Leita í fréttum mbl.is

Nefndar-landamæri Evrópu virka ekki, allt í steik

Í Bláhryggjafjöllum

Afkomendur vesturfaranna, og kjósendur, sem björguðu gamla heiminum, tvisvar. Evrópa hvað... Allt kannski ónýtt hjá ykkur aftur, eina ferðina enn? Svo er það Bill í næstu sýslu og dagurinn þegar Churchill 

****

Henni var brugðið henni Angelu Merkel. Á fundi í flokki sínum á þriðjudag var henni svo gott sem afneitað. Aðeins enginn af 13 þingmönnum á fundinum studdu hana, því tveir sátu hjá. Sögðu þýsk blöð að hún hefði komið eins og liðið lík út af þessum fundi (mitt orðalag), svo brugðið var henni (þeirra orðalag). Fundurinn snérist um innri sem ytri landamæri Evrópusambandsins. En þau eru ein stór klessa út í gegn. Ekkert virkar og landamæra-teppasprengjubúr ESB-ríkjanna stækkar bara og stækkar, þar til stóri hvellur hleypir lagernum út. Sprengjubúrið bókstaflega tifar

Um er að ræða innflytjendamála-óskapnaðinn sem Angela Merkel kallaði yfir lönd Evrópusambandsins, er hún veifaði milljónum óskoðaðra ófriðardúfna inn í sambandið, sem Þýskaland þykist nú ráða yfir. Innanríkisráðherra hennar heimtar að ólöglegu fólki sé nú vísað frá við landamæri Þýskalands og snúið aftur til þess lands sem það kom fyrst til. Málið tengist aðgerðum nýkjörinna ítalskra stjórnvalda sem snéru skipi með hælisleitendum frá, og tístu "sigur" þegar Spánn neyddist til að taka við því. Sama og Frakkland gerði þegar samskonar fólk ætlaði inn í Frakkland frá Ítalíu, en sem franski forsetinn fordæmir hins vegar Ítalíu fyrir að gera núna. Tvöfaldur skítamórall er sérgrein Evrópusambandsins, sem lærist um leið og maður gengur í það

Þýski innanríkisráðherrann, hennar maður, neitar að taka við fleira fólki og vill fara leið þeirra sem Merkel hefur fordæmt svo hart; snúa fólki við og láta aðra um um að sitja uppi með þau vandamál sem Merkel bjó til handa þeim. Um er að ræða tíu þúsund manna áhlaup á sambandið á mánuði núna. Er því annað hvort um afsögn þýska innanríkisráðherrans að ræða, eða friðþægingu. Og þar sem meiri hluti þýsku ríkisstjórnarinnar er svo afar lítill, þá er staðan krítísk. Þýska stjórnleysið blasir við öllum og í haust eru kosningar í Bæjaralandi. Þeir sem vilja fremja meira pólitískt harakíri, þeir standa með Merkel, sem sennilega er fallin, og deyja. Það styttist í vantraust á hana, bæði í flokk hennar og á þingi. Þegar hún fer frá, þá mun hún að sögn AfD og öryggis síns vegna, neyðast til að nota gömlu flóttaleið nasista til Suður-Ameríku, því hún hefur eyðilagt Þýskaland, segja þeir. "Hún er það versta sem Þýskaland hefur hýst síðan Adolf Hitler átti hér heima", segja þeir, froðufellandi af bræði

Fyrir dyrum Evrópusambandsins standa nú tvö tröll með tvær sleggjur í hönd. Upp Ítalíu koma tollar Trumps á þýska bíla með forstjóra á leið fangelsi, á meðan sautján-pundara 76mm Sherman-hlaup hins breska Firefly yfir Ermasund, stútar restinni af Evrópusambandinu, sem virðist skrúfað saman eins og þýskur Tiger II, sem þurfti tíu tíma viðhald til að geta gengið eina klukkustund. Að skipta við Stóra-Bretland á venjulegum tollasáttmálum, er stærð sem fær bílatolla Trumps til að líkjast engu. Þetta mun sambandið ekki þola, samtímis. Hvorki innvortis á milli ESB-ríkjanna sjálfra, né útvortis við heim Engilsaxa, sem er stór og stærstur. Þetta var stutt frétt úr "friðarsambandinu"

Góðar fréttir úr landi krónu og dals

Í gær horfði ég á seðlabanka Bandaríkjadals og Íslandskrónu segja frá stýrivaxtaákvörðunum sínum. Vestanhafs eru allar fréttir svo góðar að seðlastjórinn gat notað mannamál við frásögnina: stutt og laggott, allt er bara að verða great again

Og á krónusvæðinu gengur allt svo vel að enginn mætti í Seðlabankann til að spyrja neins, nema tveir, eða þrír. Restin sat köfnuð í þéttri byggð. Einn góður og annar sem virtist, fyrir slysni, hafa keypt þvaður um húsnæðisliðagikt vísitölu. En honum tókst sennilega að skila tölunni til baka í hnappagatið á þeirri upplognu skyrtu sem hún var úr, því allt fór vel

Allt er vel hjá dal og krónu, enda ekta gjaldmiðlar báðir, sem leysast ekki upp

Fyrri færsla

"Heimurinn mun sjá breytingar" sagði Kim [u]


Bloggfærslur 14. júní 2018

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband