaríkjunum


Bloggfærslur 13. janúar 2019

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband