Leita í fréttum mbl.is

Ég sagaði af mér hausinn (næstum)

Enginn ostur - engin pylsa

Tvær greinar í Morgunblaðinu í dag fá mann til að saga af sér hausinn. Til vinstri er grein um hrokann sem þingflokkur pírataskíthæla og þingmaður lýðskrumsfylkingar sýndu forseta Folketinget, sem er þjóðþing Dana. En til hægri á sömu síðu er grein sem vonar að við (já Íslendingar) "festum okkur ekki í sessi sem (ó)menningarleg hjálenda Bandaríkjanna"

Bob bob, jamen dét er ju bare dejligt! Það er nú það. Halla ég mér svo aftur og virði síðuna fyrir mér. Horfi fyrst til vinstri og síðan til hægri. Aftur og aftur - og saga af mér hausinn, því það er svo stutt síðan að Bandaríkin voru hjálenda/nýlenda eins og við. Þau sigruðu nýlenduherra sinn, breska heimsveldið, eins og við sjálf sigruðum loks og fengum okkar fullveldi, en sem nú er notað til að selja landið undan þjóðinni, á hundrað ára afmæli þess. Þökk sé "stórmenningu Evrópu", sem frá dögum Rómarríkis, ávallt hefur leitast við að setja Evrópumennið í stað Guðs. Síðast í gamla sovétinu en í dag í nýju ESB. Ekkert nema hörmungar hefur stærstur hluti ómenningar Evrópu fært okkur. Álfan þar sem vér einir vitum-pakkið býr, með alla sína að-mestu misheppnuðu heimspeki og sem síðast dritaði yfir álfuna svo kallaðri "upplýsingu" með klikkaðan Kant í fararbroddi hins nýja úníversal allsherjarsovéts, sem koma skyldi

En samt átti breska heimsveldið heilar aldir eftir af góðu þurru púðri, þó svo að Bandaríkin sigruðu það. Þetta er náttúrlega allt svo alveg hroðalega ó-menningarlegt að það jaðrar við hamborgara, pitsur og gult hár. Svo skrifuðu þeir stjórnarskrá sem studdist pólitískt hugmyndafræðilega að mestu við Gamla Testamentið, en bara þrjú prósent við kommann John Locke, og komust þar með glans hjá því að enda sem algerlega misheppnað Frakkland. Hún stendur enn sú stjórnarskrá Bandaríkjanna, því henni er nákvæmlega sama um gult og bleikt hár og úníversal réttindi andskotans

Svo ég hugsa; hvort var nú verra á einni og sömu síðunni, fyrirlitningin sem lýst er til vinstri, eða sá (tja hvað á maður að segja) rassismi? sem þulinn er til hægri. Njörður: af hverju hernemur þú ekki heiminn og gerist alheimssetulið eins og Sovétríkin ætluðu að verða. Það hlýtur að ganga upp, ef reynt er aftur, eina ferðina enn. Hold da kæft mand, vi prøver sgu igen (við prófum nýtt Sovét Aps fyrst að gamla Sovét A/S fór á hausinn (það þarf minna startkapítal í Aps))

Íslenskir vinstrimenn snobbuðu takmarkalaust fyrir kommamenningarkláminu úr austri. En það sem verra var, margir áttavilltir hægrimenn gerðu það líka - og sögðu skál - og gera enn

Jæja, nú er að verða komin milljón prósent verðbólga í Venesúela. Hún mun ná því stigi á þessu ári, segir Reuters. Skrifast 1.000.000%. Skálið þið vinstrimenn, skálið.. og I prøver sgu igen.. og igen..

Fyrri færsla

Frosti: Ráðal­eysið al­gert meðan landið er selt und­an þjóðinni


Bloggfærslur 25. júlí 2018

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband