Leita í fréttum mbl.is

Ráðherra Macrons segir af sér í beinni

WSJ Screen Shot 2018-08-27

Skjáskot: Forsíða Wall Street Journal leiddi mann inn á þessa glæsilegu síðu blaðsins á mánudag

****

Frá franska hræðslubandalaginu í ESB

Fyrirvaralaust sagði Nicolas Hulot umhverfismálaráðherra Frakklands af sér í beinni útsendingu í gær. Hann segir að Emmanuel Macron sé orðinn bara enn einn áhrifalausi franski forsetinn í viðbót við þá sem sátu sem brusselskir prúðuleikarar á undan honum og töluðu hallamál, sem er eina löglega málið sem tala má, því annars hrynur evran, og þá hrynur "Evrópa", segir merkantelistínan Merkel, sem því aðeins heimilar innflutning á lifandi vandamálum inn í Þýskaland

Lítið gengur með neitt af kosningaloforðum Emmanuel Macrons. Þar er flest við það sama og síðast: stöðnun, stöðnun og meiri stöðnun. Franskur almenningur bíður enn eftir áhrifum þess á heimilisbókhaldið að hafa verið hræddur frá því að kjósa Marine Le Pen, sem talar bara frönsku en ekki hallamál. Þarna haggast lítið og ekkert bólar á bata í buddum fransks almennings. Og það þrátt fyrir að Macron hafi lofað að gera alla plánetna mikilfenglega á ný, þá virðist hann ekki einu sinni hafa getu til að gera hvað þá næstu götur við Élysée-hallarkynni sín neitt betri en þeir sem sátu þar síðast. Þetta mál kemur ofan í Benalla-málið þar sem Élysée-kontor Macrons neyddist til að hvorki neita né játa að sá öryggisvörður forsetans sem barði mótmælendur svæfi hvorki þar né vakti á götum úti. Franska þjóðin spáir því enn í hvers konar sambandi Macron sé við eiginkonu sína, og veltir vöngum. Mörgum frönskum finnst orðið að forseti þeirra sé ofvaxið barn

Karl-Marx-Stadt lifir enn í ESB

Hinn 30. mars 1990 mælti seðlabanki Þýskalands með því að gengi austurþýska marksins (GDRmark) yrði metið þannig að það fengist eitt Dmark fyrir hver tvö GDRmörk. Þessu var hafnað 1. apríl og hinn 2. maí var gengið sett fast á 1:1 fyrir fjármuni allt að 6.000 GDRmark og 1:2 fyrir hærri upphæðir. Seðlankinn beið lægri hlut | frá: Seðlabankinn og þjóðfélagið

"Sértu G20-velkominn til helvítis-ástands" er nú að breiða úr sér í Þýskalandi. Sumir muna kannski eftir því hversu gersamlega þýska lögreglan brást G20-fundinum í Hamborg. Framhaldsfundur var því haldinn í Karl-Marx-Stadt Chemnitz í Þýskalandi um helgina. Allt er þetta þýska teboð haldið í boði Angelu Merkel, sem í losti frá CDU-súrefnistjaldi sínu í bunker gegn þýsku þjóðinni, vinnur nú að gerð hjálparpakka til handa Tyrklandi, sem hætt er að geta keypt útflutning hennar vegna gengisfalls líru, en þó fyrst og fremst vegna þess að hún gerði samkomulag við djöfulinn (WSJ), sem hún þarf að greiða Erdogan fyrir, til að halda aftur af fjórum til fimm milljón flóttamönnum í Tyrklandi, sem hann að öðrum kosti sigar á þjóð hennar - og annarra, sem hún stjórnar gegnum ESB, eins og þegar hún gekk frá Grikklandi - og svo er það aðhlátursvirkið Schengen

- WSJ: Berlin fears a meltdown of the Turkish economy could spill over into Europe, cause further unrest in the Middle East and trigger a new wave of immigration toward the north. "We would do a lot to try to stabilize Turkey, a senior German official said. We dont have much choice."

Komið er nefnilega í ljós að þar sem Angela Merkel hefur drepið Grikkland alveg, þá er kannski hægt að senda Tyrklandi pakkann sem komst ekki í póstkassa Grikkja. Aðstoð við hið rússneskt eftirhermda ríki Erdogans í Tyrklandi, mun svo tryggja AfD-flokkinum völdin í Austur-Þýskalandi öllu og moka CDU-flokki Merkels út úr bunker. Og svo eru það október-kosningarnar í Bæjaralandi, þar er CSU-systurflokkur hennar nú fallinn úr 47,7 prósentum í kosningunum 2013 og niður í 36 prósent fylgi, eins og það mælist í dag. Og þessa dagana mælist AfD (Valkostur fyrir Þýskaland) næst stærsti flokkurinn í öllu landinu. Flokkur Angelu Merkel er hins vegar fallinn niður í aðeins 28 prósent flokk í fylgi og SPD-flokk þýskra sósíaldemókrata tekur sig varla að nefna á nafn lengur

Austur-Þýskaland er enn svo gott sem fast á efnahagslegu klósetti miðað við Vestur-Þýskaland, þrátt fyrir endursameininguna 1990. Það mun taka 200 ár að jafna muninn, ef það þá nokkru sinni tekst. "Sértu G20-velkomin til helvítis-ástands" Þýskalands, hverfur ekki í bráð, heldur mun það bara versna, ofan í allt annað vont sem Merkel hefur framleitt af vandamálum handa Þýskalandi og flestum ríkjum ESB

Mattis segir (án ESB)

Að sögn "fjölmiðla" sagði James Mattis varnarmálaráðherra Bandaríkjanna í gær, að engar áætlanir væru um að fresta fleiri stórstíluðum heræfingum með Suður-Kóreu, af tillitssemi við Norður-Kóreu

Fyrri færsla

Búið ykkur undir nýja flugeldasýningu Norður-Kóreu [u]


Bloggfærslur 29. ágúst 2018

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband