Leita í fréttum mbl.is

Gengisfall í evru-Evrópu og nágrenni

Benedikt evru-Bimbo verður varla hress í dag. Tyrkneska líran hefur dregið evruna hans niður um rúmlega eitt prósent í andrá dagsins, því líran er fallin um 17 prósent í dag. Þýskir gíslar í evrulandi komast þá ekki til Íslands í ár né heldur á þeim næstu, því gjaldmiðill þeirra er evran sem stöðvar hér enn frekar innflutning á íslenskri ferðaþjónustu til þýskra gísla evrulands, sem hafa ekki efni á neinu, því raun-kaupmáttur þeirra hefur ekkert lagast í 18 ár, þökk sé evru

Bankar evrulands fóru líka á samstundis-hálfhvolf í dag og seðlabankastjóri ECB-aukaseðlabanka Þýskalands hefur áhyggjur af smitum á hina nú þegar fárveiku stórbanka evrulanda. Þannig hrundi Deutsche Bank um rúm fimm prósent í einum grænum og frönsku stórbankarnir tveir um BNP-fjögur prósent og SOC um þrjú prósent. Hið þýska útibú Akbank, sem er stærsti banki Tyrklands, hrundi um 23 prósent í Frankfurt dag. Svo koma Spánarbankar og evrustórslys Ítalíu eftir helgi og hella glóandi hömsum út á evrusteypuna, sem er réttur dagsins alla daga, því með þýskan ritvéla-gjaldmiðil hefur aðeins yfirstéttin efni á ekta saltfisk. Bilbao-bankinn og UniCredit gáfu mínus fimm til sex prósent tóninn í dag

Bimbo-evra Benedikts grefur undan ferðaþjónustuútgerð á Íslandi í takt við upplausn Evrópusambandsins. Evran er nú fallin um tæp 30 prósent gagnvart Bandaríkjadal, frá því að fjármálabóla ECB-aukaseðlabanka Þýskalands fyllti öll bakherbergi evrusvæðis af reyk, og setti á svið 100 þátta neyðarfundarseríu fyrir það vonlitla fólk sem búa þarf við gerspillt stjórnarfar Evrópusambandsins og evru, þar sem engin gengis-skóstærð evru passar neinum, nema hinu uber-útflutningsháða óðaöldrunarhagkerfi Þýskalands

Fyrri færsla

Tuttugu og þrjú ár síðan að fyrsta internet-fyrirtækið var skráð á markað


Bloggfærslur 10. ágúst 2018

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband