Leita í fréttum mbl.is

Nú segjast þeir geta í evrum í ESB

fxplot 2018-08-22 at 10.28

Gengisþórun nokkura gjaldmiðla frá því í apríl, miðað við Bandaríkjadal

****

Utanríkisráðherra Þýskalands, Heiko Maas, segir að til þess að "bjarga" því súra bruggi sem Barack Obama samdi um við Íran -þ.e. kjarnorkumálin- að þá verði Evrópusambandið að búa til alþjóðlegt greiðslukerfi sem Bandaríkin geti ekki truflað, svo að ESB-löndin geti haldið áfram viðskiptum við íranska klerkaveldið sem er með þróun kjarnorkuvopa á sínum prjónum

Stutt er að minnast þess er seðlabanki Bandaríkjanna bjargaði í tvígang evrunni frá vissum dauða með því að opna gjaldmiðlaskiptagátt til handa ECB-seðlabankanum upp á gátt, svo bjarga mætti evrunni frá því að leysast upp sem peningakerfi - og Evrópusambandslöndum frá þjóðargjaldþrotum með því að Bandaríski seðlabankinn bjargaði AIG, sem tryggði flestar skuldir fjármálakerfa evrulanda, og sem voru svo hátt upp-gíruð, miðað við eiginfé, að þau eru ekki enn komin út úr mýrunum sem evran gróf þau föst í með fölsunum á lífsins staðreyndum. Fjármálakerfin á evrusvæðinu gátu þá ekki lengur staðið við skuldbindingar sínar í Bandaríkjadölum, vegna þess að heimurinn beið eftir því að allt evrukerfið léti þarna lífið, er loksins á það reyndi. Það stóðst ekki álagið og enginn vildi eiga viðskipti við það í öðrum gjaldmiðlum en Bandaríkjadölum. Þarna kom í ljós að hin stofnanalega og afskræmda hugmyndafræðilega uppsetning peningakerfis evrunnar hvíldi á sandi. Ekki tókst því að halda kerfinu á lífi, því allir vissu að það var að enda líf sitt í þurrð (e. non liquid) og fjármagnsflótta á milli evrulanda í takt við yfirboð ríkisstjórna um ríkisábyrgðir, um miðjar reykfylltar nætur. Aðeins ótakmarkað aðgengi að bandarískum dölum úr hirslum bandaríska seðlabankans bjargaði evrukerfinu frá vissum dauða - í tvígang

Fróðlegt verður að fylgjast með því hvernig bandaríski seðlabankinn bregst við næst, nú þegar margir útflutningsmarkaðir evrulanda eru vel hugsanlega að sogast inn í nýja alþjóðlega gjaldeyriskrísu, með helstu eldsupptök í Tyrklandi, ásamt nokkrum öðrum stærri þróunarríkjum jarðar. Þetta er sérstaklega áhugaverð spurning í ljósi þess að yfirvöld evrusvæðis misnotuðu þá aðstoð sem bandaríski seðlabankinn veitti þeim síðast, því sú aðstoð var notuð til að ná sér niðri á þeim ríkjum sem hétu ekki vissum nöfnum og bjuggu helst í suðri. Nefna má til dæmis Grikkland, Írland, Portúgal, Spán og Ítalíu, svo ekki sé minnst á Ísland. Útkoma krísunnar í myntbandalagi ESB var gerð háð þjóðerni, þó svo að allt öðru hafi verið haldið fram þegar löndin gengu í það og skuldsettu sig á þeim forsendum

Skuldastaða ríkisstjórna á evrusvæðinu í heild, miðað við landsframleiðslu, er mun verri í dag (87%) en hún var þegar síðasta kreppa skall á myntsvæðinu 2008 (69%) og sem lítið hefur gengið að draga úr. Sú kreppa varir því að stórum hluta til enn á evrusvæðinu, 10 árum síðar. Og þar sem fyrirkomulag alþjóðaviðskipta er farið að snúast um að Alþjóðaviðskiptastofnunin WTO muni ekki geta innihaldið Bandaríkin mikið lengur, sé Kína þar meðlimur líka, þá er ekki líklegt að mynt kínverska kommúnistaflokksins geti bjargað evrusvæðinu fyrir næsta horn. Og ekki eru það útgjöld til varnarmála sem íþyngt hafa ríkisstjórnum evrulanda, þvert á móti

Væri ég Donald Trump myndi ég íhuga að skilyrða næstu aðstoð því, að gengið verði fram hjá ECB-seðlabanka Evrópusambandsins og hún aðeins veitt beint til seðlabanka þjóða, því aðeins þjóðir geta verið trygging og ábyrgar fyrir því að greitt sé til baka, og þar með því að aðstoðin sé ekki misnotuð eins og síðast - og sem að mörgu leyti varð til þess að gera Evrópusambandinu kleift að halda efnahag heimsins í gíslingu

Ronald Reagan gagnrýndi stundum ákvarðanir seðlabanka Bandaríkjanna og hélt honum við tvíþættar frumskyldur sínar. Hið sama er byrjað að sjást hjá Donald J. Trump í dag

Fyrri færsla

Einn plús einn látinn laus úr pólitískum fangabúðum Erdogans og Merkels


Bloggfærslur 22. ágúst 2018

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband