Leita í fréttum mbl.is

Fyrirtækin munu segja upp fólki

Framleiðni eftir kyni aldri og hjúskaparstöðu

Mynd WSJ: Framleiðni eftir kyni, hjúskaparstöðu og aldri. Eru það ábyrgðarfullir miðaldra feður sem halda hagvexti uppi? (WSJ). Sennilega, því þeir eiga börn. Og svo er líka erfitt er að verða góður yfirmaður, nema að hafa átt börn. Það segja stjórnunarfræðin. Að eignast börn er lykillinn að farsælla lífi - fyrir alla

****

Þegar launakostnaður fyrirtækja verður of hár, er lítið annað að gera en að reyna að lækka hann. Það er hægt með því að segja upp fólki og reyna að efla framleiðni þeirra sem eftir eru, eða sem koma inn næst. Segist fyrirtækjum svo hugur að þvinga eigi upp á þau enn hærri launakostnað en þegar er orðinn, þá mun fjöldi uppsagna afvopna verkalýðshreyfinguna að hluta til. Það er gefið og vitað

Í því ofsagóðæri sem verið hefur undanfarin ár er líklegt að framleiðni sé ekki upp á marga fiska. Þeir sem vilja fara ofsaleiðina í kjölfar ofsagóðæris, hljóta að mæta fullu húsi af eiginfé fyrirtækjanna sem nota má til að koma framleiðni upp á ný og til að bæta framleiðslu á vörum og þjónustu. En þar sem ríki og bær njóta sérstöðu með því að fá að gera almannafé gratís upptækt, þá er ekki víst að þetta dugi til að halda hagvexti uppi. Stór opinber rekstur er vandamál sem elur af sér stöðnun og handjárnun hagvaxtar

Hagvöxtur er t.d. munurinn á heilbrigðiskerfinu 1930 og 2018, þ.e. núna. Sama byggingin, en allt önnur útkoma, því það var hagvöxtur sem skaffaði þá velmegun sem menntaði starfsfólk, þróaði græjur og lyf. Þeir sem skilja ekki hagvöxt ættu að láta leggja sig inn á sjúkrahúsið eins og það var 1930. Sama byggingin, en nú niðurslitin, vegna skorts á hagvexti, en óbreytt útkoma og enn verri vegna slits. Án velmegunar (hagvaxtar) er engin velferð fyrir stjórnmálamenn til að deila út. Allar tekjur hins opinbera koma frá fyrirtækjum landsins. Allar. Engar aðrar tekjur eru til

Fyrri færsla

Á meðan Ísland er selt: "getum ekkert að gert" volið, einu sinni enn


Bloggfærslur 30. júlí 2018

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband