Leita í fréttum mbl.is

Forsætisráðherra "samfélags" minntist hvergi á þjóðfélag

Í áramótaávarpi forsætisráðherra kom hugtakið "samfélag" fjórtán sinnum fyrir, en hugtakið "þjóðfélag" kom hins vegar hvergi fyrir. Hvað þýðir þetta?

Jú. Hin grunnpólitíska eining í heiminum er, hefur alltaf verið, og verður alltaf þjóðfélagið eins og Biblían áréttar svo flott með þjóðum hennar, landamærum þjóða, aðgreiningu og skiptingu valds hjá þjóðum og að enginn (ekki einu sinni "alþjóðasamfélag" sem er nýyrði yfir hin venjulegu imperíal heimsveldi á borð við Egyptaland sem Biblía Vesturlanda af góðum og gildum ástæðum fordæmir og bannar algerlega) megi verða konungur/forseti yfir öðru fólki en því fólki sem konungurinn/forsætisráðherrann sjálfur er í þjóð með og af. Og hann á að vera kjörinn og lög manna þjóðarinnar eiga að ráða landi hennar, segir Biblían líka og hún bannfærir þar með alþjóðasamfélag imperíalista allra tíma, sem verandi hús fjötranna: þ.e. frá Egyptalandi til Caesars, Napóleons, Stalíns, Hitlers, Brussel og S.þ

Þetta félag, þjóðfélagið eru Vinstri útóískt grænir hættir að þekkja, svipað og síðast er þeir hétu Vinstri rauðir og alþjóðlegur (glóbal) kommúnismi var hin eina lögmæta félagstrú í barbaríinu sem þeir elskuðu svo heitt, að það kostaði hundrað milljónir manna lífið. Þar var þjóðfélagið gert að engu og var helst ekki til, því það braut í bága við kommúnismann, og "samfélag" hans, sem gekk út á að gera alla jarðarbúa blóðsogna þræla kommúnismans í einum allsherjar alþjóðakommúnisma "alþjóða-samfélagsins"

Það er hneyksli að svo fávís kona skuli sitja á æðsta pólitíska stól íslenska þjóðríkisins, lýðskrumandi um "félagana" í "samfélaginu" sem þjóðfélag hennar heldur uppi. Ef þjóðfélagið veslast upp, til dæmis með því að drekkja því með öðru þjóðfélagi, eða með rauðu eða grænu samfélagi komma, þá verður það ófært um að aðstoða neinn sem er í þjóðinni, og svo þá sem utan frá til þjóðfélagsins leita. Það drukknar og verður nýtt Sýrland. Allt sem fólk af sömu kommatrú og Vinstri grænir koma nálægt, drukknar og breytist í menntamannahelvíti fátæktarinnar, þar sem fólk flýgur í gegnum hin nýmarxísku heiðnikirkjuveldi háskólanna, án þess að vita neitt, eins og sést svo vel á ræðu forsætisráðherrans. En sem betur fer voru Vesturlönd byggð upp á Biblíunni, en ekki á alþjóðlegu kommúnistayfirvarpi þar síðustu glóbalista

Orðið "samfélag" er komið með stöðu póst-módern-nirvana afláts-bænahalds einfeldninga. Himpa-gimpa hippalegt orðskrípi úr hassi sem farið er með til að tendra þriðja augað uppi í túrban-skattaskrúfu póst módern afglapa

Ég er ekki í samfélagi með forsætisráðherranum og verð það líklega aldrei. En ég er hins vegar í þjóðfélagi með henni og umber hana vegna þess að hún ein af okkur, því eins og Gamla testamenti Biblíunnar meitlaði í stein, er hún rétt kjörin pólitískt yfirhöfuð þjóðar minnar - og það verður sem betur fer kosið á í mesta lagi fjögurra ára fresti næst, eða svo lengi sem samfélags-kommasteypa Evrópusambandsins er ekki krýnd sem fíaskó-konungur yfir minni þjóð. Sá síðasti var nefnilega ónýtur, því hann var ekki einn af oss, eins og Gamla testamentið sagði fyrir um, að myndi þýða eilíft fíaskó og fátækt

Sósíalistar Upplýsingarinnar (háskólarnir) reyndu allt hvað þeir gátu að gera ekkert úr Gamla testamenti Biblíunnar, en allan heiminn úr þeim sjálfum. Það Gamla var þeim þyrnir í augum, vegna einmitt þess sem hér fyrir ofan stendur. Án þess værum við ekki Vesturlönd. Engin leið er að skilja Biblíuna án þess að byrja á blaðsíðu númer eitt; Gamla testamentinu

- Gleðilegt nýtt ár 

Fyrri færsla

Ný (tækifæris) viðhorf í öryggismálum Evrópu


Bloggfærslur 1. janúar 2019

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband